Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 Seðlabankinn: Athugar vexti a viðskiptavíxlum Næsta vaxtalækkun væntanleg um mánaðamótin VEXTIR á viðskiptavíxlum eru nú til athugunar hjá Seðlabank- anum og Sambandi viðskipta- banka að beiðni Jóns Sigurðsson- ar, viðskiptaráðherra. Hann bað um umsögn þeirra eftir að Félag íslenskra iðnrekenda og samtök bankamanna skrifuðu honum vegna þessa máls, en iðnrekendur og bankamir hafa deilt um hversu háir raunvextir séu af þessum víxlum. Iðnrekendur telja vexti þessa óeðlilega háa, en Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbankans segir hæstu raunvextir af viðskiptavíxlum vera tæp 17% samkvæmt útreikn- ingum bankans, eða um 5% iægri en iðnrekendur haldi fram. Við- skiptaráðherra sagðist búast við að reifa málið frekar þegar umsögn og útreikningar Seðlabanka og Sam- bands viðskiptabanka lægju fyrir, en hann sagðist ekki geta sagt um hvenær það yrði. Jón var spurður um næstu skref ríkisstjómarinnar í lækkun vaxta. Hann sagðist gera ráð fyrir að aftur verði ástæða til að lækka nafnvexti um næstu mánaðamót, að öllu áfallalausu. Erfiðara væri að segja fyrir um raunvaxtaþróunina, það færi meðal annars eftir því hvemig viðræður við lífeyrissjóði gangi. Til að ná varanlegum árangri þyrfti auðvitað að koma á betra jafnvægi á lánamarkaði og þar væri mikil- vægast að draga úr lánsfjárþörf rfkisins í væntanlegum Qárlögum og lánsfjárlögum. Ragnarsbakaríi í Keflavík lokað í gær Keflavfk. ENGIN starfsemi var hjá Ragn- arsbakaríi í gær og verður ekki í dag. Starfsmenn höfðu tilmæli eiganda um að sitja heima i gær að engu og mættu allir til vinnu en aðhöfðust ekkert. Þijár versl- anir eru reknar á vegum bakaris- ins og voru þær ekki opnaðar. Starfsmenn bakarisins sem eru um 50 talsins voru siðdegis i gær boðaðir á fund með eiganda i dag. „Eignastaða bakarísins er það óljós á þessari stundu að við treyst- um okkur ekki til að halda starfsem- inni áfram á meðan ekki fást skýr- ar línur í stöðuna. Á morgun verður frndur í Keflavík með bústjóra Ávöxtunar sf. og skiptaráðanda í Keflavík," sagði Lúðvík Halldórsson fulltrúi núverandi eiganda í samtali við Morgunblaðið í gær. Eftir þann fund munum við síðan halda fund með starfsfólkinu og kynna því nið- urstöðumar," sagði Lúðvík, en vildi ekki að öðru leyti ijá sig um málið. Ávöxtun sf. í Reykjavík keypti þrotabú Ragnarsbakarís fyrr á þessu ári og tók við rekstrinum. Björgvin Víglundsson úr Reykjavík keypti svo bakaríið í sumar af Ávöxtun sf. en engar meiriháttar breytingar urðu á framleiðslunni við söluna. - BB Morgunblaðið/Þorkell Jóhann Hjartarson og Jan Timman hefja skák sina i gær. Heimsbikarmótið í skák: Jóhann vann Timman SIGUR Jóhanns Hjartarsonar á Jan Timman bar hæst í tólftu umferð heimsbikarmóts Stöðv- ar 2 i skák í gærkvöldi að sögn skákskýrenda Morgunblaðsins, Braga Kristjánssonar og Karls Þorsteins. Tal og Nunn gerðu jafntefli, einnig Spassky og Kasparov, Beljavsky og Sokolov, Ehlvest og Ribli, Nikolic og Speelman og Júsupov og Anderson. Ungver- jamir Sax og Portisch voru hins vegar ekki i neinum friðarham og lauk viðureign þeirra með með sigri Portisch. Margeir Pétursson tapaði fyrir Kortsnoj. Þeir Bragi Kristjánsson og Karl Þorsteins segja að Mar- geir og Kortsnoj hafi teflt flókna skák. Byijunin var drottningar- bragð og töldu viðstaddir mögu- leika Margeirs vænlega í miðtafl- inu. Framhaldið tefldi Margeir hins vegar ekki nægilega vel, lenti í tímahraki og þegar tímamörkum var náð við fertugasta leik var ljóst að Margeir stóð mjög höllum fæti og síðan varð hann að játa sig sigraðan. Eftir tóif umferðir em Beljav- sky, Ehlvest og Tal efstir með 7,5 vinninga, Kasparov og Sokolov hafa 7 vinninga, Jóhann, Nunn og Júsupov em með 6,5 vinninga, Timman er með 6 vinninga og biðskák, Sax er með 6 vinninga, Anderson, Nikolic, Kortsnoj og Speelman em með 5,5 vinninga, Ribli með 5, Spassky 4,5, Portisch 4 vinninga og biðskák og Margeir rekur lestina með 8,5 vinninga. Sjá bls. 58 og 59 frásagnir og skákskýringar. Yfír 50 fyrirspurnir um lán úr Atvinnutryggingarsjóði: Alls ekkí búið að útiloka fiskeldi og loðdýrarækt - segir Gunnar Hilmarsson, formaður stjórnar sjóðsins YFIR fimmtiu fyrirtæki hafa haft samband við skrifstofu At- vinnutryggingarsjóðs