Morgunblaðið - 18.10.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
17
Raflínan yfir Trölla-
tung'uheiði endurbyggð
Hólmavík.
HJÁ Orkubúi VestQarða á Hólmavík hefiir verið nóg- að gera á liðnu
sumri. Starfsmenn orkubúsins hafa aðallega unnið að endurnýjun
raflína á svæði Orkubús VestQarða á Hólmavik, en það svæði nær
um alla Strandasýslu, A-Barðastrandarsýslu og einnig um Nauteyrar-
hrepp og að Reykjanesi.
Sú framkvæmd, sem íbúar
Strandasýslu, frá Þambárvöllum
norður í Árneshrepp, óskuðu helst
eftir, er endumýjun raflínunnar yfir
Tröllatunguheiði. Rafrnagnslína
þessi, sem komin er nokkuð til ára
sinna, þolir ekki þá veðráttu sem
geisað getur á Tröllatunguheiði.
Byggð sú, sem fær rafmagn um
línuna yfir heiðin, var tíðum raf-
magnslaus á síðasta vetri. Oft
þurfti að grípa til skömmtunar. íbú-
um á þessu svæði þótti nokkuð súrt
í broti þegar rafmagnslaust varð,
því oft var mjög gott veður þegar
slíkt gerðist. Var það aðallega
vegna ísingar á um 2 km kafla
austan til á heiðinni sem rafmagnið
fór af.
í áætlun Orkubús Vestijarða fyr-
ir þetta ár var ekki fyrirhugað að
framkvæma neitt á Tröllatungu-
heiði en vegna tíðra truflana á
raflínunni yfir heiðina og fjölda
áskorana íbúa á svæðinu, var
ákveðið að laga versta kaflann.
Hafist var handa við verk þetta
seinni hluta septembermánaðar og
er áætlað að það taki einn mánuð
að ljúka verkinu. Kostnaður er
áætlaður rúmlega tvær milljónir.
Fréttaritari brá sér í bílferð með
orkubússtjóranum á Hólmavík, Þor-
steini Sigfússyni, og starfsmönnum
hans upp á Tröllatunguheiði. Á
heiðinni voru níu menn frá orkubú-
inu að vinna, en það er sá mann-
skapur sem starfar að jafnaði hjá
orkubúinu á Hólmavík yfír sumar-
tímann. Að auki voru þar tvær vél-
skóflur, vörubifreið og dráttarvél.
Þá var þar einnig staðsett rútubif-
reið er mannskapurinn gat snætt í.
Fréttaritari innti Þorstein að því
hversu vel verkið gengi. Hann gat
Stjórn Myndlista-
og handíðaskólans:
Nefiid um
listaháskóla
fagnað
Skólastjórn Myndlista- og
handíðaskóla íslands hefur sent
frá sér fréttatilkynningu, þar
sem fagnað er ákvörðun Svavars
Gestssonar, menntamálaráð-
herra, um að skipa nefiid til að
vinna að stofnun Listaháskóla
íslands.
„Skólastjómin telur að hér sé um
að ræða eitt mikilvægasta menn-
ingarmál þjóðarinnar og lætur í ljós
von um að málið fái viðtökur og
meðferð í samræmi við það,“ segir
í tilkynningu stjómar MHÍ.
þess að ekki hefði verið hægt að
byija fyrr á verkinu vegna bleytu
á heiðinni og best væri að vinna
þegar byijaði að frysta. Þorsteinn
sagði að það hefði ekki byijað vel
hjá þeim og ein vélin hefði farið á
bólakaf í aur og bleytu. „Þessi vél
var samt vel búin til aksturs utan
vega en allt kom fyrir ekki og við
áttum síðan í erfiðleikum með að
ná vélinni upp. Nú sem stendur
gengur mjög vel með verkið," sagði
Þorsteinn að lokum.
Nýja línustæðið á Tröllatungu-
heiði verður við hlið gömlu línunnar
og munu tveir staurar halda uppi
hverri slá, sem línan er fest við.
Gamla Hnan er þannig uppbyggð,
að einn staur heldur uppi línunni á
hveiju línuhafí og hafa þverslámar
viljað brotna er ísing sest á línuna.
Áætlað er að halda síðar áfram
með byggmgu nýju línunnar og
verður það þá líklega gert á svipað-
an hátt og nú er gert.
