Morgunblaðið - 18.10.1988, Page 31
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
31
JKtfigiiiMfifrtfe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst IngiJónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Stefhumörkun í
stað persónudeilna
ijú efnisatriði hafa ekki
sízt sett svip á fjölmiðla-
deilur formanna Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks, eftir
að upp úr slitnaði fyrra stjóm-
arsamstarfí. í fyrsta lagi hver
átti frumkvæði og undirbúning
að skattkerfísbreytingu — stað-
greiðslu skatta og samræm-
ingu og lækkun tolla — sem
fyrri ríkisstjóm kom í höfn. í
annan stað hver áhrif tillaga
Þorsteins Pálssonar um lækkun
matarskatts og fleira hefði haft
á stöðu ríkissjóðs, en ríkissjóðs-
halli var vemlegur í fjámála-
ráðherratíð formanns Alþýðu-
flokksins sem og forvera hans
úr Sjálfstæðisflokki. í þriðja
lagi staðhæfíng formanns Al-
þýðuflokksins, þessefnis, að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi í
raun verið eftirbátur Alþýðu-
flokksins, þegar á hólminn var
komið, varðandi sölu ríkisfyrir-
tækja.
Jón Baldvin Hannibalsson
setti fram óvenju hvassyrta
gagnrýni á Þorstein Pálsson —
vegna framangreindra atriða —
í Morgunblaðinu en einkum í
Alþýðublaðinu. Sá síðamefndi
svarar síðan þessari gagnrýni
í Morgunblaðinu síðastliðinn
laugardag. Þar segir hann að
ríkisstjóm Steingríms Her-
mannssonar 1983-87 hafí haft
á hendi alla forgöngu sem og
undirbúning að staðgreiðslu-
kerfí, en Sjálfstæðisflokkurinn
fór með fjármálaráðuneytið á
þessum tíma. Sú stjóm hafí og
haft alla forgöngu og undirbún-
ing að einföldun tollakerfísins.
Það mál hafí verið komið vel á
veg í fjármálaráðherratíð Al-
berts Guðmundssonar — og því
hafí verið að fullu lokið vorið
1987. Formaður Alþýðuflokks-
ins hafí síðan lagt fullbúið
frumvarp um þetta efni fyrir
Alþingi. Virðisaukaskatturinn
hafí og verið endurflutt mál frá
fjármálaráðherra Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjóm
Steingríms Hermannssonar.
„Þótt skattkerfísbylting hafí
ekki verið að fmmkvæði Jóns
Hannibalssonar — nema mat-
arskatturinn — á hann auðvitað
þakkir skildar fyrir framlag til
að koma henni í framkvæmd,"
segir Þorsteinn Pálsson í grein
sinni.
Gagnrýni formanns Alþýðu-
flokksins á meinta linkind sjáif-
stæðismanna varðandi sölu
ríkisfyrirtækja, þ. á m. ríkis-
banka, svarar Þorsteinn Páls-
son svo:
„Sannleikurinn í því máli er
auðvitað sá að bankamálaráð-
herrann beitti sér aldrei fyrir
sölu ríkisbankanna utan það
að hann var tilbúinn til að selja
SÍS Útvegsbankann. Hvað
gerðist þegar iðnaðarráðherr-
ann lagði fram frumvarp í ríkis-
stjóm um að breyta Sements-
verksmiðju ríkisins í hlutafélag.
Það stóð kengfast bæði í þing-
flokki Framsóknar- og Al-
þýðuflokks. O g enn mætti
spyrja formann Alþýðuflokks-
ins að því, hverjir það vom sem
komu í veg fyrir að einkaaðilar
gætu keypt Slippstöðina á Ak-
ureyri. Er það rangminni að
þar hafí alþýðuflokksmenn í
bæjarstjóm Akureyrar verið í
broddi fylkingar þeirra sem
vildu viðhalda opinbemm
rekstri?"
