Morgunblaðið - 21.05.1988, Síða 39
J. /1\Q k
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
Allar nýbyggingar 1 Kvos-
inni í ósamræmi við skipulag
Skipulagshöfundar og borgarskipulag ekki gert athugasemdir
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Sigurjón Kristjánsson afhendir Ásmundi Ólafssyni minningargjöf
um son sinn.
KVOSARSKIPULAGIÐ var enn á
ný til umræðu i borgurstjórn á
fimmtudagskvöldið. Minnihluta-
fulltrúar sögðu að ekki hefði ver-
ið farið eftir skipulaginu við
hönnun neins af þeim húsum, sem
framkvæmdir hafa verið hafnar
við í Kvosinni eftir að skipulagið
var samþykkt. Sögðu fulltrúar
minnihlutans að ráðhúsbygging-
in, fyrirhuguð bygging Happ-
drættis Háskólans við Suðurgötu
og Ijamargötu og nýbygging við
Aðalstræti 8 færu allar út fyrir
ramma skipulagsins. Sjálfstæðis-
menn vitnuðu hins vegar til skipu-
lagshöfunda og borgarskipulags,
sem athugað hafa teikningar af
Morgunblaðið/Þorkell
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar fer utan til tónleikahalds í næstu viku. Nú stendur yfir sala á hljóð-
snældu skólasveitarinnar til styrktar ferðinni.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar:
Farið til Austurríkis og Ítalíu
SKÓLAHLJÓMSVEIT Mos-
fellsbæjar leggur af stað f
fimmtán daga tónleikaferð til
Austurríkis og Ítalíu næstkom-
andi fimmtudag. Ferðin hefur
verið f undirbúningi í tvö ár
og lokaátak fjáröflunar stend-
ur nú yfir. Meðlimir hþ'ómsveit-
arinnar hófu nýverið sölu á
hljóðsnældu sem tekin var upp
á uppstigningardag.
Þetta er fjórða utanlandsferð
hljómsveitarinnar og gert er ráð
fyrir að haldnir verði yfir tfu tón-
leikar. Stærstu hljómleikamir
verða í Salzburg, bænum Seekirc-
hen og í Vínarborg þar sem með-
al annars verður leikið í höfuð-
stöðvum Matvæla- og landbúnað-
arstofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Einnig f Leoben, Graz og á Lign-
ano á Ítalíu en sfðustu hijómleik-
arnir verða í Verona.
Stjómandi hljómsveitarinnar er
Birgir D. Sveinsson, skólastjóri
Varmárskóla. Hann stofnaði
sveitina fyrir tæpum 25 árum og
kveðst hafa byggt hana upp með
hjálp góðra manna. Um nfutfu
böm og unglingar taka þátt í
starfinu en elstu meðlimir hljóm-
sveitarinnar, um fjörutíu talsins,
fara utan. Sumir þeirra em að
fara í sína þriðju utanlandsferð
með sveitinni.
Fjár hefur verið aflað til farar-
innar með ýmsum hætti; blóma-
sölu, tónleikum og skemmtunum
og nú sfðast útgáfu og sölu hljóð-
snældu skólasveitarinnar. Birgir
vildi koma á framfæri þakklæti
til íbúa Mosfellssveitar fyrir góðan
stuðning og vonaðist til að snæl-
dunni yrði vel tekið.
Bamakór Varmárskóla hyggur
einnig á utanlandsför. Haldið
verður f tveggja vikna ferð til
Frakklands í byijun júlf. Söng-
stjóri kórsins er Guðmundur Ómar
óskarsson.
þessum húsum og ekki gert at-
hugasemdir.
Guðrún Ágústsdóttir (Abl) sagði
að Reykjavíkurborg hé?ði gengið á
undan með slæmu fordæmi við und-
irbúning ráðhúsbyggingarinnar við
’ljömina, þar sem ekki hefði verið
farið eftir skipulagi, meðal annars
við sameiningu lóðanna Tjamargata
11 og Vonarstræti 11. Það væri ólýð-
ræðislegt gagnvart borgarbúum að
virða ekki það stjómtæki, sem deili-
skipulag ætti að vera. Guðrún mælti
síðan fyrir bókun frá minnihlutanum
þar sem það er sagt verulegt
áhyggjuefni að þeir aðilar sem nú
séu að hefja nýbyggingar í Kvosinni
hafi allir fengið heimild til verulegra
frávika frá skipulaginu. í tveimur
tilvikum hafi nágrannar lagt fram
kærur, en það þriðja sé enn ekki
afgreitt í byggingamefnd. Það sé
því full ástæða til að minna bygging-
amefnd og skipulagsnefnd á það
hlutverk sitt að leiðbeina bygginga-
raðilum í Kvosinni og sjá til þess
að þeir haldi sig innan ramma skipu-
lagsins.
Guðrún ræddi sérstaklega fyrir-
hugaða byggingu við Aðalstræti 8.
Hún sagði að skipulagið hefði gert
ráð fyrir tveimur húsum á lóðinni,
en nú væri þar komið eitt samfellt
hús samkvæmt teikningum. Lagði
hún fram tillögu minnihlutans um
að borgarstjóm samþykkti að aug-
lýsa skipulag á lóðinni, þar sem
teikningamar væru ekki í samræmi
við skipulag og mótmæli hefðu bo-
rist frá nágrönnum. Einnig vildu
minnihlutafulltrúar beina þeim til-
lögum til byggingamefndar að
grenndarkynning færi fram vegna
nýbyggingar Háskólahappdrættisins
og kæmu fram athugasemdir íbúa.
skyldi setja málið í auglýsingu. Til-
laga þessi var felld í atkvæða-
greiðslu.
Bjarni P. Magnússon (A) lét
gera bókun vegna sameiningar lóð-
anna við Tjömina, og sagðist harma
þá ónákvæmni í vinnubrögðum sem
fram hefði komið vegna stærðar
ráðhúslóðarinnar og að borgarstjóri
hefði veitt ríkislögmanni þær upplýs-
ingar að lóð ráðhússins væri 3880
fermetrar, en hún sé mun stærri.
Nágrannar hafa kært stærð lóðar-
innar, þar sem hún sé 1000 fermetr-
um stærri en byggingarreitur, sem
uppgefinn var í skipulagi.
Hilmar Guðlaugsson (S), for-
maður byggingamefndar, sagðist
ekki muna eftir því að áður hefði
verið gert veður út af sameiningu
lóða. Það hefði verið gert í hundruð-
um tilvika án nokkurra athuga-
semda. Hvað Aðalstræti 8 varðaði,
sagði Hilmar að enn væri um tvö
hús að ræða á lóðinni, hins vegar
væri létt tengibygging úr gleri á
milli þeirra. Skipulagshöfundar og'
borgarskipulag hefðu heldur engar
athugasemdir gert við húsið. „Það
er verið að fara inn á mjög sérstak-
ar brautir ef svona þröng túlkun á
skipulagi á að vera viðtekin venja,“
sagði Hilmar.
Vilhjálmur Vilþjáimsson (S),
formaður skipulagsnefndar
Reykjavíkur, sagði að skipulags-
nefnd hefði verið vel á verði hvað
varðaði bygginguna við Aðalstræti.
Gerð hefði verið tillaga um að lækka
húsið að vestan vegna athugasemda
frá íbúum. Vilhjálmur sagði einnig
að oft hefðu verið gerðar smávægi-
legar breytingar á teikningum án
þess að fulltrúi AlþýðubandaJagsins
í skipulagsnefnd, Guðrún Ágústs-
dóttir, hefði gert athugasemdir.
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins:
Stuðningur við 42
þús. í lágmarkslaun
Á ráðstefnu Verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins, sem haldin var
í Valhöll 14. maí siðastliðinn, var
samþykkt ályktun þar sem lýst
var yfir fullum stuðningi við þá
kröfu að lægstu laun skuli ekki
vera undir 42 þúsund krónum á
mánuði.
Ályktunin er svohljóðandi: „Ráð-
stefna Verkaiýðsráðs Sjálfstæðis-
flokksins haldin laugardaginn 14.
maí 1988 áréttar við aðila vinnu-
markaðarins þá grundvallarstefnu
sjálfstæðismanna innan launþega-
samtakanna, að í allri umfjöllun um
kjaramál skulu tekin mið af þeim
sjálfsögðu mannréttindum að dag-
vinnulaun einstaklings nægi til
framfærslu meðalfjölskyldu. Með
þetta markmið að leiðarljósi og með
hliðsjón af ríkjandi aðstæðum í
þjóðfélaginu lýsir ráðstefnan yfir
fullum stuðningi við þá meginkröfu
að lægstu laun skuli ekki vera un(L
ir 42 þúsund krónum á mánuði."
Morgunblaðið/KGA
Gullsmiðirnir með nokkra sýningargripa sinna, frá vinstri Anna
Maria Sveinbjörnsdóttir, Ásdis Hafsteinsdóttir og Þorbergur
Halldórsson.
Þrír gull-
smiðir sýna
í Helsinki
ÞREMUR ungum gullsmiðum,
þeim Ásdís Hafsteinsdóttur, Önnu
Maríu Sveinbjömsdóttur og Þor-
bergi Halldórsyni, hefur verið boð-
ið að sýna í Gallerí 585, „Metal
art“ í Helsinki í Finnlandi.
Ásdís stundaði framhaldsnám
í gullsmíði í Helsinki og barst boð
um að sýna þar eftir að fréttist
af sýningu 30 gullsmiða á Kjarv-
alsstöðum í nóvember síðastliðn-
um, en hún átti gripi á sýning-
unni. Á sýningunni í Helsinki
verða eldri gripir og nýir en verið
er að leggja síðustu hönd á undir-
búning sýningarinnar. Sýningin
verður opnuð 26. maí og stendur
fram til 19. júní.
Minnihluti borgarstjórnar:
Dvalarheimili Höfða
færð minningargjöf
Akranesi.
Sigurjón Kristjánsson fyrrum
skipstjóri á Akranesi sem nú
býr á Hrafnistu í Reykjavik af-
henti dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi fyrir skömmu minn-
ingargjöf um son sinn Sævar,
sem drukknaði þann 5. janúar
1952.
Sigurjón Kristjánsson átti sitt
heimili á Akranesi um margra ára
skeið og var þar fengsæll skip-
stjóri. Hann var leiðandi maður í
félagsstarfí sjómanna og hefur
alltaf borið sérstakan hlýhug til
dvalarheimilisins Höfða enda áður
sýnt því ræktarsemi. Sævar Sigur-
jónsson, sonur Siguijóns, fórst
með mb. Val ásamt allri áhöfn 5.
janúar 1952 í miklu illviðri.
Ásmundur Ólafsson forstöðu-
maður dvalarheimilisins Höfða tók
við minningargjöfínni sem er af-
steypa af sjómannsstyttunni sem
stendur á Akratorgi á Akranesi
með áletrun og þakkaði Siguijóni
hlýhug hans til dvalarheimilisins.
Siguijón Kristjánsson bað
Morgunblaðið að koma á framfæri
innilegu þakklæti sínu til Asmund-
ar Ólafssonar, stjómar Höfða og
allra vistmanna fyrir dásamlegar
móttökur þann 11. maí. „Þettavar
ógleymanleg stund" sagði Sigur-
jón „og það er ósk mín að blessun
Guðs vaki yfir Höfða og öllum þar
um alla framtíð".
- JG
Akranes: