Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1988
BorgarafLokksmenn styðja bráða-
birgðalög ríkissljórnarinnar
ALLT bendir til þess að bráðabirgðalög ríkisstjómarinnar verði
samþykkt í neðri deild Alþingis með fulltingi Borgaraflokksins,
eða einstakra þingmanna hans. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir þing-
maður flokksins lýsti því yfir við Morgunblaðið í gser að hún
myndi gera það sem hún gæti til að koma í veg fyrir upplausn
í stjómmálum nú, vegna þess að þjóðfélagið mætti ekki við því.
Július Sólnes formaður þingflokks Borgaraflokksins sagði Morg-
unblaðinu, að þær breytingar, sem stjórnarflokkamir hafa lagt
til á ákvæðum laganna um Atvinnutryggingarsjóð, komi vemlega
til móte við hugmyndir borgaraflokksmanna, og einnig væri þýð-
ingarlitið að deila um það ákvæði laganna sem frysti samnings-
rétt til 15. februar.
Bráðabirgðalögin voru afgreidd
með hraði úr ijárhags- og við-
skiptanefnd neðri deildar í gær,
og komu þar fram breytingartil-
lögur við ákvæði laganna um At-
vinnutryggingarsjóð, m.a. að At-
vinnuleysistryggingarsjóður fái
endurgreiddar 400 milljónir árin
1989 og 1990. Samkvæmt bráða-
birgðalögunum á framlag til
sjóðsins að lækka um 600 milljón-
ir árlega árin 1988-1990 og sú
fjárhæð fer í Atvinnutryggingar-
sjóð.
Þá er gert ráð fyrir að 1. janúr
1991 verði stofnuð sérstök deild
í Byggðastofnun sem taki við
hlutverki Atvinnutryggingar-
sjóðs, og einnig verði Hlutafjár-
sjóði Byggðastofnunar heimilt að
kaupa hlutafbréf fyrirtækja í
tengslum við fjárhagslega endur-
skipulagningu þeirra.
Atkvæðagreiðslu
frestað
Frumvörp til staðfestingar lag-
anna voru tekin til annarar um-
ræðu í gærkvöldi en atkvæða-
greiðslu var frestað til klukkan
10 í dag, að ósk Borgaraflokks-
ins. Júlíus Sólnes sagði við Morg-
unblaðið að borgaraflokksmönn-
um fyndist ríkisstjómin hafi kom-
ið verulega á móts við þá í sam-
bandi við bráðabirgðalögin, eink-
um hvað varðaði Atvinnutrygg-
ingarsjóðinn og fjármögnun hans.
Hins vegar væru skoðanir nokkuð
skiptar um þetta í flokknum og
sumum fyndist lögin vera orðin
flokknum að skapi og öðrum fynd-
ist að gariga þurfi lengra til móts
við flokkinn.
„Við erum mjög ánægðir með
að sjá, að það er búið að ákveða
að endurgreiða Atvinnuleysis-
tryggingarsjóði það, sem þaðan
fór í Atvinnutryggingarsjóð. Það
eru þó eftir atriði sem við erum
ósátt við, og þess vegna vildum
við fá að hugsa þessi mál svolítið
betur. Einnig eru gerðar veiga-
miklar breytingar á bráðabirðga-
lögunum, sem koma á óvart, þar
sem þær ganga lengra og eru
töluvert öðruvísi útfærðar en
Steingrímur Hermannsson lagði
til í samningaviðræðum stjómar
og stjómarandstöðu um helgina,"
sagði Júlíus.
Breytingar stjórn-
arinnartilbóta
Aðalheiður Bjamfreðsdóttir,
sem mikið hefur verið orðuð við
stuðning við bráðabirgðalögin,
sagði við Morgunblaðið að sér
finndist miklu máli skipta að At-
vinnuleysistryggingarsjóður fái
endurgreitt það sem frá honum
var tekið, en Aðalheiður á sæti í
stjóm Atvinnuleysistryggingar-
sjóðs.
