Morgunblaðið - 17.03.1989, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 17.03.1989, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1989 t HANNA BRYNJÓLFSDÓTTIR Ijósmyndari, Skeiðarvogi 91, andaðist í Vífilsstaðaspítala að morgni miðvikudags 8. mars. Útförin hefur farið fram. Vandamenn. t Eiginkona mín og systir okkar, ARNDÍS STEFÁNSDÓTTIR, Stóragerði 38, andaðist í.Borgarspítalanum að morgni 15. mars. Sigurður Jónsson, Brynhildur Stefánsdóttir, Margrét Stefánsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir. t Maðurinn minn, BÁRÐUR MAGNÚSSON frá Steinum, Norðurgarði 13, Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 18. mars kl. 14.00. Bílferö verður frá BSf kl. 10.30 með viðkomu á Sel- fossi og Hvolsvelli. Anna Sigurgeirsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN GÍSLASON frá Snæfelli, Hveragerði, sem lést 13. mars verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju 18. mars kl. 14.00. Guðbjörg Kristjánsdóttir, Kristfn Kristjánsdóttir, Guðlaugur Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLMI HALLDÓRSSON , smiður, Bjarmastfg 6, Akureyri, sem lóst fimmtudaginn 9. mars veröur jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju föstudaginn 17. mars kl. 13.30. Dagbjört Pálmadóttir, Sverrir Pálmason, Elfnborg Pálmadóttir, Reynir Pálmason, Bernhard Linn, Oddný Friðriksdóttir, Jón G. Sveinsson, Aðalheiður Vagnsdóttir, Stefán Þór Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Unnusti minn, fósturfaðir, sonur og bróðir, SKARPHÉÐINN RÚNAR ÓLAFSSON, Bakkastfg 10, Bolungarvfk, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 18. mars kl. 14.00. Emelfa Þórðardóttir, Kristinn fsak Arnarson, Álfheiður Skarphóðinsdóttir, Ólafur E. Þórðarson, Þórður Jörgen Ólafsson, Björn Árni Ólafsson, Ástmar Ólafsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR GÍSLASON, frá Vesturholtum, Sólvallagötu 29, Keflavfk, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 18. mars kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hins látna vinsamlegast láti Landakots- spítala njóta þess. Guðmunda Ólafsdóttir, Sigurður Á. Magnússon, Gísli Grétar Ólafsson, Jónfna Ólafsdóttir, Svanhvft Ólafsdóttir, Panfko Panayiotou, barna og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför systur minnar, BJARGAR ÓLAFSDÓTTUR hjúkrunarkonu, Brávallaqötu 50. Fyrir hönd aðstandenda, Ingunn Ólafsdóttlr. Minning’: Bjarni Bjarnason Bolungarvík Hvað bindur vom hug við heimsins glaum Sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þó allir vaka. Og hryllir við dauðans dökkum straum, þó dauðinn oss megi ei saka. (E.Ben.) Bjami Bjamason varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Iðufelli 4 í Reykjavík, miðvikudaginn 8. mars. Bjarni fæddist á Grund í Skötu- firði 18. nóvember 1913. Hann var sonur hjónanna Bjama Helgasonar og Sigríðar Ólafsdóttur. Bjarni fað- ir hans dó úr spænsku veikinni 1918. Eftir lát manns síns fluttist Sigríður með Bjama og Guðrúnu tvíburasystur hans til Bolungarvík- ur, þá voru þau fimm ára gömul. Sigríður átti þrjár dætur af fyrra hjónabandi þær Jónu, Kristbjörgu og Önnu. í Bolungarvík ólst Bjami upp hjá móður sinni. Það hefur verið erfitt á þeim tíma fyrir fátæka ekkju að komast af með tvö börn á unga aldri. Því á þeim tímum vom engir styrkir. Það er í minnum höfð þrautseigja hennar við að ala upp bömin sín. Bjami gekk í bamaskólann í Bolungarvík. Á þeim árum voru bamaskólamir nær einu mennta- stofnanirnar í byggðum landsins. Skólinn í Bolungarvík var án efa í fremstu röð þeirra. Samhliða kennslu var í skólanum ýmiss menningarstarfsemi t.d. leiklist og margt fleira. Þarna í skólanum fékk Bjarni góða undirstöðumenntun enda var hann að eðlisfari vel greindur mað- ur, og fylgdist hann ávallt með málefnum líðandi stundar. Snemma mun Bjarni hafa farið að stunda vinnú er til féll, sem þama var þá aðallega sjósókn. Þetta var á fyrstu ámm vélbátaút- gerðar. Bátamir voru litlir og fyrstu árin varð að „setja" þá eftir hveija sjóferð vegna hafnleysis. Sjósóknin var því erfið, því Bolvíkingar hafa alltaf sótt sjóinn fast. En sem betur fer em nú allar aðstæður gjör- breyttar til hins betra. Smám saman eftir því sem hafnaraðstaðan batn- aði, stækkuðu menn bátana, og stunduðu jafnframt síldveiðar á þeim fyrir Norðurlandi á sumrin. Bjami var skipverji á þessum bát- um, bæði á vertíðum í