Morgunblaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 11 og enn víðar hefur hún haslað list sinni völl. Myriam býr og vinnur í París, nánar tiltekið í hinni gömlu vinnu- stofu fyrrum eiginmanns síns að Rue de Buci í hjarta latínuhverfís- ins. Myriam er í heimsókn hér um þessar mundir og hafði nokkrar tvívíðar myndir í salnum, sem hún hefur hengt upp á veggi PÍM-salar- ins á homi Garðastrætis og Ránar- götu, nánar tiltekið Garðastræti 6. Myndimar, sem em 57 að tölu og þar af nokkrar í grind á gólfí, stað- festa allar, að listakonan hefur löngu fundið list sinni ákveðinn far- veg og tjáir hér ýmis fyrirbæri lífsins á skreytikenndan hátt. Myndir hennar em líkastar líffær- um, sem hún býr úr ýmis tákn úr þekkjanlegum hlutvemleikanum og í þetta skipti hefur hún nálgast sjálfan mannslíkamann, en meira ber á fígúmm en lengstum áður, auk þess sem hún notar augu sem uppistöðu í ýmsum myndanna. Maður staðnæmist við myndir eins og „Augu viskunnar" (1), „Umgerð- in“ (2), „Furðudýr" (28), „Himnaför Elía" (31), „Kvenímynd" (34), „Sól- setur" (35) og „Locknessskrímslið" (36), sem allar em einkennandi fyr- ir það sannasta og uppmnalegasta, sem frá listakonunni kemur. Eink- um er einhver birta og ferskleiki í síðasttöldu myndunum og er ég ekki fjarri því að þær kynni bestu hlið hennar og em að mínu mati hápunktur sýningarinnar. En í heildina litið þá er þessi sýningarsalur ekki æskilegasta umgerðin utan um myndir listakon- unnar og í sjálfu sér er þetta all- langt frá því að vera sterkasta framlag hennar hér í borg. En það er þó vissulega ávallt fengur að sýningum sem slíkum og Myriam Bat-Yosef, eða kannski réttara María Jósefsdóttir er aufúsugestur á íslenzkan menningarvettvang. uppræta hatrið og vonskuna. Mis- réttið sem tamflar búa við sýnist augljóst, þeir hafa búið á Sri Lanka jafn lengi og sinhalesar en njóta ekki réttinda á borð við þá. Víst er öllum þetta meira og minna ljóst en ekki hefur tekist að finna neina þá lausn sem allir gætu sætt sig við. Til þess er nöturlegt að vita. Hvergi utan íslands hefur landslag haft jafn djúp áhrif á mig og á Sri Lanka og mér fínnst það hljóti að vera mannbætandi að kynnast slíkri fegurð — þó ekki væri nema um stund. Bókin Insight Guides gerir Sri Lanka hin verðugustu skil. Sem fleiri bækur í þessum flokki er hún eftirsóknarverð hveijum þeim sem ætlar einhvem tíma til Sri Lanka. Sömuleiðis þeim sem hefur farið þangað. Og kannski ekki síst þeim sem fara þangað aldrei nema í hug- anum. Tvö tilboð í klæðninguá Vesturlandi TVÖ tilboð bárust Vegagerðinni í gerð klæðingar í Staðarsveit og voru þau bæði undir kostnað- aráætlun. Klæðningin er á 15 km kafla og tilboð gerðu Hagvirki hf. kr. 16.700.000 og Borgarverk, Tak og Sig. Vigfússon á 17.510.000 kr. Verkinu skal lokið fyrir 1. septemb- er. Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Breiðholt: Lyfjaberg flytur í nytt húsnæði APÓTEKIÐ Lyfjaberg í efra Breiðholti flutti i nýtt og stærra húsnæði við Hraunberg 4, 20. júní sl. Stækkunin gerir því kleift að bæta þar við helgar- og nætur- vörslu. Lyfjaberg var áður staðsett við Drafnarfell, en hefur nú flust í nýtt og stærra húsnæði við Hraunberg. Morgunblaðið náði tali af Guðmundi Steinssyni lyfsala, sem sagði að stækkunin bætti alla aðstöðu starfs- fólks og geri þeim auk þess kleift að sinna helgar- og næturvörslu, en það hefur ekki verið hægt hingað til sökum plássleysis. Þá er apótekið einnig meira miðsvæðis í hverfínu sem það þjónar, að sögn Guðmund- ar, sem er Breiðholt 3. í framtíðinni rís heilsugæslustöð í sömu götu. Morgunblaðið/Einar Falur Guðmundur Steinsson, lyfsali ásamt starfsfólki sínu í nýja húsnæði apóteksins við Hraunberg FERÐA TILBOÐ! mEVRÓPU Á ÚRVALS VEGUM AMSTERDAM DAUN EIFEL FRANKFURT 270 KM VÍN 930 KM MUNCHEN'V'» 520 KM SALZBURG | 665 KM l RÓM \1335 KM BASEL 330 KM fíug og bíll. Við bjóðum flug og bíl um Luxembourg á uerði sem aldrei hefur verið hagstœðara. Þangað eru daglegar flugferðir, þaðan er stutt í allar áttir og öll Mið-Evrópa er innan seilingar. Dœmi um verð: 19.550 kr* *Innifalið: Flug og bíll B-flokki (t.d. Ford Escort) í 3 vikur, ótakmarkaður akstur, kaskótrygging og söluskattur. Verð á mann, miðað við tvo fullorðna og tvö börn, 2-11 ára, í bíl. fíug, bíll og sumarhús. í sœlureitnum í Daun Eifel er svo tilvalið að dvelja í sumarhúsi, a.m.k. hluta leyfisins. Þar er öll aðstaða mjög góð, bœði fyrir börn og fullorðna. Nefna má sundlaug, tennisvelli, gufubað, krár og bjórgarð. Og í sumar er íslensk barnapía í Daun Eifel. Dœmi um verð: 26.400 kr.** **Innifalið: Flug, bíll í C-flokki (t.d. Ford Sierra), ótakmarkaður akstur, tryggingar og sumarhús (m. 2 svefnherb.) íDaun Eifel í 2 vikur. Verð á mann, miðað við að tveir fullorðnir og tvö börn, 2-11 ára, ferðist saman. Líttu inn, við hjálpum þér að skipuleggja ógleymanlega Evrópuferð á eigin vegum. FCRBASKRIFSTOFAN ÚRVAl - fólk sem kann sitt fag! Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.