Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 21

Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 21 Smájafiiréttís- hugleiðing eftir Bergljótu Ríifiiar Mikið lifandis ósköp varð ég sár og reið þegar ég heyrði í fréttum, að í embætti forseta og 1. og 2. varaforseta Sameinaðs Alþingis hefðu verið kosnar 3 konur. Þarna voru karlarnir snjallir, búnir að búa til nýja kvennastétt á einu auga- bragði, létu eins og þeir væru að stuðla að jafnrétti, hampa konum, en voru í raun og veru að afgreiða 3 konur í eitt embætti. Þetta minnti mig á stráka í bílaleik og stelpur, sem vilja fá að vera með í leiknum. „Þið megið hafa bílana stelpur, við förum í fótbolta á meðan, strákar,", svara þeir. Nei, gott fólk (á Alþingi og hvar sem er), jafnrétti snýst fyrst og fremst um að eyða kynskiptingu, blanda konum og körlum sem mest, hvar sem er, og að fólk af báðum kynj- um vinni saman, en ekki að hrúga saman konum í 1., 2. og 3. sæti í sama starfi, þegar talið er pólitískt heppilegt að halda upp á jafnrétti og hampa konum. I dag las ég svo í Morgunblað- Bergljót Rafnar inu, að nokkrir þingmenn hefðu lagt fram þingsályktunartillögu „En þeim mun Qöl- mennari og einlitari veröur sú stétt, sem nefind er „aðstoðarmað- ur ráðherra“ og fer að minna óhugnanlega á gömlu kenninguna um „konuna bak við karl- manninn“.“ um ráðningu þriggja jafnréttisráð- gjafa. Ja, bragð er að þá barnið finnur. Fyrstu verkefni ráðgjaf- anna mættu trúlega vera leiðbein- ingar á þingheimilinu sjálfu, t.d. að benda á, að ekki fjölgaði kven- ráðherrum í nýrri stjórn, en þeim mun fjölmennari og einlitari verður sú stétt, sem nefnd er „aðstoðar- maður ráðherra" og fer að minna óhugnanlega á gömlu kenninguna um „konuna bak við karlmann- inn“. Ekki gefur heldur að líta kvenmannsnafn meðal nefndar- manna i nýju peninga-úthlutunar- nefndinni. Á vegum norrænu ráðherra- nefndarinnar er verið að vinna 4 ára verkefni á öllum Norðurlönd- unum, en markmið verkefnisins er, hvernig jafna megi kynskiptingu á vinnumarkaði þessara landa. Verk- efni þetta hefur fengið nafnið „Bijótum múrana", en ekki veit ég, hvers konar herlúðra þarf til að bijóta niður þá Jerikó-múra skilningsleysis um jafnstöðu kvenna og karla í þessu landi, þeg- ar skilningurinn á sjálfu því háa Alþingi er ekki meiri en verkin sanna. Höfundur er bæjarfulltrúi fyrir Sjáifstæðisflokkinn á Akureyri. Gullna reglan eftir Jakob Jónsson En svo bætir höfundur við: „Þessi stuttu orðskifti finnum við ekki í kristnum eða gyðinglegum helgirit- um — eins og þó mætti ætla." Eg veit raunar ekki, hvað „ætla“ má í þessum efnum. Hin gullna regla er víða til í einhverri mynd, t.d. Matt. 7,12; Lúk. 6,31; Tob. 4,15; Aristeasbréfi 207. En í einu riti er getið um orðskipti, sem nokk- uð svipar til orðskipta Konfúsíusar og nemanda hans. Það er í Talmud, hinu geysistóra skýringarriti gyð- inglegra rabbía í fomöld (b Sab 31 a). Fræðimenn gyðinga spreyttu sig á því að finna setningu, sem væri kjami lögmálsins eða gmndvallar- regla. Jesús var eitt sinn spurður um hið „mikla“ boðorð og svaraði því með því að minna á boðorðið um kærleika til Guðs og manna. ' Annars gáfu rabbrarnir ýmiss konar svör, eins og vænta mátti. Sagan um Rabbí Hillel, sem mun hafa verið samtímamaður Jesú, er á þá leið, að námsmaður kæmi til hans og bæði hann að svara spurn- ingunni um aðalkjarna lögmálsins. Svarið átti að koma svo fljótt, að spyijandinn þyldi að standa á öðmm fæti meðan hann biði. En Hillen svaraði samstundis: „Það, sem þér er