Morgunblaðið - 19.06.1988, Side 35

Morgunblaðið - 19.06.1988, Side 35
ei HUOAQUVIVIUa .qiqajhviuohom MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 35 Þorbjörg Daníelsdóttir í tilefni dagsins Á þessum merkisdegi í sögu íslenskra kvenna, 19. júni, sem Iengi var haldinn hátíðlegur í tilefni að þvi að þann dag árið 1915 fengu konur kosningarétt til Alþingis, höfum við fengið til viðræðu tvær ungar konur sem báðar eru áhugasamar um jafnréttisbaráttu kvenna og starfa að því málefni hvor á sínu sviði. Jónína Margrét Guðnadóttir er, auk síns aðalstarfs sem ritstjóri flugorðasafns á vegum Flugmála- stjómar, ritsjóri tímaritsins 19. júni, sem gefið er út af Kvenrétt- indafélagi Islands. Hún er einnig í framkvæmdahópi sem vinnur að undirbúningi Norræns kvenna- þings, sem haldið verður í Osló dagana 30. júlí til 7. ágúst nú í sumar. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir er guðfræðinemi á síðasta ári, og starfar nú sem afleysingaprédikari I Reykjavíkurprófastsdæmi. Hún vinnur einnig með samstarfshópi um kvennaguðfræði, en sá hópur hefur starfað í 8 ár. Markmið hóps- ins er, segir Jóna Kristín, að efla samstarf með konum í kirkjunni og samtöðu kvenna og karla í kirkju og þjóðfélagi. Kirkjurnar standa með konum Eins og áður hefur verið greint frá hér á síðunni, hófst kvennaára- tugur Alkirkjuráðsins í byijun þessa árs og stendur til ársins 1998. Yfirskrift þessa starfs en Kirkjurnar standa með konum. Jóna Kristin: Kvennavettvang- ur Alkirkjuráðsins hefur sent öllum aðildarkirkjum sínum upplýsingar og hugmyndir viðvíkjandi kvenna- áratugnum, en það er svo undir hverri kirkju komið hvemig hún vinnur úr þessum gögnum og að- lagar sínu umhverfi og aðstæðum. f samráði við biskup og utanríkis- nefnd þjóðkirkjunnar hefur sam- starfshópur um kvennaguðfræði tekið að sér forystu á þessum vett- vangi. Hvemig verður það í fram- kvæmd? Við erum búnar að hafa okkar fyrstu messu sem var þann 1. maí og við höfum sent öllum prestum bréf þar sem við kyntum hugmynd- ir okkar, en það er svo undir þeim hveijum og einum komið, hvað þeir gera. I dag, sunnudaginn 19. júní, verðum við með útvarpsmessu í Neskirkju, og ýmislegt annað er á dagskrá hjá okkur. Fyrstu dag- ana í ma! var haldinn í Svíþjóð norrænn samstarfsfúndur um kvennaáratuginn og dagana 16.—19. júnl stendur yfir ráðstefna í Sigtúnum I Svíþjóð, Clowns of God, þar sem nokkrar íslenskar konur eru. Ráðstefna kvennaguð- fræðinga verður í Ósló í október og við hyggjum á ráðstefnuhald hér í haust, og síðan er það Norr- æna kvennaþingið í Ósló í ágúst sem líka er vettvangur til sam- Jónina Margrét Guðnadóttir starfs. Þetta er aðeins byijun á 10 ára samfelldu starfí. Norræna kvennaþingið Jónína Margrét, vilt þú segja okkur frá þessu Norræna kvennaþingi og aðdraganda þess? J.M. Kveimaáratugur Samein- uðu þjóðanna var 1975—1985. í lok þess áratugar var haldin mikil ráðstefn í Nairobi í Kenya. Þegar konur á Norðurlöndunum komu saman til að ræða þær ályktanir og samþykktir sem fram komu á ráðstefnunni í Kenýa og fram- kvæmd þeirra á Norðurlöndum, kom fram að mörgum þeirra fannst þær lítið hafa rætt sin mál á þess- um alþjóðavettvangi, vegna þess að málefni kvenna alls staðar ann- ars staðar f heiminum voru svo langtum brýnni og þær víðast hvar svo miklu skemmra komnar, að málefni kvenna á Norðurlöndunum