Það hefur verið á stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins að selja
ríkisfyrirtæki. En svo virðist
sem flokkurinn þurfí meirihluta
á þingi til að koma því hug-
sjónamáli í höfn. Svo er einnig
um ýmis önnur mál. En við
núverandi aðstæður er hver
áfangi sem vinnst mikilvægur
á langri leið.
íslenzkir
sigrar í
Seoul
Islendingur vann mikið afrek
í gærmorgun. Þá tókst Hauk
Gunnarssyni að vinna gullið í
100 metra hlaupi á Heimsleik-
um fatlaðra í Seoul í S-Kóreu.
Haukur hlaut bæði silfur og
brons á Heimsleikunum í New
York árið 1984.
Þessi stórglæsilegi sigur
Hauks var ekki sá eini sem
íslendingur vann í Seoul. Ólaf-
ur Eiríksson hreppti bronsið í
400 metra skriðsundi, í hörðum
leik, og setti jafnframt íslands-
met í greininni. íslenzka sund-
fólkið sýndi frábæra frammi-
stöðu í keppninni.
Ástæða er til að áma
íslenzku keppendunum á
Heimsleikum fatlaðra í Seoul í
S-Kóreu heilla í tilefni af glæsi-
legri frammistöðu og þakka
þeim góða landkynningu.
Atvinnutryggingarsjóður:
Gengistryggð lán
til allt að tólf ára
Skuldbreytingalán úr hinum
nýstofnaða Atvinnutryggingar-
sjóði útflutningsgreina skulu
vera allt til tólf ára og af-
borgunarlaus til allt að þriggja
ára. Þau skulu bundin gengi-
sviðmiðun og bera vexti sem
miðist við erlenda markaðs-
vexti, eftir þvi sem stjórn sjóðs-
ins ákveður. Þetta kemur fram
í reglugerð forsætisráðuneytis-
ins um Atvinnutryggingarsjóð.
Alls hefúr sjóðurinn heimildir
tíl Iána útflutningsfyrirtækjum
V erðbréfasj óðirnir:
Vaxtalækkun kem-
ur ekki strax fram
Raunvaxtalækkun kemur
ekki að fúllu fram í verðbréfa-
sjóðum fíárfestingarfélaganna
fyrr en eftir eitt til tvö ár, að
sögn Gunnars Óskarssonar að-
stoðarframkvæmdastjóra Fjár-
festingarfélags íslands.
Gunnar sagði að ef áformuð
raunvaxtalækkun næði fram að
ganga hefði hún afar lítil áhrif á
ávöxtun bréfa verðbréfasjóðanna
fyrst í stað en kæmi síðan smám
saman fram á einu eða tveimur
árum. Þegar sjóðimir væru orðnir
þetta stórir væm ný bréf svo lítill
hluti heildareignar sjóðsins að áhrif
þeirra væra varla merkjanleg fyrr
en að nokkram tíma liðnum.
Aðspurður um hugsanlegar
breytingar á verðbréfakaupum
sjóða Fjárfestingarfélagsins í kjöl-
far vaxtabreytinga, sagði Gunnar
að of snemmt væri að segja til um
það. En þó væri ljóst að í núver-
andi millibilsástandi keyptu þeir
ekki mikið af nýjum spariskírtein-
um ríkissjóðs en meiri áhersla lögð
á bankabréf á meðan ekki væri
búið að lækka vexti þeirra.
Hætt við að hækka sláturkostnað
gömlu birgðanna:
Samþykkjum þetta
ekki með glöðu geði
Sláturhúsin töpuðu 170 milljónum kr.