Bolungarvík og á síldveiðum fyrir Norðurlandi. Þegar kom fram á stríðsárin og t menn fóm almennt að byggja, stundaði Bjami byggingavinnu heima í Bolungarvík. Hann var af sjálfum sér þjóðhagasmiður, ná- kvæmur og vandvirkur svo af bar. Hann hófst handa við að byggja sér + Eiginkona min, móðirokkar, stjúpmóðir, tengdamóðirog amma, ÞÓRDÍS EIRÍKSDÓTTIR, Grænugötu 10, Akureyri, sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 12. mars verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 20. mars kl. 13.30. Jón B. Rögnvaldsson, Ragnhildur Skjaldar, Kristfn Jónsdóttir, Gubjörn Garðarsson, Hrafnhildur Jónsdóttir, Kristjón Frederiksen og barnabörn. + Þökkum auðsýnda sámúð og vinarhug við andlát og jarðarför ÞÓRÐAR SIGURÐSSONAR, Hörgatúni 9, Garðabæ. Guö blessi ykkur öll. Elma Jónatansdóttir, börn, fósturbörn, tengdabörn og barnabarn. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, Hvassaleitl 22, Reykjavfk. Fyrir hönd aðstandenda, Matthfas Jónsson, Einar Gfslason, Halldóra Jóhannsdóttir, Ragnar Gíslason, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Jón Otti Gfslason, Berglind Eyjólfsdóttlr, barnbörn og barnabarnabarn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS INDRIÐA HALLDÓRSSONAR, Efstasundi 29, Reykjavfk. Geirný Tómasdóttir, Magnea Jónsdóttir, Sveinn Óskarsson, Elfnborg Jónsdóttir, Sigurður H. Jónsson, Ásthildur Jónsdóttir, Gunnar Lfkafrónsson, Hafdfs Jónsdóttir, Kari R. Guðfinnsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Þórhallur P. Halldórsson, Hafþór Jónsson, Lilja H. Halldórsdóttir, Jóna G. Jónsdóttir, Már Halldórsson, Dagfrfður Jónsdóttir, Árni Jóhannsson, Halldóra Jónsdóttir, Halldór Krístinsson, barnabörn og barnabarnabörn. og konu sinni og dóttur eigið íbúð- arhús. Er hann hafði rétt lokið því, varð hann að fara suður á Vífils- staði. Nokkru seinna varð Ásdís kona hans að fara sömu leið, einnig vegna veikinda. Eftir að Bjarni flutti suður átti hann ekki afturkvæmt til dvalar í Bolungarvík. Hann varð því að selja hús sitt fyrir vestan, fyrir lágt verð er var ekki sambærilegt við neitt hér fyrir sunnan. Þegar svolítið fór að rofa til með heilsuna, snerist allt um heimilið, að fjölskyldan gæti haldið saman og átt sitt eigið húsnæði þó ekki væri stórt til að byija með. Það var með eindæmum hvað þau hjónin voru samhuga og hagsýn í því að byggja sitt heimili upp að nýju. Bjami var Vestfirðingur af lífi og sál. Hann mun hafa saknað æskustöðvanna eftir að hann flutti suður. Hann minntist stundum hinna dæmigerðu lognmorgna á ísafjarðardjúpi og svo andstæð- umnar, haustbrimsins við Bolung- arvík. Í lífi manna skiptast á skin og skúrir. Eftir að Bjami losnaði af Vífilstöðum fór hann strax að vinna, á Múlalundi. Hann mun hafa kviðið því mest að þurfa að hætta vinnu en var svo lánsamur að geta stund- að sína vinnu til síðasta dags, þó að aldrei væri hann heill heilsu. Bjami Bjamason var mikill gæfumaður í sínu einkalífí. Eftirlif- andi kona hans er Ásdís Finn- bogadóttir frá Bolungarvík, fædd 18. desember 1915. Foreldrar henn- ar voru Sesselja Sturludóttir og Finnbogi Bemótusson í Bolung- arvík. Á síðastliðnu ári áttu þau Asdís og Bjami 50 ára hjúskaparafmæli. Ytri aðstæður, oftast veikindi, hafá verið þeim erfíð þessa hálfu öld. Hjónaband þeirra var farsælt og ástríkt byggt á gagnkvæmu trausti. Þau voru hjón er virtu hvort annað. Þau eignuðust eina dóttur Guðrúnu, fædda 1. ágúst 1940 og var hún sólargeislinn í lífi þeirra. Guðrún er gift Bimi Pálmasyni. Þau eiga tvö böm, Ásdísi fædda 1. desember 1963 og Bjarna fæddan 6. maí 1970. Þau hafa verið augasteinar afa síns og ömmu. Ásdís er nú í íslenskunámi við Háskólann en Bjarni í verklegu starfi og námi. Mesta gleði Bjama var barnlánið. Að sjá bömin vaxa úr grasi og gleðj- ast yfir árangri þeirra í námi og starfi. Bjarni var á 76. aldursári þegar hann lést. Hann veiktist á þrítugs- aldri og gekk aldrei heill tii skógar eftir það. En þrátt fyrir skugga veikindanna hélt hann alltaf sinni léttu lund. Eftir stendur minningin um glaðan, góðan, einlægan dreng sem þrátt fyrir allt leit björtum augum á lifíð og tilveruna. Við vinir og vandamenn og allar hans kæru tengdasystur og tengda- bróðir sendum honum hinstu kveðj- ur og þakkir. Minningin lifír. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (E.Ben.) Guðmundur Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.