Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 56

Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 56
EIGNA MIÐUUIVIN 27711 \ I j’JÍ H Ó L T $ 5 JQ h‘t X 3 Svemr Kristiftsson, sölustjóri - Þortefktr Guðmundsson, sötum. Þoröfur HaHdóísson, löofr. ~ UnflSteinn Bockhrl.. simi 12320 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 ÁGRÆNNIGREIN VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Viðskiptabankarnir: Útlánsvextir hækka um 2-3% IÐNAÐARBANKI og Alþýðu- banki hækkuðu almennt inn- og útlánsvexti sina í gær um 2-3% og einnig tók gildi svipuð hækk- un á útlánsvöxtum annarra við- skiptabanka. Eftir þessa hækkun eru meðalvextir af almennum óverðtryggðum skuldabréfum 40,4% og meðalforvextir af vixlum 38,5%. Vextir af Alreikningi Iðnaðar- bankans hækkuðu úr 17-24% í 20-27% og vextir af almennum •sparisjóðsbókum hækkuðu úr 23% í 26%. Þá hækkuðu vextir af Launa- reikningi Alþýðubankans úr 25% í 28% og vextir af almennum spari- sjóðsbókum hækkuðu úr 22% í 25%. Forvextir af víxlum sem áður voru á bilinu 35-37% hækkuðu í 37-39%. Þannig hækkuðu Lands- bankinn, Búnaðarbankinn og Iðn- aðarbankinn forvexti sína í 39%. Vextir af almennum óverðtryggð- um skuldabréfum hjá sömu bönkum að meðtöldum Alþýðubanka og sparisjóðum eru nú 41% en voru áður 37-38%. Ársávöxtun er því 45,2% miðað við tvær afborganir á ári. Embætti borgarlæknis: Unnið við að tölvu- skrá bólusetningar Embættí borgarlæknis í Reykjavík hefur nú hafið tölvu- skráningu á kerfisbundnum bólusetningum. Fram til þessa hafa allar upplýsingar varðandi bólusetningar verið handskrifað- ar, en að sögn Heimis Bjamason- ar aðstoðarborgarlæknis mun tölvuvæðingin hafa í för með sér Kastaðist út um afturrúðu Borg í Miklaholtshreppi. UMFEM)ARSLYS varð í Kol- beinsstaðarhreppi í gær- kvöldi. Bifreið með fjórum mönnum fór út af veginum skammt frá Flesjustöðum með þeim afleiðingum að far- þegi í framsæti bifreiðarinnar kastaðist út um afturrúðu bilsins. Lögregla og læknir komu á staðinn. Sá slasaði var sóttur í þyrlu Landhelgisgæslunnar og fluttur á slysadeild Borgarspít- alans. Læknir taldi að jafnvel gæti verið um hryggbrot að ræða. Hinir farþegamir sluppu ómeiddir. -PáU mikla hagræðingu varðandi skýrsluhald og upplýsingar um ónæmisaðgerðir. Heimir kvaðst ekki geta sagt um hvenær þessari vinnu lyki en hér væri um mikið verk að ræða sem tæki sinn tíma. Allar kerfisbundnar bólusetningar verða færðar inn í tölvuskrána og auk þess er ætlunin, þegar fram líða stundir, að færa inn í tölvuskrána allar bólusetningar og ónæmisaðgerðir sem hver ein- staklingur gengst undir. Morgunblaðið/Amór Sigursveitin talið frá vinstri: Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Valur Sigurðsson, Karl Sigrn-- hjartarson, Sævar Þorbjörnsson, Sigurður Sverrisson og Hjalti Elíasson fyrirliði. Verðlaunin af- henti Sigmundur Stefánsson mótsstjóri. Islendingar Norðurlandameistarar í brids 1988: Arangnrinn ber ekki sízt að þakka Hjalta Elíassyni fyrirliða — sagði Karl Sigurhjartarson í lokahófi í gærkvöldi íslendingar sigruðu á Norð- urlandamótinu i brids sem lauk í gærdag. Hlaut íslenzka sveitin 178 stig eða einu stigi meira en sænska sveitin. Verðlaunaafhendingin fór fram í lokahófi í gærkvöldi sem Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, hélt fyr- ir keppendur og mótshaldara. Meðfylgjandi mynd er tekin þegar íslenzka sveitin tók við verðlaunum sínum. Einn íslenzku spilaranna, Karl Sigurhjartarson, þakkaði erlendu þátttakendunum fyrir