útfiutn- ingsgreina tU að óska eftir upp- lýsingum og gögnum í sambandi Hyggst hætta eftir 25 ára þingsetu MATTHÍAS Bjamason, fyrsti þingmaður Vestfirðinga, hyggst ekki gefa kost á sér til þingsetu við næstu Alþingiskosningar. Hann lýsti þessu yfir á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðis- fiokksins á laugardag. Matthías hefur setið óslitið á Alþingi frá árinu 1963 og verið fyrsti þing- maður Vestfirðinga frá árinu 1974. „Þetta er ákvörðun sem ég hef tekið fyrir löngu sfðan. Ég tel að ég sé búinn að sitja það lengi að ekki sé nein sérstök ástæða fyrir mig að vera lengur. Ég er búinn að vera í stjómmálum sfðan ég var 17 ára og f bæjarstjóm ísafjarðar frá því að ég fékk kosningarétt, en þar sat ég í 24 ár,“ sagði Matt- hías er hann var spurður um ástæð- umar fyrir þessari ákvörðun. Hann er nú 67 ára gamail. Matthfas sagðist ætla að draga sig alveg í hlé frá stjómmálum um leið og hann hættir þingmennsku, en snúa sér að ýmsum hugðarefn- um. „Ég hef afskaplega gaman af að vinna að ræktun í sumarbústað- Matthías Bjarnason arlandi mínu í Trostansfírði, jafn- vel að fiskræktarmálum. Ég hef lfka mikinn áhuga á bókmenntum, er mikill áhugamaður um sögu og ættfræði." Matthías sagðist mundu halda áfram að gegna starfí sínu sem formaður stjómar Byggðastofnun- ar til loka kjörtímabilsins eins og lög gerðu ráð fyrir. við lánsumsóknir. Sjóðurinn aug- lýsti eftir umsóknum nú um helg- ina, en þar segir að fyrirtæki í fiskeldi og loðdýrarækt komi ekki til álita við lánveitingu. Gunnar Hilmarsson, formaður stjóraar Atvinnutryggingar- sjóðs, segir að aðeins sé um að ræða vinnureglur tíl áramóta, en alls ekki búið að útiloka þessar atvinnugreinar frá lánveitingum fyrir fullt og allt. Gunnar segir að fyrirtæki hvað- anæva að af landinu hafi haft sam- band við sig vegna auglýsingarinn- ar og ekki síður úr Reykjavík og af Suðumesjum en af landsbyggð- inni. Eðlilega væru flest fyrirtækj- anna í sjávarútvegi, bæði í fryst- ingu, söltun og rækjuvinnslu. Einn- ig væri um að ræða iðnfyrirtæki, svo sem saumastofur og fyrirtæki f ullariðnaði. í auglýsingunni er tek- ið fram að einungis fyrirtæki með yfir 10 milljónir króna í útflutnings- verðmæti komi til greina. Ástæðuna fyrir því að fiskeldi og loðdýrarækt kæmu ekki til greina fyrst í stað sagði Gunnar vera þá að sjóðurinn treysti sér ekki til að fá allt yfír sig í einu. Málefni þessara tveggja atvinnu- greina væru í sérstakri skoðun hjá öðrum aðilum, og þvf hefði helst verið talið að þær gætu beðið, til dæmis væri búið að heimiia lán- veitingar til fískeldisfyrirtælq'a. Öll önnur fyrirtæki kæmu til greina við lánveitingar, bæði í fískvinnslu og iðnaði, svo sem ullariðnaðarfyrir- tæki og saumastofur. Gunnar sagðist ekki búast við að umsóknir fæm að berast At- vinnutryggingarsjóði fyrr en eftir viku eða tfu daga. Þá þyrftu þær fyrst að fara fyrir ráðgjafanefnd, þar sem fulltrúar bankanna og hagsmunasamtaka eiga sæti, en ekki væri búið að tilnefna menn í þá nefnd. Gunnar sagðist því ekki búast við að hægt yrði að fara að afgreiða lán úr sjóðnum fyrr en eftir þijár til fjórar vikur, eða um miðjan nóvember. Sjá bls. 24. Játvarður Jökull Júlíusson látinn Miðhúsum. JÁTVARÐUR Jökull Júlíusson rithöfundur, Miðjanesi i Reyk- hólasveit, lést i dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum laugar- daginn 16. október. Játvarður var fæddur 6. nóv"m- ber 1914 á Miðjanesi og var bóndi þar en hann kenndi lömunar 1957 og frá 1958 var hann alger öryrki. Játvarður starfaði mikið að fé- lagsmálum og var m.a. oddviti Reykhólahrepps í 8 ár en þekktast- ur var hann fyrir ritstörf sín. Hann skrifaði nokkrar bækur og var rit- stjóri . Markaskrár Austur-Barða- strandarsýslu og var hann nýbúinn að senda frá sér nýtt handrit sem bíður prentunar. Játvarður varð að skrifa öll sín verk með munninum og notaði hann til þess spýtu sem hann hélt með tönnunum. Handrit hans vom frá fyrstu hendi þannig að nær engu þurfti að breyta, allt var skipulagt fyrirfram. Stoð hans og hjálparhella öll þau ár sem Játvarður þurfti að vera upp Játvarður J. Júlíusson á hjálp annarra kominn var kona hans, Rósa Hjörleifsdóttir. Þau hjón eignuðust sjö böm og em sex á lífi. - Sveinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.