Morgunblaðið - 06.09.1988, Qupperneq 2
íi:«» • jr:i9M33^>r(.'i .8 3..t i)A( 'lCílS’cí^lI'I/.. :[/U;),8tM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Hreinsað til á Ölafsfirði
UM 300 manns lögðu hönd á plóginn við hreins-
un á Ólafsfirði um helgina. Um 50 þeirra voru
úr nágrannabyggðalögunum og frá Akureyri.
Að sögn Þorsteins Björnssonar bæjartœknifræð-
ings, gekk verkið vel og er hreinsun garða og
opinna svæða langt komin. Giskaði hann á að á
milli 1200-1500 rúmmetrum af aur hefði verið
mokað og skolað burt um helgina. Töluvert verk
er enn eftir en nú stendur yfir hreinsun á hol-
ræsakerfi bæjarins, golfvelli og svæði lyá hest-
húsum. Þá hafa einnig verið grafnir skurðir i
hlíðar Tindaaxlar og ólokið er hreinsun á tjörn-
inni við aðalgötu bæjarins. 6 lóðir eru alveg
ónýtar og um 15 skemmdar. Vegagerðarmenn
hafa unnið óslitið að því að gera Múlann færan
og hefur bQum af og tU verið hleypt yfir en
gijót hrundi á veginn um helgina. Að sögn Valdi-
mars Steingrímssonar, verksljóra Vegagerðar-
innar var minna gijóthrun í gœr þar sem veður
var sæmilega þurrt. Líkur eru á að Múlinn verði
opnaður umferð í dag en búist er við töfum
vegna vinnu vegagerðarmanna í Kúhagagili.
Teiknimyndir:
Ný framhaldssaga fyr-
ir börn og unglinga
NÝ teiknimyndasaga hefst á
morgun i fylgiblaði Morgun-
blaðsins, Myndasögum Mogg-
ans. Fjallar sagan um blaðakon-
una Brendu Starr.
Yfirmaður Brendu er ritstjórinn
Livwright, sem sendir Brendu út
um allan heim til að afla frétta,
og lendir hún í hinum ýmsu ævin-
týrum. Fylgist því með strax frá
byijun. Teiknimyndasagan kemur
til með að birtast í lit á miðviku-
dögum í Myndasögum Moggans
og daglega í svart/hvítu hér í
Morgunblaðinu.
Gerð hefur verið kvikmynd um
fréttakonuna Brendu Starr og lék
Brooke Shild.s aðahlutverkið í
henni.
Fjórðungi starfs-
manna sagt upp
Coldwater:
COLDWATER Seafood Corpor-
ation, dótturfyrirtæki Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í
Bandaríkjunum, hefur sagt upp
um það bil fjórðungi starfs-
manna í verksmiðju fyrirtækis-
ins í Cambridge. Að sögn Magn-
úsar Gústafssonar, forstjóra, er
hér um að ræða fólk, sem ráðið
var til starfa á siðari hluta árs-
ins 1987. Birgðir voru þá í lág-
marki og búist við aukinni fisk-
Jóhann Hjart-
arson og
Karpov tefla
í Tilburg
JÓHANNI Hjartarsyni stór-
meistara hefur verið boðið að
taka þátt í hinu árlega stórmóti
Interpolis tryggingafélagsins i
Tilburg í Hollandi. Mótið hefst
á morgun, miðvikudag, og mun
Jóhann halda utan til Hollands
í dag. Meðal andstæðinga Jó-
hanns verður Anatoly Karpov
og munu þeir tefla saman tvisv-
ar sinnum, en þar sem Karpov
tekur ekki þátt i heimsbikar-
mótinu hér á landi er líklegt að
þetta séu einu viðureignir
þeirra fyrir einvígið um áskor-
endaréttinn i janúar n.k.
