Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 26

Morgunblaðið - 18.10.1988, Side 26
vv 26 88GÍ Haaoi^o . jOAGTJIGIJM .GIGAiiaMTJOHOM MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 Bandaríkin: Játar að Bush hafi viimingiim Boston. Reuter. MICHAEL Dukakis, forseta- frambjóðandi Demókrataflokks- ins, viðurkenndi á sunnudag, að George Bush, frambjóðandi repúblikana, stæði betur að vígi í kosningabaráttunni en hann kvaðst líka vera viss um, að sam- an drægi með þeim fyrir kjör- dag. „Þegar ég hóf þessa baráttu fyr- ir hálfu öðru ári átti ég á brattan að sækja og nú þegar þijár vikur eru til stefnu er enn þungt undir fæti. Ég er þó staðráðinn í að berj- ast áfram fyrir þeim hugsjónum, Sovétríkin: Einn fall- innfyrir alnæminu Moskvu. Reuter. DAGBLAÐ í Leningrad skýrði fyrir skömmu frá nafni fyrstu manneskjunnar, sem deyr úr alnæmi f Sov- étríkjunum, og birti af henni mynd. Kom þetta fram í fréttum TASS-fréttastofunn- ar um helgina. Dagblaðið Lenínskaja Prav- da birti mynd af Olgu Gaev- skaju, 29 ára gamalli vændis- konu, sem lést f Leníngrad 5. september sl., og ráðlagði þeim, sem hafa haft viðskipti við hana, að fara f læknisskoðun. Sagði í blaðinu, að hún hefði stundað vændið þar til skömmu áður en hún lést. TASS sagði einnig, að rétt væri að birta myndina í Finnlandi því að það- an hefðu komið margir við- skiptavina Gaevskaju. I fréttinni kom einnig fram, að af fjórum milljónum borg- arbúa í Leníngrad hefðu 540.000 verið alnæmisprófuð. Hefðu fundist 24 sýktir ein- staklingar, 15 útlendingar og níu Sovétmenn. Er þá vitað alls um 80, sem sýkst hafa alnæmi í Sovétríkjunum. sem ég trúi á og eru kjaminn f öllu okkar starfi," sagði Dukakis á kosn- ingafundi í Boston og var vel fagn- að af stuðningsmönnum sínum. Aðeins tveimur dögum fyrr hafði hann haldið því fram, að þeir Bush væru hníflafnir. Dukakis og demókratar höfðu bundið miklar vonir við sjónvarps- einvígið sl. fimmtudag en útkoman varð sú, að það var Bush, sem fór með sigur af hólmi, og hann hefur nú 10% umfram Dukakis f skoðana- könnunum. Aðstoðarmenn Dukakis hafa neitað frétt, sem birtist í Washing- ton Post, en þar sagði, að demó- kratar ætluðu að einbeita sér að 18 ríkjum á lokaspretti kosninga- baráttunnar. Pakistan: Reuter Ekkja Zulfikars Ali Bhuttos, fyrrum forseta Pakistans, Begum Musrat Bhutto, leggur inn framboð sitt fyrir þingkosningamar í Pakistan sem haldnar verða 16. nóvember næstkomandi. Skemmdarverkamenn grönduðu flugvél forsetans Islamahad. Reuter. í SKÝRSLU pakistanska Ðughersins og bandariskra aðila um orsak- ir flugslyssins 16. ágúst s.l., sem varð Zia-ul-Haq, forseta Pakistans, að aldurtila, kemur fram að um skemmdarverk hafi verið að ræða. í skýrslunni segir að ekkert bendi til þess að vélarbilun hafi orðið og tílgátum um sjálfemorðsleiðangur áhafharinnar er vísað á bug. Um borð f vélinni, sem var af V amarmálaráðherra Pakistans, gerðinni Hercules C-130, var auk Ijlal Haider, sagði að fundur efn- forsetans sendiherra Bandarílq'anna í Pakistan, Amold Raphel, ásamt háttsettum mönnum innan pakist- anska hersins. í skýrslunni segir að 31 maður hafi farist f flugslysinu en orsakir þess voru ekki tilgreind- ar nákvæmlega. Engin ummerki fundust eftir öfluga sprengingu en leifar minni sprengingar gætu hafa eyðst í eld- inum sem kom upp í flugvélinni, segir f skýrslunni. Á leifum mangóávexta, sem skip- að var um borð í Bahawalpur skömmu fyrir flugtak, fannst óvenjumikið magn kalíums, fosfórs, klórs og antfmons. Með samsetn- ingu þessara efna tókst rannsókn- araðilum að búa til hvellhettu. Líkur voru leiddar að því að með lítilli sprengingu hefði eiturgas verið leitt inn í flugstjómarklefann. anna hefði vakið gmnsemdir um að sprenging hefði orðið en hins vegar væru sönnunargögnin ekki næg til að staðfesta að bvo hefði verið. Þess var getið í skýrslunni að ekkert hljóðupptökutæki hefði verið í flugstjómarklefanum og lagði rannsóknamefndin til að þeim yrði komið fyrir í svipuðum flugvélum f Pakistan. Ekki væri hægt að útiloka að utanaðkomandi aðili eða einhver í áhöfiiinni hefði átt við stjómtæki vélarinnar. En sönnur á slíkt vant- aði vegna skorts á hijóðupptöku. í skýrslunni segir að ekki verði bent á tæknilegar ástæður fyrir flugslysinu í ljósi þeirra sönnunar- gagna sem