Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 18

Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 Greinargerð safnaðarslj órnar Fríkirkjunnar í Reykjavík — varðandi lausn séra Gunnars Björnssonar frá störfum sem prestur safnaðarins í júní 1988 Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi greinargerð: „Vegna ónákvæmrar ^ölmiðlun- ar um ástæður þær sem liggja til grundvallar ákvörðun safnaðar- stjómar að segja séra Gunnari Bjömssyni, presti við Fríkirkjuna í Reykjavík, upp störfum telur stjóm- in rétt að útskýra málið til hlítar í þessari greinargerð, þótt það sé henni óljúft. Nauðsynlegt er að skoða þróun málsins nokkuð aftur í tímann til að ná réttu samhengi, en fyrst er rétt að gera grein fyrir ákvörðun uppsagnarinnar nú. Með bréfí dagsettu 23. júni sl. var séra Gunnar leystur frá starfí frá og með 1. júlí 1988. Jafnframt var honum tilkynnt að hann héldi launum án embættiskostnaðar fram til 30. sept. nk. Þá var honum og sagt upp afnotum af húsi safnaðar- ins í Garðastræti 36 og skyldi það rýmt fyrir 30. sept. nk. Ifyrir af- hendingu ofangreinds bréfs, var séra Gunnari gefínn kostur á að segja starfí sínu lausu með sömu skilmálum. Hann sagðist vilja íhuga það og var hann hvattur til að ígrunda þann kost vandlega. Séra Gunnari var gert ljóst að ástæður uppsagnarinnar væru þær, að hann hefði brotið erindisbréf það, er hann undirritaði 4. okt. 1985, þegar hann var endurráðinn til safnaðarins. Presturinn kaus aftur á móti að fara með málið í fjölmiðla. Ákvörð- un um að leysa prestinn frá störfum var tekin á safnaðarstjómarfundi 23. júní 1988 og hún samþykkt með fímm atkvæðum gegn tveimur. Ákvörðun safnaðarstjómar er byggð á 21. gr. laga Fríkirkjusafn- aðarins í Reykjavík, sem er sjálf- stæður söfnuður utan þjóðkirkjunn- ar, og ennfremur á 13. lið erindis- bréfs prestsins frá 4. okt. 1985. Fljótlega eftir að séra Gunnar var ráðinn til starfa við Fríkirkju- söfnuðinn fór að bera á samskipta- örðugleikum milli hans og safnaðar- ins, sem smám saman hafa verið að magnast, þar til ákveðið var að víkja prestinum úr starfí, til þess að koma aftur á eðlilegu kirkju- og safnaðarstarfí. Sem dæmi um sam- starfsörðugleika má vitna í eftirfar- andi minnispunkta, sem einn safn- aðarstjómarmaður sendi til þáver- andi safnaðarformanns: „Undanfarið hafa verið miklar væringar við safíiaðarprest Fríkirkjunnar í Reykjavík. Þær má fyrst og fremst rekja til óánægju prestsins með launakjör, húsnæðis- mál og samstarf við safíiaðarstjóm og starfsfólk. Á fundi safnaðarstjómar 3. jan- úar 1985 voru kjömir fjórir stjóm- armeðlimir til þess að koma á sátta- fundi með safnaðarprestinum og var hann haldinn 17. janúar sl., þar sem eiginkona prestsins var mætt með honum. Fundurinn hófst á því að formað- ur reifaði málin og skýrði afstöðu Safnaðarstjómar. Síðan tóku prestshjónin orðið á víxl og héldu því nær óslitið þar til fundi lauk. Vom það látlaus ámæli á safnaðar- stjóm um störf og hegðan. Beind- ust spjótin að formanni og skulu þau gífuryrði ekki rakin hér, en allir stjómarmenn urðu svo hvumsa við, að þeim ofbauð átölumar. Kom þama berlega í ljós hvaða hug presturinn og frú hans bera til stjómarmanna