Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988 Hestamannafélagið Léttir 60 ára: Hlutverk formanns LH er að sameina félögin á ný — segir Jón Olafiir Sigfósson formaður Léttis Hestamannafélagið Léttir varð 60 ára síðastliðinn laugar- dag. Þá var nýtt félagsheimili þeirra tekið i notkun í Breið- holti þeirra Akureyringa. Húsið, sem er um 100 fermetra timbur- hús, hefur verið f byggingu siðan 1983. Efht var til samkeppni um nafn á félagsheimilið. Fjórtán ára drengur, Sigfús Jónsson, fékk reiðbeisli að launum fyrir bestu nafngiftina og heitir nýja húsið nú Skeifan. - Eins og kunnugt er hafa flögur hestamannaféiög við Eyjaflörð, Léttir, Funi, Hringur og Þráinn, sagt sig úr Landssambandi hesta- mannafélaga vegna ágreinings við stjóm LH um staðarval fyrir lands- mót hestamanna 1990. Jón Ólafur Sigfússon formaður Léttis sagði að mál þetta væri í algjörri bið- stöðu eins og væri. „Ég verð að segja að ég á von á því að félögin fjögur gangi aftur inn í landssam- bandið. Áður en af því getur orðið, þarf að leysa ákveðin samskipta- vandamál milli stjómar LH og stjóma eyfirsku félaganna. Við töldum okkur hafa verið svikna um landsmótshaldið árið 1990 sem við vorum búnir að fá vilyrði fyrir. Halda átti mótið á Melgerðismelum í Eyjafirði, en þess í stað var því valinn staður á Vindheimamelum í Skagafirði. Þegar sá samningur, sem gerður hafði verið, var ekki haldinn kom deilan upp. Fulltrúar eyfirsku félaganna hafa hitt stjóm- armenn LH tvisvar frá því að félög- in sögðu sig úr samtökunum. í fyrra skiptið mættust jám í jám og í seinna skiptið samþykkti stjóm LH afsökunarbeiðni til eyfirsku hestamannafélaganna sem er vissulega skref í átt til samkomu- lags,“ sagði Jón Ólafur. Nýr formaður Landssambands hestamannafélaga, Kári Amórs- son, var lqörinn fyrir skömmu. Um nýja formanninn sagði Jón Ólafun „Við skulum vona að maðurinn vitkist með meiri völdum, taki sitt hlutverk hátíðlega og reyni að leiða félögin saman í eina sæng aftur. Það er hans hlutverk. Að okkar mati á frumkvæði til sátta og sam- einingar félaganna að koma frá Morgunblaðið/Rúnar Þór Hluti stjórnar Léttis við nýja félagsheimilið ásamt byggingar- nefiid. Frá vinstn: Guðrún Hallgrímsdóttir, Jón Ólafur Sigfús- son, Ingólfiir Sigþórsson, Björn Jónsson, Hólmgeir Valdimarsson, Sigurður Arni Snorrason og Stéfán Stefánsson. stjóm LH, sem setti sprengjuna arval," sagði formaður Léttis að af stað með því að breyta um stað- lokum. stórgóðir sleðar á frábæru verði r*3fr-\ INDY6S0 96 HÖ Kr. 473.000,- INDYS00 74 HÖ ST.D. Kr. 405.400,- S.K.S. Kr. 429.500,- INDY500CLASSK 74 HÖ Kr. 439.000.- NDY400 64 HÖ Kr. 379.000 - INDYTRML 56 HÖ S.P. Kr. 358.500 - INDYSP0RT 35 HÖ Kr. 278.500 - S.K.S. Kr. Deluxe Kr. INDYTUULSUPBtTMK 52 HÖ Kr. 410.000 - IHDYSPORTGT 35 HÖ Kr. 310.000,- Öll verð eru afþorgunarverð m/v gengi 27.10/88 STAÐGREIÐSLUAFSLÁ TTUR! ALLAR NÁNARI UPPL ÝSINGAR UM POLARIS SLEÐANA FÁST HJÁ: HJÚLBAROAÞJÖNUSTAN AKUREYRI Hvannavöllum 14 B sími 96-22840 H.K. ÞJÖNUSTAN KÖPAV0GI Kársnesbraut 108 sími 91-46755 Ferðamálaráðstefna 1988: Otrúlegt skilningsleysi á þýðingu ferðaþjónustu - segir Sigfus Jónsson bæjarstjóri „Yfirstjóm ferðamála í landinu er máttvana vegna Qárskorts og sýnir það ótrúlegt skilningsleysi á þýðingu þessarar atvinnugreinar fyrir þjóðarbúið. Hagskýrslugerð um ferðamannaþjónustu er alls ekki í nægilega góðu lagi. Bæði er erfitt að skilgreina hvaða starfisemi falli undir ferðamannaþjónustu og svo hitt að nákvæmari upplýsingasöfiiun virðist skorta," sagði Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri m.a. í ræðu sinni á Qölmennri ferðamálaráðstefnu, sem haldin var á Akur- eyri um síðustu helgi. Sigfús fjallaði um skipulagningu ferðamannaþjónustu og þýðingu hennar í þjóðarbúskap íslendinga sem meta mætti út frá Qölda starfa í greininni, efnahag fyrirtækja og útflutningstekjum. „Árið 1976 voru samþykkt á Alþingi ný lög um skipu- lag ferðamála. Með lögunum voru Ferðamálaráði falin mjög víðtæk verkefni og tekjustofn til 'að sinna