drengilega keppni. Þá lauk hann lofsorði á sænska keppnis- stjórann Hans-Olaf Hallén og hans lokaorð voru þau að sigur í mótinu hefði ekki sízt unnist vegna frábærrar stjómunar fyrir- liðans, Hjalta Elíassonar, en Hjalti spilaði í íslenzka landsliðinu í ára- raðir og hefur verið sveitarforingi íslenzka landsliðsins nú um nokk- urt skeið. Sjá frétt á bls. 4. Slippstöðin kannar möguleika á að taka gömul skip upp í ný SLIPPSTOÐIN á Akureyri athugar nú þann möguleika að taka gömul skip upp í ný, til þess að auðvelda sölu á tveimur skipum sem nú eru í smíðum hjá stöðinni. Erlendar skipa- smíðastöðvar hafa haft þennan hátt á alllengi en íslenskar skipasmiðastöðvar hafa ekki treyst sér til þessa enn sem komið er. Að sögn Sigurðar Ringsted, yfirverkfræðings hjá Slippstöðinni á Akureyri, virð- ist sem þetta sé ein þeirra leiða sem til greina komi til þess að selja ný skip þar sem ekki sé lengur mögulegt að bæta við íslenska skipaflotann vegna kvótakerfisins og stefnu stjóm- valda í enduraýjun flotans. Fyrir nokkrum misserum fékk Slippstöðin á Akureyri leyfí til erlendrar lántöku vegna smíði tveggja skipa, án þess að gengið hafí verið frá sölu þeirra fyrirfram. Hafíst var handa við verkið á fyrstu mánuðum þessa árs og mun annað skipið verða tilbúið upp úr áramótum ef svo heldur fram sem horfír, að sögn Sigurðar. Það er því farið að grennslast fyrir um möguleika á sölu og hefur í fram- haldi af því meðal annars verið kannaður sá möguleiki að taka gömul skip upp í þau nýju. áramótum en smíði á því síðara mun hefjast mjög fljótlega. Þau verða 230 til 240 rúmlestir að stærð og hyggjast Slippstöðvar- menn fara af stað með kynningu á þeim fljótlega á meðal útgerðar- manna. Mjólkurís: Tefltá Torginu Hið árlega útiskákmót Skák- sambands íslands fór fram í blíðskaparveðri á Lækjartorgi í gær. Þátttakendur voru 50 að þessu sinni frá jafnmörgum fyrirtækjum og var mikið skrafað og skeggrætt um stöð- urnar. Úrslit urðu þau að Þröst- ur Þórhallsson, sem tefldi fyrir Landsbankann, og Jóhann Óra Siguijónsson frá Visa ísland, urðu efstir og jafnir með 6 vinninga af 7 mögulegum. í þriðja sæti varð Sigurður Daði Sigfússon með 5*/2 vinning, en hann tefldi fyrir OLÍS. Morgunblaðið/Einar Falur „Kvótakerfíð og stefna stjóm- valda varðandi endumýjun flotans gerir það að verkum að ekki er hægt að bæta við hann lengur," sagði Sigurður. „Menn verða því að losa sig við gamla skipið áður en þeir kaupa hið nýja með því að selja það úr landi eða úrelda það. Erlendar skipasmíðastöðvar taka hins vegar gömlu skipin upp í og þá kemur óhjákvæmilega upp sá möguleiki að við gerum það líka. Það er einmitt verið að kanna það núna.“ Ef í það yrði ráðist að taka gamalt skip upp í kvað Sigurður líklegt að reynt yrði að breyta því og endurbæta þannig að hægt væri að koma því í verð og selja. Eins og áður sagði verður annað skipið væntanlega tilbúið upp úr Alltað 123% verðmunur MIKILL verðmunur er á mjólk- urís eftir verslunum samkvæmt verðkönnun sem Verðlagsstofnun hefur gert i 32 verslunum á höf- uðborgarsvæðinu. Sem dæmi má nefna að þrjár kúlur af svokölluð- um gamaldags is kosta 110 krónur í Dairy Queen við Hjarðarhaga en 245 krónur í íshöllinni í Kringl- unni og i Austurstræti og munar því 123%. í könnuninni kom meðal annars fram, að um 78% verðmunur er á ís í brauðformi án dýfu og um 100% verðmunur var á mjólkurhristingi í litlu boxi, svo dæmi séu tekin. Sjá verðkönnun bls. 33.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.