Morgunblaðið - 02.07.1988, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 02.07.1988, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 19. FLOKKSRÁÐSTEFNA SOVESKRA KOMMUNISTA I MOSKVU Aðförin að Gromyko: Á sér ekki fordæmi í sögri Sovétríkjanna Atburðirnir sýndir í sovéska sjónvarpinu Moskvu, Reuter. GLASNOST-stefnan steig nýtt skref fram á við er Vladimír Melnikov, flokksf ormaður frá Komi-héraði i Síbiriu, hvatti til þess að Gromyko, forseti Sov- étríkjanna, yrði látinn víkja vegna ábyrgðar sinnar á mistök- um fortíðarinnar. Melníkov sagð- ist einnig vilja reka elsta félaga stjómmálaráðs flokksins, Míkaíl Solomentsev, Afanasjev, aðalrit- stjóra PrBvdu, og Georgí Ar- batov, sérfræðing i málefnum Norður-Ameríku. Fjöldi ráð- stefnufulltrúa klappaði ákaft fyrir Melnikov. Það var Gorbatsjov flokksleiðtogi sem í reynd þvingaði Melnikov til að nefna upphátt þá sem ættu að víkja. Melnikov hafði hvatt til brott- reksturs forystumanna sem hefðu verið við völd á Brezhnev-tímanum. Gorbatsjov heimtaði brosandi að Melníkov tjáði sig skýrar. „Ég á fyrst og fremst við félaga Solomentsev, félaga Gromyko, Af- anasjev, Arbatov og fleiri," sagði Melníkov þá hátt og snjallt. Gro- myko forseti sat við hlið Gor- batsjovs, stjarfur í andliti, og Gor- batsjov hætti að brosa. Sovéska sjónvarpið sýndi myndir frá fundinum og ofangreindum orðaskiptum í aðalfréttatíma fímmtudagskvöldsins. Sjónvarps- myndin sýndi að færri klöppuðu fyrir Melníkov er hann gekk svo langt að nafngreina forystumenn- ina. Flokksmálgagnið Pravda birti ræðu Melníkovs óstytta. Andrei Gromyko er 78 ára að aldri og varð utanríkisráðherra Sov- étríkjanna á valdatíma Khrústsjovs 1957 og hélt starfinu á Brezhnev- árunum. Fjórum mápuðum eftir valdatöku Gorbatsjovs árið 1985 var hann gerður að forseta Sov- étríkjanna en það embætti er nær valdalaus virðingarstaða. Solomentsev er 74 ára og elsti félagi stjómmálaráðs kommúnista- flokksins, sem í sitja 13 menn. Hann hefur veitt forystu svonefndri eftirlitsnefnd ráðsins síðan 1985. Afanasjev hefur verið ritstjóri Prövdu síðan 1975 og jafnan gætt þess að styggja ekki æðstu stjóm- endur ríkisins. Arbatov hefur um 19 ára skeið verið forstöðumaður stofnunar er Qallar um málefni Bandaríkjanna og Kanada og gefur sovéskum vald- höfum ráð varðandi samskipti við þessi ríki. Margt óvænt hefur verið uppi á teningnum á ráðstefnunni. Ræðu- mönnum hefur verið vísað úr ræðu- stól fyrir að teygja lopann og full- trúar hafa orðið vitni að þvl að púað var á ritstjóra stjómarmál- gagnsins Ísvestíu, ívan Laptev, er hann sagðist telja nóg að beðist væri afsökunar er fjölmiðlar gerðu mistök. Einn fulltrúanna lagði til að Pravda yrði framvegis ekki und- ir sljóm miðstjómar flokksins held- ur yrði ritsijóri þess kosinn beinni kosningu á flokksþingi. Ráðist hef- ur verið á leyndarhyggjuna sem einkennir afstöðu yfírvalda til al- mennings. „Við vitum meira um málefna- stöðu Reagans Bandaríkjaforseta og mötu bresku drottningarinnar en við vitum um