á nýloknu verðlagsári
„VIÐ litum á þessa hækkun
sláturkostnaðar á birgðum sem
viðurkenningu fimmmanna-
nefindar á að slátur- og heild-
sölukostnaðurinn hefði ekki
verið rétt áætlaður í fyrra-
haust. Því vorum við ekki hrifii-
ir af þvi að sú viðurkenning
skuli hafa verið tekin aftur,“
sagði Hreiðar Karlsson kaup-
félagsstjóri á Húsavík og form-
aður Landssambands slátur-
leyfishafá þegar leitað var álits
hans á ákvörðun fimmmanna-
nefiidar um að hætta við að
hækka sláturkostnað á gömlu
kindakjötsbirgðunum.
Hreiðar sagði að ætlun stjóm-
valda með auknum niðurgreiðslum
hefði verið að ná fram hraðri sölu
á birgðunum og kæmi það sér vel
fyrir sláturleyfishafa. „Við beygð-
um okkur því undir þetta, þó ekki
með glöðu geði,“ sagði Hreiðar.
Hreiðar sagði að staða slátur-
leyfishafa væri slæm, þeir hefðu
tapað miklum peningum á tveimur.
síðustu verðlagsáram. Heildartap
þeirra hefði verið 70 milljónir kr.
verðlagsárið 1986-87 og væri
áætlað 170 milljónir á nýliðnu
verðlagsári. „Sláturhúsin era mörg
hver mjög illa stödd eftir þetta og
sumir hafa lokað og jafnvel orðið
gjaldþrota," sagði Hreiðar. Hann
sagði að slátur- og heildsölukostn-
aðurinn í haust væri mun nær
raunverulegum kostnaði en undan-
farin tvö ár, en taldi að lítið feng-
ist upp í fyrra tap.
2 milljarða króna og að breyta
5 milljörðum króna af lausa-
skuldum þeirra í föst lán.
Hér á eftir fara nokkur helstu
atriðin í reglugerðinni um sjóðinn:
- Hlutverk Atvinnutryggingar-
sjóðs er að veita lán til endurskipu-
lagningar og hagræðingar hjá fyr-
irtækjum sem framleiða til útflutn-
ings, og að breyta lausaskuldum
þeirra í föst lán.
- Skuldbreytingar fara fram með
þeim hætti að viðkomandi fyrir-
tæki gefur út skuldabréf til At-
vinnutryggingarsjóðs með þeirri
fíárhæð sem lánardrottnar hafa
samþykkt að skuldbreyta, allt til
10 ára. Atvinnutryggingarsjóður
gefur síðan aftur út skuldabréf til
lánardrottna, allt til 6 ára. Óheim-
ilt er að gefa út skuldabréf fyrir
hærri fíárhæð en 2,5-faldri upp-
hæð skuldbreytingalána.
- Lánum er skipt í tvo flokka;
annars vegar skuldbreytingalán,
en hins vegar lán sem til endur-
skipulagningar fyrirtækja.
- Fyrirtæki koma þá aðeins til
álita við lánveitingu og skuldbreyt-
ingu að grandvöllur teljist fyrir
rekstri þeirra að loknum skipulags-
breytingum á fíárhag þeirra og
rekstri.
- Ríkisendurskoðun á að gefa
Alþingi árlega skýrslu um starf-
semi sjóðsins og skulu reikningar
hans birtir.
- Stjómarmenn geta haft fram-
kvæði að einstökum málum, en
annars gerir sérstök samstarfs-
neftid tillögur um lánveitingar til
stjómarinnar. Samstarfsnefndina
skipa fimm fulltrúar, tilnefndir af
Sambandi viðskiptabanka, Fisk-
veiðasjóði íslands, Iðnlánasjóði,
stofnlánadeild landbúnaðarins og
Byggðastofnun. Kalla má til full-
trúa viðskiptabanka þess sem sæk-
ir um lán.
- Stjómarmenn skulu ekki taka
þátt í meðferð mála sem þeim era
tengd.
- Flýta skal afgreiðslu umsókna
eins og verða má.
Um 6-8 metrar af jarðvegi liggja nú ofan á gömlp öskuhaugunum.
