Morgunblaðið - 02.07.1988, Side 10

Morgunblaðið - 02.07.1988, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 ItomglM DŒáÐ Umsjónarmaöur Gísli Jónsson Nú megið þið spreyta ykkur á að giska á hversu gamalt það muni vera sem hér fer á eftir og hvar það hafi birst: „Blaðamenn ættu að auglýsa eftir nýyrðum, þegar þeirra er þörf, í stað þess að nota erlend orð eða orðatiltæki. Hinir mörgu hagyrðingar þjóðarinnar mundu ekki láta á sér standa, þótt lítið fé kæmi í aðra hönd. Svo elska þeir þjóð vora og þjóðtungu. Líka þyrfti að fá norrænufræðinga í lið með sér. Þeir ættu að fræða al- menning um ísl. mál og málvenj- ur, meir en gert er. Og vissulega þurfa þeir líka að vera á verði og vara menn við málspjöllum. Þá ættu öll blöð landsins að birta meira um ísl. mál og málvenjur en gert er. Ætti í hveiju blaði að hafa sérstakar greinar um mál- vemdun, sem menn gætu lesið sér til sálubóta. Og loks þyrfti að stofna málvemdunarfélag í hveiju kauptúni til leiðbeininga og vemd- unar hinu daglega máli, fyrir alla þá, sem láta sig þjóðemi vort nokkru skipta. í þessu sambandi má geta þess að nýyrðasafn orðabókamefndar Háskóla íslands hefír gert mikið gagn og hjálpað mörgum í mál- vemdunarstarfinu. En mörg eru orðskrípin enn í málinu og mállýzkumar, sem þarf að leiðrétta og útrýma. Og getur verið að ég minnist á einhver þeirra síðar, þótt mörgum öðrum standi það nær. En eins og íslenzkan stóð af sér dönskuna og dönskuslettumar um aldamótin síðustu, eins mun hún og nú standa af sér enskuna og enskuslettumar. En til þess að það gangi sem greiðlegast, þurfa allir sannir íslendingar að vera á varðbergi. Láta þá, sem enn þykir það „fínt" að krydda mál sitt með erlendum orðum eða orðskrípum, vita að vér eigum eitt hið fegursta og fullkomn- asta mál, sem til er. Og að það er móðgun við ísland og íslend- inga, að menn vandi ekki mál sitt, hvort sem er í ræðu eða riti.“ Þessi maður skrifaði undir gælu- nafni, en kannski fínnið þið hann. ★ Ég var farinn að örvænta um orðalagið að eitthvað byggist á einhveiju. Dag eftir dag sá ég eða heyrði dönskuna: þetta byggir á því, allt endalaust. Stórar fyrir- sagnir í blöðum, frétt á frétt ofan í vörpum, þar sem allt byggði á einhveiju. Voðalegir bygginga- meistarar sífellt á ferðinni. Mér var til efs að nokkur myndi leng- ur eftir miðmynd í þolmyndar- merkingu. En samningamir byggðust (=voru byggðir) á sam- komulagL Þeir byggðu ekki neitt á neinu. Áætlunin byggðist (=var byggð) á rannsóknum. Hún byggði hvorki eitt né neitt. Get- gátur hans byggðust (=voru byggðar) á hæpnum forsendum. Þær byggðu ekki eitt eða neitt á neinum forsendum. Nú skrifa ég í bjartsýniskasti. Ég hef heyrt hvað eftir annað í vörpum rétt farið með þetta. Menn kunna allt í einu að segja að eitt- hvað byggist(=sé byggt) á öðru. Jafnvel í auglýsingum, hvað þá fréttum. Guð láti gott á vita. Og kannski hafa menn farið á nám- skeið. En hvað um það. Samein- umst nú um þetta rétta tal og fellum niður vitleysuna að eitt- 442. þáttur hvað byggi (=sé byggt) á ein- hveiju. ★ Hefur nú hafíst upp nýr limru- smiður, að nafni Áslákur austan og býð ég hann velkominn í hóp þeirra félaga sem yrkja úr öllum áttum, þó mörgum málvöndunar- manni þyki lítið koma til kveð- skaparins. En lítið er ungs manns gaman: Um tannlæknishjálp var ei trantvon, né tryggingabót fyrir Anton, þegar lá hann í bælinu á bágstaddrahælinu í sjómannahverfinu í Kanton. Stóð Bergþóra dauðþreytt að bleikja lín og Bjamhildur kófsveitt að steikja svin. A tundri og tjá var tilveran þá, er Björg giftist Randveri Reykjalín. ★ Um Jón gljúfra Jónsson (1744- 1820) segir í kirkjubók: „Dável læs, veit nóg, klúkinn og klókur, hefur hér í sókn [Möðruvallasókn] skikkanlegur verið." Getið þið sagt mér hvað klúkinn þýðir? Ég veit það ekki og hef hvergi fundið það. Orðabók Háskólans hefur ekkert dæmi. Ég yrði líka feginn öllum upplýsing- um um orðið kiinkinn. Það kemur reyndar fyrir í lesmáli og í vísu. sem ég veit ekki með vissu hvem- ig er, en gæti verið á þessa leið: Situr Brynki, sjór þó sprinki og ijúki. Hann er klinkinn, kallinn sá, kólgudynki við að ijl Seinnipartur þessarar stuðla- fallsvísu er nokkuð öruggur, en fyrsta braglínan er ansi vafasöm. ---------------—- Upprunalegt líf Myriam Bat-Yosef Myndlist Bragi Ásgeirsson Listakonan María Jósefsdóttir, eða Myriam Bat-Yosef, sem er hennar upprunalega nafn, hefur víða skilið eftir sig spor. Hún er fædd í Þýskalandi en fluttist í bemsku til ísraels, lagði fyrir sig myndlist og nam m.a. í Flórenz á Ítalíu þar sem hún kynntist Guð- mundi Ferró, sem seinna varð Erró, og giftist honum. Kom hún með honum til íslands árið 1957 og tók ástfóstri við landið enda eignaðist hún hér marga vini sem hún heldur tryggð við. Myriam hefur haldið yfír 50 sýn- ingar víðs vegar um lönd og þar af nokkrar eftirminnilegar á Is- landi. Hún heldur sig ekki eingöiigu við málverkið og hinn tvívíða flöt heldur hefur hún einnig yfírfært list sína á ýmsa tilfallandi hluti svo sem borð, stóla, gínur, tilfallandi efni o.s.frv. Þá hefur hún einhig framið ýmsar tegundir gjömiriga nu Til sölu í Hafnarfirði Steinhús við Álfaskeið: 2 hæðir, 136 fm, byggt 1944, á mjög góðum stað í miðbænum. Lóð með stórum og fallegum trjám. Bílsk. Laust strax. Einkasala. 3ja herb. íbúð við Köldukinn: Falleg, um 70 fm íb. á miðhæð. Svalir. Sérinngangur. Efri hæð og ris í timburhúsi: 3ja herb. íb. og rúmgott ris á góðum stað í miðbænum. Verð 2,4 millj. Einkasala. Árni Gunnlaugsson, hrl., Opið í dag Austurgötu 10, sími: 50764. f rá kl. 12-17. Hjá fegurðinni Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Insight Guides: Sri Lanka Útg. APA Productions ÞEG AR ég rekst á bækur úr Insight Guides-bókaflokknum er skemmti- legt að falla fyrir freistingunni og kaupa þær snarlega og eru þær þó í dýrari kanti ferðabóka. Þessar bækur hafa flest það sem vekur ánægju lesanda. Fróðleikur um sögu viðkomandi lands er að- gengilegur og viðráðanlegur og jafnan upplýsandi frásögn um nú- tímann. Myndir eru alltaf forkunn- argóðar. Mikill fjöldi fólks leggur jafnan hönd á plóginn við gerð þeirra og vandað til vinnubragða í