Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 60
Morgunblaðið/Sigurgeir Sigurvon á strandstað í Við- lagavík snemma i gærmorgun. Björgunarmenn fylgjast með. Innfellda myndin er tekin ör- skömmu eftir að Lóðsinn náði Sigurvon af strandstað. Söluskattsskuld- ir þrír milljarðar VANGOLDINN söluskattur til ríkisins nemur rúmum þremur milljörðum króna. Ólafur Ragn- ar Grímsson Qármálaráðherra upplýsti þetta á fundi Kaup- mannasamtakanna í gærkvöldi og benti á að þetta væri álíka upphæð og talið var að halli ríkissjóðs næmi í ár. Fjármálaráðherra sagðist þó gera sér grein fyrir að þetta væri að einhverju leyti tapað fé, þar sem skuldunautamir væru ekki allir í stakk búnir til þess að standa í skilum. Hann sagði að þáttur smá- og heildsöluverslunarinnar í þess- ari skuld væri 1291 milljón króna. Tillögur nefiidar landbúnaðarráðherra: Fiskeldi fái tveggja milljarða ríkisábyrgð NEFND sem landbúnaðarráðherra skipaði til að athuga rekstrarflár- mögnun fiskeldis leggur til að stofnuð verið sérstök deild við rikis- ábyrgðasjóð til að ábyrgjast afurðalán sem bankar lána fiskeldisstöðv- um. Við það er miðað að þessi nýja deild megi ábyrgjast lán að há- marki IV2 til 2 milljarðar kr. Með þessu er að því stefiit að fiskeldið fái afurðalán fyrir allt að 75% framleiðslukostnaðar, í staðinn fyrir innan við 50% nú. Tillaga nefiidarinnar er f frumvarpsformi. Hún var afhent landbúnaðarráðherra fyrir nokkru en hefur ekki verið lögð fi-am f rfkisstjóminni. í nefnd landbúnaðarráðherra áttu sæti Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðu- neytinu, Óssur Skarphéðinsson fískeldisfræðingur og Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður. í til- lögum nefndarinnar er gert ráð fyr- ir að stofnuð verði Tryggingadeild fískeldis við Ríkisábyrgðasjóð. Deildinni er einungis heimilað að veita ábyrgð með fullu veði í afurð- unum, nema hvað undanþágu megi veita hafbeitarstöðvum. Keflavík: 17 áraungl- ingurjátar innbrot en neitar íkveikju LÖGREGLAN f Keflavfk handtók á mánudag 17 ára pilt sem grunaður var um að hafa brotist inn f Kaupfélag Suðurnesja og jafiifiramt orð- ið valdur að íkveikju. Krafist var gæsluvarðhalds yfir pilt- inum, en f gær var krafan dregin til baka eftir að pilt- urinn hafði játað innbrotið. Hann hefur ekki gengist við íkveikjunni og ber við minn- isleysi vegna ölvunar en sterkar líkur eru taldar á því að hann eigi sök á henni. Að sögn Víkings Sveinsson- ar, rannsóknarlögreglumanns í Keflavík, fannst jakki piltsins skammt frá innbrotsstaðnum á mánudag og leiddi það til þess að hann var handtekinn. Hann neitaði í fyrstu en á þriðjudags- kvöld játaði hann innbrotið. Þýfíð, nokkra poka af sígarett- um og sælgæti, sagðist hann hafa falið í sorptunnu skammt frá innbrotsstaðnum. Þegar haft var samband við sorp- hreinsunarmenn kom í ljós að það stóð heima, en þeir höfðu álitið þýfíð ónýtan lager úr búðinni og farið með það í sorp- eyðingarstöðina. Friðrik Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands físk- eldis- og hafbeitarstöðva, segir að fískeldisfyrirtækin séu komin í þrot. Tekin hafí verið ákvörðun um að setja þennan mikla fjölda seiða í eldi og nú væri fískurinn orðinn það stór að ekki væri aftur snúið. Hins vegar ættu fyrirtækin ekki fyrir kostnaði vegna þess að enn hefði ekki verið gengið frá fjármögnun rekstrarins. Hann taldi að ef tillög- ur nefndar landbúnaðarráðherra komast f framkvæmd verði rekstur lífvænlegra fyrirtækja í greininni tryggður. Ný möstur á Rjúpnahæð PÓST— og símamálastofhunin hefur hafist handa við að reisa þijú 40 metra há fjarskiptamöstur á landi stofnunarinnar við Rjúpna- hæð. Möstrin eru reist vegna alþjóða- flugþjónustu stofnunarinnar og fyár- mögnuð með tekjum af þeirri starf- semi. Um 3h af starfsemi Pósts og síma á Rjúpnahæð tengist þessari þjónustu. Hér er um hreina viðbót við fjölda mastra