persónulega. Stjómarmenn vildu ekki hleypa. þessum fundi upp með fúkyrðum eða öðram munnsöfnuði á móti, enda ekki við hæfi, þó tilefni væra nægileg undir venjulegum kring- umstæðum. Presturinn gekk svo langt, að til áherslu persónulegra ásakana sinna á formanninn greip hann til þess að fetta sig og bretta og að herma eftir honum og lýsa því yfír, að annar hvor þeirra yrði að víkja. Þetta og annað bendir, svo ekki verður um villst, á óvild þá sem hann ber í bijósti til safnaðarstjóm- ar. Þótt reynt væri ítrekað að færa umræður yfír á málefnalegan grandvöll og færð væra rök fyrir ásökunum, bar það engan árangur. Safnaðarstjómin vildi samt sem áður ennþá einu sinni leita sátta og úrlausna á þessu vandamáli og samþykkti því einróma að rita prestinum bréf, þar sem bent er á lög safnaðarins og hann minntur á að fara beri eftir þeim og beðinn að endurskoða afstöðu sína til stjómar og starfsfólks safnaðarins. Engin viðbrögð hafa fengist við þessu bréfí dagsins í dag. Hér er því mikið vandamál á ferð- inni, en safnaðarstjóm stendur ein- huga að baki formanns síns í því, svo sem komið hefur fram í fundar- gerðum safnaðarstjómarinnar." Þrátt fyrir þessa viðleitni stjóm- arinnar til sátta bar hún engan árangur og neitaði presturinn að mæta á stjómarfundi, þótt um væri beðið. Sagðist hann hafa nóg með tíma sinn að gera. (Þetta ástand breyttist þó í formannstíð Gísla ísleifssonar, því að hans mati var ekki hægt að halda safnaðarstjóm- arfundi nema að séra Gunnar væri til staðar og hélst það óbreytt þann tíma.) Örðugleikar héldu áfram að magnast og gjáin að breikka, þrátt fyrir sáttavilja safnaðarstjómar. Þessi vandamál vora ekki opinberað fyrr en á aðalfundi Fríkirkjunnar 28. apríl 1985. í messu, á undan aðalfundi, tekur prestur til altaris, en tveimur þremur stundarfjórð- ungum síðar gekk hann á dyr ásamt eiginkonu sinni, eftir að hafa lýst yfír áframhaldandi stríði við safnað- arstjóm og skellti hurðum á eftir sér. Á aðalfundinum bar fundarstjóri, Eyjólfur Guðmundsson, fram fyrir- spum til séra Gunnars um hvað hann meinti með ítrekuðum um- mælum sínum um að Fríkirkjan væri í andarslitranum og ætti sér ekki viðreisnar von. Safnaðarprest- ur sté þá í pontu og lýsti yfír að hann þyrfti hvorki að standa Eyj- ólfí né nokkram öðram skil eða skýringu á ummælum sínum eða ræðum. Að sögn séra Gunnars eiga alla tíð að hafa ríkt eriðleikar milli presta safnaðarins og stjómarinnar. Þetta kannast kunnugir ekki við, enda hefur starfstími flestallra presta safnaðarins verið langur. Á aðalfundinum var samþykkt sam- hljóða tillaga þess efnis, að fundur- inn treysti stjóm safnaðarins fylli- léga til þess að fara með málefni safnaðarins og þar á meðal að leysa ríkjandi ágreining við prest safnað- arins, sem þá var öllum ljós. Allar sáttatilraunir reyndust ár- angurslausar, og lyktaði með þvf að prestinum var sagt upp starfi. Fyrir milligöngu vina hans, átti biskup þjóðkirkjunnar fund með prestinum og þáverandi safnaðar- formanni. Niðurstaða þess fundar varð-sú, að prestur sendi safnaðar- stjóm bréf, þar sem hann baðst afsökunar á framkomu sinni og hét því að vinna heils hugar að /róðu safnaðarsamstarfí í framtíðinni. í