Morgunblaðið - 10.11.1988, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1988
59
HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ
Eriingur tryggði KA sigur úr
vrti þegar leiktíminn var úti
EFTIR spennandi leik og miklar
sviptingar tókst KA aS tryggja
sér sigur á FH á síðustu sekún-
dunni í leik liðanna í gœr. Stað-
an var 24:24 og fjórar sekúndur
til leiksloka er Haraldur Har-
aldsson komst í gegnum vörn
FH og fiskaði vrtakast. Erlingur
Kristjánsson tók vítakastið og
skoraði af öryggi. KA-menn
fögnuðu innilega en FH-ingar
hengdu haus enda fóru þeir illa
að ráði sínu á lokamínútunum.
Leikurinn var jafn framan af en
undir lok fyrri hálfleiks náði
KA fímm marka forkoti og hélt því
fram í miðjan síðari hálfleik. Þá
tóku FH-ingar við
sér. Þeir gerðu sjö
mörk, gegn aðeins
tveimur mörkum
KA, og jöfnuðu
17:17. KA náði tveggja marka for-
skoti en FH-ingar unnu það upp
og komust yfír í fyrsta skipti í leikn-
um, 22:21, þegar fjórar mínútur
voru til leiksloka. En sviptingamar
héldu áfram og KA komst yfír að
nýju, 24:23. Þorgils Óttar jafnaði
þegar 24 sekúndur voru eftir en
slæm vöm FH-inga færði KA-
mönnum vítakast og sigurinn.
„Við vorum einfaldlega of bráðir
og vomm óheppnir undir lokin. En
í mínum huga var þetta ekki víti.
Þeir komu ekki við hann [Harald]
og hann fékk tækifæri til að
skjóta," sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari FH. „En mér fannst dómar-
amir þokkalegir þó þeir hefðu mátt
dæma töf á KA fyrir langar sóknir.
Annars er ég hættur að skipta mér
af dómaramálum og ætla ekki að
mæta á fleiri fundi," sagði Viggó.
Vöm KA sterfc
Vöm KA var mjög sterk, einkum
í fyrri hálfleik en sóknarleikur liðs- ' i
ins var frekar þreytulegur og lang-
dreginn. Liðið lék þó í heild mjög
vel og mikil barátta færði liðinu
sigurinn.
Erlingur Kristjánsson og Friðjón
Jónsson léku vel og Haraldur Har-
aldsson var dýrmætur á lokamínút-
unum, skoraði þýðingarmikið mark
og fískaði tvö vítaköst.
FH-ingar byrjuðu illa en náðu sér
á strik í síðari hálfleik. Vöm liðsins
var þokkaleg en galopin á miðj-
unni. Hraðaupphlaup liðsins vom
að venju skemmtileg og vel útfærð,
en mistök á lokamínútunum komu
í veg fyrir sigur.
Héðinn Gilsson og Guðjón Áma-
son voru bestir i liði FH sem hefur
þó oft leikið betur.
LogiB.
Eiðsson
skrifar
FH-KA
24 : 25
íþróttahúsið i Hafnarfírði, Islandsmótið
í handknattleik, 9. október 1988.
Gangur leiksins: 0:1, 2:4, 6:6, 7:8,
7:12, 8:12, 10:13, 10:15, 15:16, 16:17,
17:17, 18:18, 18:20, 20:20, 20:21,
22:21, 22:24, 24:24, 24:26.
FH: Héðinn Gilsson 6, Guðjón Ámason
6, Óskar Ármannsson 4/3, Þorgils
Óttar Mathiescn 3, Gunnar Beinteins-
son 2, Óskar Helgason 2 og Knútur
Sigurðsson 2. Einar Hjaltason, Hálfdán
Þórðarson, Stefán Stephensen.
Varin skot: Magnús Ámason 8 og
Bergsveinn Bergsveinsson 4.
Utan vallar: 2 mfnútur.
