Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1988 63 In Memoriam: Jón Símon %rist- jánsson írá Isafírði Fæddur 3. desember 1936 Dáinn 10. desember 1988 Nú er hann horfínn og margir sakna hans. Þa,ð þótti öllum vænt um hann, sem þekktu hann eins og hann var í eðli sínu. Jón Símon var alla ævi eins og unglingurinn í skóginum — hann gat ekki orðið gamall eða hrörleg- ur. Hvorki hann sjálfur né aðrir, sem blönduðu geði við hann, gátu hugsað sér, að hann yrði gamall í sálrænum skilningi. Sumir fara að verða gamlir þegar á unga aldri — það er önnur saga. Jón Símon — allir muna eftir honum, sem eitt sinn sáu hann. Hann stendur ljóslifandi fyrir hugskotssjónum sem nemandi í gamla M.A. — Menntaskólanum á Akureyri — unglingur að vestan, sem ekki var físjað saman. Það fylgdi honum góður kraftur og sér- stakt viðmót. Hann fór ævinlega sínar eigin leiðir, en snemma fékk hann orð fyrir að vera góður félagi — félagi, sem aldrei brást. Hins vegar var hann ekki allra. Hann var einn þeirra. manna, sem snemma á ævi eignaðist nána vini, af því að hann var gæddur réttu siðferði, kunni óskráð hörð lög í stríðsfélagsskap lífsins út í yztu æsar — það sannaðist svo oft í sam- skiptum við hann. Símon skipti um skóla og varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1958 — og þar eignað- ist hann líka góða félaga eins og í M.A. Hann var af þeirri kynslóð, sem fæðist rétt fyrir stríð, mótaður af lífsbaráttu feðranna og mæðr- anna — og því hafði hann tileinkað sér hugarfar, sem einkenndist af sjálfsvirðingu og þar sem einkunn- arorðin voru að viðhalda sinni reisn, hvað sem tautaði og raulaði. Eftir stúdentspróf fór hann beint út í lífíð. Hann sóttist ekkert.eftir vegtyllum — hann var laus við sýnd- armennsku, enda þótt hann væri ekki fjarri því að vera gæddur innri metnaði, sem er í lífsstíl margra Vestfírðinga. Hann gekk í augun á „betra kyninu“ — stúlkunum svo mjög, að eitt sinn, þá er hann var í M.A., höfðu skólasystur hans komið sér saman um að velja hann úr hópi vaskra og gjörvilegra sveina og krýna hann og sæma hann titlinum „fegurðarkóngur M.A.“. Engin væmin keppni hafði farið fram í stíl við öldurhúsin Broadway og Hollywood nú á dögum — þær gerðu þetta með leynd og mjúklega eins og kvenna er háttur. Jóni líkaði þetta stórum illa — því að hann var laus við allan hégóma (hugsaði eins og karlmenni) og virtist ekki hafa minnstu hugmynd um, hve vel hann væri gerður og hve vel hann liti út. Hann barst aldrei á, enda þótt á stundum gætu fylgt honum mikil veður og stórir sjóar eins og með feðrum hans úr Amarfirði og Dýra- fírði, sem voru annálaðir skipstjóm- armenn, hvalaskyttur og víkingar til allra athafna. Jón Símon varð- veitti manndómsútlit sitt til hinztu stundar þrátt fyrir éljagang lífsins. Hann kvæntist aldrei og það var synd. Hann var öðmm þræði við- kvæmur í lund eins og allir, sem þekktu hann náið, geta borið vitni um. Á sama hátt og hann var rækt- arsamur við vini og kunningja hefði hann örugglega orðið góður faðir og heimilisfaðir — hann var sagður bamgóður og ennfremur elskaði hann dýr, sem á sama hátt og böm- in geta verið fullorðnum fyrirmynd — dýrin svíkja aldrei fremur en óspillt böm. I hvert sinn sem Jón var hittur að máli var gott að gleðj- ast með honum og deila með honum andlegum verðmætum, en þau kosta sjaldnast peninga. Eins og fyrr segir ólst Jón Símon upp á ísafírði. Hann átti til góðra að telja, manndómsfólks í hvívetna og ólst upp á frægu menningar- heimili á „gamla góða ísafirði" eins og sumir kalla þann stað. Hann var af austfírzku bergi brotinn í móður- legg, kominn af kröftugu bænda- fólki. Móðir hans Katrín Anna Sig- fúsdóttir, fædd 1905 og því 83ja ára er á lífí og em; býr nú í Reykjavík. Hún var fædd á Galta- stöðum í Hróarstungu á Fljótsdals- héraði, en