\
Hún sagði að allar breytingart-
illögur ríkisstjómarinnar væru til
bóta, m.a. um að Atvinnutrygg-
ingarsjóður færðist inn í Byggða-
stofnun. Þá skipti miklu máli sú
breyting, sem gerð var á lögunum
í efri deild Alþingis, þegar tekið
var út ákvæði sem bannaði verk-
fóll. „Ég tel verkfallsréttinn
gmndvallarmannréttindi og þar
sem sá réttur er ekki fyrir hendi,
þar er fólk kúgað og beitt allskon-
ar órétti," sagði Aðalheiður.
Deilt um keisarans skegg
Borgaraflokkurinn stendur að
breytingum á ákvæði bráða-
birgðalaganna um frystingu
samningsréttarins, í neðri deild
ásamt Kvennalista og Sjálfstæðis-
flokki. Aðspurður um þetta sagði
Júlíus Sólnes að talið hefði verið
rétt að gera þetta, eins og í efri
deild, en í millitíðinni hefðu m.a.
komið fram yfirlýsingar frá for-
sætisráðherra um að hann myndi
beita sér fyrir því, að samninga-
viðræður milli aðila vinnumarkað-
ar hefjist strax eftir áramótin.
„Það þýðir í reynd að samninga-
viðræður heijast þá strax, og þá
fer þetta að verða deila um keisar-
ans skegg," sagði Júlíus Sólnes.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði um þetta að
ríkisstjómin hefði í hyggju að
óska eftir viðræðum við fulltrúa
verkalýðssambanda og vinnuveit-
enda um atvinnumálin og launa-
málin á breiðum grundvelli og
stuðla þannig að því að viðræður
geti þá hafíst á milli vinnuveit-
enda og launþega.
Þegar Steingrímur var spurður
hvort til greina kæmi að gefa alla
samninga lausa 15. febrúar, sagði
hann að setja yrði lög til að heim-
ila riftun samninga, og ólíklegt
væri að vinnuveitendur yrðu
hrifnir af því.
Júlíus Sólnes var að lokum
spurður hvort leggja mætti þann
skilning í afstöðu Borgaraflokks-
ins til bráðabirgðalaganna, að á
móti kæmi að ríkisstjómin tæki
upp viðræður við flokkinn um inn-
göngu í ríkisstjómina eftir ára-
mót. Morgunblaðinu er kunnugt
um að fulltrúar ríkisstjómarinnar
hafa orðað þennan möguleika við
fulltrúa Borgaraflokksins og einn-
ig við fulltrúa Kvennalistans á
viðræðufundum undanfarið.
Júlíus sagði alla sjá að ríkis-
stjómin gangi ekki svona áfram.
„Ég og fleiri emm þeirrar skoðun-
ar að annaðhvort rjúfí þessi stjóm
þing og efni til kosninga, eða hún
verði að íhuga það, hvort hún
getur myndað nýja stjóm með
þingmeirihluta. Við höfum ekki
fengið endanleg svör frá ríkis-
stjóminni í þeim efnum; hún verð-
ur að svara því til," sagði Júlíus
Sólnes.
N-Vestra
N-Eystra
Austurland
v- ' Sfe
Skýrsla útvarpsréttarnefiidar:
Hefiir veitt 80 leyfi frá upphafi
Um 80% landsmanna ná útvarpsstöðvum í einkaeign
Útvarpsréttarnefiid hefiir frá því hún tók til starfei 1. janúar 1986
veitt 80 aðilum leyfi til útvarps- og sjónvarpsreksturs. 13 aðilir
hafa fengið leyfi til útvarps og 6 til sjónvarps. Leyfi til skóla-
útvarps eru orðin 35 og leyfi til tækifeerisútvarps eru 26 talsins.
hefði einnig verið með miklum
ágætum þrátt fyrir að í hana hefðu
verið skipaðir fulltrúar stjómmála-
flokka, hver úr sinni áttinni.
