Morgunblaðið - 10.11.1988, Side 54

Morgunblaðið - 10.11.1988, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988 nmnmn HÖGNI HREKKVÍSI Hvalveiðimálið: Látum ekki undan hótun- um öfgasinnaðra þrýstihópa Kæri Velvakandi. Sem kjósandi leyfi ég mér að hvetja alla háttvirta þingmenn að láta ekki undan hótunum öfgasinn- aðra þrýstihópa, né annarra er reynt hafa að beita okkur þvingunum til að hætta hvalveiðum er fara fram á hinu mikla hafsvæði sem liggur inn- an fiskveiðilögsögu íslands. Þegar liggur fyrir fastmótuð og yfirlýst stefna stjórnvalda landsins og ráðherrar þeirra ráðuneyta er með þessi mál fara ber að virða fyrir þann mánndóm að vilja framfylgja henni og láta óréttmætar hótanir lönd og leið. Sá uppgjafatónn sem vart verður við hjá sumum þingmönnum okkar og öðrum er leitað hefur verið svara hjá um þetta mál er lítt sæmandi og ekki líkur þeim baráttuanda og sam- takamætti er ríkti með þjóðinni við útfærslu landhelginnar. Þá stóð þjóð- in saman sem einn maður, ekki síst vegna þess, og fyrir þann einstæða hetjuskap og þrautseigju hinna vösku sjómanna landhelgisgæslunnar, vannst farsæll sigur að lokum, er seint mun gleymast. Það hefur verið deilt á okkur íslendinga fyrir að vísindalegi þátturinn er tengist hval- veiðum okkar sé aðeins yfirskin. Það er alrangt því segja má með sönnu að raunverulega fara allar veiðar okkar íslendinga fram undir ströngu vísindalegu eftirliti, hvort sem um er að ræða fiskveiðar, hvalveiðar eða veiðar og nytjar á öðru sjávarfangi. Á öllum tímum er fylgst grannt með ástandi og stærð okkar helstu nytja- fiska og athugað í því sambandi hvað líður hitastigi sjávar, klaki o.fl. er fiskifræðingar og vísindamenn okkar á þessu sviði annast. Þá er í gangi allt árið friðunaraðgerðir á ýmsum uppeldisstöðvum okkar helstu nytjafiska á grunnslóð að ógleymdum ákveðnum reglum um aflakvóta til fískiskipa er allir þekkja. í ágætri grein sem Grímur Karls- son, skipstjóri í Njarðvík skrifar 3. sept. sl. segir: „Bestu nýtingu og jafnvægi reynum við að ná með þvf að veiða sitt lítið af hveiju, og má þá alls ekki undanskilja flökkufíska, seli og hvali, sem háma í sig árs- forðann á okkar miðum og á okkar kostnað sumarlangt. Hvað þurfta- frekustu dýrin, stórhvelin, varðar og ef við hættum að veiða þau, þurfum við ekki að hafa áhyggjur af sölu fiskafurða í Bandaríkjunum eða ann- ars staðar því fískaflinn mun óbeint eða beint fara í fæðu risanna." Af þessu verður séð að hinn yísindalegi þáttur í fiskveiðum okkar Islendinga er síst lítilvægur og beinlínis bráðnauðsynlegur til að við- halda og fylgjast með að hið mikil- væga jafnvægi í lífkeðju og lífríki sjávar raskist ekki, sem er algjör forsenda þess að hægt verði fyrir okkur íslendinga að stunda fiskveið- ar og nýta þá auðlind er öll vor til- vera byggist á. Guðmundur J. Mikaelsson Reykjanesbraut: Villandi upplýsingar I Morgunblaðinu 2. nóv. síðastlið- inn skrifar Suðumesjamaður í Vel- vakanda greinarkom þar sem hann ræðir ástand Reykjanesbrautar. Þar sem þessi skrif gefa lesendum Morgunblaðsins villandi upplýsing- ar óska ég eftir því að eftirfarandi verð birt. Reykjanesbraut frá Hafnarfirði að Kúagerði var tekin í notkun 1963, en 1965 var kaflinn frá Kúa- gerði í Njarðvík tekinn í notkun. Vegagerðinni er ekki kunnugt um neina áætlun í þá vem að leggja nýtt slitlag