foreldrar hennar vom Margrét Bjömsdóttir og Sigfús Magnússon, bóndi. Sverrir heitinn Kristjánsson sagnfræðingur talaði stundum um Austfirðinga sem þjóð með „ákveðin góð einkenni". Katrín Anna móðir Jóns Símonar vann veturinn 1930—31 á heimili for- eldra minna fyrir norðan, var þeim til trausts og halds, og einmitt þá um vorið var undirskráður skírður. Katrín Anna naut virðingar allra á ísafírði, og eins og alkunna er, þá gera vestfirzkir kröfur til mann- kosta. Hún er ljóðelsk og sögð kunna flest ljóð Davíðs frá Fagra- skógi. Hún er listræn eins og dóttir- in Margrét, læknisfrú úti í júess, sem er eina systkin Jóns heitins — en Margrét er brautskráð úr Verzl- unarskólanum; lærði útstillingar og hefur stundað slíkt auk listmálunar og teiknunar. Eiginmaður hennar er íslenzkur læknir í Minneapolis. Faðir Jóns Símonar var ein af þessum karlmannlegu kempum, hét Kristján Hannes Jónsson, f. 1900; fyrst stýrimaður og síðar skipstjóri, kaupmaður og forstjóri Hektors á ísafirði. Faðir Kristjáns (afí Jóns Símonar) var Jón Pálsson, f. 1859, d. á ísafírði 1923; hann var kallað- ur skipherra, fyrst í Stapadal og síðar í Álftamýri í Amarfirði 1890—95 — síðan skipstjóri í Hnífsdal og á ísafírði. Kona hans var Símonía, f. 1860, d. á ísafírði 1943, Kristjánsdóttir, bónda að Hvammi í Dýrafirði, Jónssonar á Rauðsstöðum, Sumarliðasonar á Sveinseyri í Dýrafirði. Jón Pálsson og Símonía vom systkinabörn, því móðir hennar, kona Kristjáns í Hvammi, var Sigríður Símonardótt- ir frá Dynjandi, sem hinn frægi Dynjandisfoss er kenndur við — margir telja hann hrikafegurri en Niagara Falls. Svo mikið er víst, að þessi amfirzki foss minnir alltaf á skapið og geðslagið í Stapadals- og Álftamýrarættinni. Kristján Hannes var síðustu ár þeirra hjóna á ísafírði hafnsögu- maður, en þau hjón fluttust til Akraness 1966. Kristján Hannes dó 1972. Ymsar kynfylgjur eru í báðum ættum Jóns Símonar, enda var hann athyglisverður karakter. Hann var í einu orði sagt karakter, sem gekk einn um lífsins brautir og valdi leið- ina sjálfur og lenti stundum í hálf- gerðum sjóskaðaveðrum eins og forfeður hans. Honum fylgdi líka óhemjulegur dugnaður á köflum — það geta allir vinnufélagar og starfsbræður hans, sem vom hon- um samferða, vitnað. Langur var ferillinn. Hann var orðinn vel sjóað- ur. Fyrst á togurum og bátum, sem hafði látið honum vel. Svo vinna í Mjólkárvirkjun í námunda við Dynj- andi — á slóðum uppmnans — síðan Búrfellsvirkjun um hríð; þessu næst Sigalda — þar var hann lengst af. Og í kjölfarið fylgdu Hrauneyjar- foss; svo Sultartangi; þá Helguvík og þá Blönduvirlqun og nú allra síðast vinnandi við Byggung. Hann var orðinn fastur maður við Orku- stofnun ríkisins, orðinn verkstjóri; hann þótti laginn við að stjóma mönnum og sagði mönnum vel til og gaf þeim sjálfstraust eins og góðra kapteina er háttur. En hann var einmitt lifandi dæmi um vest- fírzkan kaptein, sem var orðinn stéttlaus, en fremstur meðal jafn- ingja og 'með gunnfánann hátt á lofti í fremstu víglínu. Það var gaman að hitta hann í Sigöldu fyrir þrettán ámm, þegar reynt var af lífs- og sálarkröftum að gera á staðnum skyndimyndir af þessum rosa-karaktemm, sem unnu þar — jafnt útlenzkum sem innlendum — og þessir Klondyke- foglar látnir borga á borðshomið eins og í „Wild West“ — já, þetta var gert upp á líf og dauða til þess að yfírstíga veraldlega örðugleika og öðlast stundar-sjálfsvirðingu í ögmnarstíl, sem var í stíl við hart líf þar í fjöllunum. Menn eins og Jón gáfu alltaf félögum sínum sið- ferðilegan styrk í tvísýnum leik. Jón Símon vann alla tíð í hörðum lotum eins og á vertíðum. Vinir hans höfðu það eftir honum, að hann talaði utfi það í hvert sinni sem honum var farið að leiðast að vera lengi í litlu stórborginni Reykjavík — dvölin gat stundum spannað yfír þijá til fjóra mánuði á ári hveiju — að nú yrði hann „að fara á ijöllin" eins og hann orðaði svo. Þar leið honum oft vel. Hann var einn þeirra, sem fann hamingj- una í vinnunni. Og nú er hann aftur „farinn á fyöllin" .. . þar sem frelsið er. Að Hæðardragi, Steingrímur St. Th. Sigurðsson. Kveðja: Else A. Snorrason Fædd 11. mai 1911 Dáin 14. nóvember 1988 Það var þungt högg að frétta að Else Anny Snorrason væri farin frá okkur. Hjartans þakkir flyt ég henni fyrir allar okkar ógleymanlegu æskustundir. Ég er búin að liggja á spítala í margar vikur og gat ekki fylgt henni síðasta spölinn. Guð blessi Else Anny og varð- veiti á nýjum leiðum. Innilegar sam- úðarkveðjur til fjölskyldunnar. Gulla Lokað Verkstæði og skrifstofa Sindrasmiðjunnar hf. verða lok- uð fyrir hádegi miðvikudaginn 21. desember vegna jarð- arfarar frú JAKOBÍNU ÞORÐARDÓTTUR. Sindrasmiðjan hf. t Útför móður okkar, JAKOBÍNU H. ÞÓRÐARDÓTTUR, Háuhlíð 20, er andaðist 16. desember fer fram frá Dómkirkjunni í dag, mið- vikudaginn 21. desember, kl. 10.30. Ásgeir Einarsson, Sigríður Einarsdóttir Zoega, Ragnar Einarsson, Þórður Einarsson, Óskar Einarsson, Björn Einarsson. t Eiginmaður minn. sonur, faðir, tengdafaðir og afi okkar, GUÐMUNDUR BJÖRNSSON verkfrœðlngur, Grenimel 49, Reykjavfk, sem andaðist þriðjudaginn 13. desember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 22. desember kl. 15.00. Guðlaug Ólafsdóttir, Rannveig Gunnarsdóttir, Borghildur Guðmundsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Björn Guðmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Ólafur Guðmundsson, og barnabörn. Roger Stanton, Bjarni Ólafsson, Sigrún Guðjónsdóttir, Bryndfs Birnir t Útför ástkærrar eiginkonu minnar, STEFANÍU SIGRÚNAR STEINSDÓTTUR, Hólsvegi 16, er lést í Landspítalanum 13. desember sl. fer fram frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 21. desember nk. kl. 15.00. Fyrir mína hönd, barna okkar og annarra vandamanna, Hörður Runólfsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og minn- ingarathöfn um KRISTIN RÚNARSSON ÞORSTEIN GUÐJÓNSSON. Hildur Björnsdóttir, Guðrún Hafliðadóttir, Rúnar Guðbjartsson, Björk Arngrímsdóttir, Guðjón K. Þorsteinsson og fjölskyldur. S t Þökkum hjartanlega sýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls sonar okkar, bróður og dóttursonar, KJARTANS RAGNARS KJARTANSSONAR. Margrót Kolbeinsdóttlr, Kjartan Kjartansson, Guðmundur Ingvason, Guðrún Guðmundsdóttir, Elfsabet Kjartansdóttir, HalldórS. Kjartansson, Pótur Ö. Guðmundsson, Inga Björg Kjartansdóttir, Guðrún Elfsabet Halldórsdóttir. t Hjartans þakkir til ættingja og vina fyrir þá samúð og hlýju, sem þið sýnduð okkur við andlát og útför mannsins míns, föður okk- ar, tengdaföður og afa, VILHJÁLMS ÞÓRÐARSONAR bifreiðastjóra, Ofanleiti 27. Helga Finnbogadóttir, Svanur Þ. Vilhjálmsson, Hlöðver Vilhjálmsson, Erla Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Viðar Vilhjálmsson, Einar Þ. Vilhjálmsson, og barnabörn. Rósfna Myrtie Vilhjálmsdóttir, Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, Skúli Jóhannesson, Anna Johnsen, Rósa Stefánsdóttir Jóhanna Björnsdóttir t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar og afa, SÆMUNDAR L. JÓHANNESSONAR stýrimanns, Hverfisgötu 52b, Hafnarflrðl. Sórstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á St. Jósepsspítala, Hafnarfirði. Sigurveig Guðmundsdóttir, Hverfisgötu 52b, Hafnarfirði, Guðrún Sæmundsdóttir, Margrót Sæmundsdóttir, Gullveig Sæmundsdóttir, HJalti Sæmundsson, Logi Sæmundsson, Frosti Sæmundsson, Jón Raf nar Jónsson, Þorkell Erlingsson, Stelnar J. Lúðvfksson, Jenný Einarsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Dagbjörg Baldursdóttir, Margrót Thorlacius, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.