Þetta mót er í 16. styrkleika
FIDE og þykir mikil upphefð að
vera boðið þangað. Það hefur að-
eins einu sinni gerst áður að
íslenskum skákmanni hafi verið
boðið á þetta móí en það var Frið-
rik Ólafsson, árið 1977, en þá fór
mótið fram í fyrsta skipti. Aðeins
8 skákmenn taka þátt í mótinu
núna og tefla þeir tvöfalda um-
ferð. Auk Jóhanns taka þátt í
mótinu Anatoly Karpov, sem hefur
oftast borið sigur úr býtum á þessu
móti, Jan Timman, sem sigraði í
fyrra, Robert Hubner Vestur-
Þýskalandi, Niegel Short Eng-
landi, Lajos Portisch Ungveijal-
andi, John Van der Wiel Hollandi
og Predrag Nikolic Júgóslavíu.
Jóhanni var boðin þátttaka er
Salov frá Sovétríkjunum afboðaði
þátttöku með stuttum fyrirvara.
Margeir Pétursson stórmeistari
verður Jóhanni til aðstoðar framan
af mótinu.
sölu á lönguföstu i ár.
Að sögn Magnúsar eiga öll fyr-
irtæki í þessari atvinnugrein í erf-
iðleikum. Hann sagði að uppsagn-
imar væru liður í breytingum, sem
hefðu í för með sér, að framleiðsla
fyrirtækisins sveiflaðist meira með
sölunni en verið hefur til þessa.
Starfsmönnum Coldwater var
ijölgað á síðari hluta ársins 1987
og sagði Magnús nú væri verið
að segja upp fólki, sem þá var
bætt við.
Á fyrstu 6 mánuðum þessa árs
varð verulegur samdráttur í sölu
Coldwater í Bandaríkjunum og
verðfall á markaðnum dró einnig
úr söluverðmæti afurða fyrirtæk-
isins. í síðasta mánuði seldi Cold-
water hins vegar 9% meira magn
en í ágúst I fyrra. Sala á unnum
vörum var 4% meiri, en aukningin
í sölu flaka var 13%. Verðmæti
afurðanna var hins vegar 6 pró-
sentum minna í ágúst en á sama
tíma í fyrra. Magnús sagðist vona,
að botninum hefði nú verið náð
og salan héldi áfram að aukast.
„Það er lífsspursmál að við getum
veitt viðskiptavinum okkar í
Bandaríkjunum örugga þjónustu
varðandi gæði og afgreiðslu,"
sagði Magnús að lokum.
Verðlagsstofnun:
Óvist að framhaldsskól-
ar megi hækka skólagjöld
Fundað verður um verðhækkanir á námsbókum í dag
DAGLEGA berast Verðlagsstofn-
un mUli 50 og 60 fyrirspurnir og
kvartanir varðandi verðstöðvun-
ina að sögn Guðmundar Sigurðs-
sonar hagfræðings hjá stofnun-
inni. Segir hann að flestir spyiji
um verð námsbóka, skólagjöld og
gjöld fyrir ýmiskonar námskeið.
Þá sé talsvert spurt um hvernig
bregðast eigi við verðhækkunum
hjá heUdsölum frá því fyrir verð-
stöðvun. Ljóst sé að ekki megi
taka hærra verð fyrir vöru eða
þjónustu en sfðast var gert áður
en verðstöðvunin tók gildi. Þó sé
ekki gerð athugasemd við hækkun
skólagjalda sem nemendum hafi
verið tilkynnt um fyrir miðjan
ágúst. Vafi leiki á um innritunar-
gjöld f framhaldsskólum og nú sé
f athugun hvort þau byggist á sér-
lögum.
Guðmundur Sigurðsson segir að
verðstöðvunin nái ekki til atriða sem
falli undir sérstaka löggjöf. Þannig
gildi hún til dæmis ekki um húsa-
leigu og nú sé kannað hvort hið sama
eigi við um innritunargjöld skóla sem
reknir eru lögum samkvæmt. Hins
vegar nái verðstöðvunin til dans-
skóla, tónlistarskóla og slfkra fyrir-
tækja. Dansráð íslands hefur farið
þess á leit við félagsmenn sína að
hækka ekki námskeiðsgjöld og hefur
boðað til fundar um málið í kvöld.
