Morgunblaðið - 13.09.1988, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1988
Verslun
Bætt upp-
stillinggetur
aukið sölu
- segir C. A. Monks hjá Rowntree Mack-
intosh um íslenska sælgætismarkaðinn
BRESKI sælgætisframleiðandinn Rowntree Mackintosh telur að með
réttri uppröðun sælgætis í verslunum sé hægt að auka sölu þess um
að minnsta kosti 10% verslununum að kostnaðarlitlu. Þetta segja
talsmenn fyrirtækisins niðurstöður tveggja ára rannsókna sem fyrir-
tækið hefur staðið fyrir i Bretlandi. Fyrr i þessum mánuði kom hing-
að C.A. Monks sem hefur umsjón með islenska markaðinum fyrir
Rowntree Mackintosh og kynnti íslenskum verslunareigendum niður-
stöður rannsóknanna. Monks telur að margt af því sem fram kom
í Bretlandi geti einnig átt við á íslandi en sælgætisneysla er mjög
mikil í báðum löndunum.
C. A. Monks
í Bretlandi eru þrír
sælgætisframleið-
endur umsvifa-
mestir, Rowntree
Mackintosh, Mars
og Cadburys og
segir Monks að
hingað til hafi
framleiðendurnir
hvatt seljendur til
að hafa allar vörur
frá sér á sama stað
í versluninni og að sjálfsögðu reynt
að fá seljendur til að hafa sinn hóp
á besta stað.
Moncks sagði að rannsóknir
Rowntree Mackintosh hefðu hins
vegar leitt í ljós að önnur uppröðun
geti gefíð mun betri árangur. Hann
lagði mesta áherslu á að raða vörum
upp eftir því hve vel þær seljast að
öllu jöftiu þannig að bestu vörumar
fari á bestu staðina. Monks segir
að á að giska tveir þriðju hlutar
af sölu á flestum tegundum sælgæt-
is fari til fólks sem kemur inn í
verslanir til þess að kaupa annað
en sælgæti og því skipti miklu að
ná athygli þessa hóps. Monks segir
að þessi sölutækni geti einnig nýst
við sölu á öðrum vömm en sælgæti
en sé sérstaklega mikilvæg við sölu
á því vegna þess hve ákvarðanir
um kaup á sælgæti em tilviljana-
kenndar.
Monks hefur nú séð um ísland-
sviðskipti Rowntree Mackintosh í
tvö ár og segir hann fyrirtækið
hafa um 8% af íslenska sælgætis-
markaðinum og að þessi hlutdeild
hafí vaxið talsvert sfðustu fímm ár.
Hann segir að á þessum tveimur
ámm hafí hann orðið þess var að
útstillingar í íslenskum verslunum
hafi víða batnað og segir að sjá
megi merki þess í sölu.
Svissneski sælgætisframleiðand-
inn Nestley keypti meiri hluta í
Rowntree Mackintosh fyrr á þessu
ári en Monks segir að eigendaskipt-
in muni ekki hafa áhrif á markaðs-
stefnu fyrirtækisins hér á landi.
NYTT BANKAUTIBU -útvegsbanki íslands hf. opnaði sfðastliðinn mánudag útibú á nýjum stað
í Hamraborg en útibúið var áður til húsa að Digranesvegi 5. Hallgrímur Snorrason, formaður bankaráðs,
sagði við opnunina að með flutningi útibúsins ynnist það fyrst og fremst að bankinn færðist nær þunga-
miðju viðskipta og umferðar í Kópavogi. Hann fól sfðan elsta starfsmanni útibúsins Elísabeti Gígju að klippa
á borða og opna útibúið formlega á þessum nýja stað. Fyrsti viðskiptavinurinn á nýja staðnum var Guðný
Ema Siguijónsdóttir og var henni færð að gjöf innistæða á Ábótarreikningi. Eftir hádegið lék Homaflokk-
ur Kópavogs og boðið var upp á afmæliskaffí allan daginn að því er segir í frétt frá bankanum. Útvegs-
bankinn hóf starfsemi sína fyrir 20 ámm í Kópavogi á Álfhólsvegi 7 en fyrir 6 áram síðar flutti útibúið í
hús bankans á Digranesvegi 5. Á myndinni er starfsfólk útibúsins ásamt yfírstjóm bankans við opnunina.
Fyrirtæki
Flugleiðafarþegum fækkar
en afkoman svipuð
Félagið flutti um 8,5% færri farþega fyrri helming ársins en farþegar félagsins
voru á hærri fargjöldum
FLUGLEIÐIR fluttu alls 227.262 farþega til og frá landinu fyrstu
sex mánuði ársins. Þetta er um 8,5% færri farþegar heldur en
flugfélagið flutti á sama tímabili á síðasta ári en þá var heildar
farþegafjöldinn 248.655. Tölur sem fyrir liggja um flutninga fé-
lagsins í júlí, sýna sömu tilhneigingu en þá fækkaði farþegum
félagsins um 5,1% miðað við sama tíma í fyrra. Að sögn forsvars-
manna Flugleiða er þessi fækkun í samræmi við þá stefnu félags-
ins að hverfa frá ódýrustu fargjöldunum og laða fremur til félags-
ins farþega á hærri fargjöldum. Fækkun farþega hefur heldur
ekki haft áhrif á afkomu Flugleiða en hún er mjög áþekk þvi sem
hún var á sfðasta ári.
