Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 24

Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 24
24 MORGUNBLAÐE), LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 Verðbólguótti talinn valda hækkun dollars New York, Reuter. FJÁRMÁLASÉRFRÆÐINGA greinir á um hvort hækkun Bandaríkja- dollars að undanförnu marki þáttaskil en svo sem alkunna er hefur verðgildi hans rýraað mjög á undanföraum þremur árum. Almennt er litið svo á að ieiðtogar sjö helstu iðnríkja heims hafi samþykkt á fundi sínum i Toronto á dögunum að leyfa dollaraum að hækka í þvi skyni að slá á ótta manna við vaxandi verðbólgu vegna þurrka í miðvesturríkjum Bandaríkjanna að undanförau. Verðgildi Bandaríkjadollars náði hámarki í febrúarmánuði árið 1985 en þá tók að halla undan fæti. í janúar á þessu ári var verðgildi hans gagnvart japönsku jeni og vestur-þýsku marki aðeins tæpur helmingur þess sem var þremur árum áður. Dollarinn hefur hækkað um fimm jen og sjö mörk frá því leiðtogafundinum lauk ( Toronto fyrir hálfum mánuði. Velta menn því nú mjög fyrir sér hvort hér sé um varanlega umbreytingu að ræða eða hvort búast megi við áfram- haldandi lækkun. Á þriðrjudag og miðvikudag tóku bankar í Evrópu að selja dollara til að draga úr hækkun gjaldmiðilsins og hið sama gerði Seðlabanki Bandaríkjanna. Dollarasalan var þó takmörkuð og kváðust sérfræðingar líta svo á að tilgangur væri fyrst og fremst sá að hægja á verðhækkuninni frekar en að ná fram raunverulegri lækk- un. Sumir sérfræðingar telja að verð- lækkunarskeiðinu sé nú lokið en þeir eru fieiri sem hallast að hinu gagnstæða. Nefna menn einkum að enn hafi ekki tekist að uppræta tvær helstu meinsemdir bandarísks efnahagslífs; flárlaga- og viðskipta- hallann. Þótt leiðtogar iðnríkjana hafi ákveðið að leyfa gjaldmiðlinum að hækka geti það vart talist tíma- mótaákvörðun. Þurrkamir í Bandaríkjunum að undanfömu hafa orðið til þess að ýta mjög undir ótta manna um vax- andi verðbólgu þar eð sýnt þykir að ákveðnar nauðsynjavömr muni hækka í verði af þeim sökum. Þá nefna menn einnig að sterkari staða gjaldmiðilsins gefí stjóm Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og Seðlabanka Bandaríkjanna aukið svigrúm við mörkun nýrrar fjár- málastefnu. Á fjármálamörkuðum heims er almennt litið svo á að skýra megi ákvörðun leiðtoga iðnr- (kjanna sjö með tilvísun til þessa. Kína: Stritast bara við að sitja í vinnumii Reuter Myndin er frá Vestur-Berlín og að baki konunum og krakkanum (og öndunargrimunum) er minningarkirkja Vilhjálms keisara. Hún fór illa í loftárásum síðari heimsstyrjaldar en hefur verið látin óhreyfð til að minna á hörmungarnar. Þær eru þó liklega barnaleikur hjá þeim óförum, sem mengunin getur valdið öllu mannkyni. ERLENT Umhverfismálaráðstefnan í Toronto: Reuter Tekið til fótanna Flutningamönnum, sem tekið höfðu að sér það sérkennilega starf að flytja fjögurra metra langan krókódil milli borga i Ástraliu, þótti vissara að taka til fótanna er farmur þeirra komst til meðvit- undar fyrr en ætlað hafði verið. Þessa dagana stendur yfir mikil sýning á hafnarsvæði Sydney- borgar og var skepnan flutt þangað frá borginni Darwin gestum til skemmtunar og augnayndis. Flutningamennirair tóku á rás upp úr gryfjunni er krókódillinn tók að láta ófriðlega og bráði deyfingin svo snögglega af skepnunni að þeim gafst ekki tóm til að fjarlægja múlinn um ginið eins og myndin sýnir. Suður-Afríka: Formaður Framfara- flokksins segir af sér Cape Town. Reuter. FORMAÐUR suðurafriska fram- faraflokksins, sem barist hefur gegn aðskilnaðarstefnunni i landinu, kvaðst á fimmtudag ekki myndi bjóða sig fram til endurkjörs á næsta þingi flokks- ins sem haldið verður i ágúst. Formaðurínn, Colin Eglin, mun eftir sem áður sitja á þingi