Morgunblaðið - 13.09.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1988
37
Evrópuþingið:
Beðið um
fararleyfi
til handa
Sakharov
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins Í Belgiu.
PLUMB lávarður, forseti Evr-
ópuþingsins, sem í siðustu viku
var í heimsókn í Sovétríkjunum,
beindi þvi til Andreis Gromy-
kos, forseta Sovétríkjanna að
hann beitti sér fyrir því að An-
drei Sakharov fengi fararleyfi
til Strasborgar í desember n.k.
til að veita viðtöku mannrétt-
indaviðurkenningu Evrópu-
þingsins, sem við hann er
kennd.
Sakharov-viðurkenning Evr-
ópuþingsins er veitt af stjóm-
málanefnd þess fyrir framúrskar-
andi framlag til vemdar mannrétt-
indum. Viðurkenningin verður
veitt Sakharov sjálfum í fyrsta
skipti á desemberfundi þingsins í
Strasborg. Samkvæmt heimildum
í Strasborg em taldar góðar líkur
á að Sakharov og eiginkona hans,
Jelena Bonner, fái fararleyfí frá
Sovétríkjunum til að veita viður-
kenningunni viðtöku. Ætlunin er
að úthluta þessari viðurkenningu
árlega til þeirra sem hafa lagt
meira á sig en aðrir til að standa
vörð um mannréttindi.
Keuter
Páfi íZimbabwe
: 150.000 manns hlýddu á messu
Jóhannesar Páls páfa II. í Har-
are á sunnudag, þar sem hann
hvatti til þjóðarsáttar i Zimbab-
we og sagði að kynþátta- og
ættbálkahatur væri synd. Páfi
minntist þeirra sem féllu i freis-
isstriði Zimbabwa og i átökum
þar i landi eftir það, meðal
annars Adolphs Schmitts bisk-
ups, sem veginn var á fáförnum
vegi árið 1976. Á myndinni
blessar páfi vatn fyrir messuna.
Kína:
170manns
farast í
flóðum
Peking. Reuter.
170 manns hafa týnt lifi og
110.000 misst heimili sin í suður-
hluta Kina vegna flóða, að þvi
þvi er kinverska sjónvarpið
skýrði frá i gær.
Sjónvarpið greindi frá'því að 1,5
milljón hermenn væru við björgun-
arstörf í Hunan-héraði og 30.000
manns hefðu yfírgefíð heimili sín í
Wuhan í Hubei-héraði. Skemmdim-
ar hefðu numið tveimur miHjörðum
júana (24,8 milijörðum ísl. kr.) í
Hunan-héraði einu.
Dagblað alþýðunnar skýrði frá
því að flóðin í Hunan-héraði væru
þau mestu í 30 ár.
Kabúl:
Tíufarastí
sprengingu
Moskvu. Reuter.
TÍU manns fórust og fjörtiu
særðust þegar sprengja sprakk
i bifreið i Kabúl, höfuðborg Afg-
anistans, á sunnudag, að sögn
sovesku fréttastofunnar Tass.
í fréttinni sagði að sprengingin
hefði verið „glæpur, undirbúinn af
afgönskum öfgasinnum". Spreng-
ingin varð í Shahri-Nau-hverfínu í
Kabúl þar sem mikið er verslað á
sunnudögum. Undanfarið hefur ár-
ásum skæruliða á Kabúl fjölgað
samhliða brottflutningi sovéska
herliðsins.
Þéttir undir vatns-
boröi
Seal-Once er eina kíttlö sem
inniheldur M34 polykarbónast
sem þéttir raka og oliuborna
fleti. Kittlð má nota á fleti
undir vatnsboröi og úti i rign-
ingu. Stöðvar lekann sam-
stundis.
Stenst TTS-
230-C staðal.
Fyrirliggjandi
glnrt, brúnt og
grátt. Aðrir litir
fáanlegir eftir
pðntun.
Þéttir efni og máima
Kittiö má nota á blý, asfalt,
gler, við, málmþynnur, stein,
keramík, steinsteypu og önnur
þétt efni. Strax eftlr aö rifurn-
ar hafa veriö þéttar má mála
yfir.
Seal-Once hentar vel á:
Þóttir viö hítastig frá
1,20C til +104°C
Seal-Once þolir hitastig frá
1,2°C til +104°C. Þolir einnig
miklar hitabreytingar. Best er
að bera kíttið á viö +3,3°C —
+35°C.
350% sveigjanleiki
Sveigjanleiki Seal-Once er
350%. Þéttir stórar rifur og
heldur þrátt fyrir mikinn titr-
ing.