voru alveg í skugganum. Það var því til þess að kvennáratugur Sam- einuðu þjóðanna kæmi Norður- landakonum betur að gagni, að ákveðið var að efna til þessa Norr- æna kvennaþings og hafa til fyrir- myndar hliðarráðstefnuna í Na- irobi, þar sem konur komu úr kvennahreyfíngum og grasrótar- hreyfingum alls staðar að ur heim- inum og fjölluðu um það sem þær sjálfar höfðu áhuga á, en ekki það sem ákveðið var af stjómvöldum, eins og á hinni opinberu ráðstefnu. Á þessari hliðarráðstefnu var ætlast til að konur ijölluðu um allt sem þær hefðu áhuga á, bæði sér til skemmtunar og til að efla baráttu, til að fræða hver aðra og styrkja hver aðra. Það er sú hug- mynd sem er að baki Norræna kvennaþingsins, og þess vegna var hún falin sjálfstæðum kvenna- hreyfingum en ekki opinberum aðilum. Konum á Norðurlöndum fannst að þær þyrftu að fjalla um sína stöðu og meta hvort það er rétt að þær séu komnar svo langt og f hveiju það er fólgið, og Kka hvað það er sem þeim finnst vanta á. Konur og karlar deili valdi í jafnréttisumræðu snýst spurningin meira og minna um hvernig valdi er skipt og hvern- ig það er notað. Alkirkjuráðið hvetur konur til að finna nýjar Jóna Kristin Þorvaldsdóttir leiðir til að nota vald og að kon- ur og karlar deili því jafnt. Það beinir m.a. þessari spurningu til kvenna: Eru til nýjar leiðir til að nota vald? J.M. Valdið liggur á mörgum sviðum og það er hægt að líta á það út frá svo mörgum hliðum. Þau liggja á stjónmálunum, í pen- ingavaldinu og hervatdi. þar sem það á við, og hjá kirkjunni líka gegnum aldimar og á öllum þess- um sviðum eru karlar enn alls ráð- andi, þannig að það er mikið sem konur eiga ógert. Samt má segja að konur séu svolítið famar að „kmkka í völd karla á stjórn- málasviðinu og lftillega í efna- hagslffinu með þátttöku sinni á vinnumarkaði. Þó er langstærstur hluti kvenna í lægst launuðu störf- unum, þannig að því fylgja auðvit- að ekki mikil völd. Þama er ég að tala um hin formlegu völd í samfélaginu. fslenskar konur hafa þrátt fyrir völd af þessu tagi haft heilmikil óbein áhrif, og notið meiri virðingar sem einstaklingar en annars staðar. J.K. Það sem Alkirkjuráðið leggur til að verði efst á verkefna- lista áratugarins er m.a. futl þátt- taka kvenna í kirkjunni og þjóð- félaginu, og það er mín skoðun að þátttaka kvenna í kirkjunni hér á landi sé það sem helst ber kirkju- starfið uppi. Það er mjög mikið og óeigingjamt starf sem unnið er af t.d. kvenfélagskonum í sókn- um landsins, meirihluti í hveijum kirkjukór era konur og flest störf í þágu aldraðra í söfnuðum era í höndum kvenna. Konur eru einnig íjölmennari við guðsþjónustur. Því er þó eins farið innan kirkj- unnar og annars staðar f þjóð- félaginu, að þegar kemur að for- ystuhlutvérkum og f stjórnuninni er hún að langmestum hluta í höndum karla, þrátt fyrir lagaleg- an rétt og menntun kvenna. Eg vildi gjaman sjá breytingu á þessu. Ég er sannfærð um að allur sá fjöldi kvenna sem f kyrrþey vinnur störf sín innan kirkjunnar er mjög kunnugur málefnum hennar. Það hlyti því að vera mjög til góðs ef þær konur létu meira að sér kveða í forystu og stjórnunarstörfum kirkjunnar. Sama gildir um konur annars staðar í þjóðfélaginu. Hafið þið trú að þvi að með tfmanum verði jafnari skipting valds og ábyrgðar og að konur og karlar muni ganga til jafns í felst öll störf? J.M. Ég er nú ekki alveg nógu bjartsýn til að álíta að það verði skammt þangað til, þó ég voni að sjálfsögðu að það verði ein- hverntíma. J.K. Ég vil ekki draga karla í dilka og skella skuldinni á þá, eða telja að kartar vilji hafa konur undir hælnum. Konan verður sjálf að finna hjá sér þörfina á að hafa áhrif bæði í kirkju og í þjóðlífí. En þar sem hefðin fjötrar okkur enn nokkuð, er full þörf á hvatn- ingu til kvenna um að efla sam- vinnu sín í milli og samstöðu kvenna og karla á öllum sviðum. Konur eigingjarnar Mikið er talað um að konur séu að sækja inn á verksvið karla, en minna heyrist að talað um að karlar snúi sér að kvenna- störfum. Gætir e.t.v. tortryggni hjá konum gagnvart þvi að karl- ar getu unnið hefðbundin kvennastörf? J.K. Já, ég hetd að okkur hætti til að vera svolítið eigingjarnar og vanmeta hæfni karta til að ganga inn á þau svið sem við höfum haft í okkar höndum til þessa dags. J.M. Ég er sannfærð um að karlar sem hafa löngun til að sinna umönnunarstörfum eigi oft erfitt um vik. Sumir karlar hata til dæm- is afskaplega gaman af að sinna bömum og gera það af mikilli alúð og elskusemi, þótt þeir geri það kannske á svolítið annan hátt en konur. Það er því miður tilhneig- ing, bæði hjá konum og körlum að líta niður á þá karlmenn serh gefa sig að slíkum störfum. Þetta er viðhorf sem við þurfum að breyta hjá okkur sjálfum, því það yrði öllum tl góðs, ekki síst bömun- um. Ég held að mörg böm fari mikils á mis við það að njóta ekki umönnunar karla. Þau þeggja oft á tíðum ekki annað en konur, sérs- taklega böm einstæðra mæðra. Þau era í höndum kvenna nánast þangað til þau era komin i fram- haldsskóla og fá því ákafiega ein- hæfa fyrirmynd í fúllorðna fólkinu. Enginn her á íslandi Getur verið að sú staðreynd að við höfum ekki her á íslandi hafi ráðið einhveiju um að kon- um hefur vegnað tiltölulega vel á ýmsum sviðum jafnréttisbar- áttunnar, miðað við konur víða annars staðar? J.K. Konur hafa óneitanlega nokkra sérstöðu um hvað þetta varðar hér á fslandi. Drengir alast ekki upp við stríðshugsun og það að eiga yfír höfði sér herkvaðningu og mótast af heraga þar sem ýtt er undir karlmannleg gildi og hreysti og þá hetjuímynd sem her- mennskan skapar. J.M. Ég vil helst ekki tala um hreysti í þessu sambandi, mér finnst hreysti svo gott hugtak og eiga betur heim í íþróttum. Það væri nær að tala um árásargirni, en þetta er nokkuð aðlaðandi hug- mynd og getur vel hafa ráðið nokkra um gang jafnréttismála hér. Okkar hetjur hafa gjaman verið þeir sem hafa haft yfirburði á andlega sviðinu, sem er auðvitað langtum æskilegri fyrirmynd held- ur en sú sem tengist stríðsrekstri og hemaði og svokallaðri „karl- mennsku“ Konum álasað Þrátt fyrir að lífsafkoma flestra fjölskyldna á íslandi sé undir þvi komin að báðir for- eldrar vinni úti og þá staðreynd jafnframt, að atvinnugreinar þjóðarinnar þarfnast vinnu- framlags kvenna til að haldast gangandi, er ekki enn laust við að konum sé álasað fyrir að vinna úti og taiað um að hún vanræki heimili og böm til að komast út á vinnumarkaðinn. Gætir ekki nokkurs tvískinn- ungs í þessu viðhorfi? J.M. Það kom best í ljós á kvenn- afrídaginn 1975 hverskonar lömun verður í þjóðlífinu ef konur hverfa af vinnumarkaðinum, og síðan þá hefur orðið mikil aukning útivinn- andi kvenna og mikill vöxtur. Það er því ljóst