KA: Erlingur Kristjánsson 8/2, Sigur-
páll Ámi Aðalsteinsson 5/3, Friðjón
Jónsson 4, Jakob Jónsson 3, Haraldur
Haraldsson 2, Pétur Bjamason 2 og
Guðmundur Guðmundsson 1. Þorleifur
Ananlasson, Ólafur Hilmarsson og
Svanur Valgeirsson.
Varin skot: Axel Stefánsson 8 og Sigf-
ús Karlsson 2.
Utan vallar: Ekki neitt.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson
og Kjartan Steinbach. Höfðu ekki nógu
góð tök á leiknum.
Ahorfendur: Um 600.
Morgunblaðið/Einar Falur
„Góð tilbreyt-
ing að skora“
- sagði Erlingur Kristjánsson, vítaskytta KA
„ÞAÐ var góö tilbreyting að
skora svona f iokin en það
hefur ekki gengið of vel hing-
að til,“ sagði Eriingur Kristj-
ánsson sem tryggði KA sigur
gegn FH með þvf að skora
út vitakasti þegar ieiktfmi var
liðinn. „Þetta var vftakast —
það var ekki spurning."
Aður en leikurinn hófst hafði
ég mikla trú á að við mynd-
nm sigra en um tíma var mér
hætt að lítast á blikuna. En það
hafðist og þetta var mikilvægur
sigur,“ sagði Eriingur.
„Byijunin lofar góðu og nú er
bara að fylgja henni eftir. Við
eigum næsta leik gegn KR og
erum ekki farnir að hugsa
lengra," sagði Erlingur.
Fyrstu stig Seltiminga
KA-menn fagna
sigri á FH í gær-
kvöldi. Leikurinn
var æsispennandi
og gestimir
tryggðu sér sigur-
inn úr vítakasti
þegar leiktlminn
var liðinn.
2. DEILD
UMFA vann
Leikmenn Aftureldingar gerðu
góð ferð til Selfoss í gær-
kvöldi. Þar unnu þeir sigur, 28:21, I
á Selfyssingum I 2. deildarkeppn-
inni í handknattleik.
HANN var ekki áferðarfagur
leikur UBK og Gróttu í gœr-
kvöldí en engu að síður var
hann spennandi mest allan
tímann enda jafn.
að voru víst fæstir sem áttu
von á sigri Gróttu. „Ég átti
alveg eins von á þessu. Við fengum
ferlega útreið í Eyjum í fyrsta leikn-
um og vomm
SkútiUnnar ákveðnir í að gera
Sveinsson okkar besta í þess-
skrifar um " sagði Sig-
tryggur Albertsson
markvörður og fyrirliði Gróttunar
eftir leikinn.
Blikar léku ekki vel í gær. Þeir
virtust ekki trúa því að þeir þyrftu
að hafa fyrir því að leggja Gróttu
að velli. Baráttan var lítil og sem
dæmi um sóknarleikinn má nefna
að aðeins tveir menn skomðu fyrstu
11 mörk þeirra. Guðmundur stóð
fyrir sínu í markinu en Hans var
þó bestur í annars daufu liði UBK.
Mikil barátta einkenndi leik
Gróttu. Sigtryggur varði mjög vel
í síðari hálfleik og mest úr opnum
fæmm sem Blikar fengu en misnot-
uðu. Stefán og Sverrir léku vel og
Páll er lunkinn línumaður. Willum
lék vel í vöminni og batt hana vel
saman. Grótta skoraði sex mörk
úr hraðupphlaupum en Blikar ekk-
ert og munar um minna.
mm
Jón Kristjánsson og Einar
Þorvarðarson, Val. Ámi Frið-
leifsson, Víkingi.
m
Sigurður Sveinsson, Valdimar
Grimsson, Geir Sveinsson og
Jakob Sigurðsson, Val. Her-
mann Bjömsson, Fram. Sig-
tryggur Albertsson, Stefán
Amarson og Sverrir Sverris-
son, Gróttu. Hans Guð-
mundsson, UBK. Sigurður
Jensson, Karl Þráinsson og
Bjarki Sigurðsson, Víkingi.
Sigurður Gunnarsson, ÍBV.
Héðinn Gilsson og Guðjón
Ámason, FH. Erlingur Kristj-
ánsson, Friðjón Jónsson og
Haraldur Haraldsson, KA.