Neskaupstaður:
Engin hætta á PCB
mengim neysluvatns
— segir Ásgeir Magnússon bæjarstjóri
ASGEIR Magnússon bæjarstjóri á
Neskaupstað segir að engin hætta
sé á að PCB mengun berist í
neysluvatn bæjarbúa. Vatnið sé
tekið úr straumharðri á í um 10
km fjarlægð frá þeim stað sem
þéttar með PCB Aroclor eru urð-
aðir. Ásgeir telur að mál þetta
hafi verið blásið út í fjölmiðlum
meir en efni standa til.
Þéttar með PCB eru urðaðir á
gömlu öskuhaugunum á Neskaup-
stað. Ásgeir segir að þeir hafi senni-
lega komið úr gömlu síldarbræðsl-
unni og að þeir sem urðuðu þá hafi
ekki vitað hve hættulegt eftii þeir
voru með í höndunum. Ekki er vitað
nákvæmlega hve mikið magn af þétt-
um sé í haugunum en talið að það
liggi á bilinu 20 til 30 stykki.
„Þótt við teljum að umræðan um
þetta mál hafi verið blásin út meir
en efni stóðu til er hún samt nauðsyn-
leg,“ segir Ásgeir. „Bæjaryfirvöld
hér gera nú þá kröfu til Hollustu-
vemdar að mál þetta sé rannsakað
frekar. Málið er að þessir þéttar voru
urðaðir hér á áranum 1974 til 1978.
Jarðýta var notuð til að slétta út
haugana og við þurfum að vita hvort
þessi leki kom þá strax. upp og sé
kannski að fjara út núna. Eða hvort
þéttamir hafi ryðgað í sundur og
mengunin sé því rétt að byija," seg-
ir Ásgeir.
Hann telur að til að fá úr þessu
skorið verði að gera mælingar á
Neskaupstað á hveiju ári næstu árin.
Einnig verði Hollustuvemd að gefa
Morgunblaaið/Bjami
Ásgeir Magnússon bæjarstjóri á
Neskaupstað.
bæjaryfirvöldum góð ráð um hvemig
eigi að fyrirbyggja hættu af völdum
þéttanna.
Ásgeir segir að hann hafi undir
höndum skýrslu frá Hollustuvemd
um málið. Þar standi að kostnaðurr
við að fjarlægja og láta eyða jarðveg-
inum sem hugsanlega er mengaður
sé 197 krónur á hvert kíló. Um sé
að ræða 70 þúsund rúmmetra af
mold og sé kostnaðurinn því í kring-
um 14 milljarða. Þetta sjái hver
maður að er óraunhæft dæmi.
Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafiiarfírði:
Ottast ekki framgang ál-
málsins í ríkisstjórninni
ÞAÐ er ekkert launungarmál að
ég styð eindregið byggingu nýs
álvers i Straumsvík. Eg tel að
það geti verið styrkur fyrir ann-
ars ágætt atvinnulíf í bænum og
mikilvægur hlekkur i atvinnulifi
Jijóðarinnar," segir Guðmundur
Arni Stefánsson, bæjarstjóri i
Hafnarfirði. Hann hefúr tekið
þátt í viðræðum um álmálið við
innlenda og erlenda aðila fyrir
hönd Hafharfjarðarbæjar og
kveðst ekki óttast um framgang
álmálsins í núverandi ríkisstjórn.
Mikill meirihluti Alþingis sé
hlynntur byggingu nýs álvers,
reynist það hagkvæmt, og málið
sé í réttum farvegi hjá Jóni Sig-
urðssyni, iðnaðarráðherra.
Guðmundur Ámi sagði að bygg-
ing nýs álvers hefði verið rædd á
bæjarstjómarfundum og honum
hefði verið falið að taka þátt í nauð-
synlegum viðræðum um málið.
