Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 19.06.1988, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1988 Stjörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri stjömuspekingur. Get- ur þú frætt mig um persónu mína, getu og hæfileika. Ég er fædd 8.01.1958 kl. 6.30 að kvöldi (í Rvík). Með kærri þökk.“ Svar: Þú hefur Sól í Steingeit, Tungl og Rísandi merki í Ljóni, Merkúr og Mars í Bog- manni, Venus í Vatnsbera og Hrút á Miðhimni. Heilsumál Sól í Steingeit í 6. húsi tákn- ar að þú ert jarðbundin og varkár í grunneðli þínu, ert hagsýn og ábyrg. 6. húsið táknar að þú leggur tölu- verða áherslu á vinnu, en táknar einnig að heilsumál, mataræði og líkamsrækt eru svið sem þú gætir notið þín á. Segja má að vellíðan þín sé undir því komin að þú sinnir þessum málum. Hlýjar tilfinningar Tungl í Ljóni táknar að þú hefur opnar og hlýjar tilfinn- ingar, ert föst fyrir í dagiegu lífi og trygglynd. Það táknar . einnig að þú þarft að vera í miðju í umhverfi þínu. Ljónið lætur alltaf frá sér orku, sýn- ir tilfinningar sínar og al- menna iíðan, hvort sem um gieði eða reiði er að ræða. Flotturstill Ljón Rísandi táknar að þú vilt hafa vissan stíl yfir um- hverfi þínu og því sem þú lætur frá þér. Framkoma þín er opin og hlý. Opin ihugsun Merkúr í Bogmanni táknar að þú ert frjálslynd í hugsun og lítið fyrir vanabindingu, endurtekningar og hug- myndalegan aga. Þú getur því átt til að vera óþolinmóð. Þú ert á hinn bóginn hrein- skilin og einlæg og vilt koma beint að því sem þér liggur á hjarta. Tilfinningalegt frelsi Venus í Vatnsbera táknar að þú sért félagslynd en þarft samt sem áður að búa við visst tilfinningalegt frelsi. Venus táknar einnig að þú laðast að Vatnsberum, eða fólki sem hefur Úranus og Satúmur sterka í korti sínu, þ.e.a.s. sjálfstæðu, yfirveg- uðu og sérstöku fólki. Lifandistarf Mars í Bogmanni og Hrútur á Miðhimni tákna að starf þitt þarf að vera fjölbreyti- legt og lifandi. Þú þarft einn- ig visst starfsfrelsi. Á þessu sviði gæti gætt ákveðins óró- leika og töluvert verið um breytingar, svo framarlega sem starf þitt er ekki hreyf- anlegt og fjölbreytilegt. Ráðrík Þú ert ekki dæmigerð Stein- geit, ert ekki alvegjafn jarð- bundin og íhaldssöm og gengur og gerist með Stein- geitur. Þú ert eigi að síður ráðrík og ákveðin. Skemmtanaiönaður Sterkt Ljón og margar plán- etur í 5. húsi gætu bent til hæfileika í sambandi við leik- hús og skemmtanalífið, t.d. það að vinna að skapandi málum, uppsetningu á sýn- ingum, leikstjóm o.þ.h. Lif- andi og fjölbreytileg vinna með bömum ætti einnig að geta komið til greina. Stein- geit ásamt Ljóni og Bogmann gæti einnig bent til viðskipta- hæfileika og sjálfstæðs rekst- urs t.d. í sambandi við það að þjóna fólki í frítíma þess. Kort þitt bendir til samblands af ábyrg og jarðbindingu annars vegar og hugsjónum, léttleika, hreyfingu og frelsi hins vegar. GARPUR L ARA illa InO ER ás H/SSA. V!£> HÉLDtJM AE>þÓ HEF&HZ AVSSr AF FJÖR/NU / CROfZÐ/E) \Alidið, PÖAtUR' rAéa etcHi að 'FYLGTA v/ckok BÁibum HEI/H ? / 'HS 1 / EG TRUl PVI VARLA AE> JÓN HAFI i' RAUN OG VERU K.&ypT , PETTA- HVAÐA GAöN ER APþVl? UÓSKA FERDINAND —-—-—1 SMÁFÓLK I M 50RKV, LELANI7... I CAN'T U5E VOU 6UV5 ON l\M TEAM.. * OUHOEVER HEARI7 OF THREE PLAVER5 UNPER ONE HELMET? Fyrirgefðu, Láki, ég get Satt að segja er þetta fár- Hver hefur heyrt um þrjá Þú ættir að sjá okkur með ekki notað vkkur í líðíð árilegt! snilara nndir einum axlaniíðana! ekki notað ykkur í liðið mitt___ spilara hjálmi? undir einum axlapúðana! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Einu sinni til tvisvar á ævinni taka menn upp spil eins og Bandaríkjamaðurinn Joseph Leff fékk á höndina í tvímenn- ingskeppninni í New York ný- lega. Allt kolsvart! Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ KDG4 VÁD ♦ ÁD874 ♦ G3 Vestur Austur 4 72 4 g ▼ 1098642 llllll VKG753 ♦ K10932 ♦ G65 ♦ ♦ D952 Suður ♦ Á109653 V- ♦ - ♦ ÁK10764 Eftir opnun norðurs á einum tígli bjóst Leff við að þurfa að standa í miklu stímabraki við að sannfæra makker um að hafa annan litinn sinn sem tromp. Það fór á annan veg: Vestur Pass Pass Dobl Pass Norður Austur 1 tígull Pass 2 spaðar Pass 6 grönd Pass Pass Pass Pass Pass Suður 2 lauf 5 grönd 7 spaðar 7 grönd! Það var ætlun Leffs að segja fyrst frá laufinu og melda svo spaða fram í rauðan dauðann. Þannig gæti hann fræðilega sýnt 7—6 skiptingu. En makker kom honum á óvart með því að vera fyrri til að segja spaða. Leff meinti síðan fímm grönd sem beiðni til makkers um að segja 8 spaða með tvo af þremur efstu í trompi (hefðbundin Jósefína), en norður misskildi boðin og lyfti í sex grönd. Hann átti jú góð spil. Þegar suður breytti í sjö spaða gat vestur ekki annað en Ligthn- er-doblað til að biðja um lauf út. Leff sá nú að sjö spaðar myndu tapast á stungu og ákvað að treysta makker til að eiga rauðu ásana og einhveija fyll- ingu í laufíð — sagði sjö grönd með tvær eyður, sennilega sá fyrsti í sögunni! Úrspilið var ekkert vandamál. Út kom hjarta, sem Leff drap með ás blinds og lét laufgosann rúlla yfir. 2220 og hreinn toppur. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í Lúxemborg í mai kom þessi staða upp í skák V- tjóðverjanna B. Steins og Schulzes, sem hafði svart og átti leik. 19. — Rd4! (Býsna óþægilegur leikur. Svartur hótar bæði að máta með 20. — Re2+ og einnig 20. - Rc2) 20. Bc4 - Rc2 21. Ra3 - Rxal 22. Bh6 - Hd8 og hvítur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.