fyrir flokkinn. Eglin tók við formennsku af Frederik van zyl Slabbert árið 1985 en þá hafði Slabber gefið upp alla von um að barátta flokksins gegn aðskilnaðarstefnunni myndi bera árangur. Flokkurinn beið mikið af- hroð í kosningum árið 1987 og eft- ir þær sneru margir meðlimir fiokksins við honum baki og gengu til liðs við nýja hreyfingu fráls- lyndra sem einnig berst gegn að- skilnaðaretefnunni. Eglin sagði f sjónvarpi á föstudag að hann myndi, þrátt fyrir afsögn- ina, verða virkur í stjórnmálum, jafnt á þingi sem utan þess. Líkleg- ur arftaki Eglin er talin vera Zach de Beer sem nú gegnir formennsku í fjármálanefnd flokksins. Pekíngf. Reuter. f verksmiðju nokkurri í Shanghai, sem hefur 3.000 starfsmðnnum á að skipa, eru aðeins 600 að verki á hveijum tíma. Enn önnur, sem framleiðir vindlingakveikjara, er betur búin tækjum en sams konar verksmiðja i Japan en framleiðnin er 30 sinnum minni. Kfnverska blaðið Efnahagstíð- indi fór f gær hörðum orðum um agaleysið og upplausnina, sem það sagði rfkja á vinnustöðum f Shang- hai, næststærstu borg landsins. „Ef við bijótum ekki niður þetta úrelta kerfi blasir ekki við okkur neitt annað en hrun og fátækt," sagði í blaðinu en kfnverekir flölmiðlar segja nú hverja söguna á fætur annarri um óstjómina á vinnu- markaðnum. Dagblað alþýðunnar sagði t.d. nýlega, að af 130 milljón starfandi mönnum í borgum lands- ins hefðu 30 miHjónir ekkert að gera á fullum launum. í kfnverskum verksmiðjum er fólk launað f samræmi við stöðu og aldur og er ungt fólk að jafnaði hálfdrættingur á við gamla starfs- menn. „Afieiðingin er sú, að gamla fólkið vinnur hörðum höndum en ungdómurinn horfir á,“ sagði í Efnahagstfðindum. „Hvers vegna skyldi ég vera svo vitlaus að vinna," var haft eftir ungum manni, sem fór í langt veik- indafrí og notaði það til að selja ávexti. Fýrir það fékk hann um 120 ísl. kr. á dag og 36 kr. að auki í sjúkradagpeninga. Þegar kommúnistar komust til valda í Kína árið 1949 var látið svo heita, að hver einstaklingur væri eins og ein „skrúfa" í hinni miklu iðnaðarvél og ætlast til, að fólk gegndi sama starfinu ævilangt. Sjálft réð það engu um starfið og það gat ekki skipt um starf og engin hætta var á vera rekinn. Vegna þessa, sagði í Efnahagstið- indum, sá fólk engan tilgang í að leggja hart að sér. _____________ Hvatt tíl aukinna skatta á eldsneyti Mengnnin getur valdið stórkostlegum óförum um allan heim Toronto. Reuter. ALÞJÓÐLEG umhverfismála- ráðstefna, sem lauk i gær í Tor- onto í Kanada, skoraði á iðnrikin að hækka skatta á eldsneyti, oliu og kolum, og nota féð til að draga verulega úr koltvísýringsmeng- un i andrúmsloftinu. Nærri 300 vísindamenn, um- hverfisvemdarmenn og hagfræð- ingar frá rúmlega 40 löndum hvetja til þess í lokaályktuninni, að árið 2005 verði búið að minnka koltví- sýringsútblástur um 80% frá því, sem nú er. „Mannkynið stendur nú fyrir eins konar tilraunastarfsemi, sem teygir anga sfna um allan heim, og gerir sér ekki grein fyrir þvf, að hugsan- lega getur aðeins kjamorkustyijöld haft alvarlegri afleiðingar. Eins og nú horfir mega næstu kynslóðir búast við verulegri röskun í félags- legu og efnahagslegu tilliti," sagði í samþykktinni og var þar lögð áhersla á, að öll heimsbyggðin yrði að sameinast í baráttunni við eyð- ingu ósonlagsins, súrt regn og hærra hitastig andrúmsloftsins. Vísindamenn spá því, að hitastig andrúmsloftsins muni hækka á næstu 50-60 árum vegna „gróður- húsaáhrifanna" svokölluðu en þeim veldur koltvísýringur og önnur mengun. Loftslagsbreytingamar geta haft veruleg áhrif á heilsufar manna víða um heim, kynt undir átökum þjóða í millum og útrýmt nytjajurtum, sem stór hluti mann- kyns byggir afkomu sína á.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.