framhaldi af afsökunarbeiðninni var gert erindisbréf við hann og haft samráð við biskup um innihald þess. Hér á eftir er umrætt erindis- bréf (fylgiskjal nr. 1) og afsökun- arbéiðni (fylgiskjal nr. 2) séra Gunnars: Fylgiskjal nr. 1: „Fríkirkjusöfnuðurinn í Reylqavík Stjóm Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík samþykkir að beiðni sr. Gunnars Bjömssonar, að draga til baka uppsögn hans og endurráða hann prest safnaðarins með þeim skilmálum sem fram koma í eftir- farandi erindisbréfí: Erindisbréf fyrir sr. Gunnar Bjömsson, prest Fríkirkjusafnaðar- ins í Reykjavík. 1. Prestur safnaðarins hefur sömu skyldur gagnvart söfnuðinum og prestar hinnar íslensku þjóð- kirlqu almennt hafa. 2. Presturinn og safnaðarstjómin era í störfum sínum bundin af lög- um fríkirkjusafnaðarins og fer verkaskipting þeirra eftir því sem þar er ákveðið. Báðir aðilar skulu leitast við að hafa með sér gott samstarf og vinna að heill kirkjunn- ar og safnaðarins á grandvelli frið- semdar og kristilegs hugarfars. 3. Kaup og kjör prestsins skulu á hveijum tíma vera hin sömu og era í kjarasamningi Prestafélags íslands við Qármálaráðuneytið. 4. Meðan sr. Gunnar Bjömsson gegnir störfum prests Fríkirkju- safnaðarins í Reykjávík, skal hann eiga kost á að búa í embættis- bústað safnaðarins í Garðastræti 36. Ifyrir afnot sín af bústaðnum skal presturinn greiða leigu sam- kvæmt gildandi reglum um emb- ættisbústaði rikisins. Presturinn greiðir sjálfur kostnað við ljós og hita bústaðarins og daglegt viðhald, þann tíma sem hann kýs að búa í honum, en söfnuðurinn kostnað við allar stærri viðgerðir og viðhald bústaðarins, enda liggi fyrir sam- þykki safnaðarstjómar, áður en í þær er ráðist. 5. Annan kostnað, sem ekki er innifalinn í greiddum embættis- kostnaði til prestsins, verður safn- aðarstjóm að samþykkja, áður en til hans er stofnað. 6. Presturinn skal sitja fundi safnaðarstjómar, sé þess óskað, og hafa þar málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt. 7. Organisti og söngstjóri kirkj- unnar hefur stjóm og umsjón með orgeli og söngmálum þar, í umboði safnaðarstjómar, samkvæmt erind- isbréfi um störf hans, sem safnaðar- stjóm mun setja honum. Hann ræð- ur söngfólk til að syngja við athafn- ir, sem fram fara á vegum kirkjunn- ar. Presturinn hafí samband og samráð við organistann um athafn- ir, sem fara fram í kirkjunni, eða á hennar vegum. Við athafnir, sem snerta sérstaklega einstaklinga, svo sem útfarir og giftingar, skal virða óskir viðkomandi um söngfólk og hljómlistarmenn. 8. Kirlq'uvörður, sem safnaðar- stjóm ræður, hefur umsjón með kirkjunni og annast þar dagleg störf samkvæmt nánari ákvörðun safn- aðarstjómar. 9. Safnaðarstjóm annast fjármál safnaðarins og fer með annað er viðkemur rekstri hans, sbr. 9. gr. laga safnaðarins. Stjómin mun leit- ast við að velja sér ráðunaut, til þess að hafa eftirlit með húseignum safnaðarins og gera tillögur um úrbætur til hennar á hveijum tíma. 10. Útlán kirlqunnar til sam- komuhalds 'utanaðkomandi aðila era 'háð vitund og samþykki safnað- arstjómar að höfðu samráði við safnaðarprest, enda sé til staðar kirlquvörður. Gjöld fyrir slík útlán skulu ákveðin með tilliti til kostnað- ar. 11. Dagbók, sem skráðar era í fyrirhugaðar athafnir í kirkjunni, skal liggja frammi á aðgengilegum stað, til upplýsinga fyrir starfsfólk kirkjunnar. Prestur aðstoðar við útgáfu „Fríkirkjunnar". 