Hann hefði verið á fundum með
starfshópi fyrri ríkisstjómar og
embættismönnum iðnaðarráðu-
neytisins og einnig rætt óformlega
við hina erlendu aðila sem áhuga
hafa á smíði álversins og fulltrúa
bandaríska ráðgjafafyrirtækisisns
Bechtel. Rætt hefði verið um atriði
eins og skattamál, hafnarmál,
mengunarvamir og skipulagsmál,
en Straumsvíkurland er í lögsagna-
ramdæmi Hafnarfjarðarbæjar.
Beinar tekjur Hafnafjarðarbæjar
af álverinu í Straumsvík hafa farið
minnkandi, að sögn Guðmundar
Áma. Þær hefðu komist upp í 10%
af tekjum bæjarins en væra nú
komnar niður í 2%, meðal annars
vegna þess að hlutur bæjarins í
svonefndu framleiðslugjaldi hefði
dregist saman. Þá byggi um helm-
ingur hinna 600 starfsmanna ál-
versins í Hafnarfírði. Nýtt álver
yrði þó að öllum líkindum ekki eins
mannaflafrekt og lítil ástæða til að
óttast þensluáhrif af því. Þróun
mála að undanfömu benti til að
íslendingar þyrftu hugsanlega að
fara að hafa áhyggjur af sam-
drætti í atvinnulífinu á næstunni.
Guðmundur Árni var spurður
hvort hann óttaðist um framgang
álmálsins í ríkisstjóminni. Hann
sagði að engin breyting hefði orðið
á undirbúningi þess með stjómar-
skiptunum og af samtölum sínum
við Alþýðubandalagsmenn réði
hann að andstaða flokksins við nýtt
álver væri ekki almenn. Hann hefði
til dæmis ekki trú á að formaður
Alþýðubandalagsins, Ólafur Ragn-
ar Grímsson - sem jafnframt væri
varaþingmaður Reykjaneskjör-
dæmis - myndi bregða fæti fyrir
þetta hagsmunamál kjördæmisins.
Guðmundur Ámi sagði að tillaga
sem hann bar fram á flokksstjóm-
arfundi Alþýðuflokksins á úrslita-
stundu stjómarmyndunarviðræðn-
anna, en dró siðan til baka að ósk
formanns flokksins, hefði ekki sett
byggingu álvers sem skilyrði fyrir
stjórnarþátttöku, heldur aðeins
áréttað afstöðu Alþýðuflokksins t
málinu.
AF ERLENDUM VETTVANGi
fsrael: eftir jóhönnu kristjónsdóttur
Kosningabaráttan er hafín -
en það vantar kosningamál
Baráttan í ísrael vegna þingkosninganna þann 1. nóvember er
hafin fyrir nokkru, en fréttaskýrendum ber saman um að hún
sé með dauflegra móti og hvorki Shimon Peres, foringja Verka-
mannaflokksins, né Yitzak Shamir, forsætisráðherra og forsvars-
manns Likud-bandalagsins, hafi fram að þessu tekist að kveikja
áhuga hjá kjósendum. Þó hefúr komið fram í skoðanakönnunum,
að meirihluti ísraelskra kjósenda er frábitinn þeirri hugmynd að
samstjórn stóru flokkanna verði mynduð á ný, fari svo að styrk-
leiki verði svipaður. Mönnum finnst reynslan af þeirri stjórn sem
situr nú ekki þannig að æskilegt væri að endurtaka þann leik.
Það sem er kannski allra verst er þó, að svo virðist sem stóru
flokkarnir séu báðir í jafnmiklum vandræðum með að komast
að niðurstöðu um, hvað sé aðalmál kosninganna, svo fáránlega
sem það hljómar eftir margra mánaða „intifada" Palestínumanna
á herteknu svæðunum.
Astæðan fyrir því liggur þó
kannski í augum uppi. Það
blandast engum hugur um, að
uppreisn Palestínumanna í desem-
ber sl. kom báðum stjómarflokk-
unum í opna skjöldu og því eiga
talsmenn beggja í erfiðleikum
með að ráðast á hinn fyrir and-
varaieysi. Shamir var að vísu for-
sætisráðherra, þegar uppreisnin
hófst, en Yitzak Rabin úr Verka-
mannaflokknum bar ótvíræða
ábyrgð sem vamarmálaráðherra.
