Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 32

Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 Morgunblaðið/Rúnar Þór Sextán skemmtiferðaskip tilAkureyrar Sextán skemmtiferðaskip hafa viðdvöl á Akureyri í sumar, tveim- ur skipum fleirum en í fyrra. Sjö þeirra hafa nú þegar komið. Skipin eru öll rússnesk með Þjóðveija að mestu. Flest skipanna taka milli 500 og 600 farþega og í Mývatnsferðimar fara þetta frá 150 og upp í 350 manns, að sögn Gísla Jónssonar framkvæmda- stjóra Ferðaskrifstofu Akureyrar. Maxím Gorki kom til Akur- eyrar sl. fimmtudag og var þá meðfylgjandi mynd tekin. Rútur frá Ferðaskrifstofu Akureyrar tóku farþegana á Húsavík klukkan 6.00 um morguninn. Þeim var síðan skilað til Akureyrar um hádeg- ið. Þetta var svokallaður öfugur hringur, en venjan er sú að far- þegamir stiga á land á Akureyri kl. 8.00 á morgnana og er þeim síðan skilað aftur til skips um kl. 18.00 eftir dagsferð um Akur- eyri og Mývatnssveit. Hljóðbylgjan útvarpar frá Mývatnssveit Útvarpsstöðin Hljóðbylgjan ætlar að senda út efni frá Hótel Reynihlíð i Mývatnssveit nk. sunnudag. Útsending hefst kl. 14.00 og mun standa í tun tvo tíma. Hljóðbylgjan fékk í byijun apríl sendibúnað, sem gerir þeim Hljóð- bylgjumönnum kleift að senda út víða um hlustunarsvæði sitt og er þetta í annað sinn sem farið er út í nágrannabyggðimar. í fyrra skipt- ið var farið til Dalvíkur. Útvarps- stjóri Hljóðbylgjunnar, Pálmi Guð- mundsson, verður við stjómvölinn í Mývatnssveitinni ásamt tækni- manni sínum Pétri Guðjónssyni. Þeir ætla í sveitina deginum áður til að ræða við fólk í sveitinni og verða viðtölin send út á sunnudegin- um. Pálmi sagði að aðalþema þátt- arins yrði útivist og ferðamanna- straumur í Mývatnssveit. Skart opn- ar útibú í Reykjavík Gullsmíðastofan Skart, Hafn- arstræti 94 á Akureyri, hefur opnað útibú í Reykjavík á Lauga- vegi 53. Skart er tíu ára gamalt fyrirtæki Flosa Jónssonar gull- smiðs og er aðaláhersla lögð á módelsmíð og nánast hvað sem er til gjafa. Algengt má teljast að opnuð séu útibú á Akureyri frá Reykjavík, en sú leið að Akureyringar opni útibú í Reykjavík telst hinsvegar nokkuð sjaldgæf. Flosi keypti verslunina Biik í Reykjavík og breytti henni í gullsmíðaverslun. Hann sagði að samkeppni í greininni væri mikil í 'rReykjavík, en þrátt fyrir það væri hann bjartsýnn og væri kominn til að vera. Utgerðarfélag Akureyringa hf.; Auglýsir eftir framkvæmdastjóra Útgerðarfélag Akureyringa hf. hefur auglýst lausa stöðu ann- ars framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Eins og fram hefur komið í fréttum lætur Gísli Konráðsson af störfum eftir næsta aðalfund fyrirtækisins, sem að öllum líkindum fer fram í maí 1989. Gísli hefur starfað hjá ÚA í um þijátíu ár og lætur nú af störfum sökum aldurs. Gert er ráð fyrir að nýr framkvæmdastjóri komi til starfa um næstu áramót og taki að fullu við starfinu 1. maí 1989. Keppni um sterkasta mann landsbyggðarinnar á Akureyri „Sterkasti maður landsbyggð- arinnar" er yfirskrift aflrauna- móts, sem haídið verður á Akur- eyri dagana 22. og 23. júlí nk. Mótið verður með svipuðu sniði og aflraunakeppnin „Sterkasti maður Norðurlands", sem haldin var í fyrra, en þar stóð uppi sig- urvegari Akureyringurinn Flosi Jónsson. Alls verður keppt í átta þrautum sem er tveimur þrautum meira en í fyrra auk þess sem kraftajötnam- ir ætla sér tvo daga í keppnina í stað eins. Keppt verður í þremur þrautum föstudaginn 22. júlí og fer keppni þá fram í miðbæ Akureyrar, en daginn eftir, 23. júlí, verður keppni færð upp á íþróttavöll Akur- eyringa, þar sem hinar fímm þraut- imar verða afgreiddar. Að sögn Flosa verða glæsileg verðlaun í boði, peningar og verð- launagripir, en þátttakendafjöldi verður að öllum líkindum að tak- markast við átta til tíu manns. Rétt til þátttöku hafa kraftakarlar, búsettir utan höfuðborgarsvæðis- ins, og vinna tveir til þrír efstu menn á mótinu sér rétt til þátttöku á alþjóðlegu aflraunamóti, Krafti ’88, sem haldið verður í Reiðhöll- inni í Reykjavík þann 17. septem- ber nk. Flosi sagði að á mótinu mætti búast við hinum ýmsu uppátælq'um, sem reyndu á sem flesta líkams- hluta mannsins, en að svo stöddu vildi hann ekkert segja til um á hveiju kraftajötnamir fengju að spreyta sig. Flosi sagðist vissulega reyna að veija titil sinn og sagði alhliða kraftaþjálfun og úthald skipta mestu máli í keppni auk þess sem lungu og hjarta þyrftu að vera í toppformi. Frá keppninni „Sterkasti maður Norðurlands" í fyrra. Njáll Torfa- gjon, svonefndur Vestfjarðaskelfir, reynir hér við 150 kg sildartunnu. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sigurgeir Halldórsson bóndi á Öngulstöðum 3 dreif sláttinn af á nokkrum dögum. Heyskapur gengur hægt norðanlands Heyskapur gengur hægt hjá bændum í Eyjafirði enda hefur ekki viðrað vel til útiverka frá því að bændur hófu slátt. Guð- mundur Steindórsson ráðunaut- ur hjá Búnaðarsambandi Eyja- fjarðar sagði að hvassviðri hefði farið yfir fjörðinn í síðustu viku og nokkuð hefur borið á vætu í yfirstandandi viku. Guðmundur sagði að vel hefði gengið með sprettu um miðjan júní. Heldur hefði tvísláttur aukist síðari árin, en óvíst væri að spá um hvenær fyrri slætti gæti lokið þar sem spáin væri norðanbænd- plas&awftlitftift Metsölublad ú hverjum degi! um heldur óhagstæð næstu dag- ana. Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið. Drottmn Guó, veit mér vernd þina, og lát mig minnast ábyrgðar minnar er ég ek þessari bifreið. I Jesú nafnt. Amen. Fæst í Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, í verslun- inni Jötu, Hátúni 2, Reykjavík og í Hljómveri, Akureyri. Vprð kr. 50.- Orð dagsins, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.