Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 35
AJHWJ t~ 88eí aaaóTXo :8i hijoaqiiuiíh-i l!.IUyfl!rviKIIhjíSuIv MORGUNBLAÐIÐ.VffiSHPn/MVINNUtíFÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 35 Tölvur Reksturínn # stenst áætlanir - segir framkvæmdastjóri Örtölvu- tækni-Tölvukaupa hf. FYRIR tfu árum var stofhað verkfræðifyrirtæki í Reykjavík, sem stund- aði framleiðslu og hönnun á rafeindatækjum fyrir sjávarútveginn, og hlaut nafnið Örtölvutækni hf. f byijun árs 1986 fór fyrirtækið að leggja aukna áherslu á tölvur og tölvubúnað, og var sú breyting fjár- mögnuð með dýru lánsfé. í vor var svo komið að gjaldþrot varð ekki umflúið, og nýir aðilar yfirtóku reksturinn. Fyrirtækið nefnist nú Ortölvutækm-Tölvukaup hf. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins eftir breytingar er Sigurður S. Páls- son, sem er einn eigenda þess, en hann starfaði áður hjá IBM á fs- landi og Skrifstofuvélum hf. Aðrir eigendur eru Jón Ólafsson í Skífunni, Helga Hilmarsdóttir, Jón Trausti Leifsspn og Sonic hf., sem er í eigu Jóns Ólafssonar. Morgunblaðið átti spjall við Sigurð S. Pálsson um fyrir- tækið og þær breytingar sem það hefur gengið í gegnum eftir eiganda- skiptin. „Við höfum aukið innra eftirlit, og gert átak í bókhalds- og áætlana- málum. Ennfremur hefur átt sér stað áherslubreyting í sölu. Nú er verið að vinna að því að skilgreina hlutverk einstakra deilda, svo stuðla megi að aukinni framleiðni. Útkoma þessarra aðgerða er strax farin að líta dagsins ljós, því rekstur fyrir- tækisins er nú mun skipulagðari og markvissari, og í samræmi við þau markmið sem sett voru í upphafi." Örtölvutækni-Tölvukaupum hf. er skipt í þijár deildir, söludeild, við- halds- og.þjónustudeild auk deildar sem sér um bókhalds- og innflutn- ingsmál. „Við höfum söluumboð fyr- ir véla- og hugbúnað af ýmsum gerð- um, þar á meðal IBM og Hewlett- Packard. Þannig erum við í aðstöðu til að bjóða einstaklingum, fyrirtækj- um og stofnunum þann vélakost sem á kann að vanta til að full nýting fáist á þann véla- og hugbúnað sem fyrir er. Aðalþjónusta fyrirtækisins nú er að aðstoða stjórnendur við að velja saman þann búnað sem best hentar hveiju sinni og aðlaga hann þeim búnaði fyrir er,“ sagði Sigurð- ur. Hann sagði að fyrirtækið hefði í þessum tilgangi tekið umboð fyrir alskyns samskipta- og tengibúnað fyrir tölvur af flestum gerðum. Á nýafstaðinni tölvusýningu sýndi fyr- irtækið ýmiss konar búnað sem fell- ur undir þessi markmið. Þar gaf m.a. að líta telefax-spjald í einkat- ölvur, varaaflgjafa fyrir tölvubúnað, þ.e.a.s. tæki sem viðheldur straumi á búnaðinum í ákveðinn tíma ef raf- magn fer af, og sagði Sigurður að þessir hlutir hafi vakið verskuldaða athygli. „Mikilvægasti þátturinn í rekstri fyrirtækja er að sníða rétt föt utan um starfsemina, og nú til dags spil- ar tölvubúnaður þar stórt hlutverk. Við höfum sniðið okkar fyrirtæki ný fot, og bjóðumst nú til að hjálpa öðrum við klæðskerastörfin," sagði Sigurður S. Pálsson að lokum. i Morgunblaðið/Sigurður Jónsson SUÐURLAND — Koi- beinn Kristinsson framkvæmda- stjóri Hafnar hf. og Þríhymings kjötvinnslu þó svo tvær verslanir séu innan samsteypunnar, á Hellu og á Selfossi. Hjá Þríhyrningi er mikil áhersla lögð á það að tryggja markað fyrir kjötvörur fyriríækisins. Aðal mark- aðssvæðið er höfuðborgarsvæðið og aðrir þéttbýlisstaðir. Þá verður mik- il áhersla lögð á að sinna markaðn- um á Suðurlandi. Samkeppni er hörð á þessu sviði og rnikið lagt upp úr góðum vömm og tryggu hráefni. Einkaaðilum þrýst saman Þróun undanfarinna ára hefur verið þannig að fyrirtæki í einka- rekstri hafa verið að tína tölunni. Ifyrirtækin Kf. Þór á Hellu og Frið- rik Friðriksson f Þykkvabæ em gamalgróin á Suðurlandi en áttu í erfiðleikum. Þeir sem stóðu að stofnun Þríhyrnings hf. töld nauð- synlegt að samkeppni væri fyrir hendi á Suðurlandi og réðust því í stofnun fyrirtækisins. „Það er ljóst að stór hópur aðila er tilbúinn að skipta við einkaaðila í slátmn, kjöt- vinnslu og verslun. Þessir hópur hefur þetta í hendi sér, svo er það okkar að geta þjónustað viðskipta- vinina og skila góðu verði til bænda og góðum vömm í verslanimar," sagði Kolbeinn I. Kristinsson fram- kvæmdastjóri Hafnar hf. og Þríhymings „Við munum beijast fyrir þessu fyrirtæki, að það standi sig og emm reyndar staðráðnir í því að láta fyr- irtækin halda velli. Markmiðið er að þrýsta einkaaðilunum saman og og nýta afl þeirra,“ sagði Kolbeinn og benti á að sláturhúsin þijú innan samsteypunnar hefðu mjög áhuga- verða skiptingu. Slátmnin og úr- vinnslan væm aðalatriðið í þessu efni. „Það sem Höfn hf. hefur verið að gera er að vinna úr hráefni sem uppmnnið er á Suðurlandi. Mark- mið okkar er að vinna meira úr hráefninu og koma því á markað í þéttbýlinu. Það er augljóst að stijál- býlið þarf á markaðnum í þéttbýlinu að halda en við þurfun að hafa meiri ítök í vinnslunni," sagði Kol- beinn. Hann benti á að fleiri mögu- leikar væm til svo sem að pakka kjötinu eftir úrbeiningu. „Slíka pökkunarstöð vil ég sjá hér fyrir austan þar sem þessu er slátrað." „Við munum halda sjó í fýrstu, kanna reksturinn og velta fyrir okkur möguleikunum. Við þurfum að skipuleggja fyrirtækin og sam- ræma þau til átaka en áherslu- punkturinn liggur á sláturhúsunum. Starfsemi Þríhymings verður beint framhald af því sem við höfum ver- ið að gera héma í Höfn á Sel- fossi,“ sagði Kolbeinn Kristinsson framkvæmdastjóri Hafnar hf. og Þríhyrnings. ÞAÐ SJA ÞAÐALUR AÐÞETTA ER VEGGSAMSTÆÐAN SEMÞÚÞARFT! TVILUM beyki veggsamstæða. Breidd: 240 sm, hæð: 176 sm, dýpt: 41 sm. /cr.32.950 TVILUM mahogny veggsamstæða. Breidd: 240 sm, hæð: 176 sm, dýpt 41 sm. Kr. 32.950 7VÆR VANDAÐAR OG FALLEGAR VEGGSAMSTÆÐUR Á HREIMT ÓTRÚLEGU VERÐI. REYKJAVlK — Sig. Jóns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.