Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988 Honda 8Q Civic 3ja dyra 16 ventla Verð frá 623 þúsund, miðað við staðgreiðslu á gengi 1. nóv. 1988 NÝ AFBORGUNARKJÖR ÁN VAXTA OG VERÐBÓTA. WHONDA VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900 STOR RÝMINGAR SAIA! Kápur - Frakkar Ullarkápur frá kr. 4000.- NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ! KÁPGSALAN BORGARTÚNI 22 SÍMI23509 Ifw* Oðinsgata o.fl. Stekkir VOGAHVERFI ■ SELTJARNARNES Sunnuvegur Melabraut Laugarásvegur 32-66 BREIÐHOLT AUSTURBÆR Hjónaminning: Sigursteinn Guðjóns- son — Sigurbjörg Marteinsdóttir Fæddur 21. janúar 1917 Dáinn 4. september 1980 Fædd 7. nóvember 1913 Dáin 31. október 1988 Er ég sit hér staðráðinn í því að heiðra minningu ömmu og afa með því að skrifa um þau nokkrar línur, leita fram í hugann minningar um allar þær stundir sem við áttum saman. Ljúfar minningar sem ekki er hægt að segja frá í stuttu máli heldur rúma heila mannsævi. Amma og afi voru Austfírðingar og voru mjög stolt af því. Þau flutt- ust frá Fáskrúðsfírði til Reykjavíkur er mamma mín var á fímmta ári og settust að á Laugamesvegi 108. Þar var ég hjá þeim meira og minna fyrstu átta ár ævi minnar, en þau pössuðu mig á meðan mamma og pabbi voru að vinna. Við afí vorum mjög góðir vinir. Hann hafði alltaf tíma fyrir lítinn afastrák sem hafði svo margs að spyija. Reyndar hafði hann alltaf tíma til að hjálpa öðrum og var fyrstur manna til að rétta hjálpar- = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA- LAGER Enn er hitastillta bað- blöndunartækið frá Danfoss nýjung fyrir mörgum. Hinir sem til þekkja njóta gæða þeirra og undrast lága verðið. hönd þótt hann hefði nóg að starfa og fyrir stórri fjölskyldu að sjá. Saman fórum við afí í stuttar veiðiferðir og þar sagði hann mér veiðisögur sem ég hlustaði á með aðdáun og ég var staðráðinn í því að verða eins og afí. Hönd í hönd leiddumst við um Laugamesið, virt- um fyrir okkur garðana og töluðum um allt á milli himins og jarðar. Yfírleitt enduðu þessar gönguferðir niðri í fjöru, því sjórinn var afa mjög hugleikinn. Ekki má gleyma bæjarferðunum, því þær voru há- punkturinn. Þangað fórum við til að virða fyrir okkur mannlífið, sjá búskapinn hjá öndunum og kíkja á skipin við höfnina. Yfírleitt enduð- um við á því að fá okkur kaffísopa einhvers staðar og kaupa lítinn bíl handa mér. Það var eins gott að maður var ekki búinn að óhreinka sig fyrir þessar ferðir, því afí var snyrtimenni hið mesta og vildi hafa snáðann sinn sómasamlega til fara. Já, þau vom ófá leyndarmálin sem við áttum saman og enginn fékk að vita um eða fær nokkm sinni að vita, nema ef vera kynni að ég trúi einhveijum litlum snáða fyrir þeim í framtíðinni. Við afi gátum alltaf verið vissir um það að heima biði amma. Það var ekki amalegt að koma heim til hennar. Á móti okkur lagði ilminn af kjötsúpunni hennar. Enginn get- ur búið til kjötsúpu eins og hún amma gerði. Já, hún amma var ekki síðri vinur en hann afi þó ekki ættum við saman nein leyndarmál. Hún kenndi mér að leggja á kabal og spila og lét mig lesa í Gagn og gamni. Þegar daginn tók að stytta kveiktum við á kerti og amma las fyrir mig sögu eða sagði mér frá æskuslóðum sínum og afa. Hún hafði yndi af að syngja og söng vei. Röddin var sterk og enginn hætta á að matmálstíminn færi fram hjá mér, hvar sem ég var staddur í hverfinu. Ljúfastar eru þó minningamar frá undirbúningi jólanna. Enn þann dag í dag finn ég fyrst fyrir komu jólanna þegar ég er búinn að hjálpa ömmu að pakka inn jólagjöfunum og ná í jólaskrautið. Það var ein- hver sérstök lykt hjá afa og ömmu í Laugamesinu, sem tilheyrði jólun- um og ég fann hvergi nema þar. Eftir að afí dó áttum við amma oft indælar stundir saman, er við sátum daglangt og spiluðum og skemmt- um okkur við minningar frá liðnum stundum, þegar afi var enn hjá okkur. Við amma vorum sammála um það að einhvemtíma yrðum við öll saman á ný. Ég er ekki einn um að eiga ljúf- ar minningar um þessi ágætu hjón. Það eiga einnig bömin þeirra sex, tengdabömin og bamabömin. Ég veit að ég tala fyrir munn þeirra allra er ég þakka afa og ömmu fyrir samveruna og gef þeim fyrir- heit um endurfundi. Afí og amma vom mér ljúf og góð. Margs er að minnast og margs er að sakna. Hafí þau þökk fyrir allt. Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, vat oft full af tárum. Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. Og hvað er að hætta að draga andann ann- að en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í almætti sínu og óptraður leitað á fund guðs síns. (Úr Spámanninum) Kjartan Stefánsson Nú legg ég augun aftur. Ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfír láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt (Sveinbjöm Egilsson) Eg þakka Sigurbjörgu ömmu minni, fyrir allan þann kærleika og umhyggju sem hún sýndi mér í uppvextinum. Alla gæsku er hún átti í minn garð. Aðstandendum og vinum sendi ég mínar samúðar- kveðjur. Sigursteinn Tómasson Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins efna til við- talstíma í Valhöll, Háaleitisbraut 1, í nóvember. Allir eru velkomnir. Jafnframt er unnt að ná sambandi við alþingismennina í síma 91 -82900. Viðtalstímar í dag, fimmtudag, eru sem hér segir: Kl. 17.00-19.00 Matthíast Bjarnason, þingmaðurVestfjarða Pálmi Jónsson, þingmaður Norðurlands vestra Eggert Haukdal, þingmaður Sunnlendinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.