Morgunblaðið - 19.06.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988
27
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
„Hreyfing og hljómfall tilverunnar“
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Málarinn Þorvaldur Skúlason
(1906—1984) lifði mikil umbrot-
atímabil í listasögu 20. aldarinnar
á öllum samanlögðum listferli
sínumm.
í eðli sínu var hann mjög hrif-
næmur — náttúrubarn frá smá-
byggð í Hrútafirði, sem lét snemma
hrífast af nútímalegum straumum
og alla tíð vildi hrærast í núinu.
Helst gleyma því, sem áður hafði
verið gert, — bijóta hveiju sinni
allar brýr að baki í listrænum skiln-
ingi þótt grunnhugmyndin væri
jafnan sú sama, að upplifa og
miðla. Hann var í forsvari íslenzkra
núlistarmanna um langt árabil, og
í smiðju hans leituðu þeir flestir um
ráð og uppörvun, um leið og þeir
urðu fyrir miklum áhrifum af verk-
um hans og skoðunum. Kannski
gerðust umbyltingarnar í list hans
nokkuð hratt, enda átti hann þess
ekki kost að hrærast í hvirfilpunkti
heimslistarinnar nema stuttan tíma
í senn og iðulega sem gestur og
áhorfandi. Var eiginlega alltaf á
leið til Parísar þótt það yrði öllu
meira ósk- og þráhyggja en veru-
leiki. Þannig er ekki gott að vara
sig á andríkum framslætti nafn-
kenndra kenningasmiða, sem hrifu
svo marga með sér, þótt sjálfir
tækju þeir sig ekki alltaf jafn hátíð-
lega, enda hafa kenningamar sjálf-
ar ekki alltaf staðist tímans tönn
og sumar jafnvel valdið ómældum
skaða og vísast öllu óraunhæfar
nema í þröngum hópi áhangend-
anna. Málarinn, sem sagði, að fígúr-
an væri dauð, yfirgaf hana þannig
eiginlega aldrei sjálfur nema í til-
tölulega stuttan tíma meðan hann
þurfti á þeirri sannfæringu að
halda, ef hann gerði það þá nokk-
um tíma (Picasso). En víða í fjar-
lægð var það hinsvegar eitilhörð
stefna núlistamanna að halda kenn-
ingunni fram sem heilögum bók-
staf.
Og á sama tíma og flatarmálslist-
in (geometrían) var í algleymi,
blómstraði það á bak við tjöídin,
er átti eftir að þrengja sér fram,
nefnilega „tassisminn" og Ab-
strakt- innsæisstefnan.
Þetta virðist þó hafa verið flest-
um lokuð bók, þar til heimsgalleríin
tóku hin nýju viðhorf upp á arma
sér og strangflatalistin varð skyndi-
lega úrelt sem list dagsins.
En jafn útsmoginn málari og
Þorvaldur Skúlason þurfti á engan
hátt að biðjast afsökunar á því að
vera bam síns tíma og háður upp-
lagi sínu og umhverfi svo sem fyjöl-
margir starfsbræður hans, sem
tóku upp svipuð viðhorf og vinnu-
brögð víða um heim og langt frá
sjálfri hringiðunni. Og Reykjavík
bauð ekki upp á sömu skilyrði til
blómstrunar nýviðhorfa og t.d. New
York og seinna Þýskaland og viðar.
Miðað við allar aðstæður og vaxtar-
skilyrði er íslenzk myndlist á 20.
öld þróttmikil og kröftug og hér er
hlutur Þorvaldar Skúlasonar dijúg-
ur.
Sjálfstætt framlag Gallerís Borg-
ar til Listahátíðar er sýning á verk-
um Þorvaldar Skúlasonar, sem eru
hingað komin frá erfingjum hans í
Kaupmannahöfn. Fyrrverandi eig-
inkona hans, Astrid Fugman, og
dóttir Kristín, erfðu verk hans að
honum látnum og fóru þau öll til
þeirra. Gallerí Borg fékk svo sér-
stakt leyfi til að sýna brot þessara
verka í tilefni Listahátíðar. 17 að
tölu, málverk, vatnslitamyndir og
teikningar auk þess að sýna örfáar
myndir í einkaeign til uppfyllingar.
Átti sá, er hér ritar, von á, að
hér yrði helst um myndir að ræða,
sem aldrei eða sjaldan hafa komið
fyrir sjónir manna áður, en í raun
er þetta mjög brotakennd sýning
myndverka, sem maður kannast við
í flestum tilvikum.
Engu síður eru það miklar fréttir
og markverður listviðburður er
myndverk sem skara jafn mörg
tímabil listar Þorvaldar Skúlasonar
eru til sýnis. Hér kemur og fram,
að Þorvaldur var fær í flestan sjó
og gerði rismikil verk á öllum tíma-
skeiðum listar sinnar. Var mjög fær
og listfengur teiknari, ef svo bar
undir líkt og flestir markverðir nú-
listamenn aldarinnar voru.
Svo mikið sem við höfum séð af
óhlutlægri list Þorvaldar væri mjög
áhugavert að fá eina sýningu á hlut-
lægum verkum einvörðungu nú er
nokkur fjarlægð er að koma á hlut-
ina og flestir, almenningur jafnt og
listfróðir, geta fordómalaust notið
þeirra. Mér datt það svona í hug,
er ég leit mynd utan skrár, sem
máluð er út um gugga á Austurbrú-
götu 140 í Kaupmannahöfn, þar
sem þeir Jón Engilberts höfðu
vinnustofu hlið við hlið og stutt er
í Norðurhöfnina. En myndin var
keypt á uppboði af starfsmanni
Gallerís Borgar í Höfn á sl. ári.
Með því að setja upp eina slíka
sýningu yrði auðveldara að tengja
síðari tímabil Þorvaldar hinu hlut-
læga og fyrra mótunarskeiði hans
sem málara.
En hvað sem líður allri ósk-
hyggju og hillingarsýnum, þá skipt-
ir meginmáli, að hver sýning, sem
sett er upp á verkum hins ágæta
listamanns Þorvaldar Skúlasonar
frá Borðeyri við Hrútafjörð, er mik-
ill og ánægjulegur listviðburður.
Daglega stígur fjöldi
Kjörbókareigenda eitt þrep uppá við.
Og fær milljónir í staðinn.
Já, Kjörbókareigendur góðir og aðrir áhuga-
menn um góða ávöxtun sparifjár. Þrepahækkun
Kjörbókarinnar er komin til framkvæmda.
Afturvirkir vextir eru reiknaðir á þær inn-
stæður sem hafa legið óhreyfðar í 16 eða 24
mánuði. Þúsundir Kjörbókareigenda náðu
16 mánaða markinu í lok apríl og daglega
bætast fleiri við sem fá reiknaða viðbótar-
vexti á sínar innstæður.
í desember mun fjöldi Kjörbókareigenda
stíga annað þrep upp á við, - 24ra mánaða
Kjörbókarþrepið. Og fá enn fleiri milljónir
í staðinn.
Kjörbókin ber háa vexti auk verð-
tryggingarákvæðis, verðlaunar þá sérstak-
lega sem eiga lengi inni en er engu að
síður algjörlega óbundin.
Ársvextir á Kjörbók eru nú 36%,
16 mánaða vaxtaþrepið gefur 37,4%,
og 24 mánaða þrepið 38%.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Áskríftarsímirm er 830.13