Segir Guðmundur Sigurðsson að
skólagjöld öldungadeilda framhalds-
skólanna virðist hafa verið ákveðin
í menntamálaráðuneytinu í vor og
þvf hugsanlega ekkert að segja við
hækkun þeirra. Hins vegar þurfi að
athuga innritunargjöld í dagskóla
sem víðast eru ákveðin í samráði
forráðamanna skóla og nemendafé-
iaga.
Kaupmenn semja við
heildsala
Kaupmenn geta að sögn Guð-
mundar að reynt að semja við heild-
sala eða framleiðendur um kaup á
vörum sem hækkuðu f verði fyrir
miðjan águstmánuð. Náist ekki sam-
komulag verða kaupmenn að taka
mismuninn á sig en hætta við sölu
vörunnár að öðrum kosti. Hið sama
gildir um heildsala sem keypt hafa
vörur eftir miðjan ágúst. Þetta sjón-
armið var nýlega kynnt á fundi full-
trúa Verðlagsstofnunar og stjómar
Kaupmannasamtakanna.
Að sögn Guðjóns Oddssonar,
formanns Kaupmannasamtakanna,
hafa heildsalar sýnt málinu mikinn
skilning og vel hefur gengið að semja
um verð. Segir hann að fæstir kaup-
menn geti tekið á sig hækkanir.
Þeir vérði einfaldlega að skila vörum
til heildsala reynist ekki unnt að
semja um sama verð og gilti fyrir
verðstöðvun.
Verðhækkanir námsbóka hafa
komið til álita. Verðlagsstofnun telur
að námsbækur sem komu í verslanir
eftir miðjan ágúst megi ekki selja á
hærra verði en fyrr. Talsmenn for-
laga segja hins vegar að ákveðið
hafi verið að hækka verð bókanna
áður en verðstöðvunin kom til. Verð-
lagsstofnun svarar því til að ákvörð-
un um hækkun fyrir miðjan ágúst
gefi ekki heimild til hennar, frekar
en ákvörðun um hækkun skóla-
gjalda. Bækumar hafi þurft að vera
komnar í verslanir fyrir 15. ágúst á
hærra verði og skólar hafi þurft að
hefja innheimtu eða tilkynna um
hækkun fyrir þann tíma. Forsvars-
menn þriggja stærstu bókaforlag-
anna koma til fundar í Verðlags-
stofnun í dag.
Tvítugur maður játar að
hafa orðið konu að bana
25 ÁRA gömul kona, Alda Rafns-
dóttir, fannst látin af stungusári,
að talið er, á heimili sinu f Kópa-
vogi, um klukkan hálfátta að
morgni laugardagsins. Tvítugur
Reykvíkingur, Guðmundur
Sveinbjömsson, hafði skömmu
áður gefið sig fram við lögregl-
una í Kópavogi og sagst hafa
orðið stúlkunni að bana á heim-
ili hennar.
Guðmundur hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 1. desem-
ber og gert að sæta geðrannsókn.
Samkvæmt upplýsingum frá
RLR höfðu Alda og Guðmundur
hist á skemmtistað í Reykjavík að-
faramótt laugardagsins og orðið
samferða í leigubíl að heimili Öldu.
Vinkona hennar varð þeim sam-
ferða áleiðis. Guðmundur og Alda
munu ekki hafa þekkst áður.
Að öðru leyti verst rannsóknar-
lögreglan allra frétta af málinu.
Alda Raftisdóttir bjó að Lyng-
Alda Rafnsdóttir.
heiði 14 í Kópavogi og lætur eftir
sig sjö ára gamlan son.