Morgunblaðið - 18.10.1988, Page 13

Morgunblaðið - 18.10.1988, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTOBER 1988 13 Fyrstu hádeg- istónleikamir verkið fyrir hlé var sónata eftir Barber og þar var leikur flytjenda mjög góður. Eftir hlé voru tilbrigði eftir Beet- hoven, yfir stef úr Júdasi Makka- beusi eftir Hándel, sem Beethoven samdi í Berlín og lék ásamt Jean Louis Duport fyrir Friðrik Vilhjálm II Prússakonung og þáði að launum neftóbaksdósir úr gulli. Þrátt fyrir að Beethoven montaði sig af dósun- um, hafði hann ekki fyrir því að setja ópusmerki á verkið, enda skilj- anlegt, því það þykir ekki ýkja merkilegt að gerð og innihaldi. Nokkuð setti það mark sitt á flutn- inginn að sellistinn átti í vandræð- um með einn streng hljóðfærisins. Síðasta verkið var sellósónata eftir Shostakovitsj og með því verki urðu tónleikamir nokkuð langir. Þrátt fyrir að margt væri fallega gert og músíkalskt hjá flytjendum., náðu þau ekki að magna upp þann galdur sem býr í þessu stórbrotna verki. Þar vantaði punktinn yfir i-ið. Mark og Miller eru efnilegir tónlist- armenn og náðu oft að leika einkar fallega og músikalskt, sérstaklega ljóðrænar og viðkvæmar tónhend- ingar. Þeim hættir hins vegar til að gera samspilið of áberandi og þrátt fyrir að þau séu skemmtilega laus við „taktfestuleik", var „mis- hraðaleikur" (rubato) þar í mót ein- um of ríkjandi. prýðilegt verk, sýna hugvitssemi og vel úr hugmyndunum unnið. í Smáborgarabrúðkaupinu var Helga Braga Jónsdóttir ágætlega brechtsk sem móðir hins smíða- glaða brúðguma. Elva Ósk Oskarsdóttir var nett brúður, og leysti sitt af hendi, einkum í byij- uninni. Vantaði nokkuð á svip- brigði og fullkomið vald á radd- beitingu þegar atburðarásin fer að þyngjast. Sigurþór Heimisson var. hæfilega ráðvilltur brúðgumi og Steinn Á. Magnússon glúrinn í hlutverki „vinarins". Christine Carr sýndi fullroikla tilgerð sem systir brúðarinnar. Bára Lyngdal Magnúsdóttir hafði ágætis gervi sem leiðinlega eiginkonan og svip- brigði tókust vel. Ólafur Guð- mundsson gerði tragikómíska týpu úr eiginmanninum. Tveir gesta- leikarar voru með í brúðkaupinu, Emil Gunnar Guðmundsson sem reyndi ekki mikið á og Andri Öm Clausen var brúðarfaðir og átti gott kvöld. í Sköllóttu söngkonunni fannst mér Ólafur Guðmundsson á stund- um vera fullkeimlíkur og í fyrri þættinum. Þó mætti segja mér að í Ólafi búi góður efniviður, og það á við um fleiri. Helga Braga hafði á hendi annað eiginkonuhlutverkið og sýndi nú gerólíkar hliðar af leikni og sama mátti segja um Stein A. Magnússon. Steinunn Ólafsdóttir sýndi eftirtektarverð tilþrif í þessum þætti. Christine Carr glímdi við svipaðan vanda og Ólafur, hún var of lík tildurdró- sinni í brúðkaupinu. Sigurþór Hei- misson dælustjóri var dálítið stirð- ur í upphafi, en tókst ágætlega upp þegar hann fór að segja sög- una. Það er vonandi að fólk þyrpist á sýningu Nemendaleikhússins, hún hefur alla burði til að höfða til breiðs hóps áhorfenda. FYRSTU hádegistónleikar Há- skóla íslands á haustmisseri verða í Norræna húsinu miðvikudaginn 19. október og hefjast kl. 12.30, en alls eru fyrirhugaðir 8 tónleik- ar á misserinu. Á tónleikunum næstkomandi mið- vikudag munu þeir Christian Giger sellóleikari og David Tutt píanóleik- ari flytja verk eftir Janácek og Beet- hoven. Christian Giger fæddist í Sviss og stundaði þar nám hjá Susanne Basl- er-Novsak í Winterthur. Hann hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni ungra tónlistarmanna í Sviss 1980 og 1984. Einnig fékk hann fyrstu verðlaun í Hans Ninck-samkeppninni í Wintert- hur 1984. Christian Giger hefur spil- að kammertónlist af ýmsu tagi og einnig leikið einleik með sinfóníu- hljómsveitunum í St. Gallen og Wint- erthur. Hann stundar nú nám hjá Boris Pergamenschikow við National Academy of Music í Köln í Þýska- landi. David Tutt stundaði nám í heima- landi sínu, Kanada, en lauk BA- prófi David Tutt píanóleikari. frá Háskólanum í Indiana. Kennari hans var Gyorgy Sebok. David Tutt hefur unnið til margra verðlauna, þar á meðal gullverðlauna tónlistar- skólans í Toronto. Var styrkþegi við listaskólann í Banff árin 1980-82. Chrístían Giger sellóleikari. Hann hefur leikið með sinfóníuhljóm- sveitunum í Toronto, Edmonton og Calgary og með útvarpshljómsveit- inni í Búdapest. Er nú búsettur og starfar í Sviss. Þal Hilr ikki ai sliaia lifiiau -ig gira ekfci leitt! Ef þú ert meðal þeirra, sem óttast áhrif vaxandi verðbólgu en veist ekki hvað þú átt að gera, er mál til komið að fá ráðleggingar og aðstoð hjá Fjárfestingarfélaginu. Það er óráðlegt að stinga höfðinu í sandinn og bíða eftir betri tíð. Þetta á sérstaklega við þá, sem þurfa að geyma peninga í skemmri tíma, peninga sem ættu að bera háa vexti, en það gera Skyndibréf Fjárfestingarfélagsins. Skyndibréfin bera nafn sitt með rentu! Þeim er ætlað að leysa vanda þeirra, sem þurfa að ávaxta fé til skamms tíma með hæstu mögulegum vöxtum. Þessi bréf henta því bæði fyrir- tækjum og einstaklingum. Skyndibréf eru tilvalin fyrir þá sem þurfa t.d. að geyma og ávaxta peninga á milli sölu og kaupa á fasteignum. Skyndibréfin eru sem sagt ætluð til skammtíma fjármála- lausna. Ávöxtun þeirra er á bilinu 7-9% umfram verð- bólgu. Skyndibréf eru að jafnaði innleyst samdægurs, - án innlausnargjalds. Kostir þeirra eru óumdeilanlegir. BÁRFESTINGARFÉIAGÐ Hafnarstræti - Kringlunni - Akureyri Aðili að Verðbréfaþingi íslands Hluthafar: Verslunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiðstóðin, Lífeyrissjóður Verslunarmanna auk rúmlega 400 fyrirtækja og einstaklinga. Fjármál þín — sérgrein okkar f-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.