málefni okkar eig- in leiðtoga," sagði einn ráðstefnu- fulltrúa. Boris Jeltsín i ræðustól á flokksráðstefnunni í gær. Erkifjendur tókust á fyrir opnum tjölduin Jeltsín bað um endurreisn en Lígatsjov vísaði því á bug Moskvu. Reuter. BORIS Jeltsín, sem var vikið frá sem formanni kommúnistaflokksins f Moskvu f nóvember sl., bað f gær um það f ræðu á flokksráðstefn- unni, að hann yrði endurreistur og fengin aftur f hendur fyrri völd og áhrif. Jegor Lfgatsjov, sem enn er sagður ganga næstur Gobatsjov þótt fréttir hermi, að hann sé ekki lengur hugmyndafræðingur flokks- ins, vísaði hins vegar ákaili Jeltsfns á bug. Orrahríðin milli þessara erkifl- enda, sem stundum er jafnað til hægri og vinstri í sovéskum stjóm- málum, átti sér stað á síðasta degi flokksráðstefnunnar, sem um margt hefur breytt opinberri ásýnd hins sovéska stjómkerfis. Aðeins tímasetningin röng „Ég held, að mér hafí ekki orðið á önnur mistök en að tala hreint út en á röngum tírna," sagði Jelstín, sem missti flokksformannsembættið í Sovétmenn varaðir við stórslysum í náttúrunni Mengun í sumum borgum 10 sinnum umfram hættumörk Moskvu. Reuter. YFIRMAÐUR sovéskra umhverf- isvemdarmála flutti f gær magn- þrungna ræðu á flokksráðstefn- unni í Moskvu og sagði, að meng- unin hefði valdið „viatfræðilegum hörmungtun" f mörgum hémðum Sovétríkjanna. Hvatti hann ráð- stefnuna og stjóravöld til að grípa nú þegar til neyðarráðstafana vegna áatanHHÍnn. Fjodor Morgún, yfírmaður um- hverfisvemdarmála, sagði, að óskipuleg og fyrirhyggjulaus áhersla á þungaiðnaðinn og risavaxin verk- smiðjuskrímsl hefðu haft alvarlegar afleiðingar fyrir umhverfíð. Loftm- engun í sovéskum iðnaðarborgum væri umfram hættumörk, ástandið á skógum landsins versnaði stöðugt, mengunin í ánum ykist með ári hveiju og Aralvatnið mætti kalla „vistfræðilega rúst“. Flutti Morgún mál sitt af miklum tilfínningahita og var innilega fagnað af fulltrúum á ráðstefnunni. Vatnið ódrykkjarhæft „Ef við mennimir höfum ekki nátt- úruvemd í fyrirrúmi munum við grafa sjálfum okkur gröf. Ef ekki verður tekið í taumana strax verður brátt ekki hægt að nýta vatnið í sumum ám og fljótum þessa lands til diykkjar," sagði Morgún en í út- drætti, sem Moskvuútvarpið flutti, var sérstaklega getið um mengunina í Volgu, Don og Dnépr. Fijósemi moldarinnar minnkar Morgún sagði, að Eystrasaltið og Kaspiahafíð væru að fyllast af óþverra, í 102 sovéskum iðnaðar- borgum með 50 milljónir íbúa væri mengunin tiu sinnum meiri en hættu- mörk segðu til um og frjósemi mold- arinnar minnkaði stöðugt. Hótaði hann að nefna á nafn þá ráðherra, sem bæru mikla ábyrgð t þessum Deilur um Afganistan Moskvu, Reuter. Undirhershöfðingi i sovéska hera- um varði innrás Sovétmanna í Afganistan í gær á flokksráðstefn- unni i Móskvu eftir að einn full- trúa hafði fordæmt innrásina. Herforinginn sagði að engum myndi líðast að ata auri orrustu- hefðir hersins eða minningu þeirra sovésku hermanna sem féllu í Afg- anistan. Áður hafði leikritaskáldið Grigorí Baklanov