Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.11.1988, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988 Andrei Sakharov á blaðamannafundi í Boston: „Segja má að herlög séu í gildi í S o vétr í kj unum “ Boston. Reuter. SOVÉZKI andófsmaðurinn Andrei Sakharov sagði í ræðu í Boston\ í Bandaríkjunum á mánudagskvöld að segja mætti að herlög væru í gildi í Sovétríkjunum. Sakharov kom á sunnudag í þriggja vikna heimsókn til Bandaríkjanna og er það í fyrsta sinn sem hann fær að fara út fyrir Sovétríkin. Á mánudag gekkst hann undir læknis- rannsókn á Massachusetts-sjúkrahúsinu í Boston en hann bað um að niðurstöður hennar yrðu ekki birtar um skeið. Skyldmenni hans kváðust ekki vilja tjá sig um frétt blaðsins Boston Globe, sem sagði að hjartagangráður yrði settur í Sakharov á sjúkrahúsinu. f Sakharov hélt blaðamannafund í húsakynnum amerísku lista- og vísindaakademíunnar, sem hefur aðsetur í Somerville, úthverfí Bos- ton, á mánudagskvöld. Við það tækifæri gagnrýndi hann harðlega setningu nýrra laga í Sovétríkjun- um í júll er skerða möguleika manna til að stofna með sér samtök eða efna til mótmæla. Hann sagði að sérstökum lögreglusveitum inn- anríkisráðuneytisins hefði verið fengið það hlutverk að framfylgja lögunum. „Þau jafngilda því að herlög séu í gildi í Sovétríkjunum," sagði Sakharov. Hann sagðist hafa gert ítrekaðar en árangurslausar tilraunir í síðustu viku til þess að ná símasambandi við Míkhafl Gorb- atsjov, Sovétleiðtoga, til að láta áhyggjur sínar vegna laganna í ljós. Sagði Sakharov að nýju lögunum Júgóslavía: Albanir flykkjast á mynd um ofsokmr Belgrad. Reuter. ÞÚSUNDIR Albana í Pristina, höfiiðborg sjálfstjórnarhéðsins Kosovo, standa í biðröðum til að kaupa miða á kvikmynd, sem Qallar um ofsóknir Serba á Alb- önum í Kosovo, að sögn íbúa héraðsins. íbúamir sögðu að hundruð manna seldu miða að sýningum myndarinnar á uppsprengdu verði. Serba Myndin fjallar um ofsóknir leynilög- reglunnar UDB, þar sem Serbar ráða ríkjum, á Albönum á sjötta áratugnum og í henni eru sýndar pyntingar lögreglunnar. Í Kosovo ríkir mikil spenna milli Albana, sem eru í meirihluta í hér- aðinu, og slava, aðallega Serba. Þúsundir Serba flýja héraðið á ári hveiju og saka Albani um ofsóknir. hefði verið beitt 30. október síðast- liðinn þegar flölmennur hópur ætt- ingja fómarlamba ofsókna í stjóm- artíð Jósefs Stalíns safnaðist saman við grafreit í borginni Minsk. Litlar fréttir hefðu borizt til Vesturlanda af atburðinum. „Þar kom til átaka syrgjenda og lögreglumanna, sem mættu til leiks á hestbaki og reyndu að reka fólkið á brott. Fjölmargir slösuðust og margir voru teknir fastir," sagði Sakharov. Sakharov sagðist einnig áhyggjufullur vegna nýs uppkasts að refsilöggjöf Sovétríkjanna, sem að sögn takmarkaði kosningarétt, prentfrelsi og útgáfustarfsemi frek- ar en nú væri. Hann sagði að lög- gjöfínni yrði breytt 'vegna „fmm- kvæðis og þiýstings lýðræðissinna neðan frá“, eins og hann orðaði það. „Þiýstingurinn kom mönnum f áhrifastöðum í opna skjöldu. Uppkastið er í raun stórhættulegt