Morgunblaðið - 06.09.1988, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988
Minning:
Ingibjörg Benedikts-
dóttirfrá Breiðuvík
Fædd 3. desember 1900
Dáin 29. ágúst 1988
í dag verður am.ua okkar, Ingi-
björg Benediktsdóttir, jarðsett frá
Fossvogskapellu. Hún andaðist á
heimili sínu að morgni 29. ágúst.
Oft hafði hún sagt að þannig vildi
hún fá að fara. Við minnumst elsku
ömmu okkar með söknuði og eftir-
sjá. Hún var okkur svo góð og hjálp-
leg. Iðulega gat hún glatt okkur
með sögum og fallegum ljóðum,
sem hún kunni svo mörg. Oft sátum
við hjá ömmu yfir heitu súkkulaði
og kleinum og hlustuðum á frásögn
hennar af gömlum ævintýrum og
æskuminningum eða þá að hún
spilaði við okkur eða las fyrir okk-
ur. Þessar dýrmætu stundir geym-
ast í hjörtum okkar.
Amma okkar var fædd í
Breiðuvík á Tjömesi. Foreldrar
hennar vom Benedikt Benediktsson
f. 1857 að Gmnd í Höfðahverfi,
síðar bóndi í Breiðuvík, og Þorbjörg
Jónsdóttir frá Breiðuvík f. 1865.
Amma ólst upp hjá foreldmm
sínum í Breiðuvík til átján ára ald-
urs í stómm systkinahópi, systkinin
vom níu, ijórir bræður og fímm
systur, og var hún fímmta í röð-
inni. HÚn leit alltaf á bemskuárin
í Breiðuvík sem hamingjusömustu
ár ævi sinnar og hvergi fannst henni
fallegra en þar.
Hún sagði okkur frá því að alltaf
hefði verið nógur sjómatur handa
þeim, fískur, selur og fuglakjöt, og
öll bömin hafí verið látin borða
sellýsi og fundist það gott. Þá lýsti
hún því fyrir okkur hvemig allur
fatnaður og skór vom búin til
heima. Langamma spann ullina og
litaði með jurtalit og afí óf, þau
notuðu líka tvist sem hann óf með
ullinni. Síðan keypti langamma
dönsk móðinsblöð á Húsavík, en
hún lærði dönsku ung og las alltaf
dönsku, og sneið allan fatnað sjálf,
en dætumar fóra snemma að hjálpa
til við að sauma, einkum þær elstu.
Einnig sagði hún okkur frá því að
á sunnudögum hefði langamma
klætt dætur sínar í fallegar svuntur
og látið þær sitja við útsaum, og
þótti það víst heldur óvenjulegt í
svejtinni í þá daga.
Átján ára fer svo amma að heim-
an til að mennta sig og fer til Akur-
eyrar að læra klæðasaum og bætti
sfðan við sig námi í hatta- og
skermasaum. Hún þótti mjög flink
saumakona hvort sem um kjóla- eða
herrafatnað var að ræða og vann
hún við saumaskap þar til hún
kynntist tilvonandi eiginmanni
sínum, Jóni Halli Einarssyni tré-
smið, en þá fer hún í Kvennaskól-
ann í Reykjavík, hússijómardeild.
Haustið 1928 giftu þau sig og
hafði þá afí smfðað öli húsgögnin
fyrir heimilið á meðan amma var
fyrir sunnan og era þau til enn og
em mjög vönduð.
Afí og amma bjuggu allan sinn
búskap á Akureyri að undanteknum
fjóram ámm sem þau bjuggu á
Siglufirði. Heimili þeirra var mjög
myndarlegt og gestkvæmt. Þau
eignuðust þijú böm: 1. Erlu, bæjar-
bókavörð, sem giftist Guðmundi
Bjamasyni lækni og eignuðust þau
þrjá syni, Bjama, sem giftur er
Elísabetu Grétarsdóttur og eiga þau
tvö böm, Erlu Kristínu og Guð-
mund. Hallur, sem giftur er Jónu
Helgadóttur og eiga þau tvö böm,
Tinnu Björg og Hall Inga. Snorra
sem heitbundinn er Biyndísi Krist-
insdóttur. 2. Benedikt Hauk, skrif-
stofumann f Reykjavík. 3. Þor-
björgu Jónsdóttur, ritara, giftist
Maurice Middleton, leikara í London
og eignuðust þau dótturina Ingu
Lísu, sem nú er við nám í Englandi.
Amma okkar var afar ljóðelsk
og kunni svo mikið af ljóðum, svo
til þess var tekið og gat hún fram
á síðasta dag farið með heilu ljóða-
flokkana án þess að minnið skeik-
aði, þó flest annað væri fallið í
gleymsku.