að það hefur þurft all- ar vinnandi hendur í landinu til að anna öllum nauðsynlegum störfum. Þó er langt frá því að þjóðfélagið hefi fylgt þessari þróun eins og þurft hefði, til þess að fólk geti stundað störf utan h--imilis„ án þess að hafa eilífar áhyggjur af umönnun barnanna. J.K. Það gætir vissulega mikils tvískinnungs og misskilnings í þeim kröfum sem gerðar era til kvenna. Að konan geti verið virk- ari í störfum utan heimilisins, hlýt- ur að kalla á það að karlinn gangi til móts við hana, að þau jafni með sér ábyrgð heimilisins og deili með sér störfum. Það er enginn ávinn- ingur fyrir konuna né þjóðfélagið að hún vinni tvöfatda vinnu. Dæ- mið gengur ekki upp fyrr en eins og reyndar er farið að gerast, að við he§um hin hefðbundnu kvennastörf til vegs. Hin mjúku gildi fá smám saman meira vægi og það hlýtur að hjálpa til í tauna- baráttunni og gera hin hefðbundnu kvennastörf meira aðlaðandi, og ætti að verða körtum hvatning til að takast á við þau. Skoðanir kvenna á réttlæti, friði og vemdun sköpunar- verksins. Eitt af því sem Alkirkj- uráðið leggur til að verði ofar- lega á verkefnalista kvennaára- tugarins em skoðanir kvenna á réttlæti friði og vemdun sköp- unarverksins. Hvað viljið þig segja um það? J.K. Við höfum nefnt að við búum í þjóðfélagi þar sem stríðsrekstur vekur andúð og við þekkjum ekki herkvaðningu og heraga. Sjátf er ég mjög andvíg beitingu vopna og get ekki rétt- lætt stríð. Ég las einu sinni grein eftir Evu Moberg þar sem segir, að það að trúa á vopn sem tæki til friðar væri eins og að búa til brauðdeig, setja það í ofninn, en vona svo að aldrei verði úr þvi brauð. Ég tel að vemdun sköpun- arverksins, friði og réttlæti sé best borgið í höndum karla og kvenna sem standa htið við hlið og vinna saman í kærleika og virðingu hvort fyrir öðru, — eitt í Kristi. Mér finnst kristin trú mjög friðarsinnuð hugmyndafræði, þá hún hafi reyndar stundum verið notuð f öðram tilgangi í tímans rás. Krist- ur er oft nefndur firðarhöfðingi og mér finnst ekkert í hans boðun stuðla að valdbeitingu, þvert á móti. J.M. Varðandi konur og friðar- hugsjónina finnst mér að það liggi konum ákaflega nærri að vera frið- arsinnaðar, kannske á íslandi fremur en annars staðar, en ég held að allar konur hljóti að skelf- ast við þá tilhugsun að böm þeirra verði að fara f stríð, eða verði stríðsrekstri að bráð á einhvem hátt. Þar fyrir utan er margt sem hægt er að gera í þágu friðar, því að til þess að friður standi undir dafni er ekki nóg að við séum laus við vopnaskak, við þurfum líka að búa við öryggi og virðingu fyrir réttindum og lífi hvers annars. Það að beijast fyrir mannréttindum er líka að berjast fyrir friði og ég lít á kvenréttindabaráttuna sem mannréttindabaráttu fyrst og fremst. Biblíulestur vikunnar Sunnudagur: 3. sunnud. e. trfn. Matt. 9,9—13. Mánudagur: Sálm. 70. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, dvel eigi, Drottinn. Þriðjudagur: Sálm 71. Hjá þér, Drottinn, leita ég hætis. Miðvikudagur: Sálm 72. Drottinn aumkast yfir fátæka og snauða. Fimmtudagur: Sálm 73. Mín gæði era það að vera nálægt Guði, ég hefi gjört Drottin að athvarfi mfnu. Föstudagur: Jóh. 1,1—18. Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föður- ins, hann hefur birt hann. Laugardagur: Jóh. 1,19—34. Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.