Morgunblaðið - 02.07.1988, Side 42

Morgunblaðið - 02.07.1988, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 42 Minning: Margrét Ólafsdótt- ir, Hvammstanga Margrét Ólafía Ólafsdóttir lést 24. júní sl. Hún var fædd 29. júlí 1914 í Hindisvík á Vatnsnesi, dótt- ir hjónanna Marsibilar Teitsdóttur og Ölafs Ólafssonar er voru þar í húsmennsku. Það var fyrir fáum dögum að ég frétti það að Margrét væri orðin fársjúk og ætti ekki langt eftir ólif- að. Sjálf tók hún fregninni með miklu jafnaðargeði og æðruleysi þess sem ekki ber kvíðboga fyrir þeirri breytingu sem dauðinn hefur í för með sér. Fjölskyldur' okkar Margrétar voru í sambýli á Bergsstöðum um skeið. Við frændsystkinin lékum okkur saman og minnist ég ekki annars en vel færi á með okkur. Barnsskónum slitum við meira og minna áhyggjulaus um framvindu lífsins eins og gengur og gerist hjá bömum, sem eiga gott atlæti for- eldra og annarra fullorðinna. En bemskuárin líða og fyrr en varir taka fullorðinsárin við, sem færa okkur aukna ábyrgð og alvöru lífsins. Við verðum að standa á eig- in fótum, og mæta þeim viðfangs- efn,um, sem örlögin færa okkur í fang. Lífsbraut Margrétar var mörkuð er hún gekk í hjónaband með Guð- mundi Jónssyni 29. júlí 1933. Fyrst stofnuðu þau heimili á Hvamms- tanga en fljótlega var hafíst handa um byggingu. Þau fengu land úr Kotshvammslandi rétt ofan við Hvammstanga og reistu þar nýbýli er þau nefndu Laufás. Þangað fluttu þau 'árið 1935. Þar var rækt- að og prýtt og búið vel að hveijum hlut. Byggt var upp gott og sérstak- lega hlýlegt heimili. Þau voru öðr- um hjálpleg þegar á þurfti að halda. Kom það meðal annars fram þegar systir Margrét missti mann sinn frá komungum bömum, þá létu þau hana hafa herbergi í húsi sínu. Síðan var bætt við húsið og innrétt- uð íbúð svo að hún gæti fengið varanlegan samastað og haldið heimilinu saman. Síðar tók Margrét ömmu sína Margréti Jónsdóttir til sín og hafði hana hjá sér á meðan hún þurfti með en hún varð 102 ára gömul. Annaðist Margrét hana af alúð og hlýju og líkaði gömlu konunni vel að vera í skjóli sonar- dóttur sinnar. Þau Margrét og Guðmundur eignuðust þijú böm, Jónu Sigríði, Ólaf Helga og Kristin Björgvin, og em bamabömin fímm. Þau vom yndi ömmu sinnar enda var hún mjög bamgóð og kunni vel að laða þau að sér. Margrét missti mann sinn 17. júlí 1973. Hún seldi þá Laufás nokkm síðar og flutti til Hvammstanga. Byggði hún þar í félagi við son sinn tveggja íbúðar- hús á Garðavegi 26 og bjó hún þar síðan. Eftir að Margrét fluttist frá Laufási fór hún að vinna utan heim- ilisins og um margra ára skeið vann hún hjá saumastofunni Drífu þar til á síðasta ári og hún hætti störf- um. Margrét bjó yíir miklu jafnaðar- t GUÐRÍÐUR Þ. EINARSDÓTTIR, Austurbrún 4, er látin. Börnin. t Móðir okkar, HÓLMFRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR PEDERSEN, húsmóðir, Hrauntungu 16, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum þann 30. júní. Emil Pedersen, Gunnar Adolfsson. t Stjúpfaöir minn og bróðir okkar, KRISTJÁN magnús björnsson, Álftamýri 28, andaöist í Landakotsspítala 30. júní síðastliðinn. Kristfn Albertsdóttir, Daði Björnsson, Ragnar Björnsson. t Eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, dvalarheimilinu Höfða, áður Vesturgötu 66, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriöjudaginn 5. júlíkl. 14.15. Margrót Bjarnadóttir, Bjarni Vésteinsson, Steinunn Sigurðardóttir og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför, . ÓLAFAR BESSADÓTTUR frá Siglufirði. Guð blessi ykkur öil. Dætur, tendasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Kveðjuorð: Sveinn S. Einars- son verkfræðingur geði og góðvild og hjálpsemi var henni í blóð borin enda alin upp við þau lífsviðhorf að sjálfsagt væri að rétta þeim hjálparhönd, sem við erfíðleika ættu að stríða. Margrét var hógvær í allri fram- komu. Hún talaði vel um fólk og tók betur eftir því góða í fari manna en því sem miður var. Hún var ein af hinum almenna hópi fólks, sem sinnir verkum sínum af alúð og samviskusemi og vill ekki bregðast því sem því er trúað fyrir. Traust, hjartahlý og góð eru orð sem lýsa Margréti vel. Við kveðjum Margréti, þökkum samfylgdina og biðjum henni bless- unar á nýjum vegum. Aðstandend- um flytjum við innilegar samúðar- kveðjur. Páll V. Daníelsson Nýlega er látinn Sveinn S. Ein- arsson verkfræðingur, einn merk- asti maður stéttar sinnar. Hann fæddist 