Morgunblaðið - 06.09.1988, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
49
Hvanneyri:
Borgfirsk húsmóðir hlustar með athygli á Magnús Óskarsson til-
raunastjóra í skjólbeltinu.
Mikill áhugi á kynningu Bænda-
skólans og Bútæknideildar
Morgunblaðið/Ingimundur Ingimundarson
Magnús Óskarsson tilraunastjóri
í skjólbeltinu, bak við hann er
óupphitað plastgróðurhús. Þar
eru aldar upp plöntur og ræktað
grænmeti, sem ekki þrífst úti.
Magnús Óskarsson tilraunastjóri
með fallega kálplöntu í skjólbelt-
inu. Þar eru ótrúlega miklu betri
skilyrði til matjurtarræktar en á
berangri í kring.
Hvannatúni í Andakíl.
í TILEFNI af „opnu húsi“ sóttu
hátt i áttahundruð manns Hvann-
eyri heim. Á norrænu tækniári
1988 höfðu Bændaskólinn á
Hvanneyri og Bútæknideild
RALA opið hús til að kynna starf-
semi sina.
Gestir komu á kynninguna af
svæðinu frá Suðurlandi og allt norð-
an úr Eyjafirði, en þaðan voru
skipalagðar rútuferðir. Hagstætt
veður var þennan sunnudag, hinn
21. ágúst, og var því auðvelt að
standa að kynningu sem þessari,
bæði úti sem inni.
Mesta athygli vakti sýning á
gömlum og nýjum búvélum, mat-
jurtatilraunir í „skjólbeltinu" og
§ósið, þó gamalt sé, en þar eru
nýtísku innréttingar og mjaltabás-
ar. Skólabúið hefur hlotið margar
Á sjötta hundrað manns nutu
kaffiveitinga í vistlegum matsal
Bændaskólans.
viðurkenningar fyrir gæðamjólk hin
síðustu ár.
Bændaskólinn kynnti skólastarf-
ið m.a. með myndbandi, tölvunotk-
un, bókasafn sitt í gamla matsaln-
um, mjög fullkomna rannsóknar-
stofu í nýju húsi, bókagerð, en þar
hafa verið unnar flestallar
kennslubækur bændaskólanna, og
fjölbreytilegar jarðræktartilraunir.
í loðdýrahúsinu gaf að líta refi,
minka og kanínur. Annars staðar
vöppuðu gæsir á túni og sjá mátti
leyfar af hænsnastofni, sem talinn
er vera frá landnámsöld. Nautastöð
Búnaðarfélags íslands kynnti starf-
semi sína og Rannsóknastofnun
landbúnaðarins skrokka af nýslátr-
uðum lömbum úr tilraunabúi sínu
á Hesti.
Búvélainnflytjendur sýndu
margvísleg tæki, sem mörg hafa
einmitt verið prófuð hjá Bútækni-
deild RALA á Hvanneyri. Þar er
vísir að búvélasafni, sem þó vantar
húsnæði, til að geyma sögu fýrstu
vélanna á landinu, en nú eru þær
elstu um 70 ára gamlar. Sem dæmi
stendur eini þúfubaninn á landinu
á hól þar skammt frá, of stór til
að komast í nokkurt tiltækilegt hús
og ryðgar þar um leið og hann
kallar á hjálp.
- D.J.
Minning:
Hafsteinn Sigurðs
son, Smáratúni
Fæddur 6. september 1931
Dáinn 27. nóvember 1987
Á afmælisdegi pabba, Hafsteins
Sigurðssonar í Smáratúni í
Þykkvabæ, langar okkur að minn-
ast hans með fáeinum orðum, en
hann hefði orðið 57 ára í dag. Sjúk-
dómur sá er lagði hann að velli
uppgötvaðist aðeins rúmu ári áður
en hann lést. Barðist hann hetjulega
og aldrei var um neina uppgjöf að
ræða þar til yfir lauk. Ekki var
hann einn í veikindum sínum því
mamma var við hlið hans dag og
nótt bæði heima og þegar hann var
á spítala og erum við systkinin afar
þakklát henni.
Allar okkar minningar tengjast
honum, sem var okkur einstaklega
góður faðir og félagi alla tíð. Hann
hafði alltaf tíma fyrir okkur og eins
bamabömin sem nú em orðin 14.
Þess má geta að hann hélt á því
yngsta, sem er drengur og ber nafn
hans, undir skím á Borgarspítalan-
um, þá bundinn við hjólastól vegna
veikinda sinna, aðeins 27 dögum
áður en hann lést.
Fjölskyldumaður var hann mikill
og voru allar stundir sem gáfust
notaðar til að koma heim í Smára-
tún og var þá ávallt glatt á hjalla.
Lagði hann það á sig fársjúkur að
fara með okkur öllum í tvö ferðalög
síðastliðið sumar, sem við eigum
nú góðar minningar um.
Að lokum viljum við þakka elsku
pabba fýrir allt og biðjum honum
Guðs blessunar í nýjum heimkynn-
um. Blessuð sé minning hans.
Með tryggð til máls og manna
á mátt hins góða og sanna
þú trúðir traust og fast.
Hér er nú starfsins endi.
í æðri stjómar hendi
er það, sem heitt í hug þú barst.
Guð blessi lífs þins brautir,
þitt banastrið og þrautir
og starfs þíns mark og mið.
Við hugsum til þín hljóðir.
Að hjarta sér vor móðir
þig vefur fast og veitir frið.
Ég minntist bemsku minnar daga
og margs frá þér, sem einn ég veit
Ég fann nú allt að einu draga,
og á mig dauðans gmnur beit.
En eftir stutta stundarbið
þá stóð ég þínar börur við.
Ég fann á þínum dánardegi,
hve djúpt er staðfest lífs vors ráð.
Ég sá á allrar sorgarvegi
er sólskin til með von og náð.
Og út yfir þitt ævikvöld
skal andinn lifa á nýrri öld.
(E.B.)
Heimir, Friðsemd, Sighvatur
Borgar, Kristborg, Sigrún
Linda og Bryndís Asta.
Með ástarþökk fyrir allt.
Þau Ijós sem skærast lýsa
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast.
Og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur og
dóm þann enginn skilur.
En skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi,
það kveikti ást og yndi
með óllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum,
nú hverfi Ijósið bjarta
þá situr eftir ylur í
okkar mædda hjarta.
(F.G.Þ.)
Kveðja frá barnabörnum
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbök um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
Iferftek Höganas
F L ( S A R
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIPJÓNUSTA - LAGER
ARGUS/SÍA