Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 37
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1988; B86! H3SM382KI .IS 3U0AQUHIVQIM jðlQAJHi'íUDÍiOH ^Öl^UNSLS^B^T^VnclJDAGUR 21. DESEMBER 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Öngþveiti í stjórnmálum Nú fer að koma að því að úrslit fáist í ýmsum mái- um á Alþingi. Þótt reynslan af samstarfí núverandi stjóm- arflokka sé ekki mikil enn sem komið er, fer auðvitað ekki á milli mála, að töluverður skoðanamunur er þeirra í milli. Það þarf engum að koma á óvart. Þegar ríkisstjómin var mynduð var forráðamönnum hennar ljóst, að þeir höfðu ekki tryggt sér starfhæfan meirihluta á Alþingi. Þeir töluðu á þann veg í upphafí, að nú mundi reyna á, hvort hægt væri að koma málum fram í þinginu með sama hætti og tíðkast á öðrum Norður- löndum, þar sem minnihluta- stjómir semja við stjómarand- stöðu um framgang mála. Formlegar viðræður stjóm- arflokka við stjómarandstöðu hafa ekki skilað árangri. Á hinn bóginn sýnist augljóst, að sfjómin gerir sér vonir um eitthvert liðsinni frá einstökum þingmönnum Borgaraflokks- ins til þess að koma málum fram nú fyrir jól eða áramót. Þá er ekki ólíklegt, að for- svarsmenn stjómarflokkanna telji möguleika á að tryggja stjóminni starfhæfan meiri- hluta á Alþingi til einhverrar frambúðar með formlegri samningum við einhveija þing- menn Borgaraflokksins. Skoðanamunur milli stjóm- arflokkanna hefur verið áber- andi undanfamar vikur og mánuði. Ef fjórði stjómmála- flokkurinn eða einhver hluti hans gengur til formlegs sam- starfs við ríkisstjómina, verður það ekki til þess að auka á' samstöðu stjómarflokkanna, heldur verða samningaviðræð- ur þeirra í milli flóknari og erfíðari. Þess vegna er engin ástæða til að ætla, að þjóðin búi við sterkari stjóm í raun, þótt ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar fái fleiri þing- menn til liðs við sig. Borgaraflokkurinn var auð- vitað byggður upp fyrst og fremst í kringum einn mann, Albert Guðmundsson. Nú þeg- ar hann hverfur af vettvangi stjómmálabaráttunnar má al- veg eins búast við því, að þessi flokkur sundrist, einhveijir þingmenn hans gangi til sam- starfs við vinstri stjóm en aðr- ir horfí til annarra átta. Borg- araflokkurinn sótti mikinn hluta fylgis síns í síðustu kosn- ingum til Sjálfstæðisflokksins. Bein eða óbein aðild flokksins eða hluta hans að núverandi ríkisstjóm er ekki líkleg til þess að auðvelda Borgara- flokksmönnum að halda því fylgi- Morgunblaðið harmar það ekki. Hvort sem fólki líkar betur eða verr er það augljós staðreynd, að Alþingi íslend- inga á erfíðara með að taka á alvarlegum vanda þjóðarinnar um þessar mundir vegna þess, að gömlu stjórnmálaflokkamir hafa veikzt svo mjög. Nýir aðilar á þingi hafa ekki sýnt þann styrk sem þingið þarf á að halda til þess að rækja skyldur sínar. Það hefur ekki orðið þjóðinni til farsældar, að stjórtimálaflokkum hefur fjölgað. Núverandi ríkisstjóm hefur ekki enn gert þjóðinni grein fyrir því, hvemig hún hyggst taka á vandamálum atvinnu- veganna. Væntanlega kemur það í ljós, fljótlega eftir ára- mótin. En óneitanlega getur að því komið fyrr en síðar, að þjóðin spyiji, hvort nokkur kostur sé á að leysa þá sjálf- heldu sem í þinginu er á annan hátt en með kosningum. Þessi sjálfhelda hefur verið frá því að úrslit kosninganna vorið 1987 urðu ljós. Þá var ekki hægt að mynda meiri- hlutastjóm nema