Morgunblaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988
Stórborg rís og fellur
eftir Kristínu
Steinsdóttur
Þokan kemur veltandi á móti
bflnum löngu áður en komið er
upp á Norðurbrún. Hún er í byij-
un létt og ljós, næstum gegnsæ,
veltur eftir þúftim og rofabörðum
beggja megin vegarins og gælir
við bláklukku og gullmöðru. Þeg-
ar kemur lengra inn á Fjarðar-
heiði þykknar hún, verður þung
og þrúgandi. Hver steinn og þúfa
meðfram veginum birtist eins og
ófreskjur. Sá sem yfirgæfí bflinn
og færi út af veginum væri vísast
snarvilltur eða í tröllahöndum.
Það er reimt á Fjarðarheiði eins
og öllum öðrum flallvegum á ís-
landi! Vegurinn er ekki enn orðinn
þurr eftir veturinn og mitt í allri
forinni og þokunni birtast verur
í gulum regnfötum. Þetta eru
ekki ófreskir menn heldur vega-
vinnukarlar við vinnu sína. Þér
hverfur allt tímaskyn ásamt til-
fínningu fyrir öðru en svartri þoku
og aurbleytu. Loks fer þó að halla
undan fæti og skömmu ofan við
Pjarðarsel byijar þokunni að létta.
Þú ert komin til Seyðisfjarðar.
Gömlu húsin á Öldunni hafa séð
betri daga, þau kúra í rigningunni
misjafnlega farin. Hér vitnar
margt um forna frægð þegar
byggt var af stórhug í höfuðstað
Austurlands; norsk kataloghús
með kvistum og tréútflúri, deyj-
andi tré í görðum. Gijóthleðslan
í kringum Lónið er vönduð og
hólminn fallega grænn.
Á túninu innan við Tungu kveð-
ur við annan og nýrri tón. Þar
er risin upp stórborg. Gul, rauð,
græn og blá tjöld, Volkswagen-
svefnvagnar, mótorhjól, fólks- og
jeppabflar. Sum tjöldin eru reist
á stöngum yfír bflunum. Forvitni-
leg sjón og athygli verð. Við nán-
ari athugun reynist þetta vera
þýskt hugvit og bflamir eru á
þarlendum númerum. Feijan
Norræna er væntanleg til landsins
í fyrramálið. Svona stórborg rís á
hveijum miðvikudegi allt sumarið
og fellur jafnharðan á fímmtu-
dagsmorgni.
Það er hlýtt og notalegt að
koma inn á Farfuglaheimilið.
Gömul verbúð, Haföldubragginn,
hefur verið dubbaður upp, and-
rúmsloftið er hlýlegt og mannlífíð
gott. Þama sitja enskar og amer-
ískar stúlkur, drekka te og lesa
þykka doðranta í kiljuformi. Þær
hlæja upp úr eins manns hljóði
með reglulegu millibili.
Sænskur farandsöngvari situr
á bekk og slær gítarinn umkringd-
ur raulandi fólki af ýmsu þjóðemi.
Úti í homi situr frönskumæl-
andi Belgi og drekkur viskí. Hann
er að segja ferðasögu sína á
ensku. Maðurinn hafði verið búinn
að dvelja um hríð í Loðmundar-
fírði og leita að sporum Ódysseifs
og kýklópsins. Með haka og skóflu
fór hann um fjörðinn við annan
mann. Hann lenti í ýmsum hrakn-
ingum og öll var ferð hans án
árangurs. Að því búnu gafst hann
upp og hélt til Seyðisfjarðar aftur
þaðan sem hann hugðist taka
Norrænu.
En viti menn, hann frétti af
miklum hellum í eyðifírði nokkr-
um sem Hellisfjörður heitir og
gengur inn í Norðfjörð. Ákvað
hann á samri stundu að þangað
skyldi ferðinni haldið á báti.
Fannst honum allar líkur á að nú
væri hann loksins kominn á slóðir
Ódysseifs og kýklópsins!
Állur þessi mannfagnaður fer
fram á lægri nótunum, menn taka
tillit hver til annars. _Með einni
undantekningu þó. í fjögurra
manna herbergi sefur Finni og
hrýtur svo hátt að enginn treystir
sér til að deila með honum her-
bergi. Hafa nokkrir vaskir menn
gert tilraun en allir orðið frá að
hverfa. Og í ofan á lag á allt
annað er maðurinn svo vær að
hann sefur bókstaflega allan dag-
inn. Hrotur Finnans blandast
svæfandi lækjamiðinum í Bjólfín-
um, regnið suðar á þakinu.
Næsta morgun er sól upp á
hvem tind. Sólargeislamir reyna
að vinna á snjóbreiðunum í fjöll-
unum en gengur hægt. Norræna
er komin og tjaldborgin fallin.
Bflalestin í feijuna nær inn undir
Brú. Sólin bakar, menn sitja í bið-
röðinni léttklæddir og þolinmóðir
„Gömlu húsin á Öl-
dunni hafa séð betri
daga, þau kúra í rign-
ingunni misjafnlega
farin. Hér vitnar
margt um forna frægð
þegar byggt var af
stórhug í höfuðstað
Austurlands; norsk
kataloghús með kvist-
um ogtréútflúri, deyj-
andi tré í görðum.
Grjóthleðslan í kring-
um Lónið er vönduð
og hólminn fallega
grænn.“
meðan hún þokast áfram bfl fyrir
bfl kflómetra eftir kflómetra en-
skir, franskir, þýskir, hollenskir,
svissneskir, danskir. Lögreglan
og eftirlitsmenn em ábúðarfullir.
Hver bfll fer inn á afgirt svæði
og þaðan inn í skipið.
Á bryggjunni er urmull af fólki.
