Morgunblaðið - 10.11.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988
Breytingar á dag-
skrá Stjörnunnar
MIKLAR breytingar hafa verið gerðar á dagskrá Stjörnunnar á
virkum dögum. Að sögn Ólafs Haukssonar útvarpsstjóra Stjörn-
unnar er þetta gert til að koma til móts við þær óskir sem bo-
rist hafa beint til Stjömunnar frá hlustendum, og eins er tekið
mið af þvi sem hlustendakannanir hafa leitt i ljós. Eftirleiðis
verður lög aukin áhersla á talmál á morgnana og síðdegis, en
óslitin tónlist verður á timabilinu frá kl. 9 til 5.
Morgunþáttur Stjömunnar á
milli kl. 7 og 9 hefur hlotið heitið
„Egg og beikon" og í honum mun
Þorgeir Ástvaldsson ásamt frétta-
stofu Stjömunnar sjá um að flytja
hlustendum fréttir og fróðleik í
bland við tónlist.
í þættinum „Níu til fímm“ verð-
ur flutt tónlist, sem einungis verð-
ur rofín af fréttum, auglýsingum
og örstuttum kynningum. Stjóm-
endur þáttarins em þau Gyða
Dröfn Tryggvadóttir og Bjami
Haukur Þórsson.
Klukkan 5 verða fluttar féttir
og frásagnir af atburðum dags-
ins. Þáttur þessi er klukkustundar
langur og nefnist „ís og eldur.“
Þorgeir Astvaldsson, Gísli Kristj-
ánsson og fréttastofa Stjömunnar
hafa umsjón með þættinum.
Á kvöldin verður framvegis
lögð áhersla á að leika nýja og
vinsæla tónlist í bland við þekkt
lög. Umsjónarmenn kvöldtónlistar
eru Gísli Kristjánsson og Sigurður
Helgi Hlöðversson.
Tveir af rejmdustu dagskrár-
gerðarmönnum Stjcmunar sjá um
að skemmta hlustendum laugar-
daga og sunnudaga. Það em þeir
Jón Axel Ólafsson, sem verður
fyrri hlutann, og Gunnlaugur
Helgason sem verður seinni hlu-
tann, en þeir verða á dagskrá jafnt
laugardaga sem sunnudaga.
Starfsmönnum hefur fækkað
um tvo vegna þessara breytinga
á dagskrá Stjömunnar. Bjami
Dagur Jónsson hefur nú tekið sér
frí frá störfum um hríð, en hann
er væntanlegur til starfa á ný
eftir næstu áramót. Þá hefur Ámi
Magnússon einnig hætt störfum
á Stjömunni.
Ólafur Hauksson segir að hlust-
endur Stjömunnar hafi óskað eft-
ir því að á tímanum á milli kl. 9
og 5 á daginn verði eingöngu leik-
in tónlist. „Fólk virðist hlusta
mikið á útvarp við vinnuna og
greinilega vill það helst hlusta á
tónlist, en vill ekki láta tmfla sig
með miklu tali og uppákomum.
Talmálsliðimir hjá útvarpsstöðv-
unum virðast ekki vera eins hnit-
miðaðir upp á síðkastið og áður
og kannski hefur verið farið að
bera á vissum hugmyndaskorti.
Þeir áttu fullan rétt á sér áður,
en ég tel að hlustendum sé orðið
ljóst að þeir em fyrst og fremst
að sækjast eftir tónlist á þessum
tíma dagsins. Á morgnana og
síðdegis þegar fólk kemur úr
vinnu er þó greinilegt að mikill
áhugi er fyrir fréttum og fróðleik
um það sem er að gerast hveiju
sinni. Þessum óskum hlustenda
emm við að mæta með þessum
breytingum á dagskrá Stjömunn-
ar,“ segir Ólafur Hauksson.