Lúxusgreiðsla
Olafs Ragnars
eftir Guðmund
Magnússon
í Morgunblaðinu í dag, þriðju-
daginn 20. desember, segir að ríkis-
sjóður greiði hótelreikninga ráð-
herra, ráðuneytisstjóra og aðstoð-
armanna ráðherra auk dagpeninga
á ferðalögum erlendis. Aðrir ríkis-
starfsmenn verði að greiða hótel-
reikninga sína af dagpeningum
sem þeir fá. Sé þetta gert sam-
kvæmt ákvörðun ferðakostnaðar-
nefndar, en hún starfar á vegum
íjármálaráðherra.
Undirritaður, sem var aðstoðar-
maður menntamálaráðherra í tíð
fyrri ríkisstjómar, kannast ekki við
þessa reglu, þegar um aðstoðar-
menn ráðherra er að ræða. í eina
skiptið sem ég sá ástæðu til að
fara utan í opinberum erindum (á
þing Norðurlandaráðs 1988)
greiddi ég hótelreikninginn í Osló
af dagpeningum mínum. Mér var
sagt að þetta væri venja og þótti
ekki nema eðlilegt. Hinn hátturinn,
að tvíborga hótelkostnað, er í
mínum huga alveg fráleitur.
Frétt Morgunblaðsins kom mér
þess vegna á óvart. Hér hlýtur hinn
nýi fjármálaráðherra, sósíalistinn
Ólafur Ragnar Grímsson, að vera
að verki. Þó hefur hann talað hátt
Ólafúr Ragnar Grimsson
um það í fjölmiðlum að draga úr
risnu og ferðakostnaði ríkisins. Hin
nýja lúxusgreiðsla til aðstoðar-
manna ráðherra er ekki í samræmi
við þann málflutning. Því miður
virðist þetta enn eitt dæmið um
að orð og verk ráðherra Alþýðu-
bandalagsins fari ekki saman.
Höfundur var aðstoðarmaður
fyrrverandi menntamálaráð-
herra.
Þessar upplýsingar er að finna
í nýútkominni skýrslu útvarpsrétt-
amefndar um starfsemi nefmdar-
innar frá upphafi. Á blaðamanna-
fundi þar sem skýrslan var kynnt
sagði Kjartan Gunnarsson formað-
ur nefndarinnar að nú þegar þrjú
ár eru liðin frá gildistöku nýrra
útvarpslaga næðu 80% landsmanna
útvarpsstöðvum í einkaeign og
85-90% ná sjónvarpsstöðvum í
einkaeign.
í máli hans kom fram að á þessu
tímabili hafi nefndinni engar kærur
borist vegna brota á útvarpslögun-
um en nokkrar fyrirspumir og at-
hugasemdir hafa borist um ýmis
atriði eins og t.d. auglýsingar. í
skýrslunni er að finna eina slíka
fyrirspum frá Neytendasamtökun-
um. Kom sú fyrirspum í mars s.l.
og fjallaði um auglýsingar í miðjum
dagskrárliðum annarsvegar og
óbeinar auglýsingar hinsvegar.
Hvað einstök mál varðar hafa
nefndinni borist tvær umsóknir um
sjónvarpssendingar um þráð en
þær em óafgreiddar þar sem reglu-
gerð skortir frá Pósti og síma og
samgönguráðuneytinu um tilhögun
þessa. Sú reglugerð mun í smíðum.
Kjartan Gunnarsson nefndi einn-
ig að menntamálaráðherra er að
láta vinna að breytingum á núver-
andi útvarpslögum og er stefnt að
því að ljúka því verki á Alþingi
fyrir næsta vor.
Kjartan sagði að friður hefði
skapast um störf nefndarinnar
enda hefði hún gætt þess að setja
sér einfaldar reglur til að fara eft-
ir. Samstarf innan nefndarinnar
Áritað í
jólaösinni
Ýmsir rithöfúndar hafa áritað
bækur sínar í verslunum undan-
farið. Það virðist orðin allvinsæl
aðferð við sölu bóka að menn
hafi tækifæri til að kaupa áritað
eintak.
Þegar ljósmyndari Morgunblaðs-
ins átti leið í Kringluna í gær rakst
hann á einn af yngri höfundunum,
Ólaf Jóhann Ólafsson, þar sem hann
áritaði nýja skáldsögu sína og
smellti ljósmyndarinn af meðfylgj-
andi mynd úr jólaösinni.