Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 36

Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 I ÞIINIGHLÉI STEFÁN FRIÐBJARNARSON Forskólaaldurínn Hvar eiga börnin aö vera? Alls munu starfandi rétt rúmlega 200 dagvistarheimili fyrir um tiu þúsund börn — í 80 sveitarfélögum — hér á landi. Þar af eru rnn 80 starf- andi i Reykjavík og um 40 I Reykjaneskjördæmi, eða ná- lægt 60% dagvistarheimila í þessum tveimur kjördæmum. Árið 1986 vóru um 4.500 börn á dagvistarheimilum í Reykjavík og 2.400 i Reykjanes- kjördæmi, samtals tæplega 7.000 börn (af 10.400 börnum á slikum heimiium í landinu öllu). Þessi tvö kjördæmi starf- rækja þvi um 70% dagvistar- plássa Iandsins. Örar þjóðfélagsbreytingar valda því að staða bama en nú allt önnur en fyrir nokkrum ára- tugum. I fyrsta lagi þarfnast atvinnulíf þjóðarinnar starfskrafta allra landsmanna á vinnualdri, kvenna jafnt sem karla. Hér er ekkert atvinnuleysi, öfugt við flest grannríki, þar sem 5-10% vinnu- færs fólks gengur atvinnulaust. Eftirspum eftir vinnuafli er á stundum meiri en framboðið. í annan stað hefur samfélagið viðurkennt jafnrétti kvenna til náms og starfa. Vilji kvenna, þ. á m. mæðra, stendur í vaxandi mæli til að nýta þennan rétt; til þess að láta reyna á hæfni og starfsgetu á öllum starfssviðum þjóðarbúskaparins. í þriðja lagi hafa íslendingar tamið sér lffsmáta sem gerir kröf- ur til tekjuöflunar tveggja fyrir- vinna á meðalstóru heimili. Tekju- öflun beggja foreldra er oftlega „ill“ nauðsyn. Þessar þjóðlífsbreytingar, sem og sú staðreynd, að fyöldi bama elzt upp hjá einstæðu foreldri, gera sívaxandi kröfur um dagvist- arstofnanir, er bjóða upp á viðun- andi þroskaskilyrði fyrir böm. u Hvað er forskólaaldur? Hér er gengið út frá því að hann taki til bama frá því að fæðingarorlofi foreldra lýkur til þess tíma er grunnskóli tekur við; spanni m.a. vöggustofur, dag- heimili, leikskóla og skólavist fímm og sex ára bama. Heimilið (flölskyldan), grun- neining samfélagsins, er og verð- ur kjölfestan í uppeldi bamsins. Foreldraréttinn má í engu skerða. Nútíma þjóðfélagsaðstæður gera það hinsvegar nauðsynlegt að til staðar séu dagvistarstofnanir þar sem böm útivinnandi foreldra njóti samvista við jafnaldra, um- sjár fólks með sérþekkingu í upp- eldismálum og hafí að öðm leyti æskileg þroskaskilyrði. Þáð er meginreglan hér á landi að dagvistarstofnanir eru reknar af sveitarfélögum. Stöku stór fyr- irtæki og stofnanir hafa séð sér hag í að bjóða starfsfólki upp á þjónustu af þessu tagi. Einka- reknar dagvistarstofnanir hafa og komið tll. Sú spuming verður jafn- framt ágengari, hvort það sé ekki betra fyrir bömin og hagkvæmara fyrir þjóðfélagið að foreldri fái greiðslu fyrir að dvelja heima með ungum bömum sínum, ef það kýs svo. ra Það kann að vera nauðsynlegt að binda í lög og/eða reglugerðir ákvæði um aðbúð bama á for- skólaaldri, fyrst og fremst til að tryggja hag og þroskaskilyrði ungviðisins, en jafnframt til að kortleggja stefnumörkun í þessum mikilvæga málaflokki. Lagasetning af þessu tagi er þó viðkvæmt verkefni og krefst samþættingar margs konar sjón- armiða. Hér um þarf því að ná víðtækri samstöðu. Ákvæði af þessu tagi þurfa meðal annars að ná til þess, hver skuli