Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 40
40
Sr. Arelíus
áritar
Sr. Árelíus Níelsson áritar ævi-
minningar sínar Horft um öxl af
Hálogalandshæð í Hagkaupi,
Kringlunni, í dag kl. 15—17 og í
Hagkaupi, Skeifunni, kl. 17.30—19.
Á morgun, fímmtudag, áritar sr.
Árelíus í Kaupstað í Mjódd kl.
16—18 og á Þorláksmessu í Mikla-
garði við Sund kl. 16—18.
(Fréttatilkynning)
Einar Már
áritar í dag í
Eymundsson
EINAR Már Guðmundsson mun
árita bók sína „Leitin að dýra-
garðinum" i Bókaverslun Sigfus-
ar Eymundssonar í dag, 21. des-
ember frá klukkan 14.00—16.00.
Háskóli íslands:
Erindi um
fjármögn-
un háskóla-
starfsemi
DR. ÞÓRARINN Stefánsson, að-
stoðarforstöðumaður Eðlisfræði-
stofnunar Verkfræðiháskólans i
Þrándheimi heldur erindi um
Qármögnun og stjórnun háskóla-
starfsemi í kennslusal 101 í Odda
i dag, miðvikudag, klukkan
16.15.
Erindið nefnist „Breytt viðhorf í
§ármögnun og stjómun rannsókna
og kennslu við háskóla í Noregi."
í frétt frá Háskóla íslands segir að
miklar breytingar eigi sér nú stað
í fjármögnun háskólastarfsemi í
Noregi og að svipaðra breytinga
megi vænta hér á komandi árum.
Þórarinn mun lýsa því sem gerst
hefur í Noregi, meðal annars með
dæmum frá Þrándheimi.
Athugasemd
Vegna fréttar af fyrirspumum
Ríkisendurskoðunar til dómsmála-
ráðuneytis vegna viðgerða á lög-
reglubílum af landsbyggðinni vill
Sigurður Helgason, sýslumaður í
Norður-Múlasýslu, að fram komi
að bflar lögreglu í sýslunni hafí aldr-
ei verið sendir suður til viðgerðar.
Halldór Páls-
son í Heita
pottinum
Saxófónleikarinn Halldór
Pálsson treður upp í Heita pottin-
um í kvöld, miðvikudag, ásamt
kvartett Arna Scheving.
Halldór hefur undanfarin 14 ár
verið búsettur í Svíþjóð, Þar starfar
hann við kennslu og hljóðfæraleik
en kunnastur er hann fyrir störf
sín með ABBA og stórsveit Leif
Kronlund.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
Misfarið var með nafn Benedikts
Blöndal hæstaréttardómara í frá-
sögn af dómi Hæstaréttar um at-
vinnuleyfí leigubifreiðarstjóra í
blaðinu hér í gær. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Aldrei írýs á Stebba stál
STEBBI stál er þessi litli álfur kallaður sem stendur og sprautar
vatni i miðri tjöm í garðinum á Fjólugötu 10. Stebbi litli fær
bara kalt vatn en veðráttan hefur verið slík í vetur að vatnið
hefur aldrei frosið.
Fjárhaldsslj órnin
heimsækir Hofsós
Fá dæmi fyrir störfum neftidarinnar
NÝSKIPUÐ gárhaldsstjórn
Hofsósshrepps heldur norður í
dag til viðræðna við heima-
menn. Sýslumaður Skagafjarð-
arsýslu hefur veitt Hofsós-
hreppi greiðslustöðvun til
þriggja mánaða frá og með
síðastliðnum mánudegi.
Hreppsnefnd Hofsóshrepps ósk-
aði eftir aðstoð félagsmálaráðu-
neytisins vegna greiðsluerfiðleika
sveitarféiagsins. Félagsmálaráðu-
neytið fól endurskoðunarfyrirtæki
að rannsaka fjármál sveitarfélags-
ins og skilaði það skýrslu um nið-
urstöður sínar. I kjölfar þess ákvað
félagsmálaráðherra að svipta
hreppsnefndina fjárforráðum og
skipaði fjárhaldsstjóm.
Hlutverk hennar er að koma
fjármálum sveitarfélagsins á rétt-
an kjöl, að sögn Húnboga Þor-
steinssonar, formanns fjárhalds-
stjómarinnar. Húnbogi sagði að
nánast engin fordæmi væm fyrir
störfum fjárhaldsstjómar sem
þessarar. Mál Kaldrananesshrepps
fyrir 30 ámm - þegar sveitarstjóm
var síðast svipt fjárforráðum -
væri ekki alveg hliðstætt og störf
fjárhaldsstjómar byggðust á sveit-
arstjómarlögum frá 1986.
Sjálfsbjörg minnir
ráðherra á loforð
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra á fundi fyrir skömmu að minna
á Akureyri og nágrenni, ákvað heibrigðis- og tryggingaráð-
■ herra á ákvæði stjórnarsáttmál-
ans um endurskoðun almanna-
Yfir 50% framleiðslu-
aukning hjá Istess
Unnið að samn-
ingi um útflutn-
ing á 3.000 tonn-
um til Noregs á
næsta ári
en ekki hefðu verið teknar ákvarð-
anir um hvort ráðist yrði í frekari
framkvæmdir.
Hann segir að fyrirtækið sé rek-
ið með tapi en vonast til að hagn-
aður fáist af rekstrinum á næsta
ári. Verið er að auka hlutafé íst-
ess.
tryggingalaga.
