Morgunblaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBIJtí)IÐ, LAÚGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988
Norðurlandamótinu í brids lokið:
íslendingar unnu eftir hörku-
keppni við Dani og Svía
Salernisferðin
kostaði Svía
sigur í mótinu
íslendingar sigruðu í opna
flokknum á Norðurlandamótinu
í brids sem lauk í gær. Hlaut
sveitin 178 stig, einu stigi meira
en sænska sveitin sem varð í
öðru sæti og 5 stigum meira en
danska sveitin sem hafnaði í 3.
sæti. I sigursveitinni spOuðu
Karl Sigurhjartarson, Sigurður
Sverrisson, Jón Baldursson, Val-
ur Sigurðsson, Þorlákur Jóns-
son og Sævar Þorbjömsson.
Lokaumferðin hófst í gær kl.
11 og áttu þijár efstu sveitimar
möguleika á sigri í mótinu. Svíar
voru í 3. sæti með 158 stig og spil-
uðu gegn Norðmönnum og Islend-
ingar spiluðu gegn Dönum. Islend-
ingar voru með 163 stig og Danir
með 158 stig.
Leikur islendinga og Dana var
sýndur á sýningartöflu auk þess
sem alltaf mátti sjá stöðuna í leik
Svía og Norðmanna jafnhliða. Eft-
ir 10 spil var staðan orðin 43-0
fyrir Dani og virtist stefna í stór-
sigur þeirra. Islenzka liðið hefír
aldrei fengið það orð á sig að gef-
ast upp og rétti úr kútnum í næstu
6 spilum og náði inn 19 stigum
fyrir háifleik.
Síðari hálfleikur var æsispenn-
andi þar sem Norðmenn héldu í
við Svía meðan Islendingar unnu
jafnt og þétt upp forskot Dana.
Þegar upp var staðið voru íslend-
ingar komnir yfír í leiknum sem
endaði 15-15. Svíar unnu sinn leik
18-12 en það dugði þeim ekki og
íslendingar unnu verðskuldaðan
sigur. Þetta er fyrsti sigur íslands
á Norðurlandameistaramótinu sem
nú var haldið í 21. sinn og í 3.
sinn á íslandi.
Lokastaðan í opna flokknum
varð þessi: ísland 178, Svíþjóð
177, Danmörk 173, Finnland 149,
Noregur 148, Færeyjar 65.
Þess má geta til gamans að einn
af Evrópumeisturum Svía, Bjöm
Fallenius, nagar sig eflaust í hand-
arbökin vegna salemisferðar sem
hann fór í án þess að fá leyfí keppn-
isstjóra. Atvikið átti sér stað f
þriðju umferð þegar Svíar spiluðu
gegn Færeyingum og var sænska
liðið sektað um tvö vinningsstig
sem hefði verið gott að eiga f lok-
in því þá hefði meistaratitillinn
orðið þeirra.
í kvennaflokki spiluðu fjórar
sveitir. Danska sveitin vann með
nokkrum yfírburðum, hlaut 161
stig, sænsku konumar urðu f öðm
sæti með 143 stig, norsku konumar
hlutu 138 stig og íslenzka liðið rak
lestina með 90 stig.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 2. JÚLÍ 1988
YFIRUT í GÆR:
Skammt norövestur af (rlandi er 984ra mb lægö sem þokast held-
ur norö-austur. Yfir Grænlandi ór 1020 mb hæö og 1018 mb hæð
skammt norðaustur af Jan Mayen. Hiti breytist lítið.
SPÁ: í nótt verður norðaustankaldi en gola á morgun. Skýjað
og sumsstaðar súld við norðausturströndina en bjart veður ann-
ars staðar. Hitl á bllinu 8—16 stig. Norðangola og bjart veður
sunnanlands. Hltl 8—16 stlg.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norölæg átt um allt land.
Skýjaö, fremur kalt og sums staðar súld en víðast lóttskýjað syðra.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
z Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig;
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CX5 Mistur
Skafrenningur
[y Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hhl veður
Akureyrt 9 alskýjað
Reykjavlk 14 hálfskýjaó
Bergen 1B alskýjað
Helslnkl 26 þrumuveður
Jan Mayen 0 alskýjað
Kaupmannah. 22 þokumóða
Narasarsauaq 10 heiðskfrt
Nuuk 1 þoka
Oaló 22 skýjað
Stokkhólmur 23 skýjað
Þórshöfn 10 súld
Algarve 23 léttskýjað
Amaterdam 20 mistur
Aþena vantar
Barcelona 28 léttskýjað
Chicago 16 hálfskfrt
Feneyjar 23 þokumóða
Frankfurt 18 rignlng
Glasgow 15 alskýjað
Hamborg 24 rignlng
Las Palmas 26 háifskýjað
London 17 skýjað
Loa Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg 18 skúr
Madrfd 21 hálfskýjað
Malaga 29 lóttskýjað
Mallorca 28 láttskýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 16 Iðttskýjað
Parfs 18 skúr
Róm 30 moldrok
San Dlego 18 alskýjað
Wlnnlpeg 16 alskýjað
Hluta hússins komið fyrir á dráttarbíl. Morgunbiaðið/Bjöm Sveinsson
Egilsstaðir:
Hús afhent fullbú-
ið í tveimur hlutum
Egilsstöðum.
TRÉSMIÐJA Fjjótsdalshéraðs f
Fellabæ fullkláraði um 80 m2 hús
á athafnasvæði sfnu í Fellabæ sem
sfðan var tekið f notkun tveimur
dögum sfðar f Gunnólfsvfk á
Langanesi. Smfði hússins var al-
gjörlega lokið hér á staðnum. Sett-
ar f það raf- og pfpulagnir ásamt
föstum innréttingum og það málað
að innan. Hins vegar var það í
tveimur hlutum til að auðvelda
flutning norður.
Hús þetta verður notað sem mötu-
neytishús fyrir starfsmenn við bygg-
ingu ratsjárstöðvarinnar á Gunn-
ólfsvíkurfjalli á Langanesi. í því er
matsalur, tvö herbergi fyrir mat-
reiðslufólk ásamt snyrtingum og
slíku. Voru hlutar þess fluttir norður
á tveimur dráttarvögnum og gengu
þeir flutningar eins og best verður á
Jónas tíl Al-
þjóðabank-
ans l.ágúst
JÓNAS Haralz fyrrverandi
bankastjóri Landsbanka ís-
lands mun hefja störf hjá Al-
þjóðabankanum í Washington
1. ágúst næstkomandi.
Jónas er fæddur í Reykjavík
árið 1919 og er hagfræðingur
að mennt. Hann varð banka-
stjóri Landsbanka íslands 1969,
en lét af störfum þar 15. maí
síðastliðinn. Hann hefur áður
starfað hjá Alþjóðabankanum,
en það var á árunum 1950-1957.
kosið þó þama séu vegir fremur erf-
iðir. Það tók einungis tvo daga að
koma því fyrir á nýjum undirstöðum
og tengja hlutana saman og var það
þá tilbúið til notkunar og hægt að
fara að elda.
Orri Hrafnkelsson framkvæmda-
stjóri Trésmiðju Fljótsdalshéraðs
sagðist sjá ýmsa möguleika opnast
með þessari byggingaraðferð. Með
þessu móti gæfíst mönnum sem vildu
setjast að á stöðum þar sem atvinn-
ulíf og fasteignaverð væri ótiyggt
tækifæri á að reisa hús á þessum
stöðum. Þeir gætu einfaldlega tekið
þau með sér ef þeir vildu flytja
burtu. Nú væru menn ekki lengur
bundnir átthagaQötrum yfír verð-
lausum húsum með háum áhvílandi
lánum. Einnig væri þetta kjörin
byggingaraðferð á stöðum þar sem
skortur væri á sérhæfðu vinnuafli í
byggingariðnaði því húsin mætti
byggja annars staðar og flytja á stað-
inn í þeirri stærð sem hveijum og
einum hentaði.
Húsið sem fór til Gunnólfsvíkur
er hannað af Verkfræðistofu Austur-
lands í samvinnu við Trésmiðju
Fljótsdalshéraðs. Þar á bæ eru menn
vanir byggingu einingahúsa úr timbri
því undanfarin ár hefur fyrirtækið
byggt um 30 íbúðarhús á ári þó hing-
að til hafí þau verið flutt í einingum
á byggingarstað og reist þar. Hins
vegar hafa starfsmenn Trésmiðjunar
öðlast mikla reynslu f að skila full-
búnum sumarbústöðum á þá staði
sem þeim er ætlað að standa á. Telja
þeir litlu flóknara að skila heilu íbúð-
arhúsi fullbúnu á Qarlægan stað.
Aukin stærð kalli aðeins á fleiri
dráttarbíla til að flytja húsið á
ákvörðunarstað. _
Miðbæjarsamtökin:
Loforð fyrir lækkun
stöðumælagjalds og sekta
DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri,
hélt fund með forsvarsmönnum
Miðbæjarsamtakanna f gær þar
sem hann lofaði lækkun á stöðu-
mælagjaldi og stöðumælasektum
og fleiri úrbótum á þvi ófremdar-
ástandi sem ríkir í bílastæðamál-
um miðbæjarins, að sögn for-
svarsmanna samtakanna. Á
fundinum voru borgarstjóra af-
hentar undirskriftir 400 aðila
sem reka fyrirtæki í miðbænum
sem mótmæltu því hveraig staðið
væri að bflastæðum og stöðu-
mælavörslu.
Að sögn Guðlaugs Bergmanns,
formanns Miðbæjarsamtakanna,
fóru undirtektir borgarstjóra fram
úr björtustu vonum. Loforð fengust
fyrir lækkun stöðumælagjalds úr
50 kr. fyrir 30 mínútur í 50 kr.
fyrir 60 mínútur, lækkun sekta úr
500 kr. í 300 kr. ef greitt væri inn-
an þriggja daga og að dráttarbílar
yrðu framvegis staðsettir utan mið-
bæjarkjamans og tilkallaðir aðeins
ef þurfa þætti. Einnig kvað Guð-
laugur borgarstjóra hafa lofað
manneskjulegri framkæmd stöðu-
mælavörslu og fjölgun gjaldfrjálsra
bílastæða í miðbænum. M.a. væri
í athugun að borgin fengi bflastæði
Eimskipafélagsins uppi á Faxaskála
og jafnvel inni í honum. Bílastæði
við Ráðhúsið, Garðastræti,
Tryggvagötu og Vitatorg væru for-
gangsverkefni hjá borginni og í
athugun væri að hefja aftur ferðir
miðbæjarstrætisvagns, sem yrði
ókeypis, og reyna þannig að létta
á bflaumferðinni í miðbænum.
Einnig sagði Guðlaugur borgar-
stjóra hafa upplýst að verið væri
að kanna möguleika á að opna
Austurstræti fyrir bílaumferð og
kæmi þá til greina annað hvort að
gera það að vistgötu eða opna fyrir
umferð eftir lokun verslana á kvöld-
in.
Stofnuð hefur verið samstarfs-
nefnd Miðbæjarsamtakanna og
borgarinnar og kvað Guðlaugur
verkefni hennar vera það að stuðla
að því að gamli miðbærinn héldi
sínum sessi sem hinn eini sanni
miðbær Reykjavíkur.