rannsóknamefndin hef- ur undir höndum. Glæpsamlegt at- hæfi eða skemmdarverk hljóti að vera orsök þess að áhöfnin missti stjóm á flugvélinni og hún hrapaði til jarðar. Zia-ul-Haq hrifsaði til sfn völd í Pakistan árið 1977 og lét taka for- vera sinn, Zulfikar Ali Bhutto, af lífi. í ellefu ár stjómaði hann pakist- önsku þjóðinni, sem telur 104 millj- ónir íbúa, með harðri hendi. Óvissa ríkir í stjómmálum landsins í kjöl- far fráfalls Zia-ul-Haqs og kosn- ingabaráttan er hafin fyrir alvöm fyrir kosningamar sem verða 16. nóvember n.k. Stjómmálaskýrendur telja hugs- anlegt að fylgismenn Zia-uI-Haqs, sem sitja enn í ríkisstjóm landsins, höfði til kjósenda á þeim forsendum að hinn látni forseti hafí verið fóm- arlamb hiyðjuverkamanna. Sumir gagnrýndu að skýrslan kæmi fram í dagsljósið aðeins mánuði áður en kosningar fara fram og sögðu að með þessu vildi ríkisstjómin kasta rýrð á helsta stjómarandstöðuflokk landsins, Þjóðlegu alþýðufylking- Hvar er Bretland? London. Reuter. NÆRRI helmingur Breta getur ekki Lagt saman verðið fyrir þrjá einfalda réttí á veitingahúsi og sjötti hver veit ekki hvar Bret- landseyjar eru á heimskortinu. Kemur þetta fram f könnun, sem birtíst um helgina í breska blað- inu Sunday Times. Könnunin náði til 1.000 manna og kom í ljós, að 42% þeirra gátu ekki lagt saman verðið fyrir þijá rétti á hamborgarastað. 17% gátu ekki fundið Bretlandseyjar á korti. Héldu sumir, að þær væri að fínna undan ströndum Norður- eða Suð- ur-Ameríku eða jafnvel í Austur- löndum §ær. Þrír af hundraði bentu á Afríku. Sjö af hundraði töldu, að stysta leiðin til Spánar frá Bretlandi væri f háaustur, þijú vildu fara í vestur, tvö í norður og 13% höfðu enga skoðun á því. Pýramídi við Louvre-saftiið Reuter Við Louvre-safnið í París hefur ný viðbót nú verið tekin f notk- un. Það er pýramídi úr glerí sem er i forgarði safnsins, sem kenndur er við Napóleon. Þar verður inngangurinn f safiiið og þjónustumiðstöð. Myndin er tekin á dögunum við vigslu pýramf- Hans og sjást þeir fremst á henni Ieoh Ming Pei, arkitekt nýbygg- ingarinnar, og Francois Mitterrand, Frakklandsforsetí. Nóbelshafar í læknisfræði: Breti ogtveir Baudaríkja- menn deila verðlaunum Stokkhólmi. Reuter. KARÓLÍNSKA stofiiunin f Stokk- hólmi skýrði frá þvf f gær að Nóbelsverðlaununum f læknis- fræði hefði að þessu sinni verið skipt milli eins Breta og tveggja Bandaríkjamanna. Vfsindamenn- imir fengu verðlaunin fyrir að uppgötva „mikilvæg lögmál varð- andi lyljameðferð", að sögn stofn- unarinnar. Meðal þeirra sjúk- dóma, er verðlaunahafarnir hafá rannsakað, eru | hvftblæði, þvag- sýrugigt, of hár | blóðþrýstingur, magasár, hjarta- kveisa og ýmsir smitsjúkdómar. Bretinn Sir Ja- mes Black er 64 ára að aldri og sir Jame8 BUck starfar við Kings College-sjúkrahúsið í London. Black varð fyrstur til að skilja hvemig nota mætti svonefnd beta-blocking lyf til að meðhöndla kransæðasjúkdóma. Gertrude Elion George Hitchings Þá er súrefnisstreymi til hjartans minnkað en það verður til að minnka vinnuálag á hjartað. Árið 1962 upp- götvaði starfshópur undir stjóm Blacks lyfið pronethalol, undanfara propranolols, fyrsta nothæfa lyfsins af áðumefndu tagi. Slík lyf hafa einnig reynst árangursrfk gegn of háum blóðþrýstingi. Bandarílq'amennimir Gertrude Elion, 70 ára gömul, og George Hitc- hings, sem er 83 ára, hafa starfað saman við Wellcome-rannsóknar- stöðina í Norður-Karólínuríki síðan 1945. Þau hafa rannsakað muninn á efnaskiptum í kjamasýrum heil- brigðra og sjúkra frumna með það að markmiði að finna leiðir til að stöðva vöxt krabbameinsfrumna og illkynjaðra æxla. Hafa þessar rann- sóknir stuðlað að þróun krabba- meinslyfja sem ekki skaða heilbrigð- ar frumur. Snemma á sjötta áratugnum fundu Elion og Hutchings upp lyfið 6-mercaptopurine, sem enn er notað gegn hvíblæði. Á siðari ámm hafa rannsóknir þeirra óbeint leitt til upp- finningar ÁZT, lyfs sem seinkar verulega áhrifum eyðniveirunnar á mannslíkamann. „Áður fólst þróun lyfia aðallega í því að gerðar voru efnafræðilegar breytingar á náttúrulegum afurðum. [Elion og Hutchings] kynntu nýjar og árangursríkari aðferðir sem byggjast á skilningi á lífefnafræði- legum og líffræðilegum ferlum," sagði í yfirlýsingu Karólínsku stofn- unarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.