Morgunblaðið - 10.11.1988, Page 1
72 SIÐUR B
258. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 10. I'íÓVEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunbiaðsins
kiine mm in
s. ÓSURRUCH l
WAtDH E!M i
ABTRETEfO
HOHmsmmsrmÁr
WALDHEIMsm"
Verkföllum hætt í Póilandi:
Walesa boðar að-
gerðir næsta vor
- hundsi stjórnvöld kröfur Samstöðu
Gdansk. Reuter.
VERKFALL, sem ungir og rót-
tækir fylgismenn Samstöðu, hinn-
ar óleyfilegu hreyfingar pólskra
verkamanna, hófii í Gdansk á
þriðjudag rann út i sandinn í gær.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
lýsti yfir því að hafin yrði ný sókn
í nafni hreyfingarinnar næsta vor
féllu stjómvöld ekki frá þeirri
ákvörðun að loka Lenín-skipa-
smiðjunum i Gdansk.
Um 500 ungir verkamenn hófu
verkfall á þriðjudag í Wisla-skipa-
smíðastöðinni í Gdansk eftir að Wal-
esa hafði neitað að verða við ákalli
þeirra um að boða til allshetjarverk-
falls í Póllandi. Krafa verkfallsmanna
Reuter
George Bush (t.v.) ásamt James Baker, sem forsetinn nýkjörni hefiir tilnefnt til embættis utanrikisráð-
herra. Myndin var tekin er þeir sóttu guðsþjónustu í Houston i gær áður en George Bush hélt til fundar
við blaðamenn.
George Bush kjörinn 41. forseti Bandaríkjanna:
Hvetur til sátta og heit-
ir samvinnu við þingheim
Houston, Waahinglon. Daily Telegraph, Reuter.
GEORGE Bush, frambjóðandi RepóhHkfttmflnkkfiinfl, var aðfaranótt
miðvikudags lgörinn 41. forseti Bandaríkjanna. Bush hlaut 54 prósent
greiddra atkvæða og sigraði andstæðing sinn, demókratann Michael
Dukakis, i 40 af 60 rikjum Bandaríkjanna. Með þvi tryggði Bush sér
atkvæði 426 kjörmanna gegn 112 atkvæðum Dukakis en 270 kjörmanna-
atkvæði nægðu til sigurs. Bush hvatti til sátta og þjóðareiningar í
ræðu er hann flutti þegar úrslitin lágu fyrir en barátta þeirra Dukak-
Í8 um forsetaembættið þótti óvenju harðvítug. Bush hét þvi að eiga
nána samvinnu við þingmenn, en demókratar styrktu stöðu sína á þingi
í kosningunum. Bush skýrði sfðan frá þvi i gærdag að hann hefði val-
ið James Baker, kosningastjóra sinn og fyrrum Qármálaráðherra, til
að gegna embætti utanríkisráðherra.
Forsetinn nýkjömi, sem mun
sveija embættiseið þann 20. janúar
næstkomandi, hét þvi að gera hvað
hann gæti til að eiga nána samvinnu
við þingmenn en Demókrataflokkur-
inn styrkti stöðu sína í báðum deild-
um Bandaríkjaþings í kosningunum
og hefur þar traustan meirihluta.
Bush fór vinsamlegum orðum um
Dukakis og kvaðst sannfærður um
að báðir vildu þeir efla Bandaríkin á
alla lund þrátt fyrir ágreining þeirra
í kosningabaráttunni. Dukakis sagði
á fundi með stuðningsmönnum sínum
í Boston að demókratar vildu eiga
samvinnu við hinn nýkjöma forseta.
„Þjóðin stendur frammi fyrir krefj-
andi verkefnum. Við verðum að
standa saman," sagði Dukakis, sem
kvaðst vera „vonsvikinn, en jafn-
framt stoltur".
Bush skýrði frá því á blaðamanna-
fundi í gær að hann hefði ákveðið
að tilnefna vin sinn og samstarfs-
mann, James Baker, til embættis
utanríkisráðherra. George Shultz,
fráfarandi utanríkisráðherra, fagn-
aði þessari ákvörðun og sagði Baker
rétta manninn til að gegna því emb-
ætti. Bush kvaðst aðspurður ekki sjá
neinn tilgang f því að hitta Míkhaíl
S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga að máli
fyrr en tryggt væri að fundur þeirra
gæti skilað árangri.
Sovétmenn létu í ljós þá von í gær
að kjör Bush gæti stuðlað að áfram-
haldandi slökun á spennu í samskipt-
um risaveldanna. Talsmaður stjóm-
valda þar kvaðst vongóður um að
unnt yrði að boða til leiðtogafundar
á næstu mánuðum og skýrt var frá
því að Gorbatsjov hefði sent Bush
heillaóskaskeyti. Leiðtogar ríkja
Vestur-Evrópu sendu Bush ámaðar-
óskir og bandamenn Bandaríkjanna
í Asíu fögnuðu kjöri hans. Talsmenn
hófsamra Arabaríkja létu í ljós þá
von að kjör Bush gæti orðið til þess
að greiða fyrir viðræðum um málefni
Palestínumanna í ísrael og frið í
Mið-Austurlöndum.