með aðild þriggja flokka. Án Sjálfstæðis- flokksins var ekki hægt að mynda starfhæfa meirihluta- sljóm nema með aðild fjögurra flokka. Núverandi stjórnar- flokkar hafa horfzt í augu við þennan vemleika að undan- fömu. Þessi sjálfhelda hefur leitt til öngþveitis á stjóm- málasviðinu. Hér eru stjóm- málamenn mjög fastir fyrir, þegar um er að ræða samstarf milli stjómar og stjómarand- stöðu. Sú hefð, sem skapazt hefur í þeim efnum á öðrum Norðurlöndum er ekki til hér. Þau vinnubrögð, sem tíðkast þar, virðast ekki líkleg til árangurs hér, þótt auðvitað megi segja, að það sé full- snemmt að fullyrða um það. Þótt fólk sé áreiðanlega til- búið til þess að Í>íða enn um sinn og sjá hvers eðlis tillögur ríkisstjómarinnar í málefnum atvinnuveganna verða hljóta stjómmálamenn í öllum flokk- um að gera sér ljóst, að þolin- mæði kjósenda getur þrotið fyrr en varir. 4 Ólafur K. Magnússon Vetrarsólstöður í dag Vetrarsólstöður eru í dag, miðvikudag, en þá er sólargangur styst- ur. Sólstöður eru á tímabilinu 20. til 22. júní og 20. til 23. desem- ber. Nafhið sólstöður mun vísa til þess að sólin standi kyrr, það er að segja hætti að hækka eða lækka á lofti, segir í Stjömu- fræði Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Tillaga í borgarráði: Framleiðendum kynnt skilyrði bjórviðskipta 60 aðilar fengu skilmálana senda ÁFENGIS- og tóbaksverslun rikisins hefur sent bjórfram- leiðendum og umboðsaðilum þeirra bréf, þar sem kynntir em almennir skilmálar sem versl- unin krefst af þeim sem koma til með að framleiða hinar fímm útvöldu tegundir sem verða munu á boðstólum í verslunum ÁTVR. Um 60 aðilar höfðu haft samband við Áfengisverslunina og fengu þeir senda skilmálana, segir Höskuldur Jónsson for- stjóri ÁTVR. Höskuldur sagði að síðan yrðu bjórviðskiptin, það er með þessar fímm tegundir, boðin út meðal þeirra sem uppfylla skilmálana. Engin tímamörk hafa verið sett á svörin, en Höskuldur sagði að tíminn sem til stefnu er sé orðinn það knappur að ekki megi lengi bíða. Meðal skilmálanna er að fram- leiðendur geti útvegað bjórinn á dósum, flöskum og á kútum fyrir veitingahús. Ennfremur að dósim- ar verði úr áli og með föstum flipa og að þær komi þannig pakkaðar að hægt sé að afgreiða sex saman. Um leið og útboðsgögn verða send út þarf að hefja samningavið- ræður meðal annars um flutninga út um land. Einnig er eftir að ákveða hvemig afgreiðslu til veit- ingahúsa verður háttað, en Hös- kuldur segir að fram til þessa hafí útkeyrsla verið eingöngu á afgreiðslutíma verslana ÁTVR. Hins vegar sé ekki útilokað að afgreiða bjór til veitingahúsa utan þess tíma, til dæmis um helgar. Skólamáltíðir tíl að minnast frumheijanna LAGÐAR hafa verið fram í borgarráði tillögur frá nefiid, sem skipuð er til að minnast þess að áttatíu ár eru liðin frá því konur tóku fyrst sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur. Telur nefiidin brýnt að teknar verði upp máltíðir í skólum til að minnast frumherjanna. Jafiiframt fer nefhdin fram á 500.000 króna fjárveitingu. Nefndin leggur til að þegar næst verða valin götuheiti í nýju hverfi í borginni séu þau tengd nöfnum þeirra kvenna, sem fremstar stóðu í réttindabaráttu kvenna fyrir og eftir síðustu aldamót og fyrstu árin eftir að konur voru kosnar í bæjar- stjórn. Jafnframt mun nefndin leita eftir tillögum frá fjórum listakonum, tveimur myndhöggvurum og tveim- ur í myndvefnaði, en einni