Morgunblaðið - 10.11.1988, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PÁL ÞÓRHALLSSON
Fimmtíu ár liðin frá Kristalsnóttinni:
ekki þátt í ofsóknunum en hluti
borgaranna notaði tækifærið til
að ræna verslanir, hefna meints
ranglætis, fá útrás fyrir innbyrgt
mikilmennskuæði og tilgangs-
lausa ofbeldishneigð.
Kristalsnóttin kom á hentugum
tíma fyrir nasista. Nasistar voru
staðráðnari en nokkru sinni í að
leysa „gyðingavandann" því sú
stefna að hrekja gyðinga úr landi
með því að mismuna þeim hafði
ekki borið tilætlaðan árangur.
Útflytjendum af gyðingaættum
hafði fækkað eftir að fjöldi þeirra
náði hámarki árið 1933 og stjórn-
völdum fannst nærvera þeirra
mjög óþægileg því hið áformaða
stríð var í nánd.
Engu að síður var Kristalsnótt-
in fyrst og fremst afsprengi illa
skipulagðra staðbundinna að-
gerða sem fyrirskipaðar voru með
litlum fyrirvara. Sumstaðar kom
ekki til neinna ofbeldisverka
vegna þess að flokksleiðtogar
héldu að sér höndum.
Yfírvöld fóru ekki felur með
það eftir Kristalsnóttina að þetta
væri einungis upphafíð að hefnda-
raðgerðum gegn gyðingum vegna
morðsins á vom Rath. 12. nóvem-
Kveikt var í bænahúsum
gyðinga og þrjátíu þús-
und teknir höndum
Sýnagógan í Baden-Baden í
Ijósum logum. Á innfelldu
myndinni sést ungur maður
sópa glerbrotum saman að
morgni 10. nóvember.
ber voru gyðingar skikkaðir til
að kosta lagfæringu skemmda á
opinberum mannvirkjum. Ríkið
yfírtók hins vegar þær trygginga-
bætur sem gyðingum áttu að falla
í skaut vegna tjóns á verslunum
þeirra og íbúðum. Ekki voru heim-
ilaðar viðgerðir á bænahúsum
heldur voru rústir þeirra jafnaðar
við jörðu og lóðimar gengu til
„arískra eigenda".
Tilgangur ofsóknanna virðist
fyrst og fremst hafa verið sá að
hrekja gyðinga úr landi og uppr-
æta ítök þeirra í efnahagslífinu
fremur en hefndaraðgerð eins og
yfírvarpið hljóðaði. Það voru nær
eingöngu auðugir gyðingar sem
voru handteknir. Tala þeirra var
einhvers staðar á bilinu 26.000-
36.000. Fæstir voru lengi í haldi;
nokkrum var sleppt samstundis
veija verslanir annarra en gyð-
inga og taka auðuga gyðinga
höndum. Auðvelt var að virkja
flokksmenn til ofbeldisverka
vegna þess að flestir voru ölvaðir
af drykkju og áróðri eftir hátí-
ðahöld dagsins.
Stærstur hluti almennings tók
Litið hefur verið á aðfaranótt 10. nóvember 1938 sem vendipunkt
í sögu ofsókna nasista á hendur gyðingum. Kristalsnóttin varð
að því andartaki sem öllum Þjóðverjum mátti vera ljóst hvert
stefndi. Nú þegar fimmtíu ár eru liðin er nóvemberofsóknanna
minnst með ýmsum hætti í báðum þýsku ríkjunum.
Aðfaranótt 10. nóvember
1938 og næstu daga var
kveikt í flestum hinna Ijögu'r
hundruð bænahúsa gyðinga í
Þýskalandi eða þau vanvirt á ann-
an hátt. Grafreitir gyðinga voru
lagðir í rúst, verslanir og íbúðar-
hús gyðinga urðu fyrir skemmdar-
verkum. Tæplega hundrað gyð-
ingar voru myrtir, fjölda kvenna
var nauðgað og margir urðu fyrir
pyndingum. Þrjátíu þúsund gyð-
ingar voru handteknir og fluttir í
vinnubúðir. Nasistar kölluðu at-
burði þessa Judenaktion, „Fram-
tak gegn gyðingum", en talið er
að strax fyrir stríðslok hafí verið
byijað að tala um nóttina örlag-
aríku sem Kristalsnóttina. Senni-
lega er sú nafngift upprunnin í
Berlín þar sem gler úr verslunum
gyðinga lá dreift um götur að
morgni 10. nóvember. Nú á dög-
um tala Þjóðveijar í vaxandi
mæli um Pogrom, gereyðingu,
með tilvísan til gyðingaofsókna í
Rússlandi, vegna þess að Kristals-
nóttin er of snoturt orð yfír hina
hræðilegu atburði.
