Morgunblaðið - 29.09.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1988_
Eru kosningar tímabærar?
eftir Pétur Bjarnason
Stjómmálaástandið er um þessar
mundir óvenju skrautlegt hér á
landi, og eru við þó ýmsu vön. í
gegnum umrótið má ýmislegt heyra
og m.a. það, að Kvennalistinn vill
að þjóðin fái að gera upp sinn hug
í kosningum hið fyrsta. Álit
Kvennalistans er að öllum líkindum
byggður á þeirri staðreynd, að sá
flokkur hefur komið vel út í skoð-
anakönnunum undanfarið, enda
hefur einn talsmanna flokksins tek-
ið það beinlínis fram að þjóðin hafí
sýnt það í skoðanakönnunum að
styrkleikahlutföll fylkinganna séu
önnur nú en í kosningunum fyrir
hálfu öðru ári.
Stjómarskráin okkar gerir ráð
fyrir þeim möguleika, að hvenær
sem er sé hægt að boða til kosn-
inga til Alþingis, og vissulega hefur
oft verið boðað til kosninga áður
en kjörtímabili lýkur. Þessu er ekki
þannig farið alls staðar. Til dæmis
skilst mér að í Noregi geri stjórnar-
skráin ekki ráð fyrir því, að kosið
sé oftar en fjórða hvert ár til Stór-
þingsins, og hafa stjómmálamenn
því þeirri ófrávíkjanlegu skyldu að
gegna, að koma á starfhæfri stjóm
milli kosninga.
Einhverra ástæðna vegna hef ég
það á tilfinningunni, að við væmm
betur sett með norska fyrirkomu-
Iagið. Með allri virðingu fyrir stjóm-
málamönnum og stjómmálaum-
ræðu hér á landi, þá held ég að
okkar fyrirkomulag geri meiri kröf-
ur til stjómmálamanna en svo að
okkar stjómmálamenn rísa undir.
Ég hef á tilfinningunni að of stór
hluti þeirra sé með hugann meira
við það, hvemig hugsanlegar kosn-
ingar kæmu út fyrir þeirra flokk,
heldur en þau vandamál, sem við
er að kljást. Og það er alvarlegt
mál fyrir þjóðina, ef heilu stjóm-
málaöflin lýsa sig „stikk frí“ í þeirri
vinnu að leysa vandamálin, vegna
þess að skoðanakannanir em þeim
í hag.
Ég vil því beina þeirri áskomn
til Kvennalistakvenna og annarra
sem í svipaðri stöðu em að gleyma
skoðanakönnunum milli kosninga,
en taka þess í stað fullan þátt í
sjálfri stjómmálavinnunni. Og ég
vil einnig beina þeirri áskoran til
„Ég vil einnig beina
þeirri áskorun til al-
þingismanna, að
þrengja möguleikana
til þess að boða til kosn-
inga í tíma og ótíma,
svo að vinnufriður gef-
ist fyrir alvöru stjórn-
mál.“
alþingismanna, að þrengja mögu-
leikana til þess að boða tii kösninga
í tíma og ótíma, svo að vinnufriður
gefist fyrir alvöm stjómmál.
Höfundur er Bskeldisfræðingur á
Akureyri.
Tðkum hðndum saman
Verjum hagsmuni
sparifjáreiqenda!
OPINN FUNDUR Á HÓTEL ÍSLANDI
Laugardaginn 1. október 1988, kl. 14:00
1. Fundursettur
Skýring á tilurð og tilgangi fundarins
Sigurður Gunnarsson, fjármálastjóri
2. Fundarstjóri tekur við stjórn fundar
Helgi K. Hjálmsson,
framkvæmdastjóri
3. Framsöguerindi
a. Gunnar Helgi Hálfdanarson,
framkvæmdastjóri
b. Guðmundur Magnússon,
prófessor
c. Kristján J. Gunnarsson,
íyrrverandi fræðslustjóri
í Reykjavík
4. Almennar umræður
Sparifjáreigendur eru allir þeir sem eiga
eignir t.d. í bönkum, sparisjóðum, lífeyr-
issjóðum eða verðbréfum.
Spariíjáreigendur skipta tugum þúsunda.
Peir eru t.d. eldra fólk og lífeyrisþegar,
unglingar og böm, og allir þeir, sem eru
að reyna að koma sér upp sjóði, til örygg-
is eða annarra nota síðar.
Spariíjáreigendur eru ekki fámenn klíka
sem hefur safnað sér óhóflegum gróða.
Spari^áreigendur úr öllum stjórnmála-
flokkum, öllum starfsstéttum og á öllum
aldri verða að taka höndum saman og
vinna gegn ábyrgðarlausum aðgerðum
stjórnvalda og stjórnmálamanna.
Það á að verðlauna þá sem spara
en ekki að refsa þeim!
Samtök sparifjáreigenda
Hægt er að skrá sig í samtökin í síma 680021. Símsvari allan sólarhringinn.
Neytendasamtökin:
Rættumsam-
vinnu landa
í neytenda-
málum
ÞING Neytendasamtakanna
verður haldið að Hótel Sögu
laugardaginn 15. október nk. og
hefst kl. 9.15. Að loknum venju-
legum þingstörfum flytur Bene-
dicte Federspiel frá danska neyt-
endaráðinu erindi um samvinnu
landa á sviði neytendamála og
hvaða áhrif aðild Dana að Evr-
ópubandalaginu hefur haft á
neytendastarf í Danmörku.
Föstudaginn 14. október er fyrir-
hugað að halda námsstefnu sem
hefst kl. 14.00.
Þar mun Jón Gíslason deildar-
ráðunautur hjá Hollustuvemd ríkis-
ins íjalla um matvælalöggjöf og
Steinar Harðarson formaður Neyt-
endafélags Reykjavíkur og ná-
grennis segja frá væntanlegum
breytingum á lögum og reglum er
varða neytendur.
Einnig verða á námsstefnunni
fluttar skýrslur um starf neytenda-
félaga og þrír fulltrúar neytendafé-
laga ræða efnið: Öflugri neytenda-
félög — samskipti Neytendasam-
takanna og neytendafélaga.
Þeir félagar í Neytendasamtök-
unum sem áhuga hafa á að sitja
þingið og námsstefnuna, em beðnir
um að hafa samband við skrifstofu
Neytendasamtakanna sem fyrst
segir í frétt frá samtökunum.
í Kaupmannahöfn
FÆST'
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI