Morgunblaðið - 21.05.1988, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
Tel að refabændur reyni
að basla til haustsins
segir Ævarr Hjartarson ráðunautur
„Ég- álít að refabændur reyni
að basla til haustsins enda eru
læður hvolpafullar nú og komið
að goti,“ sagð Ævarr Hjartarson
loðdýraráðunautur iýá Búnaðar-
sambandi Eyjafjarðar í samtali
við Morgunblaðið.
Ævarr sagði að deilt hefði verið
á leiðbeiningaþjónustuna þannig að
hún hafi att bændum út í refarækt
enda hefði staðan þá, í kringum
1980, verið mjög góð. Verð á refa-
skinninu þá var um 5.000 krónur.
„Með tilliti til þess finnst manni
ekkert óeðlilegt að bændur færu út
í refarækt. f annan stað vorum við
með sýktan minkastofn í landinu
svo hann kom þá ekki til greina.
Síðan þá hefur verð á heimsmark-
aði verið á niðurleið. Þeir bændur,
sem byrjuðu strax, hafa fengið ein-
hvern hagnað fyrstu eitt til tvö ár-
in, en síðan hefur refaræktin verið
rekin með tapi.“
Ævarr sagði að menn héldu að
hægt væri að ná fóðurverði frekar
niður. „Hráeftiiskostnaður hjá okk-
ur er mun minni en hjá nágranna-
þjóðunum, en fjármagnskostnaður-
inn hjá okkur er mikill á stöðvun-
um. Fóðurstöð verður ekki byggð
upp í takt við notkunina. Fjárfest-
ingamar hafa ekki nýst að fullu
þar sem fóðurstöðvamar hafa getað
annað miklu meira en dýrastofninn
gefur tillefni til. Hinsvegar horfir
maður fram á það nú, að hægt sé
að sjá fram á fulla nýtingu á fóður-
stöðvunum, þar sem dýrastofninn
er orðinn það mikill.“ Ævarr sagði
að gagnrýni leyfaúthlutunar fyrir
refabúum ætti mikinn rétt á sér.
Búin hefðu dreifst of mikið um
landið þótt það eitt hefði ekki sett
refabúskapinn á hausinn. Það er
fyrst og fremst heimsmarkaðsverð-
ið, sem sett hefur refaræktina á
hausinn og þessi refatískulægð,
sem ætlar að reynast refabændum
bæði löng og erfið.
Öðru vísi er þó farið með minka-
framleiðsluna og selst ávallt mun
meira af minkaskinnum, að sögn
Ævarrs. Framleidd eru á ári hveiju
um og yfir 30 milljónir minkaskinna
í heiminum, en í refnum er árs-
framleiðslan um sex milljónir
skinna. Samt sem áður gengur verr
að selja refaskinnin. Ævarr sagðist
telja að ná þyrfti fóðurverði veru-
lega niður. „Fóðurverðið þarf að
lækka um þijár krónur á kg. — úr
11 krónum í 8 krónur. Hver króna
í fóðurverði þýðir hækkun á tekjum
til bóndans um 125 krónur á hvert
refaskinn. Síðan þarf hreinlega að
hjálpa mönnum að skipta refnum
út fyrir mink, þó ekki í neinu stökki.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Benedikt Alexandersson refa-
bóndi Ytri-Bakka í Arnarnes-
hreppi.
þess að nýta þær eignir er tengjast
refauppbyggingunni.
Ég held að rétt væri að drepa
dýrin þó stofninum yrði viðhaldið á
einhveijum búum og refabændum
veitt greiðslustöðvun í stað þess að
halda áfram að framleiða í offram-
leiðsluna. Ég býst ekki við að Stofn-
lánadeildin hefði nokkuð að gera
með jarðimar okkar þó hún léti
gera okkur upp. Það eru 30 ár síðan
ég hóf minn búskap hér og átti ég
allt mitt skuldlaust áður en ég fór
út í refaræktina og var kominn með
fasteignamat á jörðinni minni upp
á 21 milljón króna. Ég fór út í refa-
ræktina að vel athuguðu máli árið
1983 og seldi alla kvóta af jörðinni
vegna fyrirhugaðra búháttabreyt-
inga er til stóðu enda þýddi lítið
að ætla sér að fara að byggja fjós
til að framleiða mjólk ofan í alla
offramleiðsluna. Nú er staðan sem
sagt þannig að hér er allt veðsett
upp í topp og sé ég fram á að geta
hvorki selt, hætt né haldið áfram,"
sagði Benedikt að lokum.
Við höldum enn í þá von að refa-
verðið komist upp aftur ef litið er
á þá staðreynd að refamarkaðurinn
hefur alla tíð verið sveiflukenndur.
Þá er lausafjárstaða refabænda
mjög slæm og fínnst mér að stjóm-
völd ættu að íhuga hvort hægt
væri að skuldbreyta lánum."