vera hlutur ríkis og sveitar- félaga í uppbyggingu og/eða rekstri slíkra stofnana. Ekki síður hver skuli vera starfsvettvangur fyrirtækja og/eða einkaaðila. Loks, hvem veg skapa megi for- eldri flárhagslega möguleika til að dvelja heima með ungum böm- um slnum, kjósi það að hafa þann háttinn á. Lög af þessu tagi hlytu að ná til ábyrgðar og eftirlits, menntun- ar starfsfólks, aðbúðar bamanna hverskonar, sérþarfa einstakra hópa og hugsanlega samvinnu við skóladagheimili og grunnskóla. Þá kann að vera nauðsynlegt að löggjafínn kveði á um fræðslu og uppeldisleg markmið, meðal ann- ars til að halda kreddusjónarmið- um í ske^um og festa holl áhrif í sessi, m.a. kristileg sjónarmið, í mótun bamsins. Ungar mæður með komaböm á þingpöllum þegar dagvistarmál bar á góma. Ástand dagvistarmála. í eftirfarandi vfirliti kemur fram fjöldi dagvistarheimila, fjöldi harna á þeim, fóstra og ófaglærðs t'ólks og fjöldi á biölistum eftir dagvistarrvmi í árslok ll>S(> t'lokkað el'tir kjördæmum. svo og bráðabirgðatölur fyrir árið 1987; Kjördæmi Fjöldi heimila Fjöldi barna Skólad. Dagh. Leiksk. Börn alls Fóstrur Ófagl. Biðlisti Dagh. Leiksk. Reykjavík 77 389 1485 2562 4436 238.2 321.1 748 1391 Reykjanes 37 76 584 1763 2423 99.1 168.2 268 1234 Vesturland 13 0 70 557 627 12.5 42.7 67 279 Vestfiröir 10 0 34 410 444 8.6 31.9 24 102 Norðurl. v. 9 0 28 417 445 5.4 33.6 13 57 Norðuri. e. 18 30 182 625 837 27.2 63.0 84 342 Austurland 12 0 34 516 550 11.0 38.9 6 160 Suðurland 15 14 79 598 691 21.1 38.0 57 149 Alls 1986 191 509 2496 7448 10453 423.1 737.4 1267 3714 Alls 1987 199 504 2558 7500 10562 467.7 770.2 1343 3694 Alls eru þetta um 200 dagvistarheimili fyrir samtals um 10 000 börn í 80 sveitarfélögum, þar af eru um % hlutar á leikskólum í hálfsdagsdvöl. Nánara yfirlit eftir sveitarfélögum kemur fram á fylgiskjali I. Þar sést m.a. að víða á þéttbýlisstöðum úti á landi er aðeins um að ræða leikskóla og að við 25 slíka starfaði engin fóstra á árinu 1986. Tafla er fylgdi þingsályktunartillögu Hjörleifa Guttormssonar um löggjöf um forskólastig og áætl- un um uppbyggingu dagvistarstofnana. IV Þessi málafíokkur er mikið ræddur nú, í sveitarstjómum, á löggjafarsamkomunni og manna á milli. Það er ekki að ástæðu- lausu. En að hveiju ber að stefna á þessum vettvangi? Markmiðið hlýtur fyrst og fremst að vera að veita ungviðinu gott og heilbrigt uppeldi í þjóð- félagi, sem breytzt hefur verulega á fáum áratugum, og verður að laga uppeldi bama sinna að þess- um breyttu aðstæðum. Bömin sjálf eiga að vera númer eitt, tvö og þijú í framtíðarstefnu- mörkun á þessum vettvangi. En það hlýtur jafnframt að hafa ómetaníega þýðingu fyrir útivinn- andi foreldra að vita böm sín á fyrirmyndarstofnunum, f góðum höndum, við þroskandi leik og störf. En eiga nýir aðilar erindi á þennan starfsvettvang? Atvinnulífíð á mjög mikið undir því komið að foreldrar eigi greiðan aðgang að dagvistarstofhunum — ekki sízt meðan eftirspum eftir vinnuafli er meiri en framboðið. Það er því ekki út í hött að ætl- ast til þess að forsjármenn þess láti þennan málaflokk til sín taka í ríkari mæli en þeir hafa gert. Spuming er einnig og ekki síður, hvort stéttarfélög hafí van- rækt þennan þátt mála, sem vissulega varðar hag meðlima meira en flest annað. Um þessi mál hýtur að mega semja sem önnur. Og hvað mælir gegn því að framtakssamt stéttarfélag reki dagvistarstofnun, innan ramma laga og reglna, eins og ýmsa aðra þjónustu, m.a. sumardvalarbúðir fyrir foreldrana? Ríki og sveitarfélög hafa mótað stefnu, skipulag og framkvæmd dagvistarmála. Og flesir em sam- mála um að betur megi ef duga eigi. Raunar hefur misvel til tekizt eftir sveitarfélögum. Og efalítð hefur mismunandi framkvæmd á þessum vettvangi haft meðvirk- andi áhrif á byggðaþróun í landinu. Þessi mál hafa slíkt vægi í búsetuvali fólks. Ef framkvæmd ríkis og sveitar- félaga í dagvistarmálum hefur ekki fullmætt þörfunum, sem flestir em sammála um, hvers- vegna ekki að nýta önnur rekstr- arform, til hliðar við stofnanir opinbera geirans? Að sjálfsögðu með aðhaldi reglna og nauðsyn- legs eftirlits. Síðast en ekki sízt þarf sfðan að skoða hugmyndina um að for- eldri eigi fjárhagslega möguleika á því að dvelja heima hjá bömum sínum, ef það kýs svo, sem hugs- anlega gæti sparað stofn- og rekstrarkostnað einhverra dag- vistarstofnana. En meginmáli skiptir að ná sem víðtækastri samvinnu um stefnu- mörkun og skipulag þessara mála. Þungamiðja þeirra em bömin sjálf, heilbrigði þeirra, þroski og velferð. Sá vegvísir á að ráða ferð. „Light Nights“ í Tjamarbíói SÝNINGAR ferðaleikhússins á Light Nights eru í Tjarnarbíói við Tjörnina í Reykjavík. Sýning- arkvöld eru fjögur á viku, á fimmtudags-, föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöldum, og hefjast sýningamar kl. 21.00. Sýnt verður allan júlí og ágúst. Siðasta sýning verður 28. ágúst. Light Nights-sýningamar em sérstaklega færðar upp til skemmt- unar og fróðleiks enskumælandi ferðamönnum. Efnið er allt íslenskt, en flutt á ensku, að undanskildum þjóðlagatextum og kveðnum lausavísum. Meðal efnis má nefna: þjóðsögur af huldufólki, tröllum og draugum, gamlar gamanfrásagnir og einnig er atriði úr Egilssögu sviðsett. Sýningaratriði em 25 alls sem em ýmist leikin eða sýnd með fjölmyndatækni (audio visual). Leiksviðsmyndir em af baðstofu um aldamótin og af víkingaskála. Ifyrir ofan leiksviðsmyndimar er stórt sýningartjald þar sem um 300 skyggnur em sýndar í samræmi við viðkomandi atriði. Stærsta hlut- verkið í sýningunni er hlutverk sögumanns, sem er leikið af Kristínu G. Magnús. Ferðaleikhúsið starfar einnig undir nafninu The Summer Thea- tre. Stofnendur og eigendur em Halldór Snorrason, Kristín G. Magnús og Magnús S. Halldórsson. Lights Nights-sýningar Ferða- leikhússins hafa verið sýndar víðsvegar um Bandaríkin. Einnig vom 3 einþáttungar færðir upp á Edinborgarhátíðinni í Skotlandi árið 1978, og var það í fyrsta sinn er íslendingar komu með leiksýningu á þá heimsfrægu listahátíð. Árið 1980 sýndi Ferðaleikhúsið/The Summer Theatre íslenskt bamaleik- rit, The Storyland, í einu þekktasta bamaleikhúsi London, The Unicom Theatre for Children, sem hefur aðsetur í The Arts Theatre, West End, London. Þetta er 19. sumarið sem Ferða- leikhúsið stendur fyrir sýningum á Light Nights í Reykjavík. Atríði úr sýningu Light Nights. Rikarður Rikarðsson og Ragnheiður Pálmarsdóttir i hlutverkum sinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.