á veginn 10 ámm eftir lagningu hans. Arið 1982 var stór hluti vegarins fræstur enda vom hjólför þá orðin 30 mm djúp. Mest- ur hluti þess sem eftir var var svo fræstur 1986. Það er rétt hjá Suður- nesjamanni að það dróst allt of lengi að fræsa veginn og skapaði það mikla hættu fyrir umferðina af völdum vatns sem safnaðist fyrir í hjólfömnum. Ástæður þess að svo seint var hafíst handa var skortur á fjárveitingu til þessa verks. Þykkt vegsteypunnar var upp- haflega 22 sm, síðan vom fræstir 3 sm og er hún núna 19 sm þykk. Á hluta vegarins em aftur komin mikil hjólfor og þarf því bráðlega að endumýja slitlagið. Að mínu mati er Reykjanesbraut ekki ógreið- fær vegna ástands steypta vegyfir- borðsins heldur vegna þess að um- ferðin hefur vaxið mikið á síðustu ámm, en núna fara um 4.000- 5.000 bílar um veginn á hveijum degi. Framúrakstur er því orðinn erfiður og skapar það vissa hættu fyrir umferðina. Rögnvaldur Jónsson, umdæm- isverkfræðingur Vegagerðar- innar í Reykjanesumdæmi „ og Heæ Ee síbasta hneisan í" Yíkveiji Idálkum Víkveija hefur oft verið vikið að íslenzkri tungu og því, sem betur má fara í málfari þeirra, er við fjölmiðla starfa. Svo var gert á þessum stað 27. október síðastlið- inn og þá m.a. vikið að skrifum í Eystra-Homi, héraðsfréttablaði, sem gefíð er út á Höfn í Homa- firði. Víkveija barst fyrir nokkm bréf frá „Eyveija" í Vestmannaeyj- um, sem fannst Víkveiji hafa tekið of djúpt í árinni, þegar hann talaði um skemmdarverk í þessu sam- bandi. Minnti Eyveiji Víkveija á, að Morgunblaðið væri ekki frítt af málvillum og því hefði áminning í föðurlegum tón nægt. Reyndar væri mikill munur á vitleysum í staðbundnum smáblöðum og út- breiddasta blaði þjóðarinnar. Víkveiji kannast fúslega við, að ekki sé allt til fyrirmyndar í Morg- unblaðinu. En öll viðleitni beinist að því marki, að Morgunblaðið sé skrifar skrifað á góðu máli. Og það vill Víkveiji að gildi annars staðar líka. Við verðum aliir að halda vöku okkar og vemda tunguna, hvort heldur er í ræðu eða riti og hvort sem menn skrifa í héraðsblöð eða stærsta dagblað þjóðarinnar. Á því má ekki vera neinn munur, því eng- in keðja er sterkari er veikasti hlekkurinn og íslenzk tunga er okk- ar Iíf. Án hennar eram við ekki íslendingar og gilti þá einu með blaðaútgáfu í Höfn, Vestmannaeyj- um eða Reykjavík. XXX Isíðasta sunnudagsblaði Morgun- blaðsins fjallaði Helgi Hálfdan- arson um málfar og tengdi áminn- ingu sína sögu af Linda Grímscy- ingi, sem barðist gegn ofstopaveðri þó skipveijum hans hefði daprast þrek og kjarkur. í pistli sínum seg- ir Helgi: „Fyrir kemur, að manni sem ég þekki, virðist öll barátta til vemdar íslenzkri tungu koma fyrir lítið og ef til vill er bjartsýnin í lágmarki þann daginn. En þá kemur honum einatt í hug Erlendur Grímseying- ur, þar sem hann stendur í austrin- um og lætur engan bilbug á sér finna, þegar verst horfir. Þolgóð staðfesta hans, sem varð þeim fé- lögum til bjargar, mætti vera sífellt fordæmi þeim sem horfa með ugg á holskeflur útlenzkunnar dynja með vaxandi þunga yfir móðurmál- ið. En þá er þess að minnast að hefði Erlendur nokkra stund látið hlé á verða, var allt glatað. Dyggð hans var engin haldlaus bjartsýni heldur staðföst barátta til bjargar, jafnvel þegar öll von virtist úti.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.