Stofnlánadeild landbúnaðarins
lánar 60% til fjárfestinga í húsum
og búrum. Lánin eru verðtryggð
með 2% vöxtum til 25 ára. Sam-
kvæmt jarðarlögum fá menn fasta
upphæð 600.000 krónur út á jafn-
marga fermetra á býli og síðan er
misjöfn fyrirgreiðsla í fram-
kvæmdasjóði eftir því hvemig menn
standa að búháttabreytingum
Gefið í refabúi Dalalæðu hf.
sínum. „Þessi fyrirgreiðsla er ekki
svo slæm, en þegar menn verða
fyrir því að ná ekki tekjum og þurfa
að lifa á skuldaaukningu, sem er
bæði á dráttarvöxtum og erfíðum
kjörum, þá vindur skuldahalinn upp
á sig fljótt þegar farið er að velta
víxlum í bankastofnunum. “ Ævarr
sagði að refabændur fengu tæplega
helmingsverð framleiðslu sinnar á
mörkuðunum. Framleiðsla refa-
skottsins kostaði þá um 3.000 kbón-
ur og'við skinnasöluna fengu þeir
aðeins um 1.400 krónur fyrir það.
Þarf að skuldbreyta lánum
og fækka refnum verulega
— segir Skarphéðinn Pétursson hjá Dalalæðu hf. í Svarfaðardal
Get ekki selt, hætt
eða haldið áfram
— segir Benedikt
Alexandersson refa-
bóndi Ytri-Bakka
„Vandi refabænda er fyrst og
fremst sölutregða á refaskinn-
um. Tískan virðist ráða mestu
þó framboðið komi vissulega inn
í dæmið líka, en framboð er talið
20% of mikið í heiminum," sagði
.JBenedikt Alexandersson refa-
bóndi á Ytri-Bakka í Arnarnes-
hreppi.
„A íslandi liggur miklu meiri
flárfesting í uppbyggingu refabú-
skapar heldur en hjá nágrannaþjóð-
unum og fóðurverðið er ekki einu
sinni samkeppnishæft. Síðustu að-
gerðir stjómvalda til hjálpar refa-
bændum gerðu ekkert annað en að
lengja í hengingarólinni. Ég er í
sjálfu sér ekkert hlynntur því að
verið sé að styrkja eitt né neitt, en
við verðum að fá svar frá hinu opin-
bera ekki seinna en strax um það
hvort vilji sé fyrir því að refarækt-
inni verði haldið áfram. Ég er til
dæmis búinn að fæða 260 refalæð-
ur fyrir 160.000 krónur frá áramót-
um. Ef ég held áfram til áramóta,
fæ meðalgot og fer út í pelsun,
má reikna með að 120 kg af fóðri
fari í framleiðslu hvers skinns og
verður þá fóðurkostnaðurinn einn
saman kominn í tvær milljónir um
áramót auk vaxtagreiðslna af lán-
um. Bændur standa nú frammi fyr-
ir því að drepa læðumar hvolpafull-
ar áður en þeir tapa meiru en orðið
er. Þess vegna liggur okkur á svör-
um. Hvað ætlast stjómvöld fyrir?"
Benedikt sagði að ýmsir agnúar
væru á því að hjálpa refabændum
að skipta yfir í mink. Fyrir það
fyrsta yrði rekstrargrundvelli fóð-
urstöðvanna endanlega kippt undan
þeim þar sem hver refur æti á við
tvo minka. „Þá fengi ég betri lána-
fyrirgreiðslu ef ég dræpi refinn,
léti húsin og búrin standa auð og
byggði upp nýtt minkabú, í stað
„Staðan er mjög slæm og er-
fitt orðið að halda refabúskapn-
um gangandi. Við erum þó ný-
byijaðir með minkinn og fengum
okkur á síðasta ári 500 minka-
læður. Við byggðum 1982 og
fengum 200 refalæður ári síðar.
Þegar við fórum af stað var mjög
erfitt að byggja og fá fjármagn.
Verðbólgan var að ijúka upp i
100% þannig að erfiðleikamir
byijuðu strax. Þá fengum við
engan styrk úr framleiðnisjóði
og söluskattinn ekki endur-
greiddan strax og búið er að
byggja, eins og nú tíðkast. Það
skammtímafjármagn, sem við
fengum þá, hefur reynst okkur
einna erfiðast," sagði Skarphéð-
inn Pétursson sem rekur Dala-
Iæðu hf. að Dýrholti í Svarfaðar-
dal.