Félagsfundur Sjálfsbjargar
samþykkti tillögu þar sem skorað
er á heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra „að sjá svo um að staðið
verði við það ákvæði í stjómarsátt-
málanum að endurskoðun á al-
mannatryggingalögunum fari
fram innan sex mánaða, eins og
þar er ákvaðið."
Fundurinn var haldinn að Bjargi
þann 12 desember.
Söngtónleikar Barböru
ÍSTESS hf. í Krossanesi seldi
rúmlega 9.000 tonn af fiskifóðri
fyrstu ellefu mánuði ársins.
Eigin framleiðsla verksmiðj-
unnar var 7.500 tonn þessa
mánuði en nokkuð flutt inn til
viðbótar. Veruleg framleiðslu-
aukning er hjá Istess því allt
árið 1987 voru framleidd tæp
5.000 tonn i verksmiðjunni.
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri segir að útlit sé
fyrir áframhaldandi aukningu.
Hann segir að afkastageta verk-
smiðjunnar sé að verða fúllnýtt
og að væntanlega verði gerðar
breytingar til að auka hana.
Um 75% af framleiðslu ístess
er flutt út, aðallega til Færeyja
en einnig nokkuð til Noregs. Fjórð-
ungur fer því á innanlandsmarkað.
Guðmundur segir að gott útlit sé
fyrir áframhaldandi útflutning. Til
dæmis væri verið að vinna að
samningi um útflutning á 3.000
tonnum til Noregs á næsta ári.
Þá er útlit fyrir mikla aukningu á
sölu innanlands vegna aukningar
í fískeldinu.
Guðmundur segir að aukin sala
á innanlandsmarkaði sé þó háð því
skilyrði að ^ fískeldisfyrirtækin
greiði fóðrið. ístess eigi nú tugi
milljóna útistandandi vegna sölu á
þessu ári og valdi það fyrirtækinu
erfiðleikum. Ekki væri hægt að
auka þá lánastarfsemi.
Standist áætlanir um aukna
sölu á næsta ári verður verk-
smiðja ístess í Krossanesi fullnýtt
mest allt árið. Guðmundur sagði
að væntanlega yrðu gerðar smá-
vægilegar breytingar á verksmiðj-
unni til að auka framleiðslugetuna
og Jóhannesar um jólin
BARBARA Vigfússon sópran-
söngkona og Jóhannes Vigfússon
píanóleikari halda tónleika á
Dalvik, Akureyri, og á Breiðu-
mýri í Reykjadal um jólin.
Á tónleikunum flytja þau lög
eftir bandariska tónskáldið Ge-
orge Gershwin, Frakkann Fran-
cis Poulenc og Svisslendinginn
Othmar Schoeck.
Fyrstu tónleikamir fara fram á
Dalvík í Víkurröst á annan jóladag
kl. 11. í samvinnu við Tónlistarfélag
Dalvíkur.
Aðrir verða haldnir á sal Mennta-
skólans á Akureyri miðvikudaginn
28. des. kl. 20.30 í samvinnu við
Tónlistarfélag Akureyrar, og þeir
þriðrju á Breiðumýri í Reykjadal
fímmtudaginn 29. des. kl. 20.30.
Hjónin Barbara og Jóhannes eru
búsett í Sviss, og hafa þau haldið
saman fjölda tónleika, bæði í Sviss,
Þýskalandi, Bandaríkjunum og
einnig á íslandi.
Víða um heim var þess minnst á
sl. ári að 50 ár voru liðin frá dánar-
dægri George Gershwins, eins dáð-
asta og vinsælasta tónskálds
Bandaríkjamanna á þessari öld, en
Barbara og Jóhannes flytja nokkur
þeirra laga sem hvað mestrar hylli
hafa notið, eins og „I got rhythm",
„The man I love“, „Somebody loves
me“ o.fl. Svissneska tónskáldið
Othmar Schoeck (1886—1957) var
mikils metinn í Sviss bæði sem tón-
skáld, kórstjóri og hljómsveitar-
stjóri. Auk óperu-, kór- og hljóm-
sveitarverka þá samdi hann mikinn
§ölda sönglaga sem njóta vaxandi
vinsælda víða um heim. Franska
Jóhannes Vigfússon.
tónskáldið Poulenc (1899—1963)
tilheyrði þeim hópi tónskálda sem
nefnd voru „hinir sex“ og mikil
áhrif höfðu á þróun tónsmíða í upp-
hafí þessara aldar. Sönglög Poulenc
hafa notið mikilla vinsælda og búa
yfir einstökum töfrum og krafti.
Barbara Vigfússon nam söng við
tónlistarháskólann í Frankfurt hjá
Elsa Cavelti og síðar við Tónlistar-
háskolann í Ziirich þaðan sem hún
útskrifaðist. Hún lagði síðan stund
á framhaldsnám hjá Maria Stader.
Hún tók einnig virkan þátt í nám-
skeiðum hjá Irvin Gage og flutti
Barbara Vigfússon.
opinberlega ljóðaflokkinn „Mari-
enleben“ eftir Hindemith í sam-
starfí við hann. Hún hefur haldið
flölda tónleika og sungið í útvarps-
upptökum í Köln, Ziirich og í
Reykjavík.
Jóhannes Vigfússon var fyrsti
nemandinn sem úrskrifaðist í píanó-
leik við Tónlistarháskólann á Akur-
eyri. Hann hélt síðan til Ziirich þar
sem hann lagði stund á nám í eðlis-
fræði og píanóleik. Jóhannes lauk
doktorsprófi í eðlisfræði, og loka-
prófi í píanóleik frá Tónlistarháskól-
anum í Ziirich.