Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 16
16 I MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTOBER 1988 Orgeltón- leikar í Landakirkju ORGANISTINN Reidar Hauge frá Noregi leikur í Landakirkju í Vestmannaeyjum kl. 21 þriðju- daginn 18. október. Hauge lauk kantorj)rófi frá Berg- en Musikkonservatorium og mast- ersprófi í listum við háskólann í Minnesota. Hann var síðan ráðinn sem organisti við kirkjuna í Kóngs- bergi 1973 og hefur starfað þar samfellt síðan auk kórstjórnar og einnig hefur hann samið nokkur orgelverk. + \ Olafur Ragnar Grímsson gármálaráðherra: Fullt samkomulag um raunvaxtalækkun Viðræður haftiar um vaxtalækkun hjá lífeyrissjóðum ÖLAFUR Ragnar Grimsson Qármálaráðherra segir að ákvörðun um lækkun á raunvöxtum spariskírteina ríkissjóðs hafí verið tekin í fullu samkomulagi við þá aðila sem gerðu samning um sölu spariskír- teina við fjármálaráðuneytið i sumar. Ólafur segist fljótlega munu taka upp viðræður við fulltrúa lifeyrissjóða um vaxtalækkun á útlán- um þeirra og segist vongóður um að markmið ríkisstjórnarinnar um 3% raunvaxtalækkun á þessu ári, náist. Reidar Hauge ■■■■■■■■ Fjármálaráðuneytið tilkynnti á miðvikudag raunvaxtalækkun á spariskírteinum ríkissjóðs. Fulltrú- ar verðbréfafyrirtækja höfðu haldið því fram að slík vaxtalækkun biyti í bága við samning sem gerður var HJÁ OKKUR MERKIR NÝR BfLL 1989 ÁRGERÐ MMTSUBMSHM NTTT UTLMT — JVV TÆKNM VERÐ FRÁ KR. 524.000 Innifalinn í verðinu er m.a. eftirtalinn búnaðiir: * Vökvastýri — Rafstýrðir útispeglar Rafdrifnar rúðuvindur — Dagljósabúnaöur * Á ekki við 1300 GL í sumar þar sem bankar, sparisjóðir og Verðbréfaþing íslands skuld- bundu sig til að selja spariskírteini fyrir tæpa 3 milljarða króna á þessu ári. Ólafur Ragnar Grímsson sagði við Morgunblaðið að samningurinn hefði falið í sér ákvæði um fasta vexti, sem ættu að haldast óbreytt- ir ef markaðsaðstæður væru óbreyttar. „ I viðræðum við söluaðila spari- skírteina lýsti ég því yfir því yfir að ég myndi reyna að þróa áfram það sölukerfi spariskírteina sem tekið var upp í sumar. Síðan fór fram sameiginlegt mat á því að markaðsaðstæður hefðu breyst í Ijósi þeirra ákvarðana sem teknar voru í vaxtamálum fyrir nokkrum dögum og efnahags- og verðlags- þróunarinnar í landinu. Á grund- velli þessara viðræðna tókum við ákvörðun um vaxtalækkun á spari- skírteinum," sagði Ólafur Ragnar. „Hugsunin hjá okkur er sú að þróa vaxtakerfið á þann veg að spariskírteini ríkissjóðs verði örugg- asta fjárfestingin á markaðnum og vextirnir á þeim myndi einskonar raunvaxtagólf fyrir markaðinn í heild. Þessi aðgerð er þess vegna liður í því að vaxtalækkunarlestin er farin að hreyfast og hver vagn- inn á fætur öðrum tengist henni á næstu vikum og mánuðum. Vaxta- lækkun á bankabréfum og bréfum hliðstæðum spariskírteinum mun fylgja í kjölfarið. Ég hef síðan byij- að óformlegar viðræður við fulltrúa lífeyrissjóðanna, og mun á næst- unni hefja formlegar viðræður í beinu framhaldi af þessari þ'róun," sagði Ólafur. Þegar hann var spurður hvort hann væri bjartsýnn á að raun- vextir lækkuðu um 3% fram að áramótum, eins og ríkisstjórnin stefnir að, svaraði hann að ef lestin brunaði á sporinu væri hann bjart- sýnn á að verulegir áfangar sæjust um og eftir áramótin. Væntanlegt fjárlagafrumvarj) myndi síðan von- andi endurspegla staðfestu ríkis- stjórnarinnar í að mynda þau efna- hagslegu skilyrði sem gerðu frekari vaxalækkun mögulega. Ekki verði hreyft við lánskjara- vísitölunni STJÓRN Landssambands lífeyr- issjóða skorar á stjórnvöld að hreyfa ekki við lánskjaravísi- tölunni. Fyrirhugaðar breytingar munu reyndar koma lífeyrissjóðunum til góða þegar til lengri tíma er litið en jafnframt íþyngja lántakendum. Stjóm Landssambands lífeyrissjóða óttast engu að síður það fordæmi, sem slík breyting gefur. Stjórnvöld gætu öðru hveiju skipt um grunn vísitölunnar og tengt hana hveiju sinni við þætti, til dæmis laun, sem fyrirhugað er að halda föstum. Þannig yrði lánskjaravísitalan ekki lengur sú trygging sparifjár gegn verðbólgu sem henni er ætlað. Það hefði aftur ófýrirsjáanlegar afleið- ingar fyrir eignir lífeyrissjóðanna og þar með getu þeirra til þess að greiða verðtryggðan lífeyri, segir í ályktun sambandsins. ..J*' tíÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG "hheklahf Laugavegi 170-172 Simi 695500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.