sagt að ákvörðun um inn- rásina hefði verið tekin i andstöðu við lýðræðisreglur og krafðist hann þess að komið yrði í veg fyrir að slíkir atburðir endurtækju sig. Boris Gromov, undirhershöfðingi, sagði að fullyrðingar á Vesturlöndum þess efnis að Sovétmenn hefðu tapað stríðinu væru rangar. „Þeir vilja ekki eða geta ekki ski- lið að við fórum ekki til Afganistan til að sigra í orrustum heldur til að veija konur og böm, þorp og borgir. Við gegndum skyldum okkar með heiðri," sagði Gromov. eftium, og sagði, að mestu þijótana væri að fínna i orku-, olíu- og mál- miðnaði og landbúnaðinum. Moskvu vegna þess, að hann þótti ekki sjást fyrir í umbótaáhuganum. „Ég sé hins vegar enga ástæðu til að breyta neinu um þá ákvörðun, sem tekin var í máli Jeltsíns," hreytti Lígasjov út úr sér þegar hann svar- aði Jeltsín. „Borís Níkolajvítsj, haltu áfram“ Jeltsín steig í pontu í boði Gor- batsjovs sjálfs: „Eg bið ráðstefnuna um taka ákvörðun um endurreisn mína og færa mér aftur æruna í augum fé- laga minna í kommúnistaflokknum," sagði hann og gagnrýndi síðan for- réttindi embættismanna og lagði til, að frammámenn, sem stæðu í vegi umbótaáætlunarinnar, segðu af sér. „Umbætumar eiga sér marga óvini — það eru ekki allir, sem beij- ast fyrir þeim af heilum hug. Flokk- urinn er fyrir fólkið og fólkið á að vita hvað þar fer fram,“ sagði Jeltsín og urðu þá sumir fulltrúanna, aug- ljóslega stuðningsmenn Lígatsjovs, til að gera hróp að honum. Gorb- atsjov greip þá fram í fyrir þeim og sagði: „Boris Níkolajvítsj, haltu áfram máli þínu svo lengi sem þú vilt.“ „Perestrojka er ínntakið í lífi mínu“ Lígatsjov tók næstur til máls og auk fyrmefndra ummæla hans um Jeltsin virtist honum umhugaðast um að breyta þeirri ímynd, sem hann hefur haft sem afturhaldssamur óvinur umbótaáætlunar Gorbatsjovs. Sagði hann meðal annars, að hann hefði átt meginþátti í skipun Jeltsins sem flokksformanns í Moskvu; að hann hefði stuðlað að kjöri Gorb- atsjovs sem flokksleiðtoga i mars árið 1985 og að síðustu, að sumir nánustu ættingja hans hefðu verið skotnir eða ofsóttir á valdatíma Stalins. „Perestrojka, umbótaáætlunin, er nú inntakið í lifi mínu,“ sagði Lígatsjov klökkri röddu við fögnuð margra. Ræður þeirra Jeltsíns og Lígatsjovs vöktu langmesta athygli á flokksráðstefnunni í gær og í sjón- varpinu, sem gerði þeim góð skil, mátti sjá marga fulltrúa, einkum unga fólkið, skrifa hjá sér orð og ummæli Jeltsíns. Aðrir, ekki síst öld- ungamir í hópnum, sátu aftur á móti stífír og svipbrigðalausir í sæt- um sínum. Nýstárleg myndbirting Reuter Hið sovéska „glasnost" kemur fram í fleira en bersöglum lýsingum á ástandinu í sovéskum þjóðfélagsmál- um, það lýsir sér Iíka í nýstárlegum myndbirtingum hinna gersku fjölmiðla. Þessi mynd, sem var raunar tekin síðla í mai, var birt í blöðunum á miðvikudag og sýnir þegar I. Kosymbetov, menntamálaráðherra í Úzbekístan, er leiddur í burt í handjámum en hann er sakaður um alls kjms spillingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.