9.'nóvember 1915 að Leirá í Borgarfírði, og náði því vel 72. aldursári. Hann lauk stúdentsprófí í Reykjavík 1935 og verkfræðiprófí í vélaverkfræði í Kaupmannahöfn 1940. Á yngri árum voru samskipti okkar Sveins af nokkuð skomum skammti. Við vorum þó bekkjarfé-. lagar í Menntaskólanum í Reykjavík 1932, og aftur í Kaupmannahöfn hluta háskólaárs 1939-’40. Enn lágu leiðir okkar Sveins saman 1958 er hann tók við verkfræði- starfí í jarðhitadeild raforkumála- skrifstoftinnar. Þar naut hann hæfí- leika sinna og var furðufljótur að aðlaga sig hinum nýju verkefnum sem þar voru lögð fyrir hann. Ég hafði mikla ánægju og verulegt gagn af samstarfí okkar þar. Um 1960 vom umbrot í málum verkfræðinga, og stofnuðum við Sveinn þá verkfræðistofuna Vermi sf. 1962. Hann sá um rekstur fé- lagsins, uns hann tók að sér ráð- gjafastörf hjá tækniaðstoð Samein- uðu þjóðanna í Mið-Ameríku 1969. Verkfræðistörf Sveins fyrir tækni- aðstoðina vom margbrotin og um- fangsmikil, og naut hann sín vel þar. 1984 kaus hann að ljúka þessu starfi, og fluttust Sveinn og Aðal- heiður kona hans þá til íslands aft- ur. Sveinn var maður óvenju vel gerður, mjög greindur, glæsimenni og prúðmenni í alla staði. Við frá- fall hans missir ísland og verk- fræðingastéttin einn sinna bestu manna. Er að honum mikil eftirsjón. Við Tove vottum Aðalheiði og allri fjölskyldu þeirra dýpstu samúð okkar. Dr. Gunnar Böðvarsson, Corvallis, Oregon Minning: Auðbjörg Kára- dóttir, Osabakka Fædd 20.júní 1899 Dáin 18. júní 1988 Amma okkar, Auðbjörg Kára- dóttir, andaðist á sjúkrahúsinu á Selfossi þann 18. júní síðastliðinn á 89. aldursári. Hún bjó á Ósa- bakka í Skeiðahreppi frá 3ja ára aldri til dauðadags. Lífsleið ömmu var löng og ströng, blandin gleði og sorg. Oft talaði hún um þegar hún smalaði kvíarollunum 6 ára gömul, stundum berfætt í rennblautri mýrinni. Amma missti mann sinn, Svein Gestsson frá Húsatóftum á Skeiðum, eftir rúm- lega 40 ára hjúskap en með honum hafði hún eignast 11 böm og eru 10 þeirra á lífí. Við systumar minnust þess hvað ömmu þótti alltaf vænt um þegar við litum inn til hennar. Á hveiju vori þegar fyrstu blómin spmngu út, tíndum við fallegustu blómin sem við fundum á túninu í kringum bæinn pg færðum henni. Það var henni mikil ánægja að setja blómin í vasa og hafa þau á borði við rúm- ið sitt, enda var hún mikil ræktun- arkona sjálf og átti fallegan garð prýddan tijám og blómum. Lítið hús áttum við systumar og lékum okkur oft þar í búleik. Þá var oft farið til ömmu og mátti hún alltaf sjá af dóti handa okkur í húsið. Amma hafði mjög mikið yndi af dýmm. Þó stóðu hestamir hjarta hennar næst. Oft þegar hiyssa kastaði fómm við systumar ásamt foreldmm okkar með hryssuna og folaldið á hlaðið fyrir utan hjá ömmu og kom hún þá út á tröppum- ar og skoðaði hestefnið gaumgæfí- lega. Hún átti sjálf góða og mikla hesta þegar hún var ung og naut þess að láta þá taka góða skeið- spretti. Einnig komum við með lömb og hvolpa til hennar, því nú seinni árin fór hún ekki mikið út sjálf til að sjá slíkt. Það var fastur liður á vorin þeg- ar skólanum lauk, að fara til ömmu með handavinnu vetrarins auk ein- kunna og sýna henni. Hún sagði sitt álit, hrósaði okkur og benti okkur á það sem betur mætti fara, enda var hún mikil hannyrðakona sjálf. Nýlega gift keypti hún sér pijónavél fyrir peninga sem. hún hafði aflað sér með þvi að tína hagalagða á vorin. Þessi pijónavél er enn í fullkomnu lagi. Mikið pijón- aði hún í höndunum .og heklaði margt fallegt svo sem sjöl og dúka og mikið þótti okkur gaman að sjá þessa fallegu gripi i skúffunum hennar. Um 1980 kynntist amma Jens Aðalsteinssyni, miklum sómamanni og bjó hann með henni og var henn- ar stoð og stytta síðustu ár lífsleið- arinnar. Það vorú ætíð hlýjar mót- tökur hjá þeim ömmu og Jens, boð- ið upp á mjólk og kökur, sagðar skemmtilegar sögur frá fyrri árum °g þegar við kvöddum var yfírieitt stungið að okkur súkkulaðimola eða einhveiju þess háttar. Við systumar minnumst góðrar og ákveðinnar ömmu sem aldrei lét deigan síga. Það er hálf tómlegt í stóra húsinu með bláa þakinu þegar amma er ekki lengur þar, en við trúum að hún sé nú laus við allar þjáningar og að vinir hennar löngu liðnir, bæði menn og málleysingjar, hafi tekið vel á móti henni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Blessuð sé minning Auðbjargar ömmu. Kristrún og Sigrún

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.