Ibúar á því svæði, sem lína þessi
þjónar, um 900 manns, mega nú
eiga von á því að rafmagnsbilanir
verði ekki jafn tíðar og áður.
Menn frá Orkubúi Vestljarða á
• Hólmavík hafa haft mjög mikið að
gera í sumar, eins og áður er get-
Bænaguðs-
þjónustur
í Breið-
holtskirkju
FYRIRHUGAÐ er að taka upp
til reynslu vikulegar bænaguðs-
þjónustur í Breiðholtskirkju í
Mjóddinni. Er hér um að ræða
stuttar helgistundir með les-
messuformi, þar sem m.a. verður
beðið fyrir nauðstöddum og sjúk-
um. Verður fyrsta bænaguðs-
þjónustan í dag, þriðjudag, kl.
18.15 og verða þær síðan á þeim
tíma alla þriðjudaga.
Er það von okkar og bæn, að
trúfastur hópur geti myndast í
Breiðholtssöfnuði um þennan nauð-
synlega þátt í þjónustu kirkjunnar.
Sérstök athygli skal vakin á því,
að hægt er að koma fyrirbænarefn-
um á framfæri við sóknarprestinn
jafnvel þótt viðkomandi geti af ein-
hveijum ástæðum ekki sjálfur tekið
þátt í bænaguðsþjónustunni. Þá
skal þess getið, að ráðgert er að
u.þ.b. einu sinni í mánuði verði alt-
arisganga í þessum guðsþjónustum
og verður einmitt svo í guðsþjón-
ustunni í dag.
Sr. Gísli Jónasson
Krabbameinsfélagið:
Opið hús hjá
Samhjálp kvenna
SAMHJÁLP kvenna, sem er
stuðningshópur kvenna sem
gengið hafa undir aðgerð vegna
brjóstkrabbameins, hefiir opið
hús í húsi Krabbameinsfélagsins
í Skógahlíð 8, þriðjudaginn 18.
október ld. 20.30.
Þórarinn Sveinsson, yfirlæknir
Krabbameinslækningadeildar
Landspítalans, flytur erindi um þátt
fjölskyldunnar í meðferð og endur-
hæfíngu krabbameinssjúklinga. Að
loknu erindinu verða almennar
umræður og kaffiveitingar.
Samhjálp kvenna var stofnuð
1979 og er elsti samstarfshópurinn
sem starfar í tengslum við Krabba-
meinsfélagið. Allir sem vilja kynn-
ast starfsemi samtakanna eru
hvattir til að koma á þennan fund.
(Frétt frá Krabbameinsfélaginu.)
ELDHUSIN OKKAR
VEKJA ATHYGLI
ið, m.a. unnu þeir að endurbygg-
ingu línunnar frá Blævadalsárvirkj-
un inn að laxeldisstöðinni á Naut-
eyri. Lína þessi gaf sig milli jóla
og nýárs í fyrra. Milli Reykjaness
og Nauteyrar voru lagðir þrír sæ-
strengir, hver um 2,4 km að lengd.
Þeir komu í stað mjög gamalla
strengja. Jafnframt var lokið við
að leggja rafmagnslínu frá Skeiði
til Hólmavíkur, um 1 km. Einnig
var lokið við að koma á útilýsingu
á alla bæi í Bæjarhreppi utan Borð-
eyrar.
- BRS
Mnrgunblaðið/Baldur Rafn Sigurðsson
Unnið við endurnýjun raflínunnar yfír Tröllatunguheiði.
MBGÐIN ÁRMÚLA 17a
BYGGINGAWÓNCISTA SÍMAR 84585-84461
. C* ,
.
* .
Einmitt núna er
tækifæri til að
eignast ódýra og
fallega innréttingu.
Við bjóðum fallegar
og vandaðar eldhús-
innréttingar í öllum
verðflokkum, baðinn-
réttingar, fataskápa,
útihurðir, svalahurðir,
innihurðir, arna o.m.fl
Komdu og kynntu
þér úrvalið og kjörin
hjá okkur.
Veitum allar nánari
upplýsingar.
TILBOÐSVERÐ Á
FATASKÁPUM ÚR
HVÍTU PLASTI
KOMDU OG SKODADU
INNRETTINGARNAR
OKKAR