Flestir ætluðu að uppreisnin
myndi renna út í sandinn fljót-
lega, en önnur hefur orðið raunin
og þrautseigja Palestínumann-
anna þótt við ofurefli sé að etja
hefur sett báða stóra flokkana í
meiri háttar vanda.
Fram hefur komið, að áhugi
hins almenna kjósenda sé líka enn
sem komið er í lágmarki en ekki
vantar flokkana og flokksbrotin
sem bjóða fram, þeir era samtals
28 og að auki hafa svo ýmsir ein-
staklingar sem hafa annað hvort
ekki komist á neina lista eða era
ekki dús við það sem er í boði,
boðið sig fram einir og sér.
Trúarlegu flokkunum hefur
fjölgað enn, þeir era nú samtals
sex. Þessir flokkar eiga það allir
sameiginlegt að þeir hafa mjög
takmarkaðan áhuga á þjóðmálum
í víðara samhengi og sækjast fyrst
og fremst eftir að koma sínum
einkaskoðunum á framfæri í ein-
stökum málaflokkum og þá eink-
um tengdum trúarsiðum.
Áhrif hinna ýmissu trúarlegu
flokka hafa farið vaxandi á stjóm
Israels undanfarin ár, enda hefur
þótt nauðsynlegt að hafa stuðning
þeirra og á það við um báða stóra
flokkana. Þeir veigra sér við að
ganga í berhögg við vilja strang-
trúuðu gyðinganna, þó svo að
ýmsar hugmyndir þeirra sam-
ræmist hvergi nútímahugsunar-
hætti og hafi þar af leiðandi átt
sinn þátt í því að draga ísrael á
lægra plan í almennri þjóðmá-
laumræðu, að ekki sé nú talað
um tiltölulega sjálfsagða fram-
þróun. Strangtrúuðustu flokkam-
ir eru andsnúnir öllum framföram,
menn eiga að iðka guðrækni og
láta lönd og leið eftirsókn eftir
veraldlegum gæðum. Forsvars-
mönnum þessara flokka hættir
þó til nokkurrar tvöfeldni, þegar
á herðir kemur í ljós að fæstir era
þeir þeir meinlætamenn sem þeir
vilja vera láta.
Það stendur svo baráttu stóra
flokkanna fyrir þrifum, að þeir
standa uppi án málefnastefnu-
skrár, eins og áður var minnst
á. Shimon Peres, utanrikisráð-
herra, sagði að vísu í ræðu á Alls-
heijarþingi Sameinuðu þjóðanna
fyrir nokkram dögum, að nú væru
ísraelar reiðubúnir að tala við
sendinefnd Jórdana og Palestínu-
Peres utanríkisráðherra í New
York ásamt Reagan, Banda-
rílqaforseta.
manna, eða jafnvel beint við Pa-
lestínumenn. Þetta hljómaði
ágætlega uns komið er að þeim
skilyrðum sem sett era. Þessir
Palestínumenn verða að vera hóf-
samir og þeir mega náttúrlega
ekki tengjast PLO-samtökunum á
neinn hátt. Það era ísraelar sem
ætla að dæma um hveijir era
hæfir til að sitja í slíkri nefnd og
þeir hafa hvað eftir annað hafnað
hugmyndum og tillögum frá Pa-
lestínumönnum á Vesturbakkan-
um um skipan í slíka nefnd. Þar
við bætist svo að ísraelar ætla
hvorki að skila herteknu svæðun-
um né heldur leyfa stofnun Pa-
lestínuríkis og þaðan af síður vilja
þeir að komið sé á einhvers konar
sambandsríki Palestínumanna og
gyðinga. Nú hafa Palestínumenn
lýst því yfír að þeir ætli að stofna
sérstakt ríki á hemumdu svæðun-
um, með sérstakri útlagastjóm. í
þessu felst, eins og þegar hefur
verið bent á, að Palestínumenn
viðurkenna tilverarétt ísraels.