Sjá einnig forystugrein á
miðopnu og fréttir á bls. 26, 27
og 30.
var sú að fallið yrði frá lokun Lenín-
skipasmiðjanna.
Lech Walesa sagði á blaðamanna-
fundi í gær að hafín yrði ný sókn
næsta vor hefðu stjómvöld ekki orð-
ið við kröfu þessari. Hann kvað and-
óf ungu verkamannanna sýna ljós-
lega að leiðtogar Samstöðu gætu
ekki haft hemil á fylgismönnum
sínum ef stjómvöld hundsuðu kröfur
þeirra. Því væri brýnt að ráðamenn
þjóðarinnar tækju þegar að leita
lausna.
ísrael:
Barn skot-
ið til bana
Jerús&Iem, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ÍSRAELSKIR hermenn skutu
þriggja ára gamalt barn til bana
og særðu að minnsta kosti tvo
Palestínumenn á Gaza-svæðinu í
gær er ibúarnir minntust þess að
11 mánuðir voru liðnir frá upp-
reisn þeirra gegn hernámi ísraela.
Fréttir þesSar voru hafðar eftir
starfsfólki sjúkrahúss í Gaza-borg
en talsmenn hersins sögðu að unnið
væri að rannsókn málsins. Sömu
heimildir hermdu að ekki færri en
átta menn hefðu særst I átökum við
hermenn ísraelsstjómar. Uppreisn
Palestínumanna á hinum hemumdu
svæðum ísraels hófst 9. desember
síðastliðinn og hafa ekki færri en
319 þeirra fallið.
Skýrt var frá því í gær að Yasser
Arafat, leiðtogi PLO, hefði sótt um
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna til
að sitja Allsheijarþing Sameinuðu
þjóðanna, sem nú stendur yfír.
Bandarísku stöðvarnar á Grænlandi:
Rætt um endumýjun
varnarsamningsins
Nuuk. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttarítara Morgunblaðsins.
DANSKA ríkisstjórnin hefur fall-
ist á kröfii grænlensku lands-
stjómarinnar þess efiiis að hafiiar
verði viðræður við stjórnvöld í
Bandarikjunum um endurnýjun
varaarsamningsins frá árinu
V estur-Evrópusambandið:
Tvö ný aðildarríki
London. Reuter
Spánveijar og Portúgalir
munu ganga í Vestur-Evrópu-
sambandið í næstu viku, að þvi
er haft var eftir ónefiidum
breskum heimildarmönnum í
gær.
Þeir hinir sömu sögðu að
ríkjunum yrði veitt formleg aðild
á mánudag á ráðherrafundi aðild-
arríkjanna sjö í London. Ríkis-
stjómir beggja ríkjanna þurfa
síðan að staðfesta inngönguna.
Vestur-Evrópusambandið var
stofnað árið 1954 til að efla vam-
arsamvinnu Evrópuríkja og auka
þátt þeirra í hinum sameiginlegu
vömum ríkja Atlantshafsbanda-
lagsins.
1951. Jonathan Motzfeldt, for-
maður grænlensku landsstjórnar-
innar, hefur sagt að taka þurfi
samninginn til endurskoðunar áð-
ur en unnt sé að ræða hugmyndir
um að lagður verði varaflugvöllur
í Meistaravík og önnur þau atriði
sem kunni að hafa aukin umsvif
Bandaríkjamanna i för með sér.
Samningur Dana og Bandaríkja-
manna um afnot af grænlensku land-
svæði var gerður árið 1951 og komu
fulltrúar Grænlendinga þar hvergi
nærri. Á undanfömum árum hafa
Grænlendingar hins vegar tekið auk-
inn þátt í viðræðum, sem varða að-
stöðu Bandaríkjamanna á Græn-
landi. Þannig samþykktu Banda-
ríkjamenn fyrir tveimur árum að láta
eftir hluta landsvæðisins í kringum
ratsjárstöðina í Thule og fengu veiði-
menn þar með á ný aðgang að svæð-
um, sem ekki höfðu verið nýtt í rúm
30 ár.
Reuter
Kristalsnæturinnar minnst
Mótmæli gyðinga settu mark sitt á minningarathafnir sem fram fóru í
gær í Austur- og Vestur-Þýskalandi og Austurríki en þá voru 50 ár liðin
frá Kristalsnóttinni svonefndu, sem markaði skil í sögu ofsókna nasista
á hendur gyðingum. Fimm ungir menn gerðu hróp að Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands, er hann flutti ávarp í bænahúsi gyðinga í
Frankfurt. í Vínarborg, þar sem myndin var tekin, var Kurt Waldheim,
forseti Austurríkis, vændur um að hafa tekið þátt í glæpum nasista á
árum síðari heimsstyijaldarinnar. Nafn Waldheims var ritað á gangstétt
í borginni og síðan þvegið af með stórum bursta.
Sjá ennfremur „Af erlendum vettvangi" á bls. 38.