Nasistar skipulögðu nóvember-
herförina árið 1938 til þess að
sýna Þjóðveijum og umheiminum
hvað þeir ætluðust fyrir. Beitt var
samtímis í gervöllu Þýskalandi
öllum tiltækum valdatækjum nas-
ista. Tilefnið kom 7. nóvember
þegar vom Rath, þýski sendiher-
rann í París, varð fyrir skotárás.
Tilræðismaðurinn, Herschel
Griinspan, var pólskur gyðingur
en í október 1938 höfðu nasistar
hrakið 18.000 pólska gyðinga, þar
með talda Grunspan-íjölskylduna,
úr Þýskalandi með miklu offorsi.
Josef Göbbels, áróðursmeistari,
kom því í kring að tilræðið var
túlkað sem samsæri alþjóðlegs
glæpahrings gyðinga. Fréttir um
morðtilræðið voru á öllum forsí-
ðum þýskra dagblaða 8. og 9.
nóvember.
Síðdegis 9. nóvember lést vom
nasistamir í Miinchen til að minn-
ast 15 ára afmælis valdaránstil-
raunar Hitlers. Göbbels hélt
þrumandi ræðu fulla af gyðinga-
hatri en hvatti samt ekki berum
orðum til þeirra atburða sem á
eftir fylgdu. Engu að síður skildu
viðstaddir orð hans svo að flokk-
urinn myndi ekkert aðhafast til
að hindra „viðbrögð þjóðarinnar
sem væru sprottin af sjálfu sér“.
Þegar ræðunni lauk fóru háttsett-
ir menn í nasistaflokknum og
Stormsveitunum í símann og fyr-
irskipuðu árásir á bænahús, versl-
anir og íbúðir gyðinga.
Flokkurinn hélt sér opinberlega
fyrir utan ofsóknimar en lægri
flokksdeildir og Stormsveitimar
skipulögðu aðgerðir. Hlutverk
lögreglunnar var í stórum dráttum
að koma í veg fyrir gripdeildir,
Rath af völdum áverka sinna. Um
það leyti voru allir áhrifamestu
ef þeir voru reiðubúnir að flytja
úr landi eða hætta viðskiptum.
Flestir voru fluttir í vinnubúðir í
Sachsenhausen, Buchenwald og
Dachau og þar var aðbúnaður
hörmulegur — þó mun skárri en
síðar þegar útrýming gyðinga
hófst.
Fæstum fómarlömbum Krist-
alsnæturinnar duldist hvað í
vændum var. Að því leyti náðu
ofsóknimar tal 'arki sínu. Margir
gyðingar frömn sjálfsmorð í ör-
væntingu sinni og útflytjenda-
straumurinn br yttist í fjölda-
flótta. Frá hausí, 1938 til septem-
ber 1939 yfírgái'u næstum jafn-
margir gyðing; •’ Þýskaland og
næstu fimm ár n á undan. Þeir
sem ekki fóru v >ru mismunun og
niðurlægingu oí urseldir — háðari
gyðingasamféla jinu en nokkm
sinni fyrr því stjómvöld veittu
þeim enga vemu nema síður væri
og meðborgara.' peirra vildu eða
gátu enga aðstoð boðið.
Af stjómara istöðuhópum var
það að segja aðjmmúnistaflokk-
urinn einn mótmælti atburðum
Kristalsnæturinnar. Stofnanir
kaþólsku og evangelísku kirkj-
unnar þögðu stm þýðir ekki að
einstakir trúmenn hafi ekki látið
í sér heyra. Almennt séð vom við-
brögð almennings ekki í samræmi
við óskir yfirvalda og fullyrðingar
áróðursvélarinnar.
