Morgunblaðið - 29.09.1988, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1988
Fríkirkju
söfnuðurinn
í Reykjavík
+
il sí íi SS ti <t
á 1 i S S 6
Upplýsingaskrifstofa safnaðarstjórnar vegna allsherjarat-
kvæðagreiðslu dagana 1. og 2. október nk. um uppsögn
sr. Gunnars Björnssonar, er í „Betaníu", Laufásvegi 13,
opin frá kl. 15 til 19 daglega, sími 27270. Kjörskrá liggur
þar frammi.
Munið, að sannleikurinn ersagna bestur.
Mætum öll og krossum við „JÁ
Safnaðarstjórn.
Hlæqileaa
ódýrir
fataskáparl
27.950
Gerðu hagkvæm kaup.
Þessir skápar bregðast ekki og
verðið slær allt út.
BÚÐIN ÁRMÚIA 17a
BYGGINGAPUÓNGSTA SIMAR 84585-84461
Osigur Frí-
kirkjuprestsins
eftirKristin
Vilhjálmsson
Það hefur gustað af fleirum en
stjómmálamönnum á klakanum
okkar undangengnar vikur. Sjónir
íjölmiðlafólks hafa einnig beinst að
deilunum í Fríkirkjusöfnuðinum.
Steingrímur taldi sig vera búinn
að sætta ólík öfl og vera að mynda
nýja ríkisstjóm en svo sprakk allt
í loft upp þegar Alþýðubandalagið
stökk fyrir borð. Það leit reyndar
vel út með að ný stjóm væri í höfn
og því er ekki að neita að formaður
Framsóknarflokksins hefur nokkuð
góða hæfíleika til að sætta and-
stæðar fylkingar. Mér hefur svo
sannarlega komið í hug hvort ekki
væri hægt að fá hann inn í
Fríkirkjusöfnuðinn til að lægja öld-
umar þar. Það virðist engu minna
þrekvirki en beija saman nýja ríkis-
stjóm. Ekki er enn séð fyrir endann
á deilunum í Fríkirkjusöfnuðinum
og öllum kærleiksboðskap hefur
verið ýtt til hliðar um hríð.
Til vamar Fríkirkjufólki má þó
segja að deilan, sem þar ríkir, sé
annars eðlis en sú sem kom upp í
stjómarmyndunarviðræðum Stein-
gríms, því að hún er mannlegur
harmleikur! Hér eiga sér stað at-
burðir sem skráðir verða á spjöld
sögunnar.
Fyrir nokkru var boðað til safn-
aðarfundar í Gamla bíói um upp-
sögn sr. Gunnar Bjömssonar. Tæp-
lega 700 létu sjá sig eða u.þ.b. 14
af hundraði safnaðarfólks. Vegna
óskar 70 safnaðarmanna var boðað
til fundarins vegna „uppsagnar
safnaðarprests" og einnig átti að
kjósa kjömefnd lögum samkvæmt.
Ekki var þess getið í fundarboði
að fram yrði borin tillaga eða tillög-
ur, hvorki um vantraust né ógild-
ingu uppsagnar prestsins. Því er
augljóst að auglýsingin sem slík var
ekki þannig úr garði gerð að hún
fullnægði ákvæðum 16. gr. laga
safnaðarins. Þarna er því ekki við
stjómina að sakast!
Hvor vann?
Á safnaðarfundinum var borin
upp tillaga um að uppsögn sr.
Gunnars yrði ógild gerð og einnig
var borin upp tillaga um vantraust
á stjómina, þó að þessi framkvæmd
hefði ekki verið auglýst í fundar-
boði. Atkvæðagreiðsla um ógildingu
uppsagnar sóknarprests fór fram.
313 vom á móti því að hún yrði
dregin til baka en 376 vom með
því. Það munaði sem sé 63 atkvæð-
um. Ef við höldum áfram að skoða
tölur þá hefði ekki þurft nema 32
einstaklinga yfír í hóp þeirra sem
studdu stjómina í þessu máli til að
leikar hefðu farið á hinn veginn.
Fjölmiðiamir sýndu þessum fundi
mikinn áhuga af skiljanlegum
ástæðum. Annað eins hneyksli hef-
ur ekki komið upp hjá lútherskri
kirkju hérlendis í áratugi. Það verð-
ur hins vegar að segjast eins og
er að við alit fjaðrafokið, sem átt
hefur stað út af þessu viðkvæma
máli, hefur Fríkirkjusöfnuðurinn
fengið á sig óorð og þessi deila, sem
enn er ekki til lykta leidd, hefur
dregið úr trausti almennings til
þeirra manna sem telja sig vera að
vinna að vexti og viðgangi trúarlífs.
Ég dreg ekki dul á það að ég
hef stutt stjómina í þessu sorgar-
máii, þar sem ég hef talið hag kirkj-
unnar best borgið með því að sr.
Gerið verðsamanburð
l/LADY
Meiriháttar vetrartíska.
Yfir 1000 síður.
Það verðurenginn
örmagna
afleiðangri
semá
KAYS-listann.
Jólalistar afhentir í:
Bókabúð Vesturbæjar, bókabúð Eddu Akureyri,
bókabúð Brynjars, Sauöárkróki,
iffil bókabúðinni Vestmannaeyjum.
DflVI B. MAGNÚSSON HF.
Fastir viðskiptavinir vinsamlegast sækið aukalistana
HÓLSHRAUNI2, SÍMI 52866.
Stórar stærðir.
Kristinn Vilhjálmsson
„Það er tími til kominn
að rekinn verði enda-
hnútur á þessa sorgar-
sögu svo að söfiiuður-
inn megi eflast að nýju
og menn þurfí ekki
stöðugt að minnast
þessa dapurlega máls
þegar þeir stíga fæti
sínum inn í Fríkirkjuna
til að efla þar og næra
trúrlíf sitt.“
Gunnar hyrfí frá störfum. Eftir að
hafa kynnt mér vel alla málavöxtu
álít ég að presturinn hafí með
klaufalegu framferði sínu skaðað
málstað sinn og stíflað alla vegi til
sátta. Hann hefur verið stóryrtur
um stjómarmenn og m.a. kallað þá
böðla eftir fundinn í Gamla bíói.
Finnst mönnum þeir heyra sátta-
hljóð í þessum orðum klerksins?
Sr. Gunnar og stuðningsmenn
hans litu á úrslitin í Gamla bíói sem
mikinn sigur, ef marka má blaða-
fréttir. En er svo í raun? í fljótu
bragði er eðlilegt að álykta á þenn-
an veg en þegar grannt er skoðað
tel ég að presturinn hafi beðið mik-
inn ósigur. Hann fékk síður en svo
óskorað traust safnaðarfólks á
fundinum. Er það sigur fyrir hann
að næstum því helmingur þeirra
sem komu á fundinn vildu að upp-
sögnin gilti? Eitthvað hefur þetta
fólk við störf hans að athuga. Ef
aðeins 32 eins og áður segir, hefðu
staðið með okkur hinum hefðu leik-
ar farið öðmvísi.
Nei, þessi úrslit hljóta að hafa
valdið prestinum vonbrigðum beri
hann hag safnaðarins fyrir brjósti.
Ef hann hefur ekki vit á því að
yfirgefa söfnuðinn með góðu og
vill halda bardaganum áfram býst
ég við að það verði til þess eins að
kljúfa söfnuðinn. Og þá spyr maður
í rökréttu framhaldi hvort prestin-
um þyki vænna um sína eigin per-
sónu en söfnuðinn? Er ekki von að
maður spyiji?
Sjaldan veldur einn
þá er tveir deila
Það hlýtur að vera eitthvað að í
söfnuði þegar einn færasti og virt-
asti organisti landsins og kór hans
hóta að ganga út komi sr. Gunnar
aftur til starfa.
Sjaldan veldur einn þá er tveir
deila. Það eru orð að sönnu. En í
þessari deilu verður einhver eða
einhveijir að víkja. Eftir ósigur
Fríkirkjuprestsins á safnaðarfund-
inum tel ég að hann eigi að gera
það. Hann hefur áður átt í útistöð-
um við safnaðarstjómina og verið
sagt upp, og er því ekki vært leng-
ur. Skapsmunimir hafa hlaupið með
sr. Gunnar í gönur. Það hefur al-
þjóð sannreynt í þeim viðtölum sem
birst hafa við hann en þar vandar
hann andstæðingum sínum ekki
kveðjumar. Sr. Gunnar býr yfír
mörgum góðum kostum en þeir fá
ekki að njóta sín sem skyldi vegna
þeirrar heiftar sem hlaupið hefur í
hann út af þessum málum. Hann
hefur kosið að beijast með oddi og