þeirra yrði síðan falið að vinna listaverk, sem táknrænt gæti verið fyrir þessi fyrstu ár. Listaverkinu verði komið fyrir á áberandi stað í borginni, utan húss eða innan. Þá hefur nefndin kynnt sér hver fyrstu baráttumál kvenna í bæjar- stjóm vom en þau vom að koma upp leikvöllum, fá sundkennslu fyr- ir stúlkur og koma á skólamáltíðum. í greinargerð nefndarinnar kemur fram að flestar tillögur þeirra hafi náð fram að ganga og þyki sjálf- sagðar. Þótt aðstæður séu aðrar nú en í byijun aldarinnar er næring- arástand skólabama enn óviðun- andi. Nefndin telur því biýnt að teknar verði upp máltíðir í skólum borgarinnar. Þannig yrði fmmheij- anna minnst á verðugan hátt. Þessir skilmálar og útboð í framhaldi af þeim taka einungis til hinna fimm tegunda, þriggja erlendra og tveggja innlendra, sem verða í verslunum ÁTVR, enn hefur ekkert verið ákveðið um þær tegundir sem boðið verður upp á í bjórbúðinni á Stuðlahálsi, þar sem fleiri tegundir eiga að fást. Evrópumót 20 ára og yngri: Þröstur vann tvær fyrstu skákirnar ÞRÖSTUR Þórhallsson hefiir unnið fyrstu tvær skákir sínar á Evrópumeistaramóti 20 ára og yngri, sem hófst i Árnhem í Hollandi á mánudag. Hann er nú efstur á mótinu ásamt 4 öðr- um keppendum en alls tefla 32 skákmenn á mótinu. I fyrstu umferð hafði Þröstur hvítt og vann Austurríkismanninn , Topakian í 55 leikjum. I annarri umferð, sem tefld var í gær, vann hann svo Pólveijann Kula í 33 leikjum. Þriðja umferð af þrettán verður tefld í dag og mætir Þröstur þá annað hvort sterkasta manni mótsins, Sovétmanninum Gelfand, sem hefur 2 vinninga, eða Búlgar- anum Deltsjev, sem hlotið hefur IV2 vinning. Jólapósturinn til Hveravalla HJÓNIN á Hveravöllum, Kristín Þorleifsdóttir og Kristinn Pálsson, fengu jólapóstinn sinn og annan varning tilheyrandi jólunum um helgina síðustu. Það var Hafþór Ferdinandsson sem flutti þeim vam- inginn fyrir Veðurstofu íslands. Snjólétt hefiir verið á hálendinu og því gestagangur mikill á Hveravöllum það sem af er vetri. Hafþór er ekki með öllu ókunnur á þessum slóðum, enda hefur hann fengið viðumefnið Hveravalla- skreppur í kunningjahópi. Þetta var í sjötta skiptið sem hann fer með jólavaming að veðurathugunarstöð- inni á Hveravöllum fyrir Veðurstof- una. Með Hafþóri í för að þessu sinni var Þór Ægisson. Hafþór sagði eftir þessa jólaferð að snjólétt hafí verið á leiðinni og hafí svo verið á hálendinu það sem af er vetri. Gestagangur hefur því verið óvenju mikill á Hveravöllum. Ferðalangar gista í sæluhúsum á Hveravöllum og segja þau Kristín og Kristinn að umgengni um húsin hafí verið góð. Reglulegar veðurathuganir hóf- ust á Hveravöllum árið 1965. Þau Kristín og Kristinn hafa gegnt starfí veðurathugunarmanna þar Jólavamingurinn drifínn í hús. Kristinn Pálsson og Kristín Þor- leifsdóttir á tröppum íbúðar- hússins á Hveravöllum fylgja gestunum úr hlaði. Jólavarning- urinn kominn í hús, nema jóla- tréð sem bíður síns tima við hús- gaflinn. Hafþór og Þór em að leggja í hann aftur til byggða og hjónanna á Hveravöllum bíður jólahald í félagsskap Bangsa og Höllu, heimilisdýranna. síðan í ágúst 1987 og eru þau ell- eftu hjónin sem þar dveljast. Haf- þór segir að þau sjái Sjónvarpið en ekki Stöð tvö. Þau ætla að reyna að hafa eðlilegt jólahald rétt eins og gert er niðri í byggð, með jóla- tré og góðum jólamat. Ekki leiðist þeim einveran því að hjá þeim eru hundurinn Bangsi og kötturinn Halla. Hafþór Ferdinandsson kominn að vegamótunum þar sem Blöndudalur er á hægri hönd og Heravellir tvo kílómetra beint framundan. AF ERLENDUM VETWANGI eftir ÁKE SPARRING Skattlagning mest í Svíþjóð þrátt fyr- ( ir kerfisbreytingar Sumir telja nýju skattalögin undirbún- ing að inngöngu í Evrópubandalagið Sviar hafa til þessa greitt allra þjóða mest í skatta og þeir hafa einnig haft hæsta skatthlutfallið miðað við tekjur. Þær breyting- ar, sem ríkisstjórn jafiiaðarmanna kynnti fyrir skömmu á skatt- kerfínu, valda því hins vegar, að Danir taka forystuna hvað það síðaraefnda varðar en eftir sem áður verða heildarskattgreiðslur mestar í Svíþjóð. Breytingarnar eru samt um- talsverðar því að samkvæmt þeim fellur niður tekjuskattur til ríkisins á 90% launþega og hæsta skattprósentan verður 30%. Jafn- aðarmenn hafa hingað til verið andvígir því að lækka skattpró- sentuna en innan flokksins hafa þó verið mjög skiptar skoðanir á því. Það er einkum alþýðusam- bandið, sem hefur sett sig á móti breytingunum, en Kjell-Olof Feldt fíármálaráðherra hefur hins vegar barist fyrir þeim af mikilli hörku. Afleiðingin var „rósastríðið" svo- kallaða — rósin er tákn jafnaðar- manna — sem borgaraflokkamir höfðu skemmtun af fyrir kosning- ar. Skattatillögumar em því sigur fyrir Feldt, að minnsta kosti að svo komnu máli því að enn eru þær ekki komnar í höfn. Eftir miklar viðræður milli al- þýðusambandsins og flokksins var komist að samkomulagi um, að launþegar, sem hefðu 200.000 skr., um 1.500.000 ísl., í tekjur á árinu 1991, slyppu alveg við tekjuskattinn. Utsvarið breytist hins vegar ekki en það er um 30% af tekjum í flestum sveitarfélög- um. Það er þó nokkuð mismun- andi og getur munað 7% á því hæsta og lægsta. Rekstur sveitarfélaganna er að sjálfsögðu mjög bundinn ákvörð- unum ríkisvaldsins en samt getur munað miklu hvaða flokkur eða flokkar fara með stjórn. Það er þó jafnan svo, að sum sveitarfé- laganna eru vel stæð en önnur ekki. Þeir, sem hafa meira en fyrr- nefnda upphæð í tekjur, eiga áfram að greiða tekjuskatt til ríkisins en ríkisstjómin er enn ekki búin að ákveða hve mikill hann verður. Hefur Feldt kynnt um það tvær tillögur. Samkvæmt annarri skal greiða 50% skatt af öllum tekjum yfír fyrmefndu marki en í hinni er gert ráð fyrir, að skatturinn verði 45% af tekjum á bilinu 200-600.000 skr. eða upp að 4.500.000 ísl. kr. en 60% af tekjum þar fyrir ofan. Samkvæmt núgildandi lögum er greiddur 75% skattur af öllum tekjum fyrir ofan 1.500.000 kr. Alþýðusambandið vildi, að skattprósentan stigi ört hefðu menn meiri tekjur en sem svarar til meðallauna alþýðusambands- félaga en ríkisstjómin þóttist þurfa að taka tillit til annarra lfka, til dæmis til samtaka skrifstofu- og verslunarmanna, sem lengi hafa beðið um lægri skattpró- sentu. Þá hafði ríkisstjómin ekki síður í huga hvað skattaokið hefur haft slæm áhrif á skattasiðferðið og það, að það verður æ erfiðara fyrir Svía að búa við skattkerfi, sem er mjög ólíkt því, sem gerist og gengur í Evrópu. Sumir telja raunar, að með breytingunum sé Kjell-Olof Feldt fjármálaráð- herra Hefiir skattadraugurinn verið lagður að velli eða er ekki allt, sem sýnist? aðeins verið stíga fyrsta skrefíð í átt að inngöngu í Evrópubanda- lagið en eins og kunnugt er á innri markaður bandalagsins að verða að veruleika árið 1992. Nýir skattar í fljótu bragði sýnist mikið í ráðist að fella