á Rjúpnahæð að ræða og munu eldri möstur ekki verða rifín niður. Mannbjörg er Sigurvon ST strandaði við Eyjar: Báturinn náðist á flot lítið skemmdur Vestmannaeyjum. Sigurvon ST 54, sextíu tonna eikarbátur, strandaði f Viðlagavfk f austurkanti nýja hraunsins í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fjórir skipverjar voru á bátnum og var þeim öllum bjargað. Sigur- von náðist sfðan af strandstað sfðdegis f gær. Það var um kl. 6.30 í gærmorg- un að skipstjórinn á Sigurvon ST 54 hafði samband við Vestmanna- eyjaradíó og tilkynnti um strand- ið. Veður var þá þokkalegt, suð- austan kaldi og lítill sjór. Björgun- arsveitir voru strax kallaðar út ásamt áhöfn dráttarbátsins Lóðs- ins. Um kl. 7 voru Lóðsinn og Far- sæll, bátur hjálparsveitar skáta í Eyjum, komnir á strandstað. Þá var strax hafíst handa við að ná skipveijum Sigurvonar frá borði. Voru þeir teknir um borð í Farsæl- an og feijaðir með honum í Lóðs- inn. Sigurvon var að koma til hafn- ar eftir veiðiferð og voru allir skipvetjar frammi í lúkar nema skipstjórinn sem var einn í brú. Talsvert högg kom á bátinn þegar hann tók niðri. Skipstjórinn fékk við það höfuðhögg og hlaut áverka af þeim sökum. Var hann, strax og komið var með mennina til lands, lagður inn á sjúkrahúsið í Eyjum. Fljótlega eftir að áhöfn Sigur- vonar hafði verið bjargað bætti talsvert í veður auk þess sem þá var að fjara út og var því ákveðið að bíða með björgunaraðgerðir þar til 'síðdegis. Undirbúningur fyrir björgun bátsins hófst strax. Um kl. 16.00 í gærdag náðu síðan varðskipið Ægir og Lóðsinn að draga bátinn af strandstað og var hann færður til hafnar í Eyjum. Lítill sem enginn leki var kominn að bátnum og við fyrstu athugun virtist ekki vera mjög alvarlegar skemmdir að sjá á bátnum. Skipveijar á Sigurvon hófu að landa afla skipsins í gærkvöldi en síðan átti að taka bátinn í slipp til frekari athugunar og viðgerða. Skipstjóri og útgerðarmaður Sigurvonar er Sigubjöm Hilmars- son. Grímur Togarar Hraðfrystihúss Keflavíkur: Sandgerðingar vilja kaupa Sala skipanna leysir engan vanda, segir Ólafur Jónsson hjá HK VALBJÖRN hf, útgerðarfélag í Sandgerði, vill kaupa annan eða báða togara HK, Aðalvík og Bergvík, sem ætlunin er að skipta fyr- ir firystitogarann Drangey frá Sauð&rkróki. Ólafur Jónsson vara- formaður stjórnar HK segir að sala skipanna eða aukið eigið fé f fyrirtækinu leysi ekki vanda þess á meðan sjávarútvegsfyrirtæki búi við óbreytt rekstrarskilyrði. Ólafur G. Einarsson þingmaður Reyknesinga segir Sambandið vera einungis að hugsa um eiginn hag með þessum fyrirhuguðu skipaskiptum. „Við viljum kaupa að minnsta kosti annað skipið og við teljum okkur geta fjármagnað það, ef við fáum nauðsynlega fyrirgreiðslu. Við erum að tala við alla aðila og höfum alls staðar fengið jákvæð viðbrögð,“ sagði Eyþór Jónsson hjá Valbimi hf í gær. Hann býst við að kauptilboð verði gert í dag eða á morgun. Suðumesjamenn em óánægðir með að skipin, og þar með kvóti þeirra, eigi að fara af svæðinu og hafa þingmenn kjördæmisins beitt sér fyrir því að lánafyrirgreiðslu Byggðastofnunar yrði frestað í því skyni að vinna tíma til að finna Hraðfrystihúsi Keflavíkur rekstrar- grundvöll. Ólafur G. Einarsson seg- ir að meirihlutaeigandi HK og fyrir- tækjanna á Sauðárkróki sem hlut eiga að máli, það er SÍS, vilji tryggja sinn hag með þessum skipa- skiptum án tillits til hagsmuna byggðarlagsins og lýsir undrun sinni á að stjómarmenn Byggðar- stofnunar láti slíkt viðgangast. Ólafur Jónsson segir að sala skip- anna eða aukið eigið fé til rekstrus HK leysi engan vanda. Verið sé að endurskipuleggja allan rekstur fyr- irtækisins og rekstrarskilyrði sjáv- arútvegsfyrirtækja vera slík, að aukið eigið fé yrði upp étið á skömmum tíma og þá stæði fyrir- tækið á ný í sömu sporum. Sjá ennfremur bls. 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.