KONUR
Allteftir
bókinni
ÍSLANDSMEISTARAR Fram
hófu titilvörnina í 1. deild
kvenna gegn Stjömunni og
voru ekki sannfærandi f leik
sínum þrátt fyrir sigur, 19:13.
FH vann nauman sigur á
Víkingi, 15:14.
Leikur Fram og Stjömunnar fór
rólega af stað. Fyrstu 15 mínú-
tumar vom aðeins 4 mörk skomð.
Þar af átti Fram þrjú. Stjaman
náði að jafna, en
H. Katrín Fram seig aftur
Friðríksen fram úr og leiddi I
sknlar leikhléi 8:5 og sigr-
aði nokkuð öragg-
lega. Framliðið var frekar jafnt að
getu í leiknum. Hjá Stjömunni var
Ragnheiður Stephensen frísk.
Mörk Fram: Ama Steinsen 4, Björg Berg-
steinsdóttir 4/1, Guðríður Guðjónsdóttir 4,
Jóhanna Halldórsdóttir 2, Ingunn Bemótus-
dóttir 3, ósk Víðisdóttir, Guðrún Gunnars-
dóttir, Margrét Blöndal.
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður Stephensen
5, Herdís Sigurbeigsdóttir 4, Drífa Gunnars-
dóttir 2, Erla Rafnsdóttir 1/1, Ingibjörg Andr-
ésdóttir 1.
FH-Vfklngur 16:14
FH-stúlkumar byijuðu vel og náðu
fljótlega yfirhöndinni í leiknum.
Þær voru sex mörkum yfír í leik-
hléi. Um miðjan síðari hálfleik var
munirinn enn 6 mörk, en þá tóku
Víkingsstúlkumar við sér og skor-
uðu næstu fjögur mörk, en fjörkipp-
urinn kom aðeins of seint.
í liði FH er mikil breidd og getur
þjálfarinn leyft sér þann munað að
hvfla landsliðstúlkur sínar á bekkn-
um langtlmum saman, án þess að
það komi niður á leik liðsins. Hjá
Víking byggist spilið að mestu á
tveimur manneskjum, Svövu og
Ingu Láru.
Mörk FH:Rut Baldursdóttir 5/1, Eva Baldurs-
dóttir 4/1, Kristln Pétursdóttir 2, Heiða Ein-
arsdóttir 2, Amdis Aradóttir 1 og Helga Sig-
urðardóttir 1.
Mörk Víkings: lnga Lára Þórisdóttir 8/4,
Svava Baldvinsdðttir 2, Valdls Birgisdóttir 2,
Halla Helgadóttir 1 og Heiða Erlingsdóttir 1..
UBK-Grótta 17 : 20
íþróttahúsið Digranesi, íslandsmótið í handknattleik, miðvikudaginn 9. nóvember 1988.
Gangur leiksins: 1:0, 4:4, 5:7, 6:9, 8:11, 10:11, 13:11, 14:14, 16:15, 17:17, 17:20.
UBK: Hans Guðmundsson 8/3, Jón Þ. Jónsson 5/2, Andrés Magnússon 2, Kristján
Halldórsson 1, Magnús Magnússon 1, Haukur Magnússon, ólafur Björnsson, Pétur Am-
þoreson, Sveinn Bragason, Þórður Davíðsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 13/2, Þórir Sigurgeirsson.
Grótta: Stefán Amarson 6, Sverrir Sverrisson 5, Willum Þór Þóreson 2, Páll Björgvins-
son 2, Davíð B. Gislason 2. Halldór Ingólfsson 1, Gunnar Gíslason 1, Svafar Magnússon
1, Friðleifur Friðleifsson, ólafur Sveinsson.
Varin skot* Sigtryggur Albertsson 13/2, Stefán öm Stefánsson.
Utan vallar: UBK í 12 mínútur. Grótta í 10 mínútur.
Ahorfendur: 176
Dómarar: Bjöm Jóhannesson og Sigurður Baldursson og dœmdu þeir ágætlega.