Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 25

Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 25 Reuter Heimsins stærsta egg Maðurinn á myndinni, ónefndur ísraeli, heldur hér á stærsta strútseggi og þar með fulgseggi, sem um getur. Vegur það 2,3 kg eða jafn mikið og 24 veiyuleg hænuegg. Hinum megin við girðinguna er löglegur eigandi eggsins, strúturinn Anna. Burma: Aukin mótspyrna gegn stjómvöldum Rangoon, Reuter. TVISVAR á þessu ári hefur komið til kröftugra mótmæla gegn stjóm Nes Wins í Burma, í mars og aftur í síðustu viku. Ne Win hefur verið við völd í 26 ár. Gagnrýni á stjóm hans heyrist meðal verslunarmanna, stúdenta, og ríkisstarfsmanna, í öllum aldurs- hópum. Að sögn vestrænn astjómarer- indreka í Bangkok í Thailandi hafa 200 manns faliið í óeirðum í Burma það sem af er árinu. Yfirvöld í Burma segja níu hafa látið lífið í óeirðunum í síðustu viku, þar af þijá lögreglumenn, en í mars hafi tveir menn fallið. 146 eru enn í haldi síðan í mars og erlendir stjóm- arerindrekar segja 200 í viðbót hafa verið hneppta í varðhald í síðustu viku. Faðir eins mótmæ- lendanna sagðist hafa þurft að bíða í sex vikur eftir að fá fréttir af átján ára gömlum syni sínum sem var tekinn fastur í mars-óeirðunum. Sonurinn var seinna látinn laus. Verr fór fyrir öðmm. Það fyrsta sem sumir fengu að vita um örlög ættingja sinna var þegar lögreglu- Kólumbía: 3,7 tonn af kókaíni upptæk Bogota.Reuter. KÓLUMBÍSKA lögreglan gerði upptæk 3.7 tonn af kókaíni á fimmtudag þegar gerð var skyndileit á afskekktu sveitasetri i norðausturhluta landsins. Að sögn heimildarmanna hefur lög- reglan í Kólumbíu sjaldan komist yfir jafn mikið magn af ólölegum fíkniefnum. Fréttir herma að komist hafi upp um bækistöðvar eiturlyfjasmyglar- anna þegar ljóst varð að þrjár litlar flugvélar höfðu komist ólöglega inní landið. Tvær þeirra lendu við sveita- setrið í Cordoba héraði þar sem smyglaramir höfðu komið sér upp nokkurs konar efnaverksmiðju. Lögreglan handtók þijá menn og gerði farm flugvélanna tveggja upptækan. Yfírvöld í Kólumbíu telja að þar- lendur eiturlyfjahringur.Medellin hringurinn svokallaði.útvegi mest- an hluta þess kókaíns sem er á markaði í Bandaríkjunum. þjónar komu með eyðublöð sem útfylla þurfti til að útför gæti átt sér stað. Ríkisstjómin fyrirskipaði 60 daga langt útgöngubann í Rangoon eftir myrkur að loknum óeirðunum i síðustu viku. íbúar í borginni sögðu fréttamönnum Reuters að hermenn á eftirlitsferð hefðu skotið tvo eða þijá óbreytta borgara sem bmtu bannið. „Öryggisverðimir leggja ekki spumingar fyrir fólk. Þeir skjóta bara... Slefberar stjóm- valda eru alls staðar. Fólk sem gagnrýnir stjómvöld getur ljóstrað upp um andófsfólk. Það er engum að treysta." Ne Win er 77 ára gamall og lætur lítið á sér kræla opinberlega. Hann kennir stefnu sína við sósíal- isma og undir stjóm hans virðist hagkerfi landsins, sem ræður yfir miklum náttúruauðæfum, að mestu hafa tekið sér bólfestu neðanjarðar. Svartamarkaðsbrask með gjaldeyri er gífurlegt en stjómvöld tóku ný- lega um 80% gjaldmiðils landsins úr umferð til að hamla gegn brask- inu. Þessi aðgerð hefur gefið gjald- eyrisbraskinu byr undir báða vængi þar sem allir óttast verðbólgu eða frekari skerðingu á peningamagn- inu. Bretland: Námamenn með Kinnock Great Yarmouth, Englandi. Reuter. NEIL Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokkins, vann umtalsverð- an sigur á fimmtudag i baráttu sinni fyrir endurkjöri, þegar Sam- band námamanna, NUM, ákvað að styðja hann i leiðtogakosning- unum í haust. Þar etur hann m.a. kappi við Tony Benn, sem er i vinstri armi flokksins. Með þessari ákvörðun virðist sam- bandið hafa lýst vantrausti á hinn herskáa forseta sinn, Arthur Scar- gill, sem hefur verið hávær í gagn- rýni sinni á Kinnock og lýst yfir stuðningi við Tony Benn í leiðtoga- slag flokksins. Kinnock fékk 82 atkvæði á aðal- fundi NUM, en Benn 18. . Kringlunni • Hallærisplaninu Melhaga 2, gegnt Melaskóla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.