þeim, sem var 10% af söluverðmæti Fríhafnarinnar. Allir hér inni þekkja hvemig þetta lagaákvæði hefur verið framkvæmt. Þau sviknu fyrirheit, sem lögin frá 1976 gáfu, eru ekkert einsdæmi hjá íslenskum stjómmála- mönnum," sagði Sigfús. Fram kom í máli bæjarstjóra að efnahagur fyrirtækja í ferðamanna- þjónustu sé mjög misjafn. Eigið fé væri takmarkað, einkum í veitinga- og gistihúsarekstri. í fyrra vom út- flutningstekjur af vömm og þjónustu 74,5 milljarðar króna, þar af vom 3,3 milljarðar vegna ferða- og dvaiar- kostnaðar erlendra ferðamanna á íslandi. Til viðbótar má áætla ekki miklu lægri upphæð sem fargjalda- tekjur fslensku fiugfélaganna af er- iendum ferðamönnum. Gjaldeyr- istekjur af erlendum ferðamönnum vom því líklega 5,5 til 6,0 milljarðar króna, eða 7-8% af heildarútflutn- ingstekjum þjóðarinnar. Ef þeir bara þora... Sigfús sagði að á þessu ári hefði gætt nokkurrar stöðnunar í ferða- mannaþjónustu og spuming væri hvort vaxtarskeiðið væri á enda um sinn. í því sambandi myndi verðlag og gengismál ráða miklu. „Ég tel frelq'u og yfirgang einstakra starfs- stétta hafa skaðað ferðamannaþjón- ustuna. Vanti einn hlekk í röð þeirra þjónustuaðila sem ferðamaðurinn á viðskipti við, bíður öll greinin skaða af. Flugið er langviðkvæmast fyrir aðgerðum stéttarfélaga, sem fara gjaman í verkföll á misjöfnum tíma og fiugmenn hafa þá sérstöðu að geta skapað verkfallsáhrif með hægagangi við störf. Tvö sl. sumur vom þeir vikum saman með aðgerðir f innanlandsflugi og stórskemmdu fyrir fyrirtæki sínu og ferðaþjón- ustunni f heild. Samgönguráðherrar sfðustu ára og áratuga hafa aldrei fengist til að grípa hér inn í og setja flugmönnum úrslitakosti. Til þess hafa þeir mörg ráð ef þeir bara þora." Bæjarstjóri skoraði á samgöngu- ráðuneytið að setja ströng skilyrði fyrir nýja leyfishafa, en lejrfin í inn- anlandsfiugi verða endumýjuð að ári fyrir næsta fímm ára tímabil, 1990- 1994. Þá nefndi hann fólksflutninga á landi. Það tilheyrði ekki nútíman- Blaðbera vantar í Arnarsíðu - Keilusíðu - Kjalarsíðu - Vestursíðu. Óskum sérstaklega eftir fólki, sem getur borið blaðið út um leið og það kemur. - Hressandi morgunganga! Hlar0mtUablb Hafnarstræti 85, Akureyri. S. 23905. um að blanda saman farþega- og vöruflutningum nema f mesta strjái- býlinu. Setja þyrfti á fót umferðar- miðstöðvar á stöðum eins og Borgar- nesi, Selfossi og Egilsstöðum. Sigfús telur að gott flugvallarhótel við hlið- ina á Flugstöð Leifs Eiríkssonar myndi njóta vinsælda bæði hjá lands- byggðarfólki og erlendum ferða- mönnum. Einnig telur hann að íbúð- arhótel í Reykjavík fyrir fjölskyldur utan af landi gæti orðið mjög arðbær fjárfesting. „Þá tel ég vera rekstrar- gmndvöll fyrir nýju vönduðu hóteli á Akureyri til viðbótar við Hótel KEA og Stefaníu. Loks bendi ég á mögu- leika á að byggja orlofshúsahverfí í útjaðri höfúðborgarsvæðisins sem yrði bæði fyrir útlendinga og lands- byggðarfólk." Sigfús sagði að fjár- festingar reykvfskra fyrirtækja og athafnamanna í ferðaþjónustu ein- kenndust af skorti á innsæi á nýjum möguleikum. Kælítæknigaf VMAkælitæki KRISTINN Sæmundsson eigandi fyrirtækisins Kælitækni í Reykjavík afhenti Verkmennta- skólanum á Akureyri formlega í fyrradag kælivél, sem ætluð er við kennslu á vélstjórnarbraut. Kristinn flytur vélar þessar inn frá Austurriki og eru þær af gerðinni Frigopol. Samskonar vél myndi kosta um 55.000 krón- ur. „Ég var á þingi Landssambands iðnaðarmanna á Akureyri fyrir um það bil ári. í fundarhléi var fundar- gestum m.a. boðið að skoða Verk- menntaskólann og fór ég þangað. Mér fannst mjög skemmtilegt að koma í skólann og sá að margar deildanna voru vel búnar tækjum. Hinsvegar fannst mér skólann vanta það tæki, sem ég sýsla dag- lega með, og hafði ég þá strax á orði að gefa mönnum hér eitt slíkt tæki til afnota. Nú er það sem sagt komið þó liðið sé um ár síðan ég lét þessi orð falla," sagði Kristinn er hann afhenti Baldvini Bjamasyni skólameistara tækið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.