niður tekjuskatt af 9 af hveijum 10 launþegum en hafa ber í huga, að tekjuskattur- inn er aðeins 18% eða 60 milljarð- ar skr. af heildartekjum ríkisins. Þessari fjárhæð ætlar Feldt að ná aftur með ýmsum öðmm skött- um: * Virðisaukaskatt á að leggja á fleiri vörur og þjónustu en nú er. Það verður því dýrara að lifa. * Hlunnindi ýmiss konar, sem æ meira hefur farið fyrir á síðustu ámm, verða nú skattlögð. Getur það íþyngt vemlega þeim, sem þau hafa, en mælist vel fyrir hjá hinum. * Skattur af fjármagnstekjum verður aukinn og enginn greinar- munur gerður á þeim og atvinnu- tekjum. Þessi skattur getur haft slæm áhrif á spamaðinn. * Frádráttarliðir verða flestir felldir niður eða minnkaðir vem- lega. Algengastur frádráttur nú er vegna lána á íbúðarhúsnæði eða sumarbústöðum. Húsnæði verður sem sagt dýrara vegna þessarar breytingar. * Skattur á fyrirtæki verður auk- inn. Ekki er ljóst hvort þessi nýja skattlagning færir ríkissjóði 60 milljarðana aftur en Feldt vonast til, að lægri skattprósenta hvetji fólk í hlutastarfi til að fara að vinna allan daginn. Við það gæti skattgmnnurinn aukist. Pólitísku htiðarnar Að því er stefnt, að skattatillög- umar liggi endanlega fyrir á sumri komanda og geti orðið að lögum árið 1990, í tæka tíð fyrir kosningamar 1991. Það verður hins vegar ekki túlkað nema sem undanhald þegar jafnaðarmenn leggja til, að skattprósentan verði lækkuð, enda em fiestar tillögur þeirra komnar frá borgaraflokk- unum og samtökum háskóla- manna. Að þær skuli lagðar fram nú, tveimur mánuðum eftir kosn- ingar, sýnir, að þær hafa þótt of viðkvæmt mál í kosningabarát- tunni. Eins og áður hefur komið fram eiga breytingamar ekki að minnka heildarskattlagninguna. Þær eiga að gera kerfið virkara og koma í stað þess „úrkynjaða“ kerfis, sem nú er. „Úrkynjað" var orðið, sem formaður alþýðusam- bandsins notaði á blaðamanna- fundi án þess að nefna hveijir hefðu komið kerfinu á og stáðið vörð um það. Feldt sagði, að núverandi kerfí hefði verið hætt að ganga sem skyldi. Það hefði verið orðið svo götótt að eitthvað varð að gera og nýja kerfíð, sagði Feldt, mun útrýma skattsvikum. Á því hafa skattasérfræðingar þó enga trú og varla nokkur annar. Núverandi kerfí er algerlega búið að upp- ræta það, sem eftir var af gamla skattasiðferðinu. Talsmenn borgaraflokkanna segjast óttast, að breytingamar geti orðið til að auka skattlagn- inguna. Hafa þeir þá sérstaklega í huga sveitarstjómarmennina, sem gætu freistast til að hækka útsvarið í skjóli þess, að fólk fengi meiri peninga í launaumslaginu. Sannast sagna veit þó enginn hver útkoman verður enda eiga tillögumar eftir að vellqast á milli allra þeirra hagsmunahópa, 'sem ríkisstjómin þarf að taka tillit til. Þessi togstreita kemur vel fram í umræðum á þingi. Kommúnistar vilja alls ekki lækka skattprósent- una og ef stefna græningja er skoðuð ættu þeir að vera á móti því líka. Miðflokkurinn, sem sæk- ir sinn styrk til iandsbyggðarinn- ar, er hlynntur því að lækka skatt- prósentuna en vill, að sveitarfé- lögin fái þá ftjálsari hendur við að ákveða útsvarið. Þjóðarflokk- urinn, sem var með svipaðar til- lögur í kosningabaráttunni, hefur slæma reynslu af fyrra samstarfi við jafnaðarmenn og vill því ekk- ert af því vita núna og Hægri- flokkurinn er ekki til viðtals nema um verði að ræða raunverulega heildarskattlækkun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.