Morgunblaðið - 29.09.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1988
55
Sveinrún Jóns-
dóttir - Minning
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fyigi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Okkur systumar langar að
kveðja ömmu okkar, Sveinrúnu
Jónsdóttur, með nokkmm línum.
Amma Sveinrún eins og við kölluð-
um hana, var fædd í Austdal við
Seyðisfjörð 15. maí 1897. Hún var
dóttir hjónanna Guðrúnar Margrét-
ar Einarsdóttur frá Ásgeirsstöðum
í Eiðaþinghá og Jóns Jónssonar
bónda í Austdal. Amma var ein af
6 systkinum og em þau nú öll látin.
Ámma giftist Andrési Rassmus-
sen sjómanni frá Seyðisfirði og
bjuggu þau þar sín búskaparár. Þau
eignuðust 3 böm saman, Guðrúnu
sem býr á Akureyri, Oddnýju sem
lést 3ja ára og Ásvald bifreiðasmið
sem býr í Kópavogi, elsti sonur
ömmu, Ragnar Bóasson býr í Los
Angeles í Bandaríkjunum.
Á búskaparámm afa og ömmu á
Seyðisfírði var oft þröngt í búi og
átti atvinnuleysi þar stærstan þátt.
Árið 1945 lést afí eftir stutta
sjúkralegu. Þetta var í stríðslok og
litia eða enga atvinnu var að fá á
Seyðisfírði á þessum tíma. Ásvaldur
faðir okkar var þá 17 ára og ákvað
hann að flytjast suður og freista
þess að fá atvinnu þar. Hann sett-
ist að í Keflavík og fluttist amma
ásamt Guðrúnu dóttur sinni til hans
árið eftir eða 1946. Þar bjuggu þau
í 10 ár.
Eftir að pabbi gifti sig, Emu
Maríu Jóhannsdóttur, árið 1956
gerðist amma ráðskona og var hún
lengst af hjá Guðbrandi Tómassyni
bæði í Borgamesi og í Reykjavík.
Eigum við systumar góðar minn-
Minning:
Gunnlaugur Páls-
son — Siglufirði
Fæddur 21. maí 1963
Dáinn 26. júlí 1988
Það eina sem við mennimir eig-
um víst í þessari jarðvist okkar er
dauðinn. Dauðinn er óumflýjanleg
staðreynd, líkn þeim öldmðu og
sjúku en allt of oft er ungt fólk í
blóma lífsins hrifið á brott án nokk-
urs fyrirvara og frá óloknu ævi-
starfí. Þannig var því vissulega
varið þann 26. júlí sl. þegar tveir
ungir menn fómst af gúmmíbáti
við Siglufy'örð.
Annar þessara manna var systur-
sonur minn, Gunnlaugur Pálsson,
aðeins 25 ára gamall. Útför hans
fór fram frá Siglufjarðarkirkju
mánudaginn 19. september sl. að
viðstöddu fyölmenni.
Það var 21. maí 1963 sem yngstu
systur minni, Stellu Einarsdóttur,
og manni hennar, Páli Gunnlaugs-
syni, fæddist sonur sem skírður var
nafni föðurafa síns, Gunnlaugur,
en í daglegu tali alltaf kallaður
Gulli. Áður vom fædd Óli Þór og
Ásdís en síðar bættust við Ás-
grímur, Siguijón og Róbert. Hann
ólst upp með systkinum sínum við
mikið ástríki á góðu og myndarlegu
heimili. Eins átti hann góða að, þar
sem vom móðurforeldrar hans, þau
Dórothea og Einar, sem nú er lát-
inn, og Ásgrímur móðurbróðir hans
á Gmndargötu.
Að hefðbundnu skólanámi loknu
tók vinnan við, ungur fór hann til
sjós en hin síðari ár vann hann við
löndun á fiski. Hann þótti góður
starfsmaður og var vel liðinn af
félögum sínum.
Gulli var mikið náttúmbam, allt
útilíf freistaði hans mjög. Veiði-
mennska var eitt af áhugamálum
hans og kom hann oft færandi hendi
til móður sinnar, sem svo matreiddi
gómsæta rétti úr bráðinni. Annað
áhugamál Gulla var lyftingar og
áskotnuðust honum margir titlar í
þeirri grein. Hann þótti sterkur
vel, enda kölluðu félagar hans hann
„Gunnlaug stálfíngur". Árið 1985
tók hann þátt í Heimsmeistaramóti
unglinga í lyftingum, sem fram fór
í Þýskalandi, og komst þar í úrslit.
Á sl. ári varð hann þriðji í röðinni
þegar keppt var um titiiinn sterk-
asti maður Norðurlands.
Árið 1982 hóf Gulli sambúð með
unnustu sinni, Guðlaugu Sverris-
dóttur, og áttu þau orðið eigin íbúð
á Hvanneyrarbraut 62, Siglufirði.
Þau eignuðust 2 böm, Halldóm
Guðlaugu, fædda í september 1984,
og Pál sem fæddist í mars á þessu
ári. Gulli hlúði vel að heimili sínu
og man ég hvað hann var hreykinn
þegar hann tiikynnti fæðingu bama
sinna. Þau fara mikils á mis að fá
ekki lengur að njóta samvista við
föður sinn, en þau eiga góða móður
og góða að sem munu styðja þau
í framtíðinni.
Frá fyrstu tíð var Gulli frændi
minn mér sérstaklega kær og þó
að ég og fyölskylda mín flyttum frá
Siglufírði aðeins rúmu ári eftir að
hann fæddist rofnuðu tengslin aldr-
ei. Bæði var að ég hef reynt að
fara norður á ári hveiju og ef Gulli
var hér í Reykjavík kom fyrir að
hann dveldi á heimili mínu tíma og
tíma.
Gulli var hiédrægur maður, jafn-
vel feiminn, og hafði sig lítið í
frammi. Hann gat líka verið glett-
inn og ræðinn og munum við hjón-
in margar ánægjulegar stundir með
honum. I apríl sl. dvaldi ég í tvær
vikur í vonskuveðri á Siglufirði.
Þegar veðrinu slotaði keyrði Gulli
mig upp í Varmahlíð í veg fyrir
rútu sem fór til Reykjavíkur. í för
með okkur var Dóra, litla dóttir
hans. Veðrið var fagurt, alít var
þakið snjó svo sá ekki á dökkan
díl. Hann var glaður og ánægður
með lífið og ræddum við margt á
leiðinni. Þetta var í síðasta skipti
sem ég sá hann. Þessi síðasta sam-
verustund okkar verður mér alltaf
minnisstæð. Þegar ég lít til baka
finnst mér eins og þessi dagur hafí
verið táknrænn, því eins og bjart
var yfir öllu, þá er bjart yfir öllum
minningum mínum um hinn látna
frænda minn og vin.
Hugur minn er hjá syrgjandi ást-
vinum. Þau hafa öll mikið misst.
Guð gefi þeim styrk í sorg þeirra.
Að leiðarlokum viljum við Páll
og fjölskyldur þakka hinum unga
frænda samfylgdina. Sérstakar
kveðjur eru frá Einari, því þeir voru
miklir mátar.
Ég vil kveðja Gulla frænda minn
með þessu fallega ljóði Stephans
G. Stephanssonar:
Æ vertu sæll _þú sefur vel og rótt,
hér sit ég einn og minningunni fagna
og ég skal brosa og bjóða góða nótt
uns brosin dvína og vinakveðjur þapa.
Ásta Einarsdóttir
Fiskideildir á Snæfellsnesi:
Auka þarf rann-
sóknir á Breiðafírði
Stykkishólmi.
AÐALFUNDUR fiskideilda á Snæfellsnesi var haldinn í Stykkishólmi
fyrir skömmu. Um 40 fulltrúar af Nesinu mættu á fundinn, auk Þor-
steins Gíslasonar, fiskimálastjóra og Björns Ævars Steinarssonar, fiski-
fræðings.
Guðmundur Runólfsson, útgerðar-
maður á Grundarfirði og formaður
deildarinnar, stjórnaði fundinum.
Málshefjandi var fiskimálastjóri, sem
ræddi um fiskveiðar landsmanna og
þróun þeirra undanfarin ár og eins
hvemig mætti koma veiðum þannig
fyrir að það yrði framtíð landsmanna
fyrir bestu. Þá ræddi hann um mis-
jafnan afla landsfjórðunga og hvem-
ig vertíð í vetur brást við Breiðafyorð-
inn.
Bjöm Ævar ræddi um rannsóknir
Hafrannsóknastofnunar ríkisins.
Sagði hann þorskinn það mikilvægan
í markaðsöflun að stofninn þyrfti að
styrlqast verulega. Ýsustofninn hefði
styrkst og mætti veiða meira úr hon-
um, en lítil beyting væri á öðmm
stofnum, utan hvað rækjan virtist á
undanhaldi.
Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri i
Stykkisliólmi, hafði síðan framsögu
um afkomumál sveitarfélaga í sam-
bandi við fiskvinnslu og útgerð.
Lagði hann fram ábendingar, sem
ákveðið var að yrðu uppistaða í til-
lögugerð til aðalfundar fiskideilda
Vesturlands. Ábendingar Sturlu fyöl-
luðu um að rannsóknir á Breiðafirði
verði auknar, verðmæti sjávarafurða
aukið með fullvinnslu hér á landi,
hætt verði að stefna mörkuðum í
hættu vegna hvalveiða, samgöngur
milli byggða verði bættar sem liður
í því að bæta afkomu í sjávarútvegi
með stækkun atvinnu- og þjónustu-
svæða, beinar tekjur sveitarfélaga
af sjávarútvegi verði auknar og loks
að samtök útgerðar og fiskvinnslu
annars vegar og sveitarfélaga hins
vegar snúi bökum saman til vamar
hagsmunum þeirra byggða sem eiga
allt sitt undir afkomu í sjávarútvegi.
Árni
ingar frá þeim tíma er amma og
Guðbrandur bjuggu á Kleppsvegin-
um.
Árið 1964 varð amma sjúklingur
og fluttist til okkar á Löngubrekk-
una í Kópavoginum. Þar var hún
til ársins 1984 en þá fór hún á elli-
og hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð þar
sem hún dvaldi sín fyögur síðustu
æviár, amma lést í Sunnuhlíð
sunnudaginn 18. september 91 árs
að aldri.
Amma taiaði alltaf með söknuði
um Seyðisfyörð og þær voru margar
og fróðlegar sögumar hennar um
tímana þar. Hún hefur sjálfsagt
aldrei sætt sig við að þurfa að flytja
þaðan. Amma hafði mikinn áhuga
á þjóðmálum, hún fylgdist vel með
öllum pólitískum umræðum. Hún
hafði mjög ákveðnar skoðanir og
bar hag lítilmagnans ætíð fyrir
bijósti, hvar svo sem hann var í
heiminum.
Síðustu fyögur árin bjó amma í
Sunnuhlíð í Kópavoginum þar leið
henni mjög vel. Við viljum þakka
starfsfólki Sunnuhlíðar fyrir alla
þá umhyggju er það sýndi ömmu
þann tíma er hún dvaldi þar.
Við kveðjum ömmu Sveinrúni
með eftirlætissálmi hennar og
minnumst allra góðu stundanna-
sem við áttum með henni í bam-
æsku okkar.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín ieiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Höndin þín, Drottinn, hlífi mér,
þá heims ég aðstoð missi,
en nær sem þú mig hirtir hér,
hönd þína ég glaður kyssi.
Dauðans strið af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja,
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.
Minn Jesús, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta ég geymi,
sé það og líka síðast mitt,
þá sofna ég burt úr heimi.
(H. Pétursson)
Hanna Sveinrún, Regína
og Ragnhildur Ásvalds-
dætur.
t
BALDVINA J. BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Kleppsvegl 40,
sem lóst 24. þ.m., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
3. október kl. 15.00.
Linda Hreggviðsdóttir, Sævar Hallgrímsson,
Guðrún Vilmundardóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
INGVAR ÞORSTEINN VILHJÁLMSSON
fyrrverandi rakari,
Flókagötu 12,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. september
kl. 15.00.
Sigrún Sigurgeirsdóttir,
Þórdfs Ingvarsdóttir, Sverrir Guömundsson
Sigrún Sverrisdóttir, Jón Óskar Sverrisson,
Ingvar Þorsteinn Sverrisson, Aðalsteinn Sverrisson.
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
BALDURS ÞÓRARINSSONAR,
Sæbóli, Blönduósi,
fer fram frá Blönduósskirkju laugardaginn 1. október kl. 14.00.
Guðrún Erlendsdóttir,
Þórarinn Baldursson,
Magnús E. Baldursson,
ÞrándurÓ. Baldursson,
Sigurbjörg H. Baidursdóttir,
Steinvör M. Baldursdóttir,
Sigurlaug B. Baldursdóttir,
Helga Sigurðardóttir,
Emilfa Stefánsdóttir,
Hreiðar Margeirsson,
Friðrik Steingrfmsson,
Efrfkur Garðarsson
og barnabörn.
t
Útför eiginmanns mfns og föður okkar,
SKARPHÉÐINS ÁSGEIRSSONAR
forstjóra,
Akureyri,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 22. september, verður
gerð frá Akureyrarkirkju föstudagínn 30. september kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Kjarnalund, heilsuhaeli
Náttúrulækningafélags Akureyrar.
Laufey T rygg vadóttir,
Brynjar Skarphéðinsson,
Birkir Skarphéðinsson,
Kristján Skarphéðinsson.
t
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóöur og ömmu,
SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Mánastfg 2,
Hafnarfirði,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 30. september
nk. kl. 15.00. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Þeim, er vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á líknarstofnanir.
Brynjólfur Þorbjarnarson,
Sigurður K. Brynjólfsson, Unnur Einarsdóttir,
Þorbjörn Brynjólfsson,
Stefán H. Brynjólfsson, Svava Þorsteinsdóttir,
Jón Brynjólfsson, Grethe Have,
Magnús B. Brynjólfsson, Sigrún Karlsdóttir,
Guðmundur Brynjólfsson
og barnabörn.