Svo virðist sem nóvemberof-
sóknimar hafí eflt andstæðumar
í Þriðja ríkinu, kynt undir hatur
öfgamanna og fjölgað andstæð-
ingpim gyðinga, en fært öðmm
heim sanninn um hvert stefndi
og fengið fleiri hlutlausa til að
leggjast gegn kúgun gyðinga.
Flestir höfðu þó áhyggjur af öðm
en örlögum gyðmga auk þess sem
aðstoð við þá gat haft mikla erfið-
leika í för með t ár. Ekki má held-
ur gleyma því að 90% þýskra
gyðinga bjuggu um þetta leyti í
einungis 200 gyðingasamfélög-
um. Þar af leiðandi var Kristals-
nóttin með sínum hörmungum
fyrst og fremst fjölmiðlaviðburður
í þúsundum þorpa og smærri
byggðarlaga. Þar sem kom til
skemmdarverka og ofsókna
gengu þær fljótt yfír og borgar-
amir gleymdu þeim og snem sér
að hversdagslegri vandamálum
eins og kartöfluskortinum og
lengingu vinnutímans.
Kristalsnóttina náðu ofbeldis-
verk gegn gyðingum hámarki á
tímabilinu fyrir stríð. Þaðan ligg-
ur samt enginn óslitinn þráður í
átt til útrýmingarbúðanna í Aust-
ur-Evrópu. Þótt gyðingahatrið
væri þungamiðjan í nasismanum
var framkvæmd þess oft tilvilj-
anakennd. Stefnu Þriðja ríkisins
gagnvart gyðingum má skipta í
tvö tímabil: Frá árinu 1933-41 var
gyðingum smám saman úthýst
úr þýsku réttarkerfi og þjóðfélagi
en árið 1941 var útflutningur
þeirra ekki lengur tækið í átt til
„lokalausnar" heldur helförin sem
kostaði 5,7 milljónir gyðinga lífið.
Heimild: Aus Politik und
Zeitgeschich te.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Pípulagningarvinna s: 675421.
Vélrrtunarkennsfa
Vélritunarskólinn, sími 28040.
I.O.O.F. 5= 1701110872= Br
I.O.O.F. 11 = 1701110872 =
□ St.: St.: 598811107 X
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Ræðum.: Mike Fitzger-
ald. Allir hjartanlega velkomnir.
l^jl Útivist,
Fimmtudagur 10. nóvember
kl. 20.30
Hornstrandamyndakvöld
Myndakvöld veröur í Fóst-
bræöraheimilinu Langholtsvegi
109 og hefst kl. 20.30. Mætiö
stundvíslega. Myndefni: Sýnt
veröur frá Hornstrandaferöum í
sumar. 1. Hornstrandlr -
Homvík 7. - 12. og 16. júlf.
2. Gönguferðin frá Hesteyri um
Aöalvík ( Hornvík 7.-16. |úl(.
Lovisa Christiansen og Þráinn
Þórisson skýra myndirnar og
segja frá feröunum. Gott taeki-
færi til að kynnast feröum Úti-
vistar á Hornstrandir. Frábærar
kaffiveitingar kvennanefndar i
hléi. Allir velkomnir meðan hús-
rými leyfir. Munið aöventuferð
Útivistar f Þórsmörk 26.-27.
nóvember. Sjáumstl
Útivist, ferðafélag.
í kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þribúöum, Hverfisgötu 42.
Mikill almennur söngur. Vitnis-
buröir Samhjálparvina. Kórinn
tekur lagiö. Orð hefur Ágúst
Ólason. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Ungt fólk
með hlutverk
CÍSÍI YWAM - Ísland
Almenn samkoma
Almenn samkoma verður i
Grensáskirkju í kvöld kl. 20.30.
Ræöumaður: Hafsteinn Engil-
bertsson. Allir velkomnir.
fr.inrw;ii
AD - KFUM
Fundur i kvöld kl. 20.30 á
Amtmannsstig 2b. AÐ GÆTA
BRÓÐUR MlNS? II.
Biblíulestur í umsjá séra Lárusar
Halldórssonar.
Kaffi eftir fund.
Allir karlar velkomnir.
Skipholt 50 b 2.h.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.