og gæti eyðilagt umbótaáætlunina, snúið henni upp í andhverfu sína,“ sagði Sakharov. Hrósaði Gorbatsjov Sakharov hefur verið talsmaður umbótastefnu Gorbatsjovs, per- estrojku, frá því að honum var sleppt úr útlegð í Gorkíj, þar sem hann var í stofufangelsi í sex ár. Aðstæður hans hafa gjörbreyst í tíð Gorbatsjovs. Á Sakharov hvfldi ferðabann vegna vitneskju hans um smíði sovézkra kjamorkuvopna. Með því að leyfa honum að fara til Vesturlanda má segja að leystir hafi verið af honum síðustu ófrelsis- Reuter .Andrei Sakharov (t.h.) og Jerome B. Wiesner, fyrrum rektor Massac- husetts Institute of Technology og varaformaður nýrra alþjóðlegra samtaka sem munu beita sér fyrir afvopnun og úrbótum i mannrétt- indamálum. Sakharov er formaður samtakanna. Myndin var tekin í Boston á mánudag. fjötrarnir, sem hann var hnepptur í á valdatíma Leoníds Brezhnevs, fyrrum Sovétleiðtoga. Á fundinum hrósaði Sakharov umbótastarfí Gorbatsjovs og sagði það hagsmuni heimsbyggðarinnar allrar að stefna hans næði fram að ganga. „Mistakist perestrojka mun raskast það jafnvægi sem nú ríkir,“ sagði hann. Bætti Sakharov því við að ef umbótastarfið mistækist myndu Sovétmenn reyna að stækka áhrifasvæði sitt og knýja fleiri ríki til fylgis við sig. „Af þessum sökum verða Vesturlönd að fylgjast vel með framgangi perestrojku. Þau verða að kynna sér árangurinn af henni eða árangursleysi." Ný mannréttindasamtök Tveir sovézkir embættismenn voru viðstaddir blaðamannafund' Sakharovs; Jevgenlj Velikhov, vara- forseti sovézku vísindaakademíunn- ar og ráðgjafí sovézkra stjómvalda í kjamorku- og afvopnunarmálum., og Roald Sagdeev, forstöðumaður sovézku geimvísindastofnunarinn- ar. Ásamt Sakharov sitja þeir báðir í stjóm nýstofnaðra alþjóðlegra samtaka (IFSDH), sem hyggjast beita sér fyrir aukinni afvopnun og úrbótum í mannréttindamálum. Sakharov er stofnandi og formaður samtakanna. í svari til sovézks blaðamanns, sem var á fundinum, sagðist Sak- harov bera virðingu fyrir banda- rísku þjóðfélagi og lýðræðislegum stofnunum þess, sem virtu rétt verkalýðs. Þjóðfélagið væri kraftm- ikið og þar gætti mikillar sjálfs- gagnrýni, sem hann sagði fátíða I heiminum. ® 3 65 00 GAMLA KOMPANÍIÐ Dömu-, herra- og barnaklippingar og öll almenn hársnyrtiþjónusta. Verið velkomin í Klipphúsið. ® 67-20-44 KLIPPHÚS KARÖLÍNU Bjóðum uppá mat I hitabökkum til fyrirtækja og starfshópa. Einnig sjáum við um veislumat fyrir hvers konar mannfagnaði. ------® 67-27-70 -------- MATBORÐIÐ « * i VEITINGAHÚS, FÉLAGASAMTÖK: Mikið úrval af glösum, hnífapörum, matar- og kaffistellum. sErmerkjum glös og postulín. --------® 68-88 38 --------- VEITIR s Stólar og borð fyrir eldhús, mötuneyti og veitingahús. Sérsmíðumeftirpöntun. ® 3 50-05 SÓLO HÚSGÖGN ÍSBROT... Sérverslun með slípivörur og loftverkfæri. ® 67-22-40 ÍSBROT Við veitum fúslega allar upplýsingar. Verið velkomin. ® 67-10-20 RÖKRÁS 7/Ufwou/fJSf/ þvottatækið • Tengt beint við venjulega garðslöngu. • PværogBÚNAR. ------ ® 67-29-00 ----------- SMYRILL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.