Þar eru innfæddir að sinna erind-
um, aðkomumenn að forvitnast
og ferðalangar úr Norrænu ný-
stignir á land. Þeir síðastnefndu
reyna að átta sig á umhverfínu.
Sumir eru furðu fljótir að ná átt-
um eins og svartklædda mótor-
hjólagengið sem gefur í og hverf-
ur með allt sitt fret og marglita
hjálma í rykskýi inn dalinn.
Æskulýður staðarins er mættur
til að skoða fólkið. „Hvað með
þennan litla. Er hann íslenskur?"
spyr strákur með fótbolta.
„Nei, hann er í svo asnalegum
skóm, útlendingaskóm!" svarar
kotroskin stelpa með krakka í
kerru.
„Do you speak english? spyr
fótboltamaðurinn.
„Bonjour," svarar litli maður-
inn glaðlega.
Þau fá æðisgengið hláturskast
og stökkva af stað með kerruna
í eftirdragi.
„Bonjour ... bonjour . . . hol-
lendingur," og þau flissa í smá-
stund. En að vörmu spori hafa
þau jafnað sig og nú er röðin
komin að mér.
„Halló kona, ertu íslensk?"
Eg jánka því og spyr hvemig
sé að búa á Seyðisfírði.
„Fínt,“ segir stelpan.
„Mest gaman á fímmtudögum
þegar feijan kemur," segir strák-
pattinn.
„Og þegar feijan er farin, hvað
þá?“
„Ég æfí fótbolta," svarar
stráksi.
„Ég er að passa," segir stelpan
og bendir á búlduleitt bamskrílið
í kerrunni. „Er hún ekki mikið
krútt?"
„Svo spila ég í Kattabandinu,"
heldur strákurinn áfram.
„Sko, hér bý ég,“ segir stelpan
og bendir á hús sem stendur á
bryggjunni í Örtröð eins og í dag.
„Pabbi hennar á helminginn í
Norrænu," segir strákurinn hrif-
inn.
„Þegiðu," skipar hún og heldur
svo áfram:
„Ég hef farið hundrað sinnum
með Norrænu ... tíu sinnum ...
tvisvar sinnum ... Æðislegt!"
Hún brosir hikandi en snýr sér
svo glaðbeitt að næsta ferðalangi:
„Ertu íslenskur?"
Upp úr hádegi leggur ferlíkið
úr höfn. Það siglir út spegilsléttan
ijörðinn og sendir í kveðjuskyni
reykjarstrók upp á milli hárra
fjallanna. Allra þjóða kvikindi
standa á þilfarinu og veifa til
lands. Feijan siglir áfram út með
Háubökkunum og yfír olíuskipið
sem Þjóðverjar sökktu fyrir
bandamönnum í seinni heims-
styijöldinni... framhjá Vestdals-
eyrinni, gamla verslunarstaðnum
sem nú er í eyði og hverfur loks
fyrir bugðu á fírðinum.
Bærinn er fljótur að tæmast
aftur. Ferðalangamir úr Norrænu
tínast upp yfír Fjarðarheiði og á
fímmtudagskvöld em aftur komin
rétt hlutföll í samfélagið. Trilla
leggur frá landi og klífur spegil-
sléttan ijörðinn. Skellimir í henni
enduróma í fjöllunum og em það
eina sem rýfur kvöldkyrrðina.
Kristín Steínsdóttir
Brids
Amór Ragnarsson
Sumarbríds
Yfír 40 pör mættu til ieiks í Sum-
arbrids sl. þriðjudag á sama tíma
og landinn var að kenna danskinum
sitthvað á NM á Loftleiðum sama
kvöld. Spilað var í þremur riðlum
(að venju) og urðu úrslit þessi (efstu
pör):
A)
Guðlaugur Sveinsson —
Magnús Sverrisson Ólína Kjartansdóttir — 238
Ragnheiður Tómasdóttir Pétur Guðjónsson — 232
Tryggvi Gunnarsson Árnína Guðluagsdóttir — 228
Bragi Erlendsson Aldís Schram — 228
Júlíana Isebam Soffía Guðmundsdóttir — 225
Stefanía Sigurbjömsdóttir Eyjólfur Magnússon — 221
Steingrímur Þórisson Marsibil Ólafsdóttir — 221
Þórunn Guðmundsdóttir Hjálmar S. Pálmsson — 201
Þórarinn Andrewsson Dóra Friðleifsdóttir — 187
Sigurður Sigurðsson Kristín Jónsdóttir — 186
Þorsteinn Erlingsson Erlendur Jónsson — 171
Þórir Flosason Ásthildur Sigurgísladóttir — 169
Lárus Amórsson C) Arsæll Sveinsson — 168
Trausti Harðarson Baldur Bjartmarsson — 183
Sveinn Sigurgeirsson Anton R. Gunnarsson — 179
Friðjón Þórhallsson Guðmundur Baldursson — 174
Jóhann Stefánsson Baldvin Valdimarsson — 169
Guðmundur Hansson María Ásmundsdóttir — 169
Steindór Ingimundarson 166
Og staða efstu spilara að loknum
16 kvöldum í Sumarbrids þessi: er þá
Sveinn Sigurgeirsson Guðlaugur Sveinsson/ 226
Magnús Sverrisson 189
Anton R. Gunnarsson 178
Jakob Kristinsson 152
Lárus Hermannsson 126
Spilað er alla þriðjudaga og
fímmtudaga í allt sumar. Húsið
opnar kl. 17.30 og hefst spila-
mennska í hveijum riðli um leið og
hann fyllist. Spilað er S húsi Brids-
sambandsins að Sigtúni 9.
má!ning\
rEYPUÚTb
Steinakrýl
er meira en
venjuleg
málning
TJöföar til
X i fólks í öllum
starfsgreinum!