Samdrátturinn í farþegarflutn-
ingum Flugleiða á fyrri helmingi
ársins er mestur á N-Atlantshafs-
leiðinni, eins og vænta mátti, en
þar hefur félagið fækkað ferðum
ft'á því sem var á síðasta ári. Alls
flutti félagið nú 112.905 farþega
á þessari flugleið fyrstu 6 mánuð-
Umboð
Marel hf. yfirtekur umboð
fyrir Berkelvörur á Islandi
MAREL hf. og Berkel Intem-
ational B.V. í HoUandi hafa
undirritað samning nm að Mar-
el yfirtaki sölu- og þjónustuum-
boð fyrir allar Berkelvörur á
íslandi með söluleyfi tíl sjávar-
útvegs annars staðar í Evrópu.
Berkel Intemational framleiðir
aðallega kjötskurðarvélar, kjöt-
sagir, kjötmamingsvélar, hakka-
vélar, brauðskurðarhnífa, iðnaðar-
vogir, afgreiðslukassa og verð-
merkingarvogir fyrir verslanir.
Marel hf. framleiðir rafeinda-
vogir og framleiðslustýringarkerfí
fyrir fískiðnað. Að sögn Jóns
Geirssonar sölustjóra flytja þeir
út 70-80% af framleiðslunni og eru
þar með stærstu útflyljendur há-
tæknivöru frá íslandi. Ennfremur
sagði Jón að með samningi þessum
væri Marel hf. að auka flölbreytni
þeirrar vöru sem fyrirtætkið hefði
á söluskrá og að framleiðslu- og
þjónustudeildir fyrirtækisins nýtt-
ust mun betur en ella.
SAMNINGUR — Eftir undirritun samningsins, talið frá
vinstri, Þórólfur Ámason, markaðsstjóri Marel, Jupp Kleijwegt, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Berkel, Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri
Marel, W.F.Bloemendaal, forstjóri Berkel og Jón Geirsson, sölustjóri
Marel.
ina en 128.584 á sama tímabili í
fyrra, svo að fækkunin er um
12,2%. í Evrópufluginu fækkaði
farþegum einnig á fyrri hluta árs-
ins eða úr 120.071 fyrstu sex
mánuðina í fyrra í 114.357 eða
4,8% færri nú heldur en í fyrra.
Taka verður þó tillit til þess að
hluta af samdrættinum í Evrópu-
fluginu má rekja til þess að flug-
leiðin milli Luxemborgar og
Reykjavíkur, sem strangt tii tekið
er hluti af N-Atlantshafsfluginu,
er í þessum tölum talin til Evrópu-
flugsins.
Tölur um farþegaflutningana í
júlí sýna eins og áður segir sömu
tilhneigingu. í þeim mánuði fluttu
Flugleiðir alls 81.991 farþega en
86.365 í júlí í fyrra eða 5,1% færri
farþega. í Evrópufluginu varð þó
um 1,8% aukning á farþegafjölda
en á þeirri flugleið flutti félagið
nú í júlí alls 50.300 farþega á
móti 49.396 í fyrra. Á N-Átlants-
hafsleiðinni fækkaði farþegum
Flugleiða um 14,3% í júlí eða úr
31.691 í 36.969.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, segir rekstur félagsins
í júlí hafa verið í samræmi við
áætlanir félagsins og afkoma fé-
lagsins fyrstu sex mánuði ársins
samkvæmt endurskoðuðum reikn-
ingum er áþekk því og var á sama
tíma í fyrra. Tap á rekstri félags-
ins nú er um 350 milljónir fyrri
helming ársins en var 330 milljón-
ir í fyrra. Rekstrartekjur nú fyrri
helming ársins era um 3,8 millj-
arðar en þær vora um 3,3 í fyrra
en rekstrargjöldin fyrstu sex mán-
uðina nú eru um 4,1 milljarður á
móti 3,6 á sama tíma í fyrra. Eig-
ið fé Flugleiða samkvæmt þessum
endurskoðuðu reikningum fyrir
fyrri helming ársins er nú um 916
milljónir eri var nærri 1,2 milljarð-
ur króna um áramót samkvæmt
síðasta ársreikningi félagsins.
Flugleiðamenn benda hins vegar
á að í þessu uppgjöri gæti aðeins
eins af þremur helstu tekjumánuð-
um félagsins og í ljós þeirra talna
sem liggja fyrir um júlímánuð seg-
ist Sigurður enn bjartsýnn á að
rekstur félagsins verði réttu megin
við strikið í ár.
Fræðsla
Norræn
skýrslu-
tækni
ráðstefna
NORRÆN ráðstefna, sem ber
yfirskriftina „Norden og
Europa", verður haldin í Noregi
dagana 26.-28. október nk. Er
þetta í ellefta sinn, sem Nordisk
Dataunion, sem er samband
skýrslutæknifélaga á Norður-
löndum, efnir til ráðstefnu með
þessu sniði. Núverandi formaður
er Lilja Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá SKÝRR.
í frétt frá Skýrslutæknifélagi
íslands kemur fram, að vegna fyrir-
ætlunar Evrópubandalagins að gera
EB að einum sameiginlegum mark-
aði fyrir vörar, þjónustu og fjár-
magn árið 1992 munu breytingar
óhjákvæmilega hafaáhrif á starf-
semi fyrirtækja á sviði upplýsinga-
tækni á Norðurlöndum. Því vilji
þeir vekja athygli á þessari ráð-
stefnu þar sem tekin verði fyrir þau
málefni, sem þessar breytingar
varða.
Ráðstefnugjaldið kostar Nkr.
3.500.- og skráning fer fram hjá
Nordisk Dataunion, c/o „DATA“,
Kronprinsgade 14, DK-1114 Ke-
benhvan K. og skal þátttökutikynn-
ing send af stað í síðasta lagi 15.
september. Upplýsingar era veittar
á skrifstofu Skýrslutæknifélags ís-
lands.