Hún starfaði af lífí og sál að
góðgerðarmálum á Akureyri, var f
Kvenfélaginu Hlíf, Slysavamafé-
laginu og í Mæðrastyrktamefnd sat
hún í mörg ár og vora þau störf
henni hjartfólgin.
Síðustu ár hennar á Akureyri
vom talsvert erfíð, afí orðinn heilsu-
laiis og öll bömin flutt f burtu. Afí
dó 1. október 1963 og bjó hún því
sfðari hluta ævi sinnar í Reykjavík,
fyrstu árin með syni sínum Hauki
en síðustu sex árin með dóttur sinni
Þorbjörgu. Var heilsa hennar þá
farin að bila.
Hún vann við saumaskap í
Reykjavík, aðallega herrafatasaum,
var heilsuhraust og falleg,
skemmtileg og hress kona. Hún
hafði yndi af ferðalögum og gat
veitt sér að ferðast víða um Evrópu
með ellilífeyrisþegum og einnig að
dvelja hjá dætmm sfnum f Svíþjóð
og Englandi nokkmm sinnum.
Einnig fór hún til Kanada og heils-
aði þar upp á frændfólk sitt, enda
var amma ættrækin og félagslynd
að eðlisfari.
_______________________________55
Af Breiðuvíkursystkinum em nú
tvær systur eftir á lffí, Hólmfríður
búsett á Húsavík og Anna búsett í
Reykjavík.
Síðustu árin leitaði hugurinn
meir og meir á æskuslóðimar og
undi hún sér langtímum saman við
ljóðin sín og æskuminningar eftir
að sjón og heilsa tóku að dvína.
Við kveðjum ömmu okkar með
söknuði og þakklæti og biðjum góð-
an guð um að blessa hana. Við
minnumst hennar í bæninni sem
hún kenndi okkur er við voram
böm.
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Blessuð sé minning hennar. ,
Bjarni, Hallur, Snorri og
Inga Lísa.
t
Yndislega konan mín, móðir og systir,
GRÉTA MARÍA JÓSEFSDÓTTIR,
Blikahólum 8,
Reykjavfk,
lést í Landspítalanum 3. september.
Úlfur Markússon,
Davið Margeir Þorsteinsson,
Hulda Jósefsdóttir, Esther Jósefsdóttir,
Eggert Jósefsson, Ágúst Jósefsson.
t
Ástkær móðir mín, dóttir okkar og systir,
ALDA RAFNSDÓTTIR,
andaðist 3. september á heimili sínu, Lyngheiði 14, Kópavogi.
Vilberg Rafn Vilbergsson,
Karen Gestsdóttlr,
Anna Ósk Rafnsdóttir,
Hafni Már Rafnsson,
Gylfi E. Rafnsson,
Guftni Rafnsson.
Rafn Vigfússon,
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar tíl
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Standandi HOOVER ryksugurnar eru sígildar
djúphreinsivélar sem eiga enga sina líka, svo vel
hreinsa þær. Þetta eiga þær ekki slst að þakka
þreifaranum, sem bókstaflega grefur upp
óhreinindin er liggja djúpt í teppinu. Afkasta-
mestar allra ryksuga, fyrir heimili og vinnustaði,
afareinfaldarog sannkallaðir bakverkjabanar.
Fullkomin lína liggjandi ryksuga, með þeim
möguleikum sem þú óskar eftir. iogbarki sem er allt
í senn, léttur, fjaðrandi og teygjanlegur. Fjöldi
fylgihluta. Mikill kraftur + ofurkraftur, fjarstýring í
handfangi, ilmgjafi, stór sýklarykpoki, mótorbursti
sem grefur upp djúptliggjandi óhreinindi,
snúruinndrag. Hljóðlátar og vandvirkar fyrir heimili
og vinnustaði.
FÁLKINN
Ný ryksugulína, fjölhæfni 1+2+3, hörku
kraftmikil sogryksuga + vatnssuga + teppaþvotta-
vél. Ótrúleg tæki en einfaldar í notkun með
einstökum möguleikum. Ryksuga teppi, flísar, dúka
og parket, soga stíflu úr vaski, þurrka upp vatn,
hreinsa upp spón í vinnuherberginu, shampoo-þvo
teppi. Fjölhæfar fyrir heimili og vinnustaði.
Veldu rétt, veldu HOOVER.
SUÐURLANDSBRAUT 8, SlMI 84670 ÞARABAKKI 3, SlMI 670100