„Maður verður kærulaus á þessu,
hlaupandi á milli bankastofnana,
semjandi um framlengingu á víxlum
og öðru þess háttar," sagði Skarp-
héðinn. Skammtímaskuldir fyrir-
tækisins eru hátt í þijár milljónir
króna sem eingöngu má rekja til
taps fyrirtækisins síðustu ára. „Árið
1986, sem var mjög slæmt ár, náði
skinnasalan ekki einu sinni að
greiða afurðalánin, sem við fáum
til að reka búin, borga fóður og
laun. Mér sýnist árið 1987 ætla að
verða lítið betra. Við fáum 140.000
króna afurðalán á mánuði sem á
að duga til að greiða tveimur starfs-
mönnum laun og greiða fóðurkostn-
að. „Vitleysislega hefur verið staðið
að veitingu leyfa með tilliti til stað-
setninga fóðurstöðva. Það er það
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skarphéðinn Pétursson hjá Dala-
læðu hf. i Svarfaðardal.
dýrt að flytja fóðrið. Stærstu búin
hér um slóðir greiða því fóður veru-
lega niður fyrir þá sem eru með
30-40 refalæður austur í Fnjóska-
dal. Keyra þarf fóðrinu til þeirra
alla leið frá Dalvík."
Skarphéðinn telur að skynsam-
legast hefði verið að skera refa-
stofnion niður um helming um
sfðustu áramót. Fyrirsjáanlegt er
svo mikið tap á hveiju skinni og
hleður það einungis utan á sig, eins
og staðan er í dag. Ég hefði þurft
að vera kominn með minkinn fyrir
þremur árum til að greiða upp tap-
ið á refnum. Samkvæmt síðustu
aðgerðum stjómvalda til hjálpar
refabændum fær Dalalæða hf. um
það bil 700.000 króna stuðning,
sem Skarphéðinn telur að þurfi að
vera að minnsta kosti helmingi
hærri upphæð.
„Að mínu mati átti að skuld-
breyta vanskilunum strax um ára-
mót í langtímalán. Um síðustu ára-
mót voru refabændur í biðstöðu og
voru að hugsa alvarlega um vera-
legan niðurskurð. Mönnum var ráð-
lagt að fækka ekki refnum því til
stæðu aðgerðir af hálfu stjómvalda
sem menn hafa trúað á,“ sagði
Skarphéðinn. Hann sagði að staða
þeirra refabænda, sem hefðu haft
hefðbundinn búskap hér áður fyrr,
væri hvað verst. Þeir væra búnir
að selja allan framleiðslurétt af
jörðum sínum og stæðu nú ein-
göngu uppi með bullandi taprekstur
og jarðimar veðsettar fyrir öllu
saman.
Fasteignir á
AKUREYRI
vaxandi bær
Passíukórinn:
Lýkur starfsárinu
með tónleikum
Sextánda starfsári Passíukórsins á Akureyri lýkur með tónleikum
í Akureyrarkirkju annan dag hvftasunnu kl. 17.00. Á efnisskránni
eru tvö verk, Requim eftir Gabriel Fauré og kantatan Jauchzet ihr
Himmel eftir Telemann. Flytjendur auk kórsins eru einsöngvararnir
Margrét Bóasdóttir, Michael J. Clarke og Þuríður Baldursdóttir,
Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari, Monika Abendroth hörpuleik-
ari ásamt nokkrum fleiri hljóðfæraleikurum. Stjórnandi verður Roar
Kvam.
EIGNAKJ0R
Faatelgnasala Hafnaratrwtl 108.
Slml 26441
JORÐ ca 6 km frá Akureyri. Mikið
landrými. Enginn kvóti. Ýmis skipti
möguleg.
• Nýleg hús í Glerárhverfi.
• Einbýlishús viö Stapasíöu,
Sunnuhlíö og Bakkahlíö.
• Tvö raöhús viö Rimasíöu.
&
Passíukórinn hefur starfað af
krafti í vetur sem endranær. Aðal-
markmiðið með stofnun kórsins var
„að flytja meiriháttar verk tón-
bókmenntanna", svo vitnað sé f lög
kórsins. Oft hefur reynst erfitt að
fá fjárhagslega dæmið til að ganga
upp við flutning stórra verka, segir
í frétt frá kómum. Stofnandi kórs-
ins og stjómandi Roar Kvam hefur
þó ekki látið deigan síga og á
hvetju starfsári era tekin fyrir ný
verkefni.
Fasteignasalan
Brekkugötu 4,
Símí 21744.
Op!A alla vlrka daga frá kl. 9-18.
Gunnar Sótnea hri., J6n Kr. Sólnaa hrl.
og Aml Pálaaon hdl.________
Sýnishorn úr söluskrá:
Höfðahlíö: Mjög góö sérhæð
um 140 fm. Allt sér.
Gerðahverfi: Gott einbhús é
einni hæð + bilsk. Samtals um 165fm.
Gerðahverfi: Gott einbhús,
hæð, kj. að fiiuta + tvöf. bílsk. Alts
um 300 fm. Skipti é húseign é Akur-
eyri eða i Reykjavik.
Stapasfða: Mjög gott einbhús
á tveimur hæðum ásamt biisk. Alls
um 300 fm.
Úrval fastelgna á skrá ásamt varal.-,
Iðnaðar- og skrtfsthúsn.
Sölustj. Sssvar Jónatansson.