Raka
fleti
Málm-
þynnur
Blk (efni Sólþök
sem unn- og plast-
in eru úr efni.
olíu).
öku-
tæki.
Steina
°9
steln-
steypu.
Báta.
10 ára reynsla
Reynslan sýnir aö kitti sem
notaö var fyrir 10 árum er enn
eftirgefanlegt. Þetta þýöir aö
ekki er hætta á aö kíttiö veröi
stökkt og upp úr því brotnl.
Grunnefni (primer) er óþarft.
Reti sem
á aö
mála.
Skor-
steina og
hleöslur.
Heildsölubirgöir: G. GUÖ|ÓnSSOVl StigohM tf-ip
Sírrnr: .17657 - 820RS
Seal-Once
með M34 polykarbónati
er eina kíttið sem þéttir raka
og olíuborna fleti
V estur-Þýskaland:
Deilt á vamarmála-
ráðherra í kjölfar
Ramstein-slyssins
Zilrich. FrA önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mor^imblaðsins.
SLYSIÐ á flugsýningu í Ram-
stein í Vestur-Þýskídandi fyrir
rúmum hálfum mánuði hefur
nú valdið pólitískum deilum um
rétt vestur-þýskra stjórnvalda
til ákvarðana um athafnir her-
sveita í Vestur-Þýskalandi og
lágt heræf ingaflug yfir landinu.
Stjórnarandstæðingar ásaka
Rupert Scholz, vamarmálaráð-
herra, um ábyrgðar- og siðleysi
í sambandi við slysið og Græn-
ingjar krefjast afsagnar hans.
Tala látinna flugsýningargesta
er komin í 59 og á væntanlega
eftir að hækka. 150 manns liggja
enn á sjúkrahúsi og nokkrir eru
taldir helsærðir. Slysið varð þegar
þijár þotur ítölsku flugsveitarinn-
ar Þrílitu örvanna hröpuðu á sýn-
ingu sem er haldin árlega við
Ramstein, stærsta herflugvöll
Vestur-Evrópu. Höfuðstöðvar
bandaríska flughersins í Evrópu
eru þar.
Vestur-þýska vamarmálaráðu-
neytið veitti leyfí fyrir flugsýning-
unni í byijun apríl. Scholz var
ekki orðinn vamarmálaráðherra
þá. Hvemig og hvenær það var
ákveðið að Þrílitu örvamar tælgu
þátt í sýningunni er ekki fulHjóst.
Sveitin er þekkt fyrir glæfralegt
sýningarflug. Hún hefur af þeim
sökum ekki mátt sýna í Banda-
ríkjunum siðan 1986. Dagskráin á
flugsýningunni í Ramstein þykir
hafa verið illa undirbúin og Scholz
er sagður hafa skellt skolleyrum
við viðvörunum um hættuna sem
gæti stafað af flugkúnstum ítal-
anna.
Vestur-þýski flugherinn hélt
flugdag í Nörvenich, skammt frá
Bonn, sama dag og sýningin var
í Ramstein. Deginum lauk með
hátíðahöldum og diykkjuskap.
Scholz var við störf í ráðuneytinu
þennan dag og fylgdist náið með
framvindu mála í Ramstein eftir
slysið. Hann sagði samdægurs að
fyrírhugaðri sýningu flughersins í
Lechfeld 25. september væri aflýst
en honum láðist að banna hátí-
ðahöldin í Nörvenich. Hann er nú
gagnrýndur harðlega fyrir það.
Þrýstingur á stjómvöld í Bonn
um að láta hersveitir NATO draga
úr lágflugi á æfíngum yfír Vest-
ur-Þýskalandi hefur magnast í
kjölfar Ramstein-slyssins. Stjóm-
völd í Rheinland-Pfalz höfðu þegar
krafíst þess að heræfíngaflug í
minna en 300 metra hæð yfír þétt-
býli yrði bannað þegar slysið varð.
Scholz hafði komið til móts við
þær kröfur. Þingin í Schleswig-
Holstein og Saarlandi, jafnaðar-
menn hafa meirihluta á báðum
stöðum, hafa nú tekið { sama
streng og stjómvöld í Rheinland-
Pfalz. En stjómin í Bonn þvertek-
ur fyrir að lágt æfingaflug verði
bannað. Slysið í Ramstein hafði
þó þau áhrif að hersveitir NATO
flugu í 150 metra hæð í stað 75
metra á sfðustu heræfingu. Hers-
érfræðingar ítreka að flugherinn
geti ekki gegnt hlutverki sínu sem
skyldi, fái hann ekki að nýta vélar
sínar í lágflugi.