12. Vilji presturinn hætta störf- um fyrir söftiuðinn, skal hann bréf- lega kynna formanni safnaðar- stjómar það með þriggja mánaða fyrirvara sbr. 20 gr. laga safnaðar- ins. 13. Vilji safnaðarstjómin segja prestinum upp störfum, verða 2/3 safnaðarstjómarmanna að sam- þykkja það. Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir. Þó getur prestur og safnaðarstjóm komið sér saman um annan uppsagnarfrest, ef sérstakar aðstæður era fyrir hendi, sbr. 21. gr. laga safnaðarins. Til staðfestu framanrituðu rita prestur og safnaðarstjómarmenn nöfn sín hér undir í viðurvist votta. Reykjavík, 4. október 1985, (Sign.) allra stjómarmanna. Samþykkur framanrituðu erind- isbréfí sem prestur Fríkirkjusafnað- arins í Reykjavík, sr. Gunnar Bjömsson (sign.).“ Fylgiskjal nr. 2 „Reykjavík, 28. sept. 1985. Safnaðarstjóm Fríkirkjunn- ar, c/o Ragnar Bemburg, R. Ég undirritaður fer þess innilega á leit við safnaðarstjóm Fríkirkj- unnar, að hún endurskoði afstöðu sína að því er varðar uppsögn mína úr starfí safnaðarprests. Um leið og ég heiti því að vinna heils hugar að því, að samstarfsörð- ugleikum milli mín og hennar linni, bið ég stjómina í heild og hvem einstakan stjómarmann, svo og aðra þá, er málið varðar, afsökunar á því, er misfarist hefur í samskipt- um okkar í milli. Virðingarfyllst, Gunnar Bjömsson (sign.)“ Séra Gunnar hefur ekki haft í heiðri þessi tvö bréf, eins og ffarn kemur t.d. í meðfylgjandi bréfí (fylgiskjal nr. 3) frá Guðmundi Gunnlaugssyni, sem hann skrifaði stjóm Fríkirkjusafnaðarins: Fylgiskjal nr. 3 „Reykjavík, 20. jan. 1988. Til stjómar Fríkirkjusafnað- arins í Reykjavík. Ég undirritaður, Guðmundur Gunnlaugsson, arkitekt sem frá sl. aðalfundi hef setið í stjóm Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík, sé mig hér með tilneyddan til að skrifa þetta bréf og; segja af mér störfum í stjóminni frá og með þessum degi. Þá hef ég sömuleiðis gengið frá úrsögn minni og konu minnar úr söfnuðinum á Hagstofu íslands. Þá mun ég gera kröfu um að bréf þetta verði lesið upp á næsta aðalfundi. Ástæður þessa örþrifáráðs era fyrst og fremst óþolandi framkoma safnaðarprests í minn garð í símtali þ. 19. jan. auk vísvitandi rangra upplýsinga hans á safnaðarfundi þ. 8. des. sl. Forsögu málsins þekkjum við öll. Til að halda frið innan safnaðar- stjómarinnar og vinna skipulega að viðgerð Garðastrætis 36, hafði ég 4 sinnum, bæði persónulega og með boðum beðið sr. Gunnar um að koma með óskalista þeirra hjóna um í hvaða forgangsröð þau vildu láta gera við húsið. Leggja þann lista ffarn á fundi til samþykktar og bókunar með áætlun um kostn- að. Þessu var ekki svarað. Þegar ég spyr síðan sr. Gunnar á fundi þ. 8. des. í viðurvist stjómarmanna, hvað sé að frétta af viðgerðarmál- um, svarar hann orðrétt: „Þar sem svo miklar framkvæmdir standa fyrir dyram í kirkjunni sjálfri, höf- um við hjónin ákveðið að fara mjög hófsamt í viðgerðir Garðastrætis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.