hvívetna. Að mínum dómi er mikilvægt að lesa sér til um þau lönd sem farið er til, enda þótt ekki sé hægt að sporðrenna öllu og lestur jafnast aldrei á við upplifunina sjálfa. En góður undirbúningur og vitneskja getur gert dvöl á framandi slóðum fyllri og gjöfulli. í Insight Guides um Sri Lanka er bókinni skipt niður í ágæta og skipulega kafla, svo að hver getur Kápumynd S 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSON solustjori LARUS BJARNASON HDL. LÖGG. FASTEIGNASALI Til sýnis og sölu auk annarra eigna: Góð íbúð - langtímalán 3ja herb. íb. stór og góð á 3. hæð v/Hraunbæ 90,9 fm. Ágæt sam- eign. Gott kjherb. fylgir með snyrt. Mikiö útsýni. Góð langtímalán kr. 2,8 millj. fylgja. Laus í nóv. nk. Skammt frá Háskólanum á 1. hæð í reisulegu þríbhúsi 4ra herb. hæð 95,5 fm nettó. Velmeð- farin. Svalir. Danfosskerfi. Skuldlaus. Skipti mögul. á 3ja herb. íb. í Vesturborginni. Skammt frá Sundhöllinni 3ja herb. þakfb. um 80 fm. Nýl. gluggar og kvistir. Sólsvalir. Góð geymsla í kj. Ágæt sameign. Verð aðeins kr. 3,6 millj. Suðuríbúð í lyftuhúsi 2ja herb. á 6. hæö við Álftahóla. Ágæt sameign. Stórkostlegt útsýni. Fjársterkur kaupandi óskar eftlr einbýlishúsi í borginni eða nágr. um 200 fm helst á einni hæð. Opið í dag laugardag kl. 11.00-16.00. Fjöldi fjársterkra kaupenda. ALMENNA FASTEIGNASAIAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Húseign íHafnarfirði Nýkomið til sölu fallegt og vandað einbýlishús á friðsæl- um stað við Austurgötu. Tvær hæðir, 162 fm, byggt 1963. Á efri hæð eru tvær rúmgóðar stofur, stórt eld- hús og snyrtiherb. Á neðri hæð eru þrjú herb., bað, þvottahús og geymsla. Suðursvalir með góðu útsýni. 24 fm útihús (verkstæði). Einkasala. Opið í dag frá kl. 12-17 Árni Gunnlaugsson, hrl., Austurgötu 10, sími: 50764. lesið sér til um það sem helst snert- ir áhugasvið hans. Þar er skrifað um söguna, nýlendutímann, sér- stakur kafli er um tímabilið eftir sjálfstæði og loks um Sri Lanka nú. Fyrirferðarmikil skil eru gerð á trú og lífsskoðun Lanka, gerð grein fyrir sinhalesum og þeirra búddatrú og minnihlutaþjóðinni tamílum sem eru flestir hindúar. Þá er snúið sér að því að gera landinu skil og hver hluti fær sinn skerf. Menningarlíf, atvinnuvegir, trú- arhátíðir, matarvenjur, lífíð í frum- skóginum, gimsteinavinnslan og er , þá fátt eitt talið. í síðasta kafla bókarinnar er svo gerð grein fyrir, ýmsum þáttum sem ferðamönnum . kemur vel að vita, svo sem um ferð- ir innan Sri Lanka, gistiaðstöðu, t næturlíf, íþróttir, tungumál og hvaðeina. Allmörg kort eru til bóta. Þeir sem hafa sótt Sri Lanka heim hljóta að hrífast af fegurð landsins og eyjan er réttnefnd Paradísareyja. I eldgömlum sögn- um segir að menn hafí trúað því að Sri Lanka hafi verið aldingarður- inn Eden, og víst hefur maður heyrt fráleitari kenningar en það. Það er sorglegra en tárum taki, að illvígar deilur sinhalesa og tamfla á síðustu árum hafa orðið til þess að skipta þjóðinni í stríðandi fylkingar, blóði er úthellt og það virðist erfítt að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.