ógeðfellt, skalt þú ekki gera náunga þínum. Þetta er allt lögmál- ið. Allt annað er útskýring." Hillel gefur gullnu regluna sem svar við spumingu, sem í rauninni er sömu merkingar og spurning Kínveijans. Þegar gyðingur spyr um kjarna eða gmndvallarreglu lögmálsins, hefir hann það sama í huga og lærisveinn Konfúsíusar, sem biður um „leiðar- ljós um framkomu allt lífið“. Eins og gullna reglan er staðsett í fjallræðu Jesú (Matt. 7,12), bend- ir allt til þess, að hann ætli henni svipað hlutverk og bæði Konfúsíus og Hillel. Hún er kjami og gmnd- vallarregla siðferðis og breytni, samkvæmt lögmáli guðsríkisins, - sem Jesús boðar í fjallræðunni. Ekki er mér kunnugt um neitt, sem varpi ljósi á orsakasamband milli ummæla Jesú og Konfúsíusar. En skyldleiki hugsunarinnar dylst Dr. Jakob Jónsson I mannkynssögn handa börnum, sem heitir því skrítna nafini „Sam- ferða um söguna“ (bls. 252), er getið um orð- skipti milli Konfusíusar og eins af nemendum hans. Nemandinn spyr um eitthvert eitt orð, sem geti verið manni að leiðarijósi um firam- komu allt lífíð. Konfús- íus taldi slíkt orð vera „gagnkvæmni“ og skýrði það með hinni svonefndu gullnu reglu: „Það, sem þú vilt ekki að aðrir menn geri þér, skalt þú heldur ekki þeim gjöra.“ engum. Gullna reglan er jákvæð hjá Jesú, en neikvæð hjá Hillel og Konfúsíusi. Ég fyrir mitt leyti legg ekki mikið upp úr þeim orðum. Höfundur er guðfræðidoktor og fyrrverandi sóknarprestur. Laugarneskirkja: Fræðslukvöld um þunglyndi FRÆÐSLUKVÖLD um sjúklegt þunglyndi verður þriðjudaginn 18. október. Fundurinn verður í safiiaðarheimili Laugarnes- kirkju og hefst kl. 20.30. Grétar Sigurbergsson geðlæknir flytur erindi og svarar fyrirspurnum. Boðið verður upp á kaffisopa. Eftir fyrirlesturinn verður stutt bænastund i kirkjunni í umsjá sóknarprestsins. Margir kannast við þunglyndið •óg depurðina sem svo oft hrjáir okkur nútímafólk. Oftast eru þetta aðeins eðlileg viðbrögð við því sem mætir okkur á lífsleiðinni, en stund- um verður þunglyndið sjúklegt og þarfnast athugunar og meðferðar. Fræðslukvöldið er opið öllum meðan húsrúm leyfir og hvetjum við fólk að notfæra sér þetta tæki- færi til að fræðast um þennan al- genga sjúkdóm. Grétar Sigurbergsson er læknir á Borgarspítalanum. Hann hefur áður haldið fyrirlestur í safnaðar- heimili Laugameskirkju fyrir fullu húsi en þá var viðfangsefnið „kvíði". Jón D. Hróbjartsson TELEFl iX l'BIX FTS100 Vantar þig TELEFAX, en hefur ekki of mikið pláss aflögu? Ef svo er þá ættirðu að athuga KONICA U-BIX FT 5100 sem tekur minnsta borðpláss allra telefax tækja á mar- kaðnum. Nú ef borðplássið er ekkert þá má festa KONICA U-BIX Ft 5100 beint á vegg. i i i i a i i i i i i i i ■ i i i i m i i i i r i i i i i KONICA U-BIX FT 5100 -------Verð kr. 99.800. CCITT Staðall: Samþykkt af Alþjóða póst og síma- málastofnunni. ★ G3 category: Sendingarhraði allt að 9600 bps. ★ Sendir frumrit í öllum stærðum að B4. Breidd 25,7cm. ★ Tekur 10 blöð til sendingar í sjálfvirka pappírs- mötun (ADF). ★ Sjálfvirkur pappírsskurður. ★ Thermal pappírsrúlla: 50m. (A4) að lengd 21,6 cm að breidd. ★ Upplausn 8x3,85 (standard) 8x7,7 (fine). ★ Innbyggt númeraminni: 16 númereinshnappaval. 16 númer tveggjahnappaval. ★ Sjálvirkt endurval x3 (ef lína er upptekin). ★ Fyrirferðalítið (tekur minnsta borðpláss af öllum fax tækjum á markaðnum). ★ Aukahlutur: Veggfesting. % Telefax er traustvekjandi SKRIFSTOFUVELAR H.F. 'A. Hverlisgötu 33. sími: 62-37-37

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.