Hvorki Peres né Shamir kæra sig
um að túlka það svo og vísast að
báðir hafni þessu. Shamir er þó
sýnu ósveigjanlegri og hamrar
enn á því að ísraelar tali aldrei
við PLO sem augljóslega séu pott-
urinn og pannan í þessu nýja
uppátæki. „PLO vill eyða ísrael,"
segir hann og lætur eins og vind
um eyra þjóta að PLO hefur á
undanfömum mánuðum og áram
verið að fjarlægjast allar þær
hugmyndir í þá átt. Því vefst fyr-
ir mér og væntanlega fleiram að
skilja hvað ísraelar eiga við, þeg-
ar gefnar era yfirlýsingar eins og
Peres gerði hjá Sameinuðu þjóð-
unum, um að nú væri orðið tíma-
bært að tala við Palestínumenn.
Það er vandséð hvað ísraelar hafa
að semja um, meðan þeir kvika
ekki frá úreltum skoðunum sem
ekki fá staðist nú um stundir og
bera vott um ofsóknaræði.
Þá hefur Rabin vamarmálaráð-
herra kastað olíu á eldinn með
því að segja það að ísraelar muni
í auknum mæli beita plastkúlum
í viðureign við uppreisnaröfl á
Vesturbakka og Gaza, til þess að
særa sem allra flesta og draga
þannig úr baráttuþreki Palestínu-
manna. Ummæli Rabins vöktu —
og ekki í fyrsta sinn — mikla
andúð og reiði víða um lönd. Blað-
ið Jerasalem Post sá ástæðu til
að skrifa sérstaka forystugrein til
að skýra út hvað Rabin hefði ekki
meint. Blaðið benti á að Rabin
væri ekki nógu laginn í samskipt-
um við fíölmiðla. Það sem hann
hefði ætlað að segja hefði verið
að með þessu móti mundi verða
komið í veg fyrir mannfall, því
að eingöngu sérþjálfaðir mættu
skjóta þessum plastkúlum og að-
eins miða á fætuma.
Hins vegar fór að versna í því,
sagði Jerasalem Post, þegar kom
í ljós að þessar kúlur gátu drepið,
ekki síður en venjulegar byssukúl-
ur. Sennilega hefði ráðherrann
ekki áttað sig á því. Menn væra
minnugir þess að Rabin hefði
skömmu eftir síðustu áramót lagt
til að hermenn beittu síður skot-
vopnum í viðureign við Palestínu-
menn, en lemdu þá í staðinn sund-
ur og saman, en ættu helst ekki
að gera það svo hraustlega að
menn hefðu bana af. Fljótlega
kom svo í ljós að ísraelsku her-
mennirnir misstu sumir hveijir
gersamlega stjóm á sér í barsmíð-
unum svo að Rabin ákvað að
líklega væri betra að hætta
barsmíðunum.
Einu spámar um væntanlegar
kosningar ganga út á það nú að
öfgaflokkar til hægri og vinstri,
svo og trúarlegu flokkamir, muni
sennilega fá fleiri atkvæði og þá
á kostnað stærri flokkanna. Upp-
reisnin á hemumdu svæðunum —
og vanmáttur stjómarinnar til að
leiða málið til lykta, hefur veikt
tiltrú manna á stjómarflokkunum.
Sú staða sem gæti komið upp í
ísrael eftir kosningamar kynni
að verða enn ruglingslegri en sú
sem nú er og varla til þess fallin
að greiða úr vandamálum ríkisins.
Shamir á atkvæðaveiðum.
Uppreisnin kom báðum stjórnarflokkunum í opna skjöldu.