Sjónvarp:
„Símon Pétur ftillu
naftii“ í pokahominu
STUTTMYNDIN „Símon Pétur
fuilu nafiii" verður sýnd í þættin-
um „í pokahominu" í Ríkissjón-
varpinu kl. 20.30 í kvöld. Kvik-
myndin er ein þriggja sem gerð-
ar vora eftir verðlaunahandrit-
um Listahátíðar og á Listahátíð
í sumar hlaut hún flest atkvæði
áhorfenda sem besta myndin af
þessum þremur. Leikstjóri er
Brynja Benediktsdóttir og höf-
undur handrits Erlingur Gísla-
son.
Með aðalhlutverkin fara Erlingur
Gíslason, Freyr Ólafsson og Helga
Fyrirlest-
ur um sögu
Syðriflóa
1 Mývatni
DR. ÁRNI Einarsson heldur
fyrirlestur á vegum Líffræðifé-
lags íslands um sögu lífríkis í
Syðriflóa í Mývatni fimmtudag-
inn 10. nóvember.
í fyrirlestrinum fjallar Ámi um
rannsóknir sínar á borkjama, sem
tekinn var í janúar 1985 úr botn-
seti Mývatns. Höfuðmarkmið
rannsóknanna var að fá yfírlit yfir
lífríki Syðriflóa þegar hann var
dýpri en nú. Með því móti er talið
að vitneskja fáist um áhrif dýpk-
unar af völdum kísilgúrtöku.
Fyrirlesturinn verður í Lögbergi
stofu 101 þann 10. nóvember og
hefst kl. 20.30. Hann er öllum
opinn.
Jónsdóttir, kvikmyndataka var í
höndum Baldurs Hrafnkels Jóns-
sonar, leikmynd gerði Gunnar Bald-
ursson, búninga Andrea Oddsteins-.
dóttir, um hljóðupptöku sá Böðvar
Guðmundsson, tónlistin er eftir
Hjálmar H. Ragnarsson og meðal
leikara eru: Valdemar Helgason,
Hákon Waage, Aðalsteinn Bergdal,
Amór Benónýsson og Bjöm Karls-
son. Framleiðandi og dreifandi er
Kerúb h/f og sýningartími er 23
mínútur. Hljóðið í myndinni var
endurunnið fyrir sjónvarpsútgáf-
una.
í kynningu á myndinni segir:
„Kvikmyndin segir frá litlum dreng
í Þingholtunum í Reykjavík á fyrstu
árum annarrar heimstyijaldar. Fá-
tækt er enn greinileg en þó örlar á
vaxandi stríðsgróða. Þótt með
óbeinum hætti sé ná hörmungar
stríðsins einnig til drengsins litla.
Mumma hefur verið gefinn glæsi-
legur vörubfll. Það gerði leigjandinn
á sömu hæð og fjölskylda Mumma
á heima. Hann heitir Elías og er
leikfangasmiður. Þeir eru vinir. En
Elíasi hefur sést yfír að bfllinn þarf
að vera með lausum palli svo hann
sturti eins og alvörubfll og Mummi
veit ekki að Elías á fleiri áhugamál
en lítinn dreng getur grunað."
Morgunblaðið/Emilía
Dómnefnd um skipulag í Fífuhvammslandi, frá vinstri Richard Björgvinsson bæjarfulltrúi, Guðrún Jóns-
dóttir arkitekt, Ólöf Þorvaldsdóttir, sem jafiiframt er formaður nefiidarinnar, Kristinn Ó. Magnússon
verkfræðingur, Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt, Ólafúr Jensson trúnaðarmaður nefiidarinnar og Birg-
ir Sigurðsson skipulagsfræðingur, ritari hennar.
Hugmyndasamkeppni um skipulag:
Um 7.000 til 8.000 manna
byggð í Fífuhvammslandi
BÆJARSTJÓRN Kópavogs hefúr ákveðið að efiia til hugmyndasam-
keppni um skipulag á 184 ha í Fífúhvammslandi. Landið afinarkast
af Reykjanesbraut, fyrirhuguðum Araarnesvegi og bæjarmörkum
Reykjavíkur og Kópavogs. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar bæjar-
stjóra, er þaraa gert ráð fyrir unt 7.000 til 8.000 manna byggði í
framtíðinni. Heimild til þátttöku i samkeppninni hafa allir íslenskir
rikisborgarar.
„Hér er um viss þáttaskil að
ræða, þar sem gamla bæjarstæðið
er fullbyggt og því ekki úr vegi að
segja að við séum að nema nýtt
land, land sem er jafn stórt og
Grafarvogshverfíð allt og verður
fullbyggt fjölmennara en Garða-
bær,“ sagði Kristján. „Það er því
mikilvægt að fá fram góðar hug-
myndir og gott skipulag."
Ólöf Þorvaldsdóttir er formaður
dómnefndar og sagði hún að Fífu-
hvammsland væri stærsta land-
svæði í þéttbýli, sem efnt hefur
verið til skipulagssamkeppni um til
þessa. „Þama er gott byggingar-
land, í dal sem er 60 m yfír yó en
hæst er landið í 100 m,“ sagði Olöf.
í úrlausnum skal gera grein fyr-
ir heildarskipulagi svæðisins en að
auki skal gera nánari grein fyrir
hugmyndum höfunda að deiliskipu-
lagi á 10 ha með blandaðri íbúðar-
byggð og 180 til 200 íbúðum.
Samkvæmt keppnislýsingu er
gert ráð fyrir að 110 til 115 ha af
heildarsvæðinu fari undir íbúðar-
byggð með tilheyrandi þjónustu,
tveimur skólahverfum, einum fram-
haldsskóla, tveimur skóladagheim-
ilum, sex dagvistarheimilum og
tveimur til fjórum gæsluvöllum.
íþróttasvæði, heilsugæslu, safnað-
arheimilum og kirkju, en bæjar-
stjóm Kópavogs hefur samþykkt
að í Fífuhvammslandi verði gert ráð
fyrir allt að 20 ha undir kirkjugarð.
Þá hefur Kron fengið vilyrði fyrir
5 til 6 ha lóð undir stórmarkað í
20 ha miðhverfí við Reykjanes-
braut.
Tillögum skal skila til trúnaðar-
manns dómnefndar Ólafs Jenssonar
framkvæmdastóra Byggingarþjón-
ustunnar, í síðasta lagi 28. febrúar
næstkomandi. Gert er ráð fyrir að
dómnefnd ljúki störfum fyrir 11.
maí 1989. Verður þá haldin sýning
á þeim tillögum sem berast. Heild-
ampphæð verðlauna eru 6 milljónir
og verða veitt þrenn verðlaun.
Fyrstu verðlaun verða minnst 3
milljónir.
Smárahvammur
'atnsendahvarf
Hugmyndasamkeppni að
7-8000 manna byggð á 184
hektörum í landi Fífuhvamms
Kjóavellir
Jónas Araason
Jónas Arnason á söng-
kvöldi í Vestmannaejrjum
V estmannaeyj um.
Jónas Árnason rithöfundur
mun koma fram á söngkvöldi í
Vestmannaeyjum annað kvöld,
föstudagskvöldið 11. nóvember,
á veitingastaðnum Muninn.
Þar syngur Jónas meðal annars
lög úr nýútkominni bók sinni
„Meira til söngs". í þeirri bók er
að finna mörg kvæði við lög eftir
Jón Múla Ámason og við stríðsára-
lög, bamalög og ýmis önnur lög.
Jónasi til aðstoðar verður söng-
hópur úr Eyjum.
Veitingastaðurinn Muninn býð-
ur af þessu tilefni upp á sérstakan
matseðil í stíl við hinn hressilega
Jónas Ámason, kveðskap og söng
kvöldsins.
r- Grímur