Morgunblaðið - 29.09.1988, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1988
NY RIKISSTJORN TEKUR VIÐ
Stefiiuyfirlýsing ínkisslj óniar
Steingríms Hermannssonar
HER fer á eftir í heild stefiiuyfir-
lýsing ríkisstjórnar Steingrims
Hermannssonar, sem mynduð var
í gær.
1.
Ríkisstjóm Framsóknarflokks,
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Samtaka um jafnrétti og félags-
hyggju er mynduð til að leysa bráð-
an efnahagsvanda, sem steðjar að
þjóðinni. Höfuðverkefni hennar er
að treysta grundvöll atvinnulífsins,
stöðu landsbyggðarinnar og undir-
stöðu velferðarríkis á íslandi. Stefna
ríkisstjómarinnar byggir í senn á
framtaki einstaklinga og samvinnu
og samstarfi á félagslegum gmnni.
2.
Aðgerðir ríkisstjómarinnar til
lausnar aðsteðjandi vanda miða að
því að treysta atvinnuöryggi í
landinu, færa niður verðbólgu og
vexti, veija lífskjör hinna tekju-
lægstu, bæta afkomu atvinnuveg-
anna og draga úr viðskiptahalla. í
því skyni er nauðsynlegt að grípa
til tímabundinna aðgerða í verðlags-
og launamálum, lækkunar fjár-
magnskostnaðar og ráðstafana til
að bæta afkomu fyrirtækja í útflutn-
ings- og samkeppnisgreinum og til
að tryggja kjör tekjulágra einstakl-
inga og fjölskyldna.
3.
Meginatriðin í stefnu ríkisstjóm-
arinnar eru sem hér segir:
Efiiahagsmál
Fyrstu aðgerðir ríkisstjómarinnar
í efnahagsmálum miðast við það að
treysta atvinnuöryggi í landinu
samtímis því að verðbólga er hamin.
Á lqortímabilinu stefnir ríkisstjómin
að því:
• Að bæta lífskjör hinna tekju-
lægstu.
• Að viðskipti við útlönd verði
hailalaus.
• Að bæta afkomu útflutnings- og
samkeppnisgreina.
• Að framfylgja árangursríkri
byggðastefnu, sem komi á betra
jafnvægi í byggðaþróun í
landinu.
Samræmd stjóm ríkisfjármála,
peningamála og gengismála verður
grundvöllur efnahagsstefnu ríkis-
stjómarinnar. Stefnt verður að stöð-
ugleika í gengismálum. Aðhaldi
verður beitt í ríkisljármálum og pen-
ingamálum til að koma á og við-
halda jafnvægi í þjóðarbúinu á
næstu árum.
Ríkisíjámnál og lánsíjármál fyrir
næsta ár munu miðast við að draga
úr þenslu sem verið hefur í þjóðarbú-
skapnum undanfarin missseri. Fjár-
lög fyrir árið 1989 verða samþykkt
með tekjuafgangi sem nemur 1% af
tekjum. Til að ná þessu markmiði
verða útgjöld ríkisins ekki hækkuð
að raungildi frá því sem er á þessu
ári. Auk þess verður tekna aflað í
ríkissjóð meðal annars með skatt-
lagningu fjármagnstekna. Lánsflár-
lög munu mótast af ströngu aðhaldi
að erlendum lántökum, meðal ann-
ars verður lántökuskattur í breyttri
mynd framlengdur til ársloka 1989
og ríkisábyrgð á lántökum banka
og fjárfestingalánasjóða erlendis
takmörkuð.
Atvinnumál
Mörkuð verður ný atvinnustefna
sem stuðlar að hagvexti og skyn-
samlegri nýtingu sameiginlegra auð-
linda þjóðarinnar. Tekið verður
fyllsta tillit til byggðasjónarmiða.
Áthafnafrelsi einstaklinga og félaga
verður meginregla í atvinnumálum
og fijálsræði í milliríkjaviðskiptum.
Ríkisstjómin mun með framkvæmd
efnahagsstefnu sinnar móta al-
menna umgjörð um atvinnustarf-
semi, sem hvetji til ábyrgðar eigenda
þannig að arðsemissjónarmið ráði
ákvörðunum.
• Skipulag rannsóknar- og þróun-
arstarfsemi í þágu atvinnuveg-
anna verður endurskoðað og
stuðningur hins opinbera við
áhugaverð nýsköpunarverkefni í
íslensku atvinnulífi aukinn.
• Stefnan í landbúnaðar- og fisk-
veiðimálum verður endurskoðuð
með byggðasjónarmið og aukna
hagkvæmni fyrir augum.
• Mörkuð verður sérstök fisk-
vinnsiustefna.
• Ákveðið verður með löggjöf hvar
skuli draga mörk milli almanna-
eignar og einkaeignar á náttúru-
gæðum.
• Skipulag orkuvinnslu og dreif-
ingar verður endurskoðað með
sameiningu orkufyrirtækja að
markmiði. Orkulindir verða nýtt-
ar til atvinnuuppbyggingar.
• Unnið verður að því að endur-
skoða lög og reglur til þess að
búa íslenskum fyrirtælcjum
starfsskilyrði sem eru sambæri-
leg við það sem samkeppnisaðil-
ar þeirra erlendis njóta.
• Við fjárhagslega endurskipu-
lagningu útflutningsfyrirtækja
sem er eitt fyrsta verkefni þess-
arar stjómar verður stefnt að
aukinni hagkvæmni í rekstri
þeirra.
Vinnumarkaður
Ríkisstjómin æskir vinsamlegra
samskipta við aðila vinnumarkaðar-
ins og mun hafa við þá samráð um
stefnuna í kjaramálum. Hún mun
hafa frumkvæði um:
• Að auka starfsmenntun í atvinn-
ulífinu.
• Að leita leiða til að auka fram-
leiðni og bæta kjör.
• Að taka upp viðræður um skipu-
lag vinnumarkaðarins og starfs-
mannastefnu ríkisins í því skyni
að auðvelda mörkun samræmdr-
ar launastefnu, sem tryggi auk-
inn launajöfnuð.
• Að setja löggjöf um aukna hlut-
deild starfsfólks í rekstri og
stjómun fyrirtækja.
Fjármagnsmarkaður
Ríkisstjómin mun beita sér fyrir
markvissum endurbótum á skipulagi
og starfsháttum á fjármagnsmark-
aði þannig að hann gegni betur og
á ódýrari hátt þýðingarmiklu hlut-
verki sínu í greiðslumiðlun og í miðl-
un fjármagns frá sparifjáreigendum
til lántakenda.
• Stefnt verður að sammna og
stækkun banka meðal annars
með endurskipulagningu á við-
skiptabönkum í eigu ríkisins.
Markmiðið er að ná aukinni hag-
kvæmni og rekstraröryggi í
bankakerfinu, draga úr vaxta-
mun og tryggja eðlilega sam-
keppni vðskiptabankanna og
bæta þjónustu.
• Lög verða sett um hvers konar
starfsemi á fiármagnsmarkaði.
• Lög verða sett um greiðslukorta-
og afborgunarviðskipti.
• Sjóðakerfi atvinnuveganna verð-
ur endurskoðað og einfaldað.
• Fjármagn sjóða verður í auknum
mæli varðveitt og ávaxtað í
heimabyggð jafnframt því sem
athugaðir verða möguleikar á
því að efla atvinnuþróunarsjóði
á landsbyggðinni.
Utanríkismál
Markmið utanríkisstefnu Islend-
inga eru að treysta sjálfstæði lands-
ins og gæta hagsmuna þjóðarinnar
á alþjóðlegum samskiptum. Að því
verður unnið með virkri þátttöku í
alþjóðlegu samstarfi. Þessum mark-
miðum verður meðal annars náð:
• Með aukinni aðstoð og samvinnu
við þróunarríki.
• Með stuðningi við baráttu fyrir
mannréttindum hvar sem hún
er háð.
• Með því að stuðla að friðsam-
legri og bættri sambúð þjóða.
• Með virkri þátttöku í umræðum
um afvopnunarmál og kjam-
orkuvopnalaus svæði í okkar
heimshluta. Áhersla verður lögð
á að auka þekkingu íslendinga
á vígbúnaðarmálum, sérstaklega
á hemaðarumsvifum á Norður-
Atlantshafi, til þess að leggja
óháð mat á öryggismálefni
landsins og nálægra svæða.
• Með því að hvetja til og taka
þátt í alþjóðlegu samstarfi um
umhverfísmál, sérstaklega um
mengunarvamir á Norður-Atl-
antshafi.
• Með því að búa íslenskt atvinnu-
líf undir þær breytingar sem
verða á viðskiptaháttum og efna-
hagsstjóm í Evrópubandalaginu
á næstu ámm. Sérstaklega verð-
ur unnið að því að laga íslenskt
efnahagslíf að hinum nýju að-
stæðum og tryggja viðskipta-
stöðu íslenskrar atvinnustarf-
semi án aðildar að bandalaginu.
Ríkisstjómin áréttar áður yfir-
lýsta stefiiu Alþingis að hér á landi
skuli ekki vera kjamorkuvopn. Ríkis-
stjómin mun ekki gera nýja samn-
inga um meiri háttar hemaðarfram-
kvæmdir og skipti íslendinga við
vamarliðð verða endurskipulögð.
Sljómkerfísbreytingar
Stjómkerfi ríkisins þarf að vera í
stöðugri þróun ssem tryggi árang-
ursríka stjómsýslu með lágum til-
kostnaði. I því skjmi mun ríkisstjóm-
in vinna 'að eftirtöldum verkefnum
á kjörtímabilinu:
• Sett verða almenn stjómsýslulög
sem miða að aukinni valddreif-
ingu.
• Settar verða skýrar reglur um
upplýsingaskyldu stjómvalda.
• Æviráðning embættismanna
verður afnumin.
• Starfshættir og skipulag stjóm-
arráðsins verða tekin til endur-
skoðunar.
• Sett verða lög um aðskilnað
dóms- og framkvæmdavalds og
unnið að endurskoðun annarra
þátta réttarkerfisins.
• Unnið verður að heildarendur-
skoðun stjómarskrárinnar.
• Kosningalög verða endurskoðuð.
Byggðamál
Ríkisstjómin mun beita sér fyrir
jafnvægi í byggðaþróun meðal ann-
ars með eftirfarandi aðgerðum:
• Sveitarfélögin í landinu verða
efld og aðstaða þeirra til að veita
Bráðabirgðalög ríkisstjórn-
arinnar um efiiahagsaðgerðir
Ríkisstjómin setti í gær bráða-
birgðalög um efnahagsaðgerðir.
Hér birtast þessi lög í heild.
FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Forsætisráðherra
hefir tjáð mér að brýna nauðsyn
beri til að ákveða þegar aðgerðir til
að koma í veg fyrir stöðvun mikil-
vægra útflutningsfyrirtælqa, styrkja
afkomu atvinnuvega, draga úr verð-
bólgu og lækka vexti, og koma þann-
ig í veg fyrir yfirvofandi atvinnu-
leysi og leggja grunn að atvinnuör-
yggi og stöðugleika í efnahagslífinu.
Fyrir því eru hér með sett svo-
felld bráðabirgðalög samkvæmt 28.
grein stjómarskrárinnar:
I. kafli
Aðgerðir í atvinnumálum
1. gr.
Stjóm deildar fyrir frystar afurðir
í Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins
er heimilt að taka lán hjá Seðla-
banka íslands eða fyrir milligöngu
hans að ijárhæð allt að 800 milljón-
um króna eða jafnvirði þeirrar fjár-
hæðar í erlendri mynt. Fjármálaráð-
herra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs
að takast á hendur sjálfskuldar-
ábyrgð á endurgreiðslu láns þessa.
Allt að 750 milljónum króna af
andvirði láns samkvæmt 1. mgr.
skal varið til greiðslu verðbóta á
.LL’tíi is-jniyjfQ&s .01 lijlo |
freðfisk en allt að 50 milljónum
króna af andvirði þess skal varið til
greiðslu verðbóta á hörpudisk. Við
ákvörðun verðbóta skal fylgt ákvæð-
um laga nr. 72, 28. maí 1969, með
síðari breytingum. Þó skal tekið
sérstakt tillit til afkomu viðkomandi
vinnslugreina, og er í því skyni heim-
ilt að breyta ákvörðunum um viðmið-
unarverð og verðjöfnun frá 1. júní
1988.
Lán það sem tekið er skv. þessari
grein skal endurgreitt af tekjum
Verðjöfnunarsjóðs af viðkomandi
afurðum á næstu þremur árum eftir
að það er tekið. Það sem þá kann
að vera ógreitt fellur á ríkissjóð.
2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. laga nr.
72, 28. maí 1969, um Verðjöfnunar-
sjóð fiskiðnaðarins með síðari breyt-
ingum, skal átímabilinu 1. júní 1988
til 31. maí 1989 einkum hafa hlið-
sjón af verðiagi undangenginna
tveggja ára við ákvörðun viðmiðun-
arverðs fyrir skelfletta rækju í deild
fyrir frystar afurðir í Verðjöfnunar-
sjóði fiskiðnaðarins. Stjóm deildar
fyrir frystar afurðir skal heimilt að
endurskoða ákvörðun um viðmiðun-
arverð og verðjöfnun frá 1. júní
1988.
3. gr.
Stofna skal sjóð er nefnist At-
vinnutryggingarsjóður útflutnings-
080
greina. Hlutverk sjóðsins skal vera
það að veita lán til endurskipulagn-
ingar, hagræðingar og framleiðni-
aukningar hjá útflutningsfyrirtækj-
um. Jafnframt skal sjóðurinn hafa
forgöngu um að breyta lausaskuld-
um fyrirtækja í útflutningsgreinum
í föst lán til langs tíma.
4. gr.
Forsætisráðherra skipap fimm
menn í stjóm Atvinnutryggingar-
sjóðs. Skulu fjármálaráðherra, iðn-
aðarráðherra, sjávarútvegsráðherra
og viðskiptaráðherra hver um sig
tilnefna einn stjómarmann en einn
skal skipaður án tilnefningar og
skal hann jafnframt vera formaður
sjóðsstjómar. Stjóm sjóðsins ákveð-
ur lánveitingar að fengnum tillögum
samstarfsnefndar lánastofnana at-
vinnuveganna og Byggðastofnunar.
Ríkisendurskoðandi fylgist með
starfsemi sjóðsins og gefur Alþingi
reglulega skýrslu um starfsemi
hans.
5. gr.
Stofnfé Atvinnutryggingarsjóðs
skal vera 1.000 milljónir króna. Skal
ríkissjóður leggja sjóðnum til 600
milljónir króna sem koma til lækkun-
ar á framlagi ríkissjóðs til Atvinnu-
leysistryggingarsjóðs, skv. 15. gr.
laganr. 64, 2.júní 1981, vegnatíma-
bilsins 1. júlí 1988 til 30. júní 1990.
. i iri il; r i> l aAértíKi j
Jafnframt skal ríkissjóður leggja
Atvinnutryggingarsjóði til 400 millj-
ónir króna sem aflað skal með sér-
stökum tekjuskattsauka á ámnum
1989 og 1990.
Stjóm sjóðsins er heimilt að taka
lán hjá Seðlabanka íslands eða fyrir
milligöngu hans að fjárhæð allt að
1.000 milljónum króna eða jafnvirði
þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt.
Fjármálaráðherra er heimilt fyrir
hönd ríkissjóðs að takast á hendur
sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu
láns þessa.
6. gr.
Atvinnutryggingarsjóði er heimilt
að hafa milligöngu um skuldbreyt-
ingu á allt að 5.000 milljónum króna
af lausaskuldum útflutningsfyrir-
tækja. í því skyni er sjóðnum heim-
ilt að taka við skuldabréfum frá fyr-
irtækjum í útflutningsgreinum og
gefa út skuldabréf til lánardrottna
þeirra. Ber sjóðurinn ábyrgð á
greiðslu þeirra skuldabréfa með
eignum sínum.
7. gr.
Byggðastofnun annast reiknis-
hald og rekstur sjóðsins eftir nánara
samkomulagi við stjóm Atvinnu-
tryggingarsjóðs.
Ríkisendurskoðun annast endur-
skoðun reikninga Atvinnutrygging-
arsjóðs.
.Ufoimojjtj go Jil í V BOiIifJú mpqí
8. gr.
Atvinnutryggingarsjóður útflutn-
ingsgreina skal undanþeginn öllum
opinbemm gjöldum og sköttum
hveiju nafni sem nefnast. Öll skjöl
viðvíkjandi lánum sem sjóðurinn
veitir eða tekur, skulu undanþegin
stimpilgjaldi.
9. gr.
Forsætisráðherra setur með
reglugerð nánari reglur um Atvinnu-
tryggingarsjóð sbr. 3. til 8. gr. laga
þessara.
10. gr.
Greiða skal sérstakt gjald af loðnu
og öðmm bræðslufiski sem fluttur
er út óunninn til vinnslu erlendis.
Gjaldið rennur til reiknings fyrir
loðnuafurðir í deild fyrir mjöl og lýsi
í Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins.
Gjaldið skal ákveðið sem tiltekin
Qárhæð á hvert tonn bræðslufisks.
Sjávarútvegsráðherra skal að feng-
inni umsögn stjómar Verðjöfnunar-
sjóðs fiskiðnaðarins ákveða með
reglugerð fjárhæð gjaldsins til
þriggja mánaða í senn. Við þessa
ákvörðun skal taka mið af áætluðum
greiðslum til Verðjöfnunarsjóðs fisk-
iðnaðarins vegna útflutnings á
loðnuafurðum miðað við hvert hrá-
efnistonn samkvæmt mati Þjóð-
hagsstofnunar.
Gjadið fellur í gjalddaga við skil
á gjaldeyri vegna sölunnar þó eigi
síðar en þijátíu dögum eftir löndun
erlendis.
Um innheimtu gjalds þessa
þ. á m. um dráttarvexti, lögtaksrétt
og ábyrgð, gilda að öðm leyti ákvæði
laga nr. 13, 16. mars 1988, um að-
gerðir í sjávarútvegi, eftir því sem
við getur átt.
Sjávarútvegsráðherra setur nán-
ari reglur um framkvæmd þessarar
greinar.