Morgunblaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 47
í
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988
47
Umsókn Stöðvar 2
um aðild að EBU:
Vona að
RÚV neyti
ekkiafls-
munar
- segirHans
Kristján Arnason,
stjórnarmaður
„Við vonum svo sannarlega að
RUV neyti ekki aflsmunar í þessu
máli og tefji það frekar. í skeyti,
sem okkur barst frá laganefnd
Evrópusamtaka sjónvarpsstöðva
á mánudag, segir að svo virðist
sem við uppfyllum allar kröfur
um aðild. Þau hafa þó óskað eft-
ir frekari upplýsingum um inn-
lent efni sem við höfum beðið
menntamálaráðuneytið að
vinna," sagði Hans Kristján
Amason, stjórnarmaður í ís-
lenska sjónvarpsfélaginu, i sam-
tali við Morgunblaðið. Útvarp-
stjóri Ríkisútvarpsins skilaði í
síðustu viku umsögn til EBU
vegna umsóknar Stöðvar 2 um
aðild að samtökunum.
í lok þessa mánaðar tekur stjóm-
amefnd EBU ákvörðun um umsókn
Stöðvar 2 og sagðist Hans Kristján
eiga von á jákvæðri afgreiðslu máls-
ins. „Útvarpsstjóri hefur gert þær
athugasemdir að hlutfall innlends
efnis sé ekki nægilegt en það er
ekkert sem segir að efnið skuli
nema ákveðnu hlutfalli heldur veru-
legum hluta. Samkvæmt athugun-
um okkar er heildarlengd innlends
efnis á báðum stöðvunum svipuð í
mínútum talið en ekki hlutfallið þar
sem útsendingartími Stöðvar er um
helmingi lengri en RÚV. T.d. er
meðallengd innlends efnis í vikunni
16.-22. maí svipuð en hlutfallið er
22% á Stöð 2 en 42% í Sjónvarp-
inu. Aðild Stöðvar 2 er að sjálf-
sögðu í þágu íslenskra sjónvarpsá-
horfenda," sagði Hans Kristján.
Markús Öm Antonsson útvarps-
stjóri gerði í umsögn sinni til EBU
athugasemdir við upplýsingar
Stöðvar 2 um eigin framleiðslu.
„Mönnum í útvarpsráði fannst
skringilegt að sjá að stöðin teldi
innlent efni nema 37% í stað 18%,
svo fengin var umsögn hlutlauss
aðila um dagskrá stöðvanna og hún
kynnt EBU. Því í reglum EBU um
segir að umtalsverður hluti efnis
aðildarstöðva eigi að vera eigin
framleiðsla," sagði Markús
Antonsson útvarpsstjóri.
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
8xíviku
a
5
FUUGLEIÐIR
-fyrirþíg-
Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði.
1 mmm mmm KMm- i ■ f f. fyffyn.
’ r IraC ®W j
1 ^
Kór Öldu-
túnsskóla
Vortónleikar kórs Öldutúnsskóla
fara fram í Víðistaðakirkju laugar-
daginn 21. maí kl. 16.00. Þar koma
fram um 100 nemendur í þremur
hópum. Efnisskráin er fjölbreytt og
þar er að finna lög allt frá 16. öld
til okkar daga. M.a. verður frum-
flutt nýtt verk eftir Hjálmar H.
Ragnarsson við kvæði Vilborgar
Dagbjartsdóttur, „Barnagæla", en
verk þetta er mjög nýstárlegt og
gerir miklar kröfur til flytjenda.y
Stjómandi kórs Öldutúnsskóla er _
Egill Friðleifsson.
Kaffisala verður að tónleikum
loknum í félagsálmu kirkjunnar.
Kórinn undirbýr nú tónleikaför til
Asíu og Ástralíu.
ER HEIMSÞEKKTUR FYRIR VANDAÐAN TÆKNIBÚNAÐ OG SKÝRAN HLJÓM
□ Sérstaklega hannaður til að þola
hnjask
□ 100 númera minni
'I |
□ Hægt að nota tvö síuitól á sama
tæki án aukabúnaðar
□ Meðfærilegur og nettur
□ Tveggja ára ábyrgð
□ Sérhannaður fyrir framtíðar-
möguleika á tengingu við telefax
og fotofax
□ Viðurkennd viðgerðaþjónusta
Staðgreiðsluverð: frá kr. 91.000 -100.364.
(Stofngjald til Pósts og síma kr. 9.125)
FARSIMINN