Morgunblaðið - 18.10.1988, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
SUPER
TIL
BORGA
VILTU NOTA
FERÐINA?
til:
Kaupmannahafnar fyrir 18.780 kr.,
Frankfurt fyrir 16.170 kr.,
Glasgow fyrir 15.370 kr.,
Gautaborgar fyrir 18.780 kr.,
Lundúna fyrir 17.750 kr.,
Luxemborgar fyrir 18.600 kr.,
Oslóar fyrir 18.020 kr.,
eða Stokkhólms fyrir 22.500 kr.
HVAÐER
SÚPER APEX
FARGJALD?
Hámarksgildistími farseöils er 1 mánuður.
Lágmarksgildistími er 1 sólarhringur meö því
skilyröi aö gist sé aðfararnótt sunnudags.
Sæti þarf að bóka með a.m.k. 14 daga
fyrirvara með þeim undantekningum að í
desember er hægt að bóka Súþer APEX til
Kaupmannahafnar, Gautaborgar, Oslóar og
Stokkhólms fram að brottför.
Ávallt skal bóka far báðar leiðir og greiða
farseðil um leið. Engar breytingar er hægt að
gera á farseðli eftir að hann hefur verið
afhentur.
Börn á aldrinum 2-11 ára fá 50% afslátt
frá Súper APEX verði og börn yngri en 2 ára
fá 90% afslátt.
Upplýsingar og farpantanir í síma 25 100.
FLUGLEIDIR
--------------------—--
Selló- o g píanóleikur
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Nú hefur fyrirtækið íslenska
hljómsveitin verið endurskipulagt
og samkvæmt fyrirhuguðum breyt-
ingum á starfsháttum þess, stóð
það fyrir tónleikahaldi með þátttöku
Menningarmiðstöðvarinnar í Gerðu-
bergi, Menningarstofnun Banda-
ríkjannna og Tónlistarskólanum í
Reykjavík. A þessum fyrstu tónleik-
um Islensku hljómsveitarinnar
komu fram bandarískir listamenn,
Andrew Mark sellóleikari og
Brenda Moore Miller píanóleikari.
Tónleikamir hófust með sónötu
eftir Debussy, sem var fallega flutt,
þó nokkuð væri áberandi hversu
mjög flytjendur lögðu áherslu á
nákvæmni í samspili og mótun tón-
hendinga. Þegar slíkt verður of
áberandi má líkja því við ofleik í
leikverki, sem getur leitt til þess
að flutningurinn verði aðalatriðið
en viðfangsefnið sjálft hverfí í
skuggann.
Annað verkið á efnisskránni, 5
Stucke im Volkton, op. 102, eftir
Morgunblaðið/S verrir
Andrew Mark sellóleikarí og Brenda Moore Miller píanóleikari.
Schumann, vantaði heildarsvip þó þar sem tónskáldið leikur með
mjögværifallegafariðmeð, einkum blíðlegt og söngrænt efni. Síðasta
. . . í vélrænni rútínu
hversdagsins. . .
Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
harða hríð að „smáborgaraskapn-
um“ sem einatt gengur þó erfið-
lega að skilgreina nákvæmlega í
hverju felst og í hveiju hann birt-
ist. Báðir eru þeir miskunnarlausir
við persónur sínar og handleika
þær oft af hinni mestu grimmd.
Báðir eiga þeir sameiginlega kímni
sem er eina stundina hárfín og
beitt, hina stundina er henni allt
að því grýtt framan í áhorfendur.
Helga Braga Jónsdóttir, Olafur Guðmundsson, Steinunn Olafsdóttir
og Steinn A. Magnússon i hlutverkum Smith- og Martinhjónanna í
Sköllóttu söngkonunni.
Brecht og Ionesco eiga það
einnig sammerkt að hafa verið —
sérstaklega í upphafí ferðar —
umdeildir í meira lagi og hvorugur
virðist hafa hirt um annað en
fylgja eigin sannfæringu og trú á
að það sem þeir væru að gera
skipti máli. í grein eftir Ionesco í
leikskrá lýsir hann tilurð þáttarins
um „Sköllóttu söngkonuna" á
mjög skemmtilegan hátt, en það
er ekki þar með sagt maður þurfi
að taka hann bókstaflega, enda
Ionesco, þessi meistari absúrdleik-
hússins harla óútreiknanlegur
einkum í fyrri verkum sínum.
Bríet Héðinsdóttir hefur aug-
sýnilega notið sín prýðilega við að
stýra leikhópnum, hún skilur út í
æsar verk höfundanna og ætlar
leikendunum að skila trúverðugum
persónum — þótt absúrd séu. í
Smáborgarabrúðkaupi Brechts var
þó, að mínum dómi, farið ögn yfir
strikið í skopfærslunni og stundum
á mörkunum að leikaramir réðu
við það. Hér hefði mátt gæta
meiri stillingar.
Búningar og leikmynd Guðrún-
ar Sigríðar Haraldsdóttur eru
Nemendaleikhúsið frumsýndi í
Lindarbæ:
Smáborgarabrúðkaup eftir
Bertolt Brecht
Þýðing: Þorsteinn Þorsteinsson
Flosi Olafsson þýddi vísur
Leikmynd og búningar: Guðrún
Sigriður Haraidsdójttir
Lýsing: Egill Örn Árnason
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir
og
Sköllótta söngkonan eftir Eug-
ene Ionesco
Þýðing: Karl Guðmundsson
Leikmynd og búningar: Guðrún
Sigríður Haraldsdóttir
Lýsing Egill Örn Árnason
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir
Það er alltaf sérstök stemmning
yfir sýningum Nemendaleikhúss-
ins, hér eru nemendur á síðasta
ári að spreyta sig og senn tekur
alvara lífsins við og er farið að
örla á henni Sýningar Nemenda-
leikhússins eru því skyldar at-
vinnuleikhúsum, kröfur eru gerðar
til leikaranna og það er jafnan
spennandi að fylgjast með þessu
unga fólki spreyta sig.
Hér hafa verið valdið tveir ein-
þáttungar, um margt ákjósanlegir
og þó svo að það megi taka undir
með leikstjóra að höfundamir eigi
fátt sameiginlegt utan að vera
báðir í hópi merkustu leikskálda
aldarinnar, er þó þegar betur er
gáð ýmislegt sem er skylt með
þáttunum. Báðir höfundar gera
Rynkeby